Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Qupperneq 18
18
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JULI1984.
Billinn var formlega afhentur i nýja Toyota-sýningarsalnum i Hafnarstræti en þar hafðihann einmitt verið
til sýnis síðustu dagana. Hér er öll fjölskyldan saman komin, Sigurður og Ingibjörg með börnin þrjú: Eirik
Gunnar, 11 ára, Rebekku, 9 ára, og Hafstein Þór, 3 ára. Bilinn afhentu Árni Jónsson, sölufulltrúi Toyota,
og Sigurður Hreiðar, ritstjóri Vikunnar.
-Ljósm. Einar Ólason.
„Betra en draumur”
— sögðu hjónin sem unnu Tercelinn
í Af mæíisgetraun Vikunnar
„Maöur fær nú bara taugaáfall,”
sagöi Siguröur Hafsteinsson, Blöndu-
bakka 18, þegar honum voru borin þau
tíðindi aö hann hefði unniö Toyota
Tercel 4WD, árgerö 1984, í Afmælisget-
raun Vikunnar.
Þetta var siöasti hluti afmælisget-
raunarinnar, sem staöiö hefur síðan í
nóvember. Þrisvar áður hefur verið
dregið, fyrst um lúxussiglingu fyrir tvo
um Karíbahaf, þá ferðir fyrir tvo til
Mallorca og tvo til Ibiza, síðan fjöl-
skylduferð og dvöl í sumarhúsi í Holl-
andi og nú síöast um bílinn.
Vinningshafinn, Sigurður Hafsteins-
son, er tæplega þrítugur húsasmiöur.
Kona hans, Ingibjörg Eiríksdóttir, er
hjúkrunarnemi. Þau eiga þrjú börn.
Fyrir eiga þau hjónin þriggja ára
gamla Lödu. „Viö ætluöum að fara aö
selja hana,” sögöu þau. „Við höfum
undanfarið verið að skoöa á bílasölun-
um til að sjá hvaö hentaði okkur í stað-
Dregið í Afmælisgetraun Vikunnar. Frá vinstri: Páll Stefánsson, auglýs-
inga- og sölustjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, Sigurður Hreiðar, ritstjóri Vikunn-
ar, Magdalena Gestsdóttir, áskriftadeild Vikunnar, Bogi Pálsson, sölu-
stjóri Toyota og Þorkell Gíslason borgarfógeti.-Ljósm. Bragi Guðmundsson.
inn. Þetta, að fá svona bil upp í hend- betra, því svona dreymir mann
umar, það er eins og draumur — og þó aldrei! ”
Ólafsfjarðarvatn:
Seiðin sluppu
úr girðingunni
Seiðin sem voru í eldi undir ísnum formanns Veiðifélags Olafsfjarðar,
á Olafsfjaröarvatni í vetur sluppu út gekk eldið vel í fyrrahaust en í vetur
úr kví sinni í vor. Tilraumn með virtist vera stöðnun hjá seiðunum. I
þannig seiðaeldi mistókst því að VOr tóku þau hins vegar viö sér en þá
nokkru í þetta skiptiö. ,gerðist það aö flothringurinn
Seiðunum var komið fyrir í flot- brotnaði. Nótin sligaðist niður meö
giröingunni í fyrrahaust og var það þeim afleiðingum að seiðin syntu
liður í rannsóknum á möguleikum sína leiö. Af þessum sökum var
Olafsfjarðarvatns til laxaræktar. aldrei hægt að telja hversu mörg
Einkum er talað um aö nýta þau sér- uföu veturinn af þama undir ísnum.
kenni vatnsins sem felast í lagskipt- f>rátt fyrir þetta óhapp er enginn
ingu þess. Neðri hluti þess er saltur beygur í mönnum og verður haldið
og þar frýs ekki. áfram eins og ekkert hafi ískorist.
