Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ 6878*58 SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur pg 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. er gætt. Við tökum við fréttaskotum k allan sólarhringinn. Skattakóngarnir: GunnarB. Jensson húsasmíðameistari: Kemur mjög áóvart „Þetta kemur mér mjög á óvart,” sagði Gunnar B. Jensson húsasmíða- meistari þegar DV tilkynnti honum í gær aö hann væri þriðji hæsti skatt- greiðandi í Reykjavík. „Eg verð greinilega að ræða við endurskoðendur mina. EA „Ánægður” — segirGunnar Snorrason „Ja hérna, er ég annar hæstur?” sagði Gunnar Snorrason, kaupmaður í Hólagarði, er DV tilkynnti honum að hann væri næsthæsti skattgreiðandi einstaklinga í Reykjavík, með tæpar 2,7 milljónir. „Eg er ánægður með þetta. Þetta ber vott um að fyrirtækið er traust og að fólk kann að meta þessa þjónustu sem hér er boðið upp á. Ég er ánægður meö þetta aö öðru leyti en því aö ég sætti mig illa við tvo skatta: að- stöðugjaldið og skattinn á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.” ás Benedikt Sigurðsson, Keflavík: Eins og ég átti von á Benedikt Sigurösson, lyfsali í Kefla- vík, er þriöji hæsti skattgreiðandi í Reykjanesumdæmi á þessu ári, greiðir um 2,3 milljóna krónur samtals. „Þetta er eins og ég átti von á,” sagöi Benedikt í samtali við DV. „Það er auðvelt að reikna þetta út fyrir- fram.” Hann vildi ekki tjá sig um mál- iöaðöðruleyti. EA — sjá bls. 3 og 5 LUKKUDAGAR 25. júlí 06620 REIÐHJÓL FRÁ FÁLKANUM AD VERÐMÆTI KR. 10.000,- LOKI Ég vil fá apótek og græða/ Ævintýri í Breiðholti: Fann tvíburana sína eftir 40 ár „Eg hef alltaf lifað í voninni um að sjá tvíburana mína aftur og nú hefur það tekist eftir 40 ár. Eg get ekki lýst tilfinningunni, þetta er líkara draumi en veruleika.” Þetta segir María Yankasky sem fæddi tviburana Stellu og Selmu í Reykjavík fyrir heilum 40 árum. Því miður höguðu aðstæður því þannig að María treysti sér ekki til að ala dætur sínar upp og voru þær því ætt- leiddar hvor í sína áttina. Stella varð Sigurðardóttir og Selma Haralds- dóttir. Árið 1950 flutti María móðir þeirra til Bandarikjanna, giftist þar Bandaríkjamanni og býr nú í Seattle í Washington-fylki. Hún hefur þrívegis komið til Islands í leit að dætrum sínum, 1965, í fyrra og svo í ár. „Eg byrjaði á því aö fara á Manntalsskrifstofuna í von um ein- hverjar upplýsingar en það var þó helst fyrir milligöngu kunningjakonu minnar að ég hafði upp á stelpunum mínum,” segir María þar sem hún situr í Breiðholtinu og drekkur kaffi með dætrum sínum og það er aug- ljóst að þessu ævintýri fylgir meiri gleði en orð fá lýst. Þær Stella og Selma vissu alltaf að þær ættu móður í Ameríku en höfðu ekki hugmynd umhvar. „Við vorum ákaflega stressaðar þegar okkur varð ljóst að nú ættum við að hitta mömmu okkar í svo til fyrsta sklpti, en endurfundirnir hafa verið dásamlegir,” segja fertugu tvíburarnir einum rómi. Þær gátu líka glatt móöur sína með því að nú ætti hún 4 bamaböm og 5 bama- barnabörn. Og nú er Ameríkuferð Stellu og Selmu næst á dagskrá því að þær langar að sjálfsögðu til að sjá hvernig mamma býr í Ameríku. -EIR. Stella SigurOardóttir, Maria Yankasky og Selma Haraldsdóttir: — iikara draumien veruleika. úV-mynd Kristján Ari Líkur á að starfsemi DNG flytjist til Færeyja: SEGJA UPP FLESTUM 5 * STARFSMÖNNUM SÍNUM Líkur eru á að stofnað verði fyrir- tæki í Færeyjum til að framleiða færarúllur frá rafeindafyrirtækinu DNG á Akureyri. Þetta er niðurstaða ferðar þriggja manna frá DNG sem eru nýkomnir þaðan. Málið er á byrjunarstigi en von er á mönnum frá Færeyjum eftir nokkra daga til frekari viðræðna. „Við kveiktum alveg í Færeying- unum,” sagði Davíð Gíslason, for- stjóri DNG, í samtali við DV. „Þetta þyrfti þó ekki að þýða að framleiðsl- unni á Akureyri verði hætt.” Miklir erfiðleikar hafa verið í rekstri fyrirtækisins hérlendis vegna skorts á fyrirgreiöslu. Er nú svo komið að framleiðsla hefur stöðvast og sagði Davíð að í dag yrði flestum af 20 starfsmönnum þess sagt upp. Hvorki væri til f é til að leysa út f ram- leiðsluvörur né borga laun. Það gerð- ist á sama tíma og tæpar 100 pantan- ir lægju fyrir í íærarúllumar. „Menn vita að við getum útvegaö 40—60 manns atvinnu á stuttum tíma ef við fengjum eðlilega fyrir- greiðslu,” sagði Davíð. „Þetta virð- ast vera of litlar upphæðir sem við förumframá.” Bæjaryfirvöld í einum bæ í Færeyjum hafa lofað DNG stuðningi til að hefja framleiðslu. Sagði Davíð að stór markaður væri í Færeyjum og möguleikar á útflutningi þaðan yf- ir á meginlandið, til dæmis væri Noregsmarkaður í athugun. JBH/Akureyri i i i i á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.