Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Page 31
DV. MIÐVIKUDAGUR18. JULI1984.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Sighvatur smyglari?
Kratar smygla
Fjölmiðlar hafa að undan-
íörnu sýnt forystuvandræð-
um krata töluverðan áhuga
og hefur Þjóðviljinn ekki látið
sitt eftlr liggja. Enda mun
vera einhver samgangur á
milll vissra krata og vissra
ritstjóra þar á blaði. Nóg um
það. Þegar Sighvatur Björg-
vinsson lét að þvi liggja í hinu
frjálsa og óháða dagblaði
landsmanna skutu kratar
saman fundi og ortu aUir sem
einn:
Andófsmennirnir austan
tjalds
ákaUa frelsið og góðvUjann
meðan Sighvatur sér tU halds
smyglar fréttum í ÞjóðvUj-
ann.
Hundur í Hong
Kong
Flugleiðir gefa út tímarit
sem nefnist „Við sem fljúg-
um” og er þvi dreift í aUar
flugvélar félagsins og stað-
sett við hUðina á œlukoppn-
um. Kennir þar ýmlssa
grasa, þ.e.a.s. í timaritinu,
auglýsingar, fræðandi grein-
ar og lífsreynslusögur ferða-
langa. t siðasta tölublaðl er
sagt frá hjónum sem flugu tU
Hong Kong og tóku hund sinn
með þvi þelm þótti svo ofur-
vænt um hann. t Hong Kong
fór ÖU fjölskyldan á veitinga-
hús en þar sem hvorki hjónln
né hundurinn skUdu kín-
versku urðu þau að ræða við
þjóninn með handapati.
Tókst þeim að koma þjónin-
um í skilning um að þau ætl-
uðu að fá eitthvað að borða og
bentu svo á hundlnn þannig
að hann fengl eitthvað líka.
Þjónninn lét sér þetta vel
líka, klappaði hundinum, tók
hann upp og saman fóru þeir
vinlrnir inn i eldhús. Hjónin
héldu að hundurinn fengi að
borða í eldhúslnu þangað tU
þjónninn birtist með skepn-
una heUstelkta á fatl og lagði
fyrir þau. Þjóninum tU mlkUl-
ar furðu brutu íslensku ferða-
langamir aUt og bröjnluðu
inniiveitingahúsinu.
Það er ekki aUtaf gaman að
græða, jafnvel þótt gróðinn sé
mikUl. Það hefur Stúdenta-
leikhúsið fengið að sannreyna
að undanförau því að um
þessar mundlr sýnir það leik-
rltið Láttu ekki deigan siga,
Guðmundur vlð þvílíka að-
sókn að færri komast að en
vUja og peningarair flæða í
kassann þannig að við liggur
að hann springi. Hjá
Stúdentaleikhúslnu hafa
menn vanist því að sýna leik-
rit með tapi, greiða ekkl laun
og þar af leiðandi ekki þurft
að hafa áhyggjur af aurum.
En nú er aUt orðið vitlaust,
aUir vUja hlut í gróðanum og
englnn veit hveraig skipta á.
Lita sumir með söknuði tU
þeirra tíma þegar enginn
kom i lelkhúsið og engin
vandræðl spunnust út af pen-
ingum.
Eru nú uppi ráðagerðlr um
að sýna næst leikrlt sem
öruggt er að stórtap verði á
tU að leysa vandann.
Bjórinn búinn
Þessl klausa er úr Víkur-
fréttum i Keflavík: „íslensk-
ir starfsmenn á Keflavíkur-
flugveUi blóta nýjum yfir-
manni hersins i sand og ösku
þessa dagaua. Astæðan fyrir
þvi er ákvörðun hans að taka
aUar bjórvélar eins og þær
leggja sig úr „blokkunum”
vegna ásóknar Islendinganna
imjöðinn.
Starfsmenn hersins hafa
ekki haft við að fylla vélaraar
og að því er heimUdir herma
þá mun yfirmaðurinn hafa
komist að því að það væru
ekki varaarUðsmenn sem
keyptu bjórinn heldur ts-
lendingaralr.”
Skrýtið skóla-
hald
Vlð sögðum frá þvi hér á
dögunum að i skólanum i
Gufudal væru aðeins 4 nem-
endur og spUakvöldin á
fimmtudögum helsta upplyft-
ingln — gott ef ekki bridge.
Nú herma nýjustu fréttir að
verið sé að byggja nýjan
skóla i Gufudal og það þrátt
fyrir að nemendurnir séu að-
etns orðnir 2. Elnnig mun
vera i smiðum ibúð fyrir
skólastjóra. Sögunni fylgir að
á Reykhólum sé þessi lika
fina heimavist en þangað eru
aðeins um 20 kUómetrar úr
Gufudal.
Við seljum þetta ekki dýr-
ara en við keyptum og það er
langt frá fréttaskotaverði.
Umsjón: Eiríkur Jónsson.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Háskólabíó —
48stundir:
Karl-
remba
Hóskólabió.
48 hours/48 stundir.
Leikstjóri: Waltor Hill.
Aöalhlutvork: Nlck Nolto, Eddio Murphy.