Að sögn Sveinbjamar Ámasonar, JBH/Akureyri
Þórsmerkurfarar óánægðir:
Þurftu að greiða
sérstakt gjald
— eðlilegstarfsemi,
segir sýslumaður Rangæinga
Oánægjuraddir hafa komið upp
meöal margra Þórsmerkurfara
vegna 50 króna gjalds sem rukkað er
af hverjum ferðamanni er þangað
kemur í hópferð. Spumingar vökn-
uðu meöal þeirra hvort gjaldtakan
væri leyfileg af hálfu dómsmála-
ráðuneytisins.
Að sögn Böðvars Bragasonar,
sýslumanns Rangárvallasýslu, er
hér um að ræða gjaldtöku sem
ákveðin var síðastliðið vor af hrepps-
nefndum Fljótshlíðarhrepps, Vestur-
Eyjafjallahrepps, Ferðafélagi Is-
lands, Utivist, Farfuglum og Austur-
leið. „Gjaldið er hugsaö til að bæta
aðbúnað ferðamanna, standa undir
skógræktinni og til að auka gæslu á
svæóinu. Allir sem greiöa gjaldið fá
miða með þessum upplýsingum.
Þórsmörkin er ekki þjóðgaröur
eins og hálendið, heldur telja hrepps-
félögin sig eiga landareignina.
Ferðafélag Islands og Skógrækt rík-
isrns, sem haft hefur Þórsmörk til
uppgræöslu síöan 1930, eiga þarna
mikilla hagsmuna að gæta. Undir-
staða þessa gjalds er sú hugsun að
Þórsmörk er eitt hættulegasta ferða-
mannasvæði á landinu vegna Kross-
ár. Slysavarnamenn frá Hvolsvelli
hafa verið þar nokkrar helgar und-
anfarin sumur og viðvera þeirra hef-
ur bjargað mannslíf um.
Þetta er því fullkomlega eölileg
starfsemi. Hún er ekki á vegum
sýslumannsembættisins og ég lít svo
á að dómsmálaráöuneytið hafi ekk-
ert með þetta mál að gera,” sagði
BöðvarBragasonsýslumaður. -pá
Það hefur verið mannmargt við Elliðaárnar síðustu dagana og margt
verið rætt og útskýrt.,, Vá, þarna eru 10 laxar". „Aðeins neðar, aðeins
neðar, já núna tekur hann, vá þetta er bara boltalax." Veiðimennirnir
eru ýmsu vanir og kippa sór ekki upp við hvað sem er.
DV-mynd G. Bender
„Hann er þó ekki að bíta á aftur,
við sem vorum að fá lax," gæti
veiðimaðurinn á myndinni verið
að hugsa. Nei, hann nartaði bara.
DV-myndG. Bender
Barðaströnd: 18 punda lax veiddist
— Sjóbirtingur farinn að sjást á Vestfjörðum eftir 20 ára hvarf
„Við fengum 19 laxa á þrem dög-
um og var meðalþyngdin 10 pund,
stærsti laxinn sem viö veiddum núna
var 14 pund,” sagöi Dagur Garðars-
son en hann veiddi í Hvolsá og
Staðarhólsá nýlega. „Það hafa
veiðst um 40 laxar og hefur veriö
sleppt 105 löxum í ámar. Hann er 15
punda sá stærsti og eru nokkrir 14
punda. Laxinn hefur eingöngu veiðst
í Staðarhólsá ennþá en bleikjan öll í
Hvolsá, töluvert hef ur veiðst af henni
og er hún 3 pund sú stærsta. 30—40
bleikjur hafa líklega veiöst í þaö
heila, sem er sæmilegt. Sonur minn,
9 ára, veiddi maríulaxinn sinn og var
laxinn 10 punda,” sagði Dagur að
lokum.
Við f réttum að veiðimenn hefðu ný-
lega fengið 2 laxa í Geitabergsvatni
og hafa víst verið að fá einn og einn
lax á svæðinu, en svæðið er Eyrar-
vatn, Þórisstaðavatn og Geitabergs-
vatn. Silungurinn þykir víst i smærra
lagi en laxinn bætir þetta upp.
Fyrir helgina veiddist í Baugstaða-
VEIÐIVOIM
Gunnar Bender
ósi 12 punda sjóbirtingur og hefur
verið töluverð sjóbirtingsveiði í
Osnum og algeng stærö 4—5 pund.
