Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Síða 21
DV. MIÐVIKUDAGUR18. JtJL! 1984.
21
óttir • íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Sigurður Pálsson, Þórsari, sést hér skora jöfnunannark Þórs i leiknum gegn KR i gærkvöldi. Á litlu myndinni tO vinstri er knötturinn á leið i KR-markið án þess
að Stefán markvörður komi við vörnum. Og á myndinni litlu til hægri mótmælir Stefán. Taldi Sigurð rangstæðan þegar hann fékk knöttinn.
DV-mynd Brynjar Gauti Sveinsson.
„VERÐUM EKKIBIKARMEIST-
ARAR MEÐ SVONA LEIK”
sagði Hólmbert Friðjónsson, þjálfari KR, eftir að KR vann Þór 2:1 íbikamum
„Ég er mjög óhress með leik
minna manna. Það var litil knatt-
spyrna í þessum leik og við verðum
ekld bikarmeistarar með svona leik,”
sagði Hólmbert Friðjónsson, þjálfari
KR-inga i knattspymu, eftir að KR
INN RÆTAST!
Draumaferð
ungra knatt-
spyrnumanna.
Aldur 8 til
16 ára.
Skólinn
er frá
20. til
27. ágúst.
AUSTURSTRÆT117. SÍMI26611.
hafði sigrað Þór frá Akureyri 2:1 i leik
liðanna i 8-liða úrslitum bikarkeppni
KSt í gærkvöldi. KR-ingar léku þama
sinn fyrsta helmaleik á grasvelllnum
við Kaplaskjólsveg að viðstöddum um
300 áhorfendum.
Leikurinn var ákaflega illa leikinn
af beggja hálfu og lítið sem ekkert sem
gladdi augað. Mjög mikil harka ein-
kenndi leikinn og dómari hans, Gísli
Guðmundsson, sýndi fimm leik-
mönnum gul spjöld.
KR-ingar náðu forystunni á 27.
mínútu. Gunnar Gíslason gaf þá mjög
góða sendingu á Björn Rafnsson sem
skaut föstu skoti sem markvörður
Þórs, Benedikt Jónasson réð ekki við.
Þórsarar jöfnuðu síðan metin rétt fyrir
leikhlé og var Sigurður Pálsson þar að
verki. Sigurður fékk knöttinn rétt
innan vitateigs KR-inga og skot hans
hafnaöi i stönginni og þaðan fór knött-
urinn i netið. Staðan í leikhléi var því
1:1.
Síöari hálfleikur var svipaður þeim
fyrri. Lítið reynt að spila og mikiö um
kýlingar. Nánast engin marktækifæri
og barátta leikmanna í fyrirrúmi.
Þegar venjulegum leiktíma var lokið
var staðan enn jöfn og þurfti því að
framlengja leikinn. Ekkert mark var
skorað í fyrri hluta framlengingar-
innar en þegar sex mínútur voru til
vitaspymukeppni tókst KR-ingum að
skora sigurmarkið. Góð fyrirgjöf kom
fyrir mark Þórsara og Gunnar Gísla-
son var á réttum stað og skallaði
óverjandi í markið. Með þessum sigri
tryggðu KR-ingar sér rétt til að leika í
f jögra liða úrslitunum en Þórsarar eru
úrleik.
Gísli Guömundsson dæmdi leikinn.
Mjög erfitt var að dæma hann en Gísli
komst vel frá sínu starfi. Hann veifaði
gula spjaldinu fimm sinnum í leiknum.
Þeir sem fengu gul spjöld voru: Sæ-
bjöm Guðmundsson og Jakob Péturs-
son, KR, og Þórsararnir Nói Bjöms-
son, Guðjón Guðmundsson og Einar
Arason. -SK.
Ottó
brot-
Ottó Guðmundsson, fyrirliði KR,
varð fyrir því óhappi í leik KR og Þórs
í gærkvöld að lenda í slæmu samstuði
við einn norðanmanna. Varð að flytja
Ottó á slysavarðstofuna og óttaðist
læknir sem á vellinum var í gærkvöldi
að hann hefði brotnað, að sprunga
Ottó Guðmundsson, fyrirliði KR-lnga.
hefði komlð i sköflung. Ef satt reynist
erþaðmikiðáfallfyrir KR-inga. -SK.
SÍMUM 27195 OG 26611
þróttir
Einar nú í
sjötta sæti
— á afrekaskránni
íspjótkastiíár
Einar Vilhjálmsson er nú i sjötta sæti hvað
besta árangrlnum í spjótkasti i helmlnum í ár
viðkemur. Tveir Austur-Þjóðverjar, sem ekki
keppa á ólympíuleikunum i Los Angeles, tveir
Bandarikjamenn og einn Finni hafa kastað
lengra. Bestu afrekin eru.
