Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JULI1984. 11 DV yfirheyrsla DV-yfirheyrsla DV-yfirheyrsla DV yfirheyrsla Það þarf nýjan viðskipta- samning við Bandaríkin I kjölfar skoöanakönnunar öryggismálanefndar um afstööu fólks í utanríkismálum hafa spunnist líflegar umræöur í blööum og útvarpi um niðurstöður könnunarinnar. Einkum hefur vakið athygli hve margir styðja svonefnda aronsku, þ.e. aö taka leigugjald af herstöðinni á Miðnesheiði. Á fimmtudagskvöld í liðinni viku stýrðu þeir Albert Jóns- son og Helgi Pétursson umræðuþætti í Ríkisútvarpinu, Fimmtudagsum- ræðunni, þar sem Einar Karl Har- aldsson, ritstjóri Þjóðviljans, Kjartan Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins, og Ásgeir Hannes Eiríksson verslunaimaður skiptust á skoðunum á beinni línu við hlustendur. Málflutningur Ásgeirs vakti athygli margra hlustenda og er hann þvi nú til y firhey rslu h já DV. Þú talaðir í útvarpsþættinum um ný viðhorf til varnarmála í staðinn fyrir orðið gjaldtaka sem jafnan hefur verið notað. Hvernig stendur á þessari óvæntu orðalagsbreytingu? — Oröið g jaldtaka gefur ekki rétta mynd af mínum skoðimum og er ekki frá mér komið. Þess vegna hef ég ekki breytt neinum nöfnum en það gerðu aðrir á sínum tíma. Hverjir þá og hvenær? — Það var 19. nóvember 1977 sem fór fram skoðanakönnun samfara prófkjöri Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík fyrir alþingis- kosningarnar árið eftir. Þá lagði ég fram spuminguna: Eruö þér hlynnt- ur því að vamarliðið taki þátt í kostnaði við þjóðvegagerð hérlend- is? I þessari spurningu er hvergi minnst á gjald, leigu eða sölu. Samt sem áður birti Morgunblaðið stærsta leiðara Islandssögunnar á sjálfan prófkjörsdaginn og kallaöi: Fyrir Island — Gegn landsleigu. Þar með var orðið komið á prent í opinbemm málflutningi Morgunblaðsins. I þessum fræga leiðara lögðust þeir gegn öllum breytingum á varnar- sáttmálanum við Bandaríkin og jafn- framt byrjaði leigurausið fyrir al- vöru í blaðinu og jókst dag frá degi. Hver var niðurstaða þessarar skoðanakönnunar? — Hún var í öfugu hlutfalli við erfiðið. 7254 kjósendur Sjálfstæöis- flokksins í Reykjavík voru hlynntir þátttöku vamarliðsins en aöeins 1510 voru á móti, þrátt fyrir leiðarann góða hjá Mogganum. Hvað felst í þessum orðum þimun, ný viðhorf til vamarmála? — Einfaldlega það að hætta að líta á þessa vinaþjóð okkar, sem Banda- rík jamenn óneitanlega eru, sem hús- bændur eða yfirstétt. Við verðum að segir Ásgeir Hannes Eiríksson í DV-yf irheyrslu umgangast þá sem uppréttir jafn- ingjar þeirra, því annars hrynur utanríkisstefna okkar eins og spila- borg. Við höfum þegið þakksamlega ölmusugjafir frá þessari þjóö sem nemur margföldu verðmæti Keflavíkurflugvallar, án þess að nokkuð hafi komið á móti frá okkar hendi. Eg vil að þessu betlilífi linni og við semjum við þá í eitt skipti fyrir öll, samhliða nýjum vamar- samningi við NATO og Bandaríkin. Hvemig á að gera það? — I fyrsta lagi þarf að fá skýrar línur í vamarsamninginn við Bandaríkin. Núverandi orðalag er víða alltof loöiö og það læðist að manni grunur um að þaö sé með ráð- um gert til að eiga undankomuleið ef til tíöinda dregur. Nefndu dæmi um þetta. — Gott dæmi er sjálf aðalgrein NATO-sáttmálans, númer fimm. Þessa málsgrein túlka íslensk stjórnvöld þannig að það sé okkar að eiga frumkvæðið að því að biðja um aöstoö ef i haröbakkann slær og að við eigum einnig völina um hvaða afli eða vopnum sé beitt. Mér sýnist aftur á móti að setningin: „sem hann telur nauðsynlegar” leggi í hendur varnarliðinu í landinu aö ákveða hvaða aðgerðir það telur nauðsyn- legar á hverjum tíma. Enda