Þetta er myndin, strákar. Hraði,
spenna, læti, ofbeldi, blóð, léttur
húmor, andliti Nick Nolte breytt í
hamborgara af Eddie Murphy, skot-
glaðir bófar sem freta á allt sem
hreyfist, „mano a mano” tungumál-
ið óspart notað. Það er gaman að
vera karlremba á svona mynd.
Walter HUl keyrir þessa mynd í
gegn af álika krafti og persónur
hennar keyra byssukúlurnar í hvor
aðra, aldrei dauður punktur og
Murphy fer á kostum sem harðsoð-
inn, svartur nagU sem gefur skít í
aUt nema eigið sjálfstraust. Nolte
hefur útlitið sem er nóg tU að fleyta
honum í gegnum 48 stundimar á
sómasamlegan hátt.
Nick Nolte leikur hér Jack,
sjúskaðan lögreglumann sem á í
vandræðum með viðhaldið. Hann
lendir í því að sjá tvo bófa skjóta
' v
samstarfsmann sinn meö hans eigin
byssu en bófarnir, annar þeirra flú-
inn úr fangelsi meö hjálp hins, eru á
höttunum eftir peningum sem rænt
var þremur árum áður. Jack ákveð-
ur aö taka einn að sér aö hafa uppi á
bófunum en til þess fær hann aöstoð
fanga sem var með bófunum í gengi í
„den tid”. Sá heitir Hammond
(Murphy) og gengur samstarf þeirra
fremur skrykkjótt framan af þar
sem Hammond hefur mestan áhuga
á aö ná sér í drátt enda búinn að sitja
inni í tvö og hálft ár. Samstarfið
lagast eftir því sem á líður og saman
halda þeir inn í Kínahverfið í San
Fransico til lokauppgjörs við bófana.
Myndir Walter Hill hafa hingað til
einkum fjallað um karlmennsku-
imyndina í fjölbreyttum útgáfum.
Eftir hann liggja myndir á borð við
Driver, The Long Riders og Southern
Comfort þar sem komið er inn á
þettá svið á einn eða annan hátt
svipað og gerist í 48 stundir.
I 48 stundir fær áhorfandinn eigin-
lega aldrei að ná andanum frá upp-
hafi til enda. Hill heldur honum
stööugt við efnið, ef ekki með látum
þá með hörkulegu orðbragði aðalper-
sónanna. Ég held ég hafi aldrei heyrt
orðið „fuck” notað jafnoft í neinni
kvikmynd í þessum gæðaflokki en
þrátt fyrir það verður enginn svikinn
af því að berja myndina augum.
Bara leikur Murphys er þess virði
eins og til dæmis senan er hann tekur
einhvern kántrístað, þar sem
negrar eru litnir sömu augum og í
Jóhannesarborg og snýr honum við
með aðra höndina í rassvasanum.
-FRI.
Það var rólegtum að litast við Ölfusá um helgina og laxinn tregur. En menn lifa í
voninni. DV-mynd: G. Bender.
Laxá í Aðaldal:
Veiðst hafa
525 laxar
— Fréttirvíða...
„Fór inn eftir að kíkjaá laugardag
og veiddi 3 laxa á smátima í Vatnsá,
5, 8 og 10 punda. Daginn eftir veiddist
einn lax og svo i gær fékkst enginn, svo
það eru komnir 4 laxar,” sagði Þórir
N. Kjartansson, formaður stangaveiði-
félagsins Stakks í Vík í Mýrdal, en þeir
hafa Kerlingadalsá og Vatnsá á leigu.
Vatnsáin er tær og margir skemmti-
legir veiöistaðir í henni, en Kerlinga-
dalsá er eins og súkkulaði og fáir veiði-
staðir í henni.
Ur Tungufljóti eru heldur litlar frétt-
ir og hefur enginn lax fengist ennþá.
Eitthvaö hefur veiðst af bleikju en hún
erfrekarsmá.
Fjarðarhomsá í Kollafirði hefur gef-
ið lax og eitthvað er farið að sjást af
bleikju. Fengust á sunnudaginn 9
bleikjur fyrir neðan brú. Af Móru á
Baröaströnd eru heldur litlar fréttir en
eitthvað hefur veiðst af laxi þar.
I Eyjafjarðará hefur verið góð
bleikjuveiði og eru bleikjumar frá 2-4
punda. Einn lax hefur veiöst. Anni er
skipt í f jögur svæði og em tvær stangir
á hver ju svæði, stöngin kostar 580 kr. I
Hörgá hefur verið þokkaleg bleikju-
veiði líka og veiðst vænar. Enginn lax
hefurveiðstennþá.
Laxá í Aöaldal er komin í 525 laxa og
sagði veiðimaður einn, sem renndi þar
nýlega, að töluverður lax væri í ánni.
En áin hefur veriö með hátt hitastig og
getur það haft sitt að segja. En veiði-
menn við Laxá era öllu hressari en síð-
ustu sumur og fá fleiri kippi núna. Það
var núkominn tími til.
Að sögn veiðimanna, sem við hittum
við ölfusá um helgina, hefur veiðin
verið heldur treg og hafa kannski
veiðst um 30 laxar. Einn og einn lax
sáat koma upp til að láta vita að þeir
væra á svæðinu. Aðalbeitan hjá veiði-
mönnunum var maðkur og ýmsar túp-
ur. G. Bender.