99.52 — Uwe Hohn, A-Þýskal.
93,68 — Tom Petranoff, USA
93,44 — Detlef Michel, AÞ
93,43 — Duncan Atwood, USA
92,42 — Raimo Manninen, Finnl.
92,40 — Elnar Vilhjálmssen
90,66—Rod Ewaliko, USA
90,10 — Klaus Tafelmeier, VÞ
90,06 — Gerald Welss, AÞ
-hsim.
ítalinn varpaði
21,50 m
Alessandro Andrei setti nýtt italskt met i
kúluvarpi á ítalska meistaramótinu sem háð
var á ólympíuleikvanginum i Róm i síðustu
viku. Andrei varpaði 21,50 metra, sem er
tiundi besti árangurinn i kúluvarpi á þessu
ári. Þá hljóp heimsmethafinn í 200 m hlaupi,
Pietro Mennea, 200 m á 20,35 sek. Það er besti
timi Evrópumanns i ár. Mennea varð
ólympíumeistari i Moskvu 1980. Besti árangur
i kúluvarpi i ár er þannig.
22,19 — Brian Oldfield, USA
22,04 — Udo Beyer, AÞ
21,92 — John Brenner, USA
21,76 — Mike Carter, USA
21,73 — AugieWolf, USA
21,67 — Janis Bojars, Sovét
21,60 — Dave Laut, USA
21.52 — Uif Timmermann, AÞ
21,50 — A. Andrei, ltaliu
Borg steinlá
Sænski tennisleikarinn frægi, Björn Borg,
fékk heldur betur slæma útreið þegar hann tók
þátt i Grand Prix tennismótinu i Stuttgart i
gær. Lék við Frakkann Henri Leconte og
tapaði í tveimur lotum, sem aðeins tóku 49
mínútur. 6—3 og 6—1. Þetta er fyrsta keppni
Bjöms á móti i 16 mánuði og það var elnmitt
þessi sami Frakki, Leconte, sem sigraði hann
í siðasta leiknum sem Björn lék áður en hann
tilkynnti að hann væri bættur keppni.
Bjöm var eins i útliti og þegar hann var upp
á sitt besta sem besti tennisleikari heims en öll
tilþrif vantaði. Enginn neisti. Hann fór i þetta
mót í Stuttgart „til að vita hvar ég stend nú”
og svarið var ákaflega neikvætt. 1 opna Monte
Carlo mótinu fyrir 16 mánuðum sigraði
LeconteBjöm4—6,7—5og7—6. -hsim.
Auðveldur sigur
Ovett í1500 m
Enski stórhlauparinn Steve Ovett sigraði
auðveldlega í 1500 m hlaupi á stórmóti í frjáls-
um íþróttum í Edinborg i gærkvöldi. Geysi-
góður endasprettur heimsmethafans á vega-
lengdinni en timinn var ekkert sérstakur,
3:36,90 min. Colin Reitz varð annar á 3:38,86
mín. Mikla athygli vakti að heimsmeistarinn,
Steve Cram, tapaði öðra sinni á 5 dögum i 1000
m hlaupi. Graham Williamson sigraði á
2:16,82 min., Cram varð annar á 2:17,58, rétt á
undan Bandarikjamanninum James Mays,
sem hljóp á 2:17,67 min.
Ólympiumeistarlnn skoski, Alian Wells,
sigraði i 100 m hlaupi á 10,18 sek. Martin
Krules, USA, annar á 10,37 sek., svo greinflegt
er að Weils kemur til að keppa að verðlaunum
í Los Angeles. Mike Paul, Trinidad, sigraði í
400 m á 46,06 sek., Duane Evans, USA, í 200 m
á 20,56 en Wefls varð annar á 20,58 sek. hsím.
8íleikbann
Enginn leikmaður úr 1. og 2. deild vora
dæmdir i leikbann á fundi aganefndar KSI i
gær. Skýrsla um mál Guðm. Torfasonar,
Fram, sem rekinn var af velli á sunnudag,
barst þegar fundi var lokið. Átta leikmenn úr
3. og 4. deild voru dæmdir i eins lelks bann.
Elís Viglundsson, HV, Guðmundur Mariusson,
Víkverja, Guðmundur Kristjánsson, Víkingi,
Ólafsvik, Hflmar Áraason, Fylki, Valur
Sigurðsson, Njarðvik, Ólafur Ragnarsson,
Hveragerði og Vignlr Garðarsscn, Hrafnkeli.
-hsim.' 'immm