Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Blaðsíða 19
DV. MIÐVIKUDAGUR18. JULÍ1984. 19 Fríða Halldórsdóttir, fyrrverandi tslandsmeistari, ók af miklu öryggi i gegnum brautina og náði besta árangri í kvennariðli í sumar. Ökuleiknin í Kópavogi: METIÐIKVENNA- RK>U SLEGIÐ Nítjánda keppni Bindindisfélags ökumanna og DV í ökuleikni var haldin í Kópavogi fimmtudaginn 12. júlí sl. Keppendur voru 10 talsins og keppti þar sem gestur í kvennariðli sigur- vegarinn í Reykjavik, Kristín Bima Garðarsdóttir. Hún bætti fyrri árangur sinn um 29 refsistig og er því nú meðal 5 efstu keppenda í kvennariðli. Sigurvegari í kvennariðli var hins vegar fyrrverandi lslandsmeistari, Fríða Halldórsdóttir. Hún keppti á Autobianchi og náði frábærum árangri, fékk aðeins 133 refsistig. Hún bætti met Auðar Yngvadóttur frá Isa- firði, sem nú er Islandsmeistari, um 2 refsistig. Fríða er því efst yfir landið í kvennariðli og munu þær stöllur eflaust keppa um efstu sætin í kvenna- riðli í úrslitunum í haust. Þær geta hvorugar unnið utanlandsferðina í kvennariöli, þar sem þær hafa báðar unnið sh'ka ferð áður. Þær geta einungis keppt um Islandsmeistara- titilinn. Kristín Birna Garðarsdóttir varð önnur í Kópavogi, en þar sem hún keppti sem gestur, gat hún ekki unnið til verðlauna og fór því silfrið til Lindu Dísar Guðbergsdóttur. Hún fékk 291 refsistig. Hún keppti á Porsche 911E. 1 karlariðli sigraði Arni Oli Friðriks- son á Suzuki með 136 refsistig. Hann er nú meðal 10 efstu keppenda yfir landið í karlariðli, nánar tiltekiö í 9. sæti. Arni er fyrrverandi Islandsmeistari og Noröurlandameistari i ökuleikni. I öðru sæti varð núverandi Islands- meistari í ökuleikni i karlariðli. Það varð Jón S. Halldórsson á Porsche 911 E. Jón fékk 149 refsistig. 1 þriðja sæti varð Halldór Sigþórsson á Saab 900. Hann f ékk 150 refsistig, eöa aðeins einu refsistigi lakari árangur en sjálfur Islandsmeistarinn. I keppninni í Kópa- vogi voru 17 keppendur skráðir til leiks, en aöeins mættu 10 keppendur eins og fyrr var getið. Gefandi verð- launa í báðum riðlum í Kópavogi var Smurstöðin íStórahjalla í KópavogL -EG. ITT Ideal Color 3304, -fjárfesting í gæöum á stórlækkuöu veröi. Vegna sérsamninga viö ITT verksmiðjurnar í Vestur Þýskalandi, hefur okkur tekist aö fá takmarkað magn af 20" stórlækkuðu verði. SKIPHOLTI 7 • SÍMAR 20080 & 26800 SAMRÖÐUN HEFTING BROT SKURÐUR LÍMING FRÁGANGUR STEMSILL NÓATÚN! 17 SÍMI 24250 ÞAÐ ERU AÐ MINNSTA KOSTITVEIR HLUTIR ÓMISSANDI FYRIR ÞIG Á FERÐALÖGUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.