Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Blaðsíða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JOLl 1984. 5 Hannes Sigurðsson, starfsmaður Kjararannsóknarnefndar: EKKERTLAUNASKRIÐ ..Svokallað launaskriö hefur ekki átt sér staö á vinnumarkaðinum aö undanförnu,” sagði Hannes Sigurðs- son, starfsmaöur Kjararannsóknar- nefndar, í samtali við DV. ,,Frétt sjónvarpsins þar aö lútandi síöastlið- ið mánudagskvöld var bæði villandi og röng. Það er ekki nóg að kasta þessum tölum fram. Það verður að túlkaþærlíka.” Hannes sagði að þótt athuganir Kjararannsóknamefndar sýndu að kaup hefði almennt hækkað um eitt prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, þá væri sú hækkun varla mark- tæk. ,jVð baki þessari hækkun geta legið ýmsar skýringar,” sagði Hannes. „Atvinna er til dæmis meiri í mars en í janúar og launagreiðslur fyrirtækja þar af leiðandi hærri.” I frétt sjónvarpsins var enn fremur sagt að könnun Kjararann- sóknarnefndar hefði leitt í ljós að kaup karia sem vinna skrifstofustörf á höfuðborgarsvæðinu hefði hækkaö um niu af hundraöi á fyrstu þrem mánuöum þessa árs. Hannes sagði að þetta væri rétt en taldi að alltaf mætti finna dæmi svipað þessu og að hér væri verið að slíta mál úr sam- hengi. .JCarlar í skrifstofustörfum á höfuðborgarsvæðinu vega ákaflega lítið þegar á heildina er litið,” sagði Hannes. ,,Og þótt þetta líti svona út á pappímum þarf það alls ekki að þýða að launaskrið hafi átt sér stað hjá þessum mönnum. Kaup þeirra virt- ist til dæmis hækka um 7% á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en það lækkaði aftur á næsta ársfjórðungi. Þessi niu prósenta hækkun, sem minnst var á í sjónvarpinu, gæti því verið eðlileg sveifla eða skekkja milli ársfjórð- unga.” Hannes sagði að lokum að búið væri að gera of mikið úr launaskriði á vinnumarkaðinum að undanförnu. „Kjararannsóknarnefnd hefur til dæmis athugað kaup verkamanna, iðnaðarmanna og afgreiðslufólks, á tímabilinu apríl 1983 til mars 1984, og komist að því að launaskrið hefur ekki átt sér stað hjá þessu fólki.” EA Sama bensín- verð er leyfilegt Mönnum hefur orðið nokkuð tíð- hafa eftir sér að samkeppni sé ekki rætt um bensínverð hér á landi. nægilega mikil á milli oliufélaganna Bensínverð hér er líklega það hæsta í og verðið á bensíni sé ákveðið í sam- Evrópu og jafnvel það hæsta þó að krulli þeirra á mUli. Það er án efa verð þess sé borið saman við verð á rétt að lítil samkeppni sé á milli olíu- svokölluðu super-bensíni sem ekki er félaganna hér. fáanlegt hér á landi, en er með hærri Margir hafa því spurt hvort þessi oktantölu en það bensin sem fæst hér sameiginlega verðlagning brjóti ekki ogmundýrara. í bága við lög um verðlag og sam- Eigandi Botnsskálans hefur nú keppnishömlur. I 21. grein þeirra selt bensín á niðursettu verði lengi og laga segir að allt samráð milli fyrir- mun ástæöan vera sú aö hann telur tækja um verð og álagningu sé að bensínsölurnar fái ekki nógu mik- óheimilt þegar álagning er frjáls. Nú ið í sinn vasa. Þetta er sem sagt einn er það svo að álagning á bensín er liður i stríði hans viðfélögin. ekki frjáls og ákveðið hámarksverð heimilt. Þetta þýðir að olíufélögin hafa leyfi til að hafa sama verð á Lítil samkeppni bensíni á meöan álagningin er ekki Botnsskálaeigandinn hefur látiö frjáls. APH Við rákumst á þessa tvo brœdur, þá Erlend og Magga Villa, þar sem þeir roguðust með þennan bát eftir aðalgötunni á Suðuregri við Súgandafjörð fyrir skömmu. Ætlunin var að sigla í höfninni enda vanir siglingum á Pollinum á Akureyriþar sem þeir ættu heima. Þeir sögðust ekki setja það fyrir sig að ferðast með bátinn um land- ið, þetta vœri svo gaman. Erlendur sagðist eiga bátinn sjálfur. Hann hefði unnið sér fyrir honum með því að passa litla bróður sinn og bera út blöð. Við vöktum athygli hans á því að hann vœri ekki í björgunarvesti. ,,Já, ég lánaði Magga Villa mitt. Ég