Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1984, Page 39
DV. MIÐVIKJJDAGUR,18. JtJLl W-.
39
Útvarp
Miðvikudagur
18. júlí
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Dan Fogelberg, Barron
Knights og Los Paraguayos
syngja og ieika.
14.00 „Myndir daganna”, minnlngar
séra Sveins Víkings. Sigríður
Schiöthles (14).
14.30 Miðdegistónleikar. Gary
Graffman leikur á píanó
„Paganini etýður” eftir Franz
Liszt.
14.45 Popphólfið JónGústafsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn. Guðrún Ás-
mundsdóttir segir börnunum sögu.
(Aður útv. í nóv. 1983).
20.00 Var og verður. Um íþróttir, úti-
líf o.fl. fyrir hressa krakka. Stjórn-
andi: Matthías Matthíasson.
20.40 Kvöldvaka. Þorskhausarnir og
þjóðin. Guðríður Ragnarsdóttir les
grein eftir Guðmund Finnbogason.
21.10 „Dichterliebe” op. 48 eftir
Robert Schumann. Axel Schiitz
syngur. Gerald Moore leikur á
pianó.
21.40 Útvarpssagan: „Vindur, vind-
ur vinur minn” eftir Guðlaug Ara-
son. Höfundur les (4).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Aidarsiagur. Utanþingsstjóm;
þriðji og síðasti hluti. Umsjón:
Eggert Þór Bemharðsson. Lesari
með honum: Þórunn Valdimars-
dóttir.
23.15 Islensk tónUst.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Rás 2
14.00—15.00 Ut um hvippinn og
hvappinn. Leikin létt lög úr hinum
ýmsu áttum. Stjórnandi: Inger
Anna Aikman.
15.00—16.00 Ótroðnar slóðir. Kristi-
leg popptónlist. Stjómendur:
Andri Már Ingólfsson og Halldór
Lárusson.
16.00—17.00 Nálaraugað. Gömul úr-
valslög. Stjórnandi: Jónatan
Garðarsson.
17.00—18.00 Tanað fundið. Leikin
verður létt soul-tónlist. Stjómandi:
Gunnlaugur Sigfússon.
Sjónvarp
Miðvikudagur
18.JÚIÍ
19.35 Söguhornið. Guðrún Guðlaugs-
dóttir segir ævintýrið um Apann
og krókódUinn. Myndir em eftir
Þiðrik Emilsson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáU.
20.00 Fréttirogveður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Friðdómarinn. (The Irish
R.M.) Nýr flokkur. Breskur
framhaldsmyndaflokkur í sex
þáttum byggður á sögum eftir
Sommerville & Ross. Aöalhlut-
verk: Peter Bowles og Bryan
Murray. Haustið 1895 er Sinclair
Yeats majór skipaður friðdómari
á Vestur-Irlandi. Þar kynnist hann
strax þeim mikla mun sem er á
hugsunarhætti Ira og Englendinga.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.25 Ur safni Sjónvarpsins. Skrafað
við skáldið. Gripið niöur í viðtals-
þætti við Halldór Laxness, sem
Sjónvarpið sýndi á árunum 1967—
1972.
22.10 Berlín Alexanderplatz. Tíundi
þáttur. Þýskur framhaldsmynda-
flokkur í fjórtán þáttum gerður
eftir sögu Alfreds Döblins. Leik-
stjóri Rainer Werner Fassbinder.
Eva sannfærði Biberkopf um að
Mieze væri góð og grandvör stúlka
sem stundaði vændi eingöngu
vegna þess að hún elskaði hann.
Biberkopf öðlast styrk til að
horfast í augu við Reinhold sem
ætlaöi að myrða hann. Einnig fer
hann aö hugleiða pólitík og undr-
ast mjög að menn skuli geta verið
bæði með og á móti í sama málinu.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
23.05 Fréttlr í dagskráriok.
Sjónvarp kl. 20.35:
— framhaldsmynda-
f lokkur í léttum dúr
Breskur framhaldsmyndaflokkur,
sem byggður er á sögum eftir Somer-
viile og Ross, hefur göngu sína í sjón-
varpi í kvöld kL 20.35. A frummálinu
nefnist hann „The Irish R.M.”, en
hefur hlotið nafnið Friðdómarinn á
íslensku.
