Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Page 6
.(•3QÍ ÍJU(. .81 HUOAdUJiiVGIM .VG DV. MIÐVIKUDAGUR18. JULI1984. T 6 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Tilraunaeldhús DV Vorrúllur, fylltar pönnukökur, nautatunga Tilraunir dagsins má segja aö séu þrír smáréttir. I fyrsta lagi eru það vorrúllurnar sem sagt er aö séu frá Kínverjum komnar upphaflega. Við höfum heyrt aö þessi réttur hafi á árum áöur verið áramótaréttur, en þar í landi eru áramótin í febrúar. Þá var mikiö matartilstand, eins og víst alls staðar, og vorrúllumar með nýju grænmeti ómissandi réttur. I Austurlöndum eru vorrúllumar snæddar sem forréttur. Nú eru rúllurnar matreiddar á götum úti þar austur frá líkt og „ein meö öllu” pylsurnar hér. Hér á landi eru vorrúllur orönar mjög vinsæl- ar, þær em matreiddar á nokkrum veitingahúsum og einnig er hægt aö kaupa þær frosnar í matvöruverslunum. Þaö má benda á aö vorrúllur tilraunaeld- hússins má frysta meö fyllingunni (ósteiktar). Fylltu pönnukökurnar era dálít- iö frábragðnar þessum venjulegu með þeyttum rjóma og ávaxta- mauki. Þessar er hægt aö bera fram sem kaffibrauð eða sérstak- an heitan rétt. Og þá er það nautatunga. Hún er afbragösrétt- ur ein og sér, en einnig ásamt fleiri réttum á hlaðborði. Yfirskrift tilrauna dagsins er því sitthvað smátt úr ýmsum átt- um. -ÞG Vorrúllur bornar fram með hrísgrjónum, soju og hrásalati í guðs grænni náttúrunni. VORRULLUR Vorrúllur 4 dl hveiti 1/2 tesk. salt 11/2 dl vatn Fylling 1— 2 matsk. olía 250 g lamba-, svína-, kálfa- eða nautahakk 100—150 g sveppir 200 g rækjur 180 g kínakál 1/2 paprika 1/2 búntsteinselja 2 stilkar seUeri 100 g baunaspírur 2 matsk. maizenamjöl 2— 3 matsk. kínversk soja salt og pipar 1 matsk. kinverskt hrísgrjónavín, sérri eða edik Verklýsing 1. Blandið saman hveiti og salti, vætið í með vatni, hnoðið saman og látiö deigið bíða á köldum stað. 2. Hitið oliuna í potti (djúp- steikingarpotti ef til er). 3. Saxið sveppina og rækjumar og setjiö á pönnuna, einnig hakkið, og brúnið. Takið af pönnunni. 4. Hreinsiðgrænmetiöogsaxið. 5. Bætið olíu á pönnuna og léttsteikið grænmetið, bætið kjötinu, sveppunum og rækjunum út í. 6. Stráið maizenamjölinu yfir, hrærið saman við. Bragðbætið með salti, pipar, kínasoju, örlitlu ediki (sérríi eða hrísgrjónavíni ef til er). Látið fyllinguna bíða meðan deigið er flatt út. 7. Fletjið deigið þunnt út. Athugið að hnoða ekki mikið því þá verður deigið seigt. Skerið deigið í 10—12 ferninga. 8. Setjið fyllinguna á femingana og lokiðþeim. 9. Steikið í heitri olíunni, færið siðan rúllurnar upp úr olíunni á smjör- pappír sem drekkur í sig olíu. Vorrúliurnar eru bomar fram með hrísgr jónum, kínasoju og ef viU salati. Vinnutími er ca 1 klukkustund. Hráefniskostnaður 208 krónur. -ÞG « « ú r, a I Zf ® * « ***ÍUm*: %* a ú4*i* rrí* * 4 Pönnukökur, fylltar með nautahakki og grænmeti, og síðan bakaðar stutta stund í ofni, rifnum ostl stráð yfir áður. Pönnukökur m/fyllingu Fylltar pönnukökur 3 dl hveiti 2egg 1/2 tesk.salt 2 1/2 dl kaffirjómi 11/2 dl pUsner 3 matsk. smjörliki Verklýsing 1. Blandið saman hveiti og saiti í skál. 2. Hrærið út í kaffirjóma, pilsner og eggjum. 3. Bræðið smjörUkið á pönnuköku- pönnunni og helhð því út í sopp- una. 4. Steikið ca 12 stk. af frekar þykkum pönnukökum. Fylling 1 stór laukur, saxaður 250 g hakkað nautakjöt 1 lítil paprika, söxuð 2—4 stönglar seUerí 2 matsk. oUa 1 dl tómatkraftur 1 tesk. salt 1/2 tesk. paprika 1/4 tesk. pipar örlítið timian og merian Verklýsing 1. Hreinsiðogsaxiðalltgrænmetið. 2. Steikiö kjötið og grænmetiö í olí- unni. Hrærið vel í. Lækkið hitann niöur og bætið í tómatkraftinum og kryddinu. Látið maUa við vægan hita í ca 10—15 mínútur. Bætið ef til viU k jötkrafti út í. 3. Skiptið fylUngunni á pönnu- kökumar og rúUið þeim upp. Setj- ið í smurt eldfast mót og hitið þær í nokkrar mínútur í 200°C heitum ofni. Gott er að strá rifnum osti yfir. Vinnutími ca 1 kluKkustund. Hráefniskostnaður 150 krónur. -ÞG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.