œtla að kaupa annað handa honum bráðum, ” sagði útgerðarmaðurinn og hélt til sjávar. þjh D V-mynd G VA Gertklárt fyrir veiðitímabilið við Langavatn. SILUNGSVEIÐI í LANGAVATNI Frá Sigurjóni Gunnarssyni, frétta- ritara DV í Borgarnesi: Mörgum vex í auga sá kostnaöur er fylgir því að hafa veiðidellu og líta öfundaraugum á fréttamyndir þar sem stoltir laxveiðimenn halda á veiði sinni og reyna þar með á bakið til hins ýtrasta, löngu búnir að gleyma taugaálaginu við að landa, hvað þá að munað sé eftir tómri buddunni. En fleiri kostir bjóðast fyrir áhugasama veiðimenn en laxveiði. I fyrrasumar tók Stangaveiðifélag Borgarness Langavatn í Mýrasýslu á leigu og flutti þangað tvö veiðihús og báta og nú í vor kom salemisað- staða eins og hún gerist best. Myndin hér að ofan var einmitt tekin nú í vor þegar framkvæmdir stóðu yfir. Við Langavatn er mikil náttúru- fegurð og er vatnið umlukið f jöllum og því skjólsælt. Vatnið er aöeins í 32 km fjarlægð frá Borgamesi og þar af eru um 13 km frá Svignaskarði inn að vatni. 1 vatninu er bæði bleikja og urriði, en þó meira af bleikjunni, og er hægt annaðhvort að veiða frá landi eða fara á bátunum út á vatnið. Bátarnir em með svokölluðu „Hvítárlagi” og em mjög stöðugir og rúma vel 3 til 4. Stangaveiðifélagið selur 8 stangir á dag og er verðið frá 150 til 400 króna fyrir daginn. Ef einhver hefði áhuga eru upplýsingar að fá hjá Halldóri Brynjúlfssyni í síma 93-7355. Það er vissulega þess virði að leggja leið sína að Langavatni og dvelja þar, veiða og njóta náttúru- fegurðar og koma heim með veiði, aukinn lífsþrótt og afstressaður. Skattskráin í Reykjanesumdæmi lögð fram í gær: Gjöld einstaklinga hækka um 35,89% Skattskráin í Reykjanesumdæmi, fyrir árið 1984, var lögð fram í gær. Álögð gjöld nema alls um 2,2 mill- jörðum króna og nemur hækkunin frá því í fyrra 40,8%. Álagningin skiptist þannig að einstaklingar greiða um 1,8 milljaröa, böm undir sextán ára aldri um þrjár milljónir en lögaðilar og aðrir greiða tæplega 400 milljónir. I fyrra greiddu einstaklingar um 1,3 milljarða króna og hefur álagning þeirra hækkað um 38,52%. Frádráttar- liöir frá álögðum gjöldum hafa hins vegar hækkað um 54,13% frá því í fyrra þannig að nettó hækkun skatt- álagningar einstaklinga er í raun 35,89% milli áranna 1983 og 1984. Að mati Kjararannsóknarnefndar hækkuðu samningsbundnir kauptaxtar um 49,7% á sama timabili. Lögaðilar greiddu í fyrra um 250 milljónir króna og nemur hækkun á álagningu þeirra 52,63%. Fjöldi framteljenda í Reykjanes- umdæmi er 42.516 sem skiptist þannig að á lögaðilaskrá eru 1.714 en ein- staklingar eru 40.802, þar af 2.189 böm undir sextán ára aldri. Olafur Björgúlfsson tannlæknir greiðir hæstu skatta í Reykjanesum- dæmi að þessu sinni en á meðfylgjandi mynd má sjá lista yfir tíu gjalda- hæstu einstaklingana í umdæminu á þessu ári. EA Tekjuskattur Útsvar Önnur gjöld Samta'l s 1. óldfur Rjörgúlfsson TJarnarstíg 10, Sel t jarnarnesi 2.216.132,- 549.890,- 207.042,- 2.973.064,- 2. Guðbergur Ingólfsson Carðbraut 13, Cerðahreppi 1.261.000,- 328.200, - 744.733,- 2.333.933,- 3. Uenedikt Sigurðsson Heiðarhorni 10, Keflavík 1 .372.1 57,- 358.290,- 584.744,- 2.315.191,- 4. Sver^ir Magnússon Stekkjarflöt 25, Carðabæ 1.563.697,- 41 1.360,- 267.360,- 2.242.417,- 5. Matthías Ingibergsson Hrauntungu 5, Kópavogi 1.256.706,- 332.790,- 434.138,- 2.023.634,- 6. ólafur Stephensen Hraunhólum 16, Carðabæ 1.306.527 ,- 326.580,- 333.701,- 1.966.808,- 7 . Rjörn R. Rlrnir Hrauntungu 17, Kópavogi 1 .017.539,- 456.030,- 113.579,- 1.587.148,- 8 . Werner I. Rasmusson Rirklgrund 33, Kópavogi 1.072.216,- 290.200,- 205.674,- 1.568.090,- 9. Ingibjörg Röðvarsdóttir 3ófríðarstaðavegi 15, Hafnarflrði 1.000.108 , - 260.420,- 187.268,- 1 .447.796,- 10. Högni Cunniaugsson Cr«nagarði 5, Keflavík 966.053,- 269.230,- 107.822,- 1.343.105,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.