Höfundarnir eru tvær frænkur, önn-
ur írsk en hinn ensk, sem gáfu saman
út fjórtán bækur. Ross hét réttu nafni
Violet Florence Martin en tók upp
höfundamafnið Martin Ross eftir
staðnum þar sem hún fæddist árið
1862, en hún lést árið 1915. Edith
Somerville fæddist árið 1862, en þær
frænkur hittust árið 1886 og þá hófst
samstarf þeirra sem stóð allt til ævi-
loka Ross og reyndar lengur því
Somerville hélt áfram að skrifa undir
na&ii þeirra beggja allt til ársins 1949
þegar hún lést. I bókum sínum draga
þær stöllur upp háðska samtímamynd
af írsku samfélagi og lífi fólksins á
trlandi.
Það komu út tvær bækur um frið-
dómarann, sú fyrri árið 1899 en sú
síðari árið 1908.1 umsögnum um þess-
ar bækur, þegar þær komu út, var sagt
að „enginn með nokkurn snefil af
sjálfsvirðingu mundi láta sjá sig lesa
þessar bækur opinberlega ef hann vildi
halda virðingu sinni”. I dag eru þessar
sögur taldar til klassískra verka í
ensk-írskum bókmenntum.
Friðdómarann sjálfan leikur Peter
Bowles, en það að vera friðdómari
þýddi árið 1895, þegar sögurnar ger-
ast, að vera nokkurs konar aðstoðar-
Peter Bowles í hlutverki friðdómarans, en hann fór með eitt af aðalhlut-
verkunum i Ættarsetrinu sem sýnt var í sjónvarpi fyrir skömmu.
maður héraðs- og bæjardómara á
Irlandi. Major Sinclair Yates kemur til
írlands til þess að taka viö einni slikri
stöðu. Það takast fljótlega kynni með
honum og nágranna hans, Flurry
Knos, sem leikinn er af Bryan Murray.
Eftir skamma dvöl á Irlandi kemst
Englendingurinn fljótlega að þeim
mikla mun sem er á hugsunarhætti Ira
og Englendinga.
Sjónvarp
Útvarp
Útvarp kl. 20.00 — Var og verður:
Rætt við skrykkdans-
ara og danska leikara
Þáttur Matthiasar Matthíassonar,
Var og verður, er á dagskráútvarps kl.
20.00 í kvöld eins og undanfarin miö-
vikudagskvöld.
I þættinum i kvöld ætlar hann að
ræða við 12 ára gamlan skrykkdansara
(breakdansara) sem nýlega sigraði í
„breakdanskeppni” í yngri flokki.
Hann hefur nú gert garðinn frægan
erlendis, þ.e. á Mallorca, þar sem hann
sýndi á nokkrum skemmtistööum og
viðtal var tekið við hann í útvarpi þar.
Þessi ungi dansari heitir Þórhallur
Skúlason og var í Hólabrekkuskóla í
vetur. „Það var ofsagaman að sýna
þarna úti, Spánverjamir sjálfir kunnu
lítið fyrir sér þó þeir væru svona sæmi-
legir,” sagði Þórhallur. Hann sagðist
hafa æft síðan um jól og sýnir stund-
um með Breakbræðrum en þeir hafa
nóg að gera og þurfa að æfa mikið.
Matthías mun líka tala við þrjá
félaga úr danska leikhópnum Ragnar-
rock sem var hér á landi nýlega og
sýndi bæði í Mosfellssveit og á
Akureyri. Hann hefur þýtt viðtalið og
fengið þrjá islenska krakka til þess að
flytja það. Tónlistin í þættinum verður
dönsk og svo leikur hann vitanlega
nokkur „breaklög”.
Matthías mun senn hætta með
þennan þátt en ekki er enn vitað hver
tekur viö af honum. Hann sagöi aö það
væri alltaf nóg af efni en því miður
kæmi ekki nóg af bréfum frá krökkun-
um. Hann vill því hvetja þá til að skrifa
þættinum um nánast hvað sem er.
Þessari hvatningu er hér með komiö á
„Breakarar" eða skrykkdansarar á
fullri ferð.
framfæri og nú er bara að taka sér blað
og penna í hönd og setja saman eitt
stykki bréf.
SJ
FASTEIGNASALAN
mmi ÚTBORGUN LÆKKAR!
SIMAR: 29766 & 12639
ÞÓRSGA TA, 2JA HERB.
íbúðin er á 3ju hæð i steinhúsi. Út-
borgun 600 þús. Heildarverð er
1200 þús. (Útborgunarhlutfall
SO%).
GAROSTÍGUR, HF„ 3JA HERB.
Neðri hæð i fallegu tvíbýlishúsi.