reyndi á þetta ákvæði þegar Bretar marg- brutu óumdeilda landhelgi okkar og Bandaríkjamenn töldu ekki ástæðu til aðgerða. Telja þeir yfirhöfuð nokkra ástæöu til aögerða á meðan bara er ráðist á Island eitt? Þaö verður að skera úr þessu með þeim hætti að ég trúi og treysti orðalaginu. I annan stað verður sjálft Bandaríkjaþing að staðfesta heimild til herja sinna að bregðast umyrða- laust við árás á Island, án skilyrða eða undantekninga af nokkru tagi. Þú hefur nefnt að herinn eigi að borga sömu skatta og íslendingar og að koma eigi á nýjum viðskipta- samningi við Bandaríkin. Hvers vegna? — I vamarsamningi okkar við Bandaríkin eru undanþágur fyrir vamarliðsmenn og þeirra fólk um greiðslur á tollum, söluskatti, vega- gjaldi og ýmsum fleiri gjöldum sem viö Islendingar berum sjálfir. Eg held fast við þá skoðun Þorgeirs Ljósvetningagoða að landiö skuli bygg ja með einum lögum fyrir alla. Eg vil taka upp þráðinn þar sem Jónas frá Hriflu hvarf frá honum. Hann vildi gera samkomulag við Bandaríkin til jafnlangs tíma og her- verndarsamningur um óheftan að- gang að bandarískum markaði, þannig aö tollar yrðu felldir niður af okkar framleiðslu. Þetta yrði okkur það öryggi sem þarf nú í dag á erfið- um tímum. Nú hefur komið fram að allir is- lensku stjórnmálaflokkarnir eru andvígir því að taka gjald af hernum. En tæplega tveir þriðju hlutar islenskra kjósenda eru hlynnt- ir þessu, samkvæmt skoðanakönnun öryggismálanefndar. Hvernig má þetta vera? — Það er greinilegt að flokkakerf- ið hefur gengið sér til húðar. Fólk hlýtur að fjarlægjast forystu sem Texti: PéturÁstvaldsson Myndir: EinarÓlason kallar það landssölufólk á hverjum degi, forystu sem umgengst almenna flokksmenn með hroka og fyrirlitn- ingu. Það eru ekki nema eölileg við- brögð hjá venjulegu fólki sem vill landi sinu og þjóð vel. Enda er það að verða æ fleiri Islendingum ljóst að allt þetta vamartal snýst fyrst og fremst um peninga hjá valdhöfun- um. Hefur þú, sem og aðrir stuðnings- menn þessarar gjaldtöku, hugsað þessa hugsun til enda? Það er fullkomlega ómaklegt að ætla að tveir þriðju hlutar upplýstrar þjóðar geti ekki myndað sér skoðun hjálparlaust og sé í vandræðum með að hugsa hugsanir sínar til enda. Almenningur á Islandi er stöðugt að velta fyrir sér því sem betur mætti fara og kemst að einlægri niður- stöðu því hann er yfirleitt óbundinn af annarlegum sjónarmiöum og hugsar því út frá hagsmunum heildarinnar. Islenska þjóðfélagið rambar á barmi gjaldþrots þrátt fyrir meiri háttar góðæri síðustu ára- tugi. Athafnir ráðamanna okkar bera þess engin merki að fyrir- hyggja eða djúp hugsun ráði ferð- inni. Hugmyndin um viðskiptasamning- inn er fengin beint að láni frá Jónasi Jónssyni frá Hriflu. Er til nokkur maður sem segir að Jónas hafi ekki hugsað sínar hugsanir til enda, þessi langframsýnasti og þjóðræknasti stjómmálamaöur síns tíma? En felst ekki í þessu hættuleg lin- kind gagnvart erlendu valdi, menn hugsa sem svo að herinn verði hér um ókomin ár og eins gott að sætta sig við það? Að menn fari að líta á dvöl hersins hér sem eitthvað óum- breytanlegt? — Nei. Allavega ekki frá minum bæjardyrum séð. Herinn er búinn að vera hér í rúm þrjátíu ár og ekkert fararsnið á honum ennþá. Það er ekki óráðlegt aö halda að ástandiö verði nokkuð svipað á pólitíska og herfræðilega sviðinu næsta aldar- fjórðunginn eða svo. Því er óhætt að gera nýjan hervemdarsamning til næstu 25 ára. Ég hef líka bent á að orðið gjaldtaka á ekki við í þessu sambandi, ég vil ekki láta setja ein- hvem stöðumæli á Keflavíkurstöðina sem dælir peningum í ríkissjóð. Hins vegar mun viðskiptasamningurinn blása nýju