Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Síða 2
2 Dy..Mip,VIftUDAGUR 18. JULl 1984., DNGá Akureyrí: Háþróuð rafeindatæki framieidd _ <*• með heimatilbúnum vélakosti . DNG sf. á Akureyri er þrátt fyrir ungan aldur komið í fremstu röð fyr- irtækja á landinu á sviði hönnunar og smíöi rafeindabúnaðar. Nú berst þetta fyrirtæki í bökkum og gæti horfiö úr landi af þeim sökum. Fær- eyingar hafa sýnt framleiðslu DNG mikinn áhuga og eru þrír menn þar úti við samninga sem gætu leitt til þess að stór hluti framleiðslunnar flyttist þangað. Bræðurnir Davíð og Níls og Gísli faðir þeirra stofnuðu DNG fyrir tveimur árum. I mörg ár hafa þeir verið þekktir nörðanlands fyrir hug- vitssemi og lagni sem mörgum hefur komið vel. Þeir stóöu þó ekki fyrir framleiðslu fyrr en færavindan kom til. 1 fjögur ár gerði annar bræðranna lítið annað en vinna að hönnun hennar, stuðningur var eng- inn. Otkoman var færavinda með rafeindabúnaði, mun fullkomnari en hliðstæðar vindur sem Norðmenn og Svíar framleiða. I stuttu máli er vindan svo fullkomin að hún veiðir sjálf. Það þarf ekkert annað að gera en beita önglana og taka fiskinn af. Fyrir ári var farið í framleiðslu á vindunni og hefur eftirspum veriö mun meiri en hægt hefur verið að svara. Út úr verksmiðjunni eru fam- ar 80 vindur, framleiðslugeta á dag er 2-3 stykki. Otflutningsmöguleikar eru taldir miklir og 1000 vindur á ári sagður ekki fráleitur möguleiki sem framleiðslumagn. Vindurnar eru nær algjörlega af- sprengi hyggjuvitsins sem ríkir hjá feðgunum og starfsmönnum þeirra hvað hönnun og smíði varðar. Mótor- inn í þær er meira að segja búinn til á Hér sést Snorri með hluta í mótor vindunnar og húsið utan um mótorinn. staðnum með ótrúlega einföldum tækjum sem líka vom búin þar til. Hringlaga borð þar sem raf eindabúnaðinum er raöað á plötu. Hann er uppfinning DNG og hefur þá sérstöðu meðal mótora að geta snú- ist í báðar áttir og að brenna ekki yfir þótt hann festist. Húsið utan um hann er úr áli en vegna þess hversu dýrt hefði verið að kaupa búnað til að móta álið var tæki til álsteypunnar smíðaö á staðnum. Þannig er á allan hátt reynt að finna ódýrar og heima- tilbúnar lausnir til aö lækka tilkostn- aðinn. Otkoman er sú að færavindan stenst fyllilega samkeppnina viö þær erlendu og verðið er 55 þúsund krón- ur. Þessa flóknasta rafeindatækis, sem fjöldaframleitt er hér á landi, bíða nú ef til vill þau örlög að þurfa að skipta um framleiðsluland. Ástæðan: Það vantar smávægilega aöstoð við að komast yfir skuldir sem urðu til á löngum þróunartíma tækisins. Þótt færavindan sé langviðamesta tækið sem DNG framleiðir þá hefur iíka farið mikill tími í að þróa ýmiss konar annan búnað og fjöldamargar hugmyndir eru í gangi. Fyrir um ári byrjaði framleiðsla á aflstýri sem er algjörlega hannað og smiðað hjá fyr- irtækinu. Þetta tæki er fyrir þá sem kaupa ákveðið magn af rafmagni frá rafveitum. Það jafnar út notkunina og tekur út álagstoppa. Fyrir venju- legan sveitabæ til dæmis kostar það 25-30 þúsund og er talið borga sig á einu til tveimur árum. Hitavakt kallast nýtt tæki sem einnig er að öllu leyti hannað og smíðað hjá DNG. Með því er hægt að fylgjast með hita, til dæmis í hey- hlöðum eða mjölskemmum. Ef hiti frá einhverjum 12 hitaskynjaranna sem hægt er að tengja við tækið, fer yfir hættumörk byrjar það að væla og líka tæki sem eftirlitsmaður getur haft hjá sér. Þar á milli eru ekki leiðslur heldur er rafkerfið notað til að senda merki. Svona tæki kostar 10 þúsund krónur og var verið að setja það fyrsta upp fyrir nokkrum dög- nm Þegar liggja fyrir um 100 pant- anir og innanlandsþörfin ein er met- in á milli 500 og 1000 tæki á ári. Að sjálfsögðu fer hljótt um það sem DNG-menn eru að finna upp þessa dagana. Þó hefur heyrst um tæki sem verið er að þróa fyrir hita- veitur. Með því á að verða auðveld- ara að verðleggja heitt vatn til not- enda og komast hjá óréttlátri gjald- heimtu vegna mismunandi hitastigs á vatninu. Slíkt tæki er einnig talið geta haft mikinn spamað í för með sér fyrir hitaveitur. JBH/Akureyri Snorri Hansson, verkstjóri DNG: „Algjörir snill- ingar í hönnun rafeindatækja” „Þetta eru algjörir snillingar í hönnun rafeindatækja. Mennimir em afskaplega frjóir og málin koma fram mjög skýrt alveg í byrjun,” sagði Snorri Hansson, verkstjóri DNG, um hönnuöina í fyrirtækinu. Hann er einn þeirra starfsmanna sem ritaöi Atvinnumálanefndinni á Akureyri bréf á dögunum þar sem eindregiö var farið fram á aö fjár- hagsvandi DNG yrði leystur. Snorri sagði að skuldir DNG væm nú taldar milli 6 og 7 milljónir króna. Eðlilegt væri talið að hvert nýtt starf í iðnaði kostaði 1 milljón og þetta væri langt innan við, því að 20 manns ynnu nú hjá DNG. Fyrirtækið hefði verið stofnað fyrir aðeins tveimur árum og framleiðslutíminn væri ekki orðinn nógu langur til að borga hönn- unarkostnað. Kostnað við að hanna færavinduna taldi Snorri ótrúlega lágan. Ástæðan væri einfaldlega afburöahæfileikar hönnuðanna. ,,Hún hefði átt að kosta svo tugum milljóna skiptir í hönn- un,” sagði hann. „Samt er hún orðin til.” JBH/Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.