Eitthvað hafa menn fengið af laxi en
tölurliggjaekkifyrir.
,,Á sunnudaginn veiddist 18 punda
lax í Móru og fékk Helgi Páll
Pálmason hann neðarlega í ánni,”
sagði Ulfar Thoroddsen, formaður
Stangaveiöifélags Patreksfjarðar.
„Ætli þaö séu ekki komnir 7 laxar en
við veiðum aðra hverja viku í ánni.
Lax hefur sést töluvert en veitt er á
eina stöng. Fjarðarhornsá hefur gef-
ið einn lax og hefur lítið sést af hon-
um ennþá. Bleikjan er aö koma í ána
í nokkru magni. En það ánægjuleg-
asta er að bleikja og eitthvað af sjó-
birtingi hefur sést meöfram fjörum
hér fyrir vestan. Sjóbirtingur hefur
ekki sést hérna síðan 1963, sjávar-
hitinn er góður núna og mældist 10
gráöur úti á Látrum nýlega. Það er
mikið gleðiefni ef sjóbirtingur er aö
koma aftur og hægt að lifa gamla
tíma aftur, veiða fisk í fjörum
fram,” sagði Ulfar að lokum. Við
verðum aö segja eins og er aö þaö
eru ein ánægjulegustu tíðindi
sumarsins, að fá sjóbirtinginn inn í
firði á Vestfjörðum er toppurinn. En
Vestfirðir voru á sínum tíma eitt
besta sjóbirtingssvæði Iandsins og
birtingar mjög vænir. Þetta verður
vonandi töluvert magn og varanlegt.
Þær fréttir berast úr Kálfá í
Hreppum að lax sé farinn aö ganga í
hana. „Við urðum aðeins varir við
lax og sonur minn fékk einn
10 punda,” sagði Vilhelm Guðmunds-
son en hann renndi í ána nýlega.
„Við misstum vænan lax í löndun og
hefur hann líklega verið 14—16
punda en við áttum ekkert frekar
von á að fá lax þarna svo að við vor-
um bara útbúnir með silungagræjur.
Við urðum lítið varir við silung og
þessi lax stráksins er fyrsti laxinn í
Kálfáísumar.”
G. Bender.
Framlög úr
Menningar-
sjoði
Sambandsins
Stjórn Menningarsjóðs Sambands
ísl. samvinnufélaga hefur veitt tólf
aöilum framlög úr sjóðnum, samtals
aö f járhæð 730 þús. krónur. Þessi f ram-
lög voru afhent föstudaginn 6. júlí í
Sambandshúsinu, að viðstöddum full-
trúum allra þeirra aðila sem fjárstuðn-
ing hlutu, að einum frátöldum. Fram-
lög hlutu eftirtaldir aöilar: Minningar-
sjóöur Jóns Júl. Þorsteinssonar kenn-
ara til styrktar útgáfustarfsemi á
vegum sjóösins. Olympíunefnd
Iþróttasambands fatlaðra til styrktar
vegna þátttöku Islands í Olympíuleik-
um fatlaðra 1984. Alþjóðlegar sumar-
búðir bama til styrktar vegna kostnað-
ar við sumarbúðir. Umsjónarfélag ein-
hverfra bama vegna kaupa á hentugri
bifreiö fyrir heimilisfólkið að Trönu-
hólum 1. Islenskir ungtemplarar —
framlag í sjóð til kaupa á húsnæði. St.
Georgs gildin á Islandi vegna
skátaárs. Hjálparsveit skáta í Hafnar-
firði til byggingar húsnæðis fyrir spor-
hunda. Listmunahúsið vegna gerðar
video-myndar um listakonuna Louisu
Matthíasdóttur. Foreldrasamtök
barna með sérþarfir vegna byggingar
sumarbústaðar. Leiðbeiningastöð um
íslenska þjóðbúninga. Friðarhreyfing
íslenskra kvenna til stofnunar sam-
starfshópa um allt land. Styrktarfélag
vangefinna á Norðurlandi vegna bygg-
ingar líkamsræktarhúsnæðis viö Vist-
heimiliðSóJbprg.