lífi í þá sem vilja spjara sig sjálfir og geta það. Að 25 árum liðnum endurskoöum við síðan varnarsamninginn en þá mun landið verða bjargálna og ekki í vandræð- um með að afla nýrra markaöa. Ert þú á því að Island eigi meiri samleið með Bandaríkjunum en Evrópu? — Ekki endilega. Tengsl okkar vestur á bóginn eru engin smávegis tengsl, því við fundum nú þessa heimsáifu og héldum úti nýlendum bæði á Grænlandi og Vínlandi. Þá eigum við ekki síður samleið með því volduga lýöræðisríki sem Bandarík- in eru. Þegar Evrópa var í rústum eftir stríðið réttu Bandaríkin henni hjálparhönd og kölluðu Marshallað- stoð. Við nutum góðs af þessum gjöf- um þó að við ættum ekki um sárt að binda eins og fiest önnur ríki álfunn- ar. Þannig gáfu Bandaríkjamenn okkur Marshallgjafir sem námu 10— 25% af heildarinnflutningi landsins árin 1948—1953 og 74% í Laxárvirkj- un, Sogsvirkjun og Áburðarverk- smiðjunni. Og þegar þessum Marshallgjöfum lauk tók við P.L. 480 prógrammið og næstu tólf árin gáfu Bandaríkjamenn okkur allan tóbaks- innflutning til landsins, ásamt allri sekkja- og fóðurvöru þaöan. And- virði gjafanna var lagt í sérstakan sjóð, Framkvæmdasjóð, sem síðan varð Byggðasjóður hjá Fram- kvæmdastofnun ríkisins. Nú nefndir þú i Flmmtudagsum- ræðunnl í útvarpinu að stofna félag eða grasrótarsamtök um gjaldtöku- hugmyndina? — Já, þeirri hugmynd skaut upp í útvarpsþættinum að stofna félag um ný og breytt viðhorf til varnarmála en gjaldtaka var ekki nefnd í því sambandi. Enda má öilum vera ljóst af viðbrögðum viðmælenda minna í þeim þætti, sem báðir mættu fyrir hönd miklu voldugri hagsmuna, að þetta útbreidda sjónarmið á að kveða í kútinn, hvað sem það kostar. Hve mikill hljómgrunnur er fyrir slikum samtökum? — Hann er mjög mikill. Mun meiri en mig óraði fyrir. Þannig hefur fjöldi fólks haft samband við mig á götu og í síma, bæði úr Reykjavík og utan af landi. Meira að segja hafa heilu félögin tjáð sig reiðubúin til að ganga í svona samtök, og mér kemur á óvart fjöldi alþýöubandalagsfólks í þeim hópi. En nú nefndir þú einnig í útvarpinu að stofna flokk sem byði fram einu sinni með það verkefni eitt að koma gjaldtökumálinu í gegn. Þeir sem þar um ræddi myndu siðan snúa aftur til sinna gömlu flokka. — Eg ræddi ekki um að stofna flokk, enda hef ég enga löngun til að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn sem ég hef verið í frá 15 ára aldri. Hitt er svo annað mál að ég stakk upp á sér- stöku framboði við næstu þingkosn- ingar til að freista þess að koma þessu máli í höfn. Enda er ég þess fullviss að flokkamir taka ekki við sér i þessu máli, þeir eru allir bundn- ir á klafa hjá hernum og ætla ekki Bandaríkjamönnum þann byrjenda- brag í utanríkispólitík að þeir hafi ekki strax við inngöngu okkar í NATO tryggt sig gagnvart réttu bolsunum í Alþýðubandalaginu. En eins og allir vita er þaö aldrei reiðubúið að láta herinn fara í alvöru og því eru Samtök herstöðvaand- stæðinga ekkert annað en ein alls- herjarflugeldasýning. Hvers lags framboðshugmynd er þetta eiginlega? — Ég lít ekki á stjómmál sem at- vinnugrein og tel aö inn á þing eigi að veljast forystumenn úr atvinnulífinu en ekki framleiddir atvinnumenn úr flokkunum einum saman. Þingmenn eiga að hafa stuttan stans á þingi og hverfa fljótt aftur út í atvinnulífið. Þannig nýtast ferskir kraftar þeirra á þingi og þeir koðna ekki niður í meðalmennskunni. I þeim anda gæt- um viö boðið fram lista um land allt með þetta eina mál á dagskrá. Að öðm leyti yrðu frambjóðendur háðir samvisku sinni áfram eins og lög geraráðfyrirmeðalþingismenn. -pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.