Verð 1600þús.
ENGIHJALLI 4RA HERB. -
SKIPTI.
Þarftu að stækka við þig? Þá er
hór gullið tækifæri. Okkur vantar
3ja—4ra herbergja jarðhæð i Kóp.
Á móti kemur 4ra herbergja
glæsileg ibúð í Engihjallablokkun-
KAMBASEL
104 fm íbúð á annarri hæð. Verð
1850 þús. Útborgun á árinu 600
þús., útbhlutfall 32%.
NORDURMÝRI.
117 fm blokkaribúð, 3 svefnher-
bergi og 2 stórar samliggjandi
stofur. Íbúðin er á annarri hæð.
Útborgun 1200 þús. Heildarverð 2
milljónir. Útborgunarhlutfall 60%.
ÁSBRAUT, KÓP.
4ra herbergja blokkaríbúð.
Heildarverð 1850þús. Útb. á órinu
1050þús., útbhlutfall 57%.
EINBÝLI í KÓPA VOGI.
215 fm einbýli með 45 fm bílskúr.
Útborgunarhlutfall 20%.
EINBÝLI, HF.
Litið fallegt einbýli á tveim
hæðum. Húsið er um 90 fm.
Heildarverð 1900 þús., útbhlutfall
55%.
HRIIMGDU STRAX í DAG í SÍMA 29766 OG FÁÐU
NÁNARI UPPLÝSINGAR UM ÞESSAR EIGNIR.
ÓLAFUR GEIRSSON. VIÐSK.FR GUÐNI STEFÁNSSON; FRKV.STJ. HVERFISGATA 49 101 REYKJAVÍK
Veðrið
Sunnanátt og súld eða rigning
fram eftir degi um allt vestanvert
landið en snýst síðan i suðvestan-
golu eða kalda með skúrum. A
Austurlandi verður hægviðri og
ský jað í fy rstu en fer að létta til síð-
degis.
Veðrið
hérog
þar
tsland kl. 6. i morgun.
Akureyri skýjað 17, Egilsstaðir
skýjað 11, Grímsey alskýjað 13,
Höfn þokumóða 11, Keflavíkur-
flugvöllur súld 11, Kirkjubæjar-
klaustur súld 12, Raufarhöfn
skýjað 10, Reykjavík rigning á
síðustu klukkustund 12, Vest-
mannaeyjar súld 10, Sauðárkrókur
skýjað 16.
Útlönd kl. 18. í gær.
Amsterdam rigning á síðustu
klukkustund 14, Aþena heiðskirt 27,
Chicago léttskýjað 29, Feneyjar
(Rimini og Lignano) þrumuveður
23, Frankfurt þrumuveöur á
síðustu klukkustund 16, Las
Palmas (Kanaríeyjar) skýjað 18,
London skýjað 18, Los Angeles
skýjað 28, Lúxemborg hálfskýjað
14, Malaga (Costa Del Sol) heið-
skírt 23, Mallorca (Ibiza) heiöskírt
26, Miami skýjað 30, Montreal al-
skýjað 27, Nuuk léttskýjað 15,
París léttskýjað 18, Róm léttskýjaö
26, Vin rigning á síðustu klukku-
stund 17, Winnipeg léttskýjað 22.
Gengið
NR. 135 - 17. JÚLÍ1984 KL. 09.15
Eining Kaup Saia Tolgengi
Dollar 30,270 30.350 30,070
Pund 40,085 40.191 40,474
Kan. doHar 22.771 22,832 22,861
Dönskkr. 23133 2.9271 2,9294
Norsk kr. 3,6853 3,6950 3,7555
Sænskkr. 3,6525 3,6621 3,6597
fi. mark 5,0425 5,0558 5,0734
Fra. franki 3,4764 3,4856 3,4975
Belg. franki 0,5264 0.5278 0.52756
Sviss. franki 12.6220 12,6553 12,8395
HoH. gyHini 9,4579 9.4829 9,5317
V Þýskt mark 10,6731 10,7013 10,7337
h. lira 0D1734 0,01738 0,01744
Austurr. sch. 1,5215 1,5255 1,5307
Port. escudo 012011 0,2017 0,2074
Spá. peseti 0,1882 0.1887 0,1899
Japanskt yen 0,12525 0.12558 0,12619
Írskt pund 32,676 32.763 32Æ77
SDR (sérstök 30,9614 31,0433
dráttarrén.)
Simsvari vegna gengisskráningar 22190