Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 1
si» s SÍMI 6866 Frjálst,óháð dagblað DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 254. TBL. — 74. og 10. ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984. Húfverðtrygging fiskiskipa yfir 100 tonn hækkuð um 20%: Flotinn hækkadi um 2,8 milliarða á einni nóttu Húfverðtrygging íslenskra fiski- skipa yfir 100 tonn að stærð var hækkuð um 20% á miðnætti í fyrri- nótt í kjölfar gengisfellingarinnar. Samkvæmt upplýsingum Bjarna Þórðarsonar hjá Islenskri endur- tryggingu var verðmæti þessa flota fyrir hækkunina um 14 milljarðar króna þannig að segja má að þessi floti hafi hækkað í verði um 2,8 millj- arðaáeinninóttu. Annaö mál er hvort um svo mikla raunhækkun hefur verið að ræða því að veruleg hækkun varð á skuldum þeim sem hvíla á mörgum þessara skipa vegna gengisfellingarinnar. Síðast var húfverðtryggingin hækkuðí júlííárog þá um5%. Bjarni Þórðarson sagði að hækkunin um 20% hefði verið ákveð- in með hliðsjón af þeirri hækkun sem orðið hefði á gjaldeyri á þessum tíma, en þó hefði ekki verið tekið f ullt tillit til dollarans í því dæmi. Þessi hækkun kemur í veg fyrir að fleiri skip en orðið er lendi undir þeim mörkum sem ríkisstjómin ákvað að yrðu notuð vegna skuld- breytinganna hjá skuldseigustu skipunum í flotanum, en þau mörk voru sem kunnugt er 90% af húf- tryggingarmati. -FRI Eskifjardarhöfn. DV-mynd Emil Thorarensen. Laxeldið í Ólafsf jarðarvatni: HAFNA MILUÓNUM KRÓNA í FÉLAGIÐ t t t t Fyrir jólin verður reynt til þrautar að stofna hlutafélag um fiskeldi í Olafsfjarðarvatni. I sumar þurfti að fresta stofnfundi þess þar sem ein- staklingar og fyrirtæki voru of viljug að leggja fram fé í það. Akveðiö hafði veriö að hlutafé yrði 5 milljónir en á fundinum komu fram loforð upp á um 10 milljónir króna. Veiðifélag Olafs- f jarðar hafði ætlað sér að eiga 20 pró- sent í fyrirtækinu og hafa oddaaöstöðu. Með þessari aukningu á hlutafé töldu veiðifélagsmenn að þeir yrðu kaffærð- ir og var f undi þá frestað. Síöan hefur undirbúningsnefnd skip- uð fimm mönnum unnið aö málinu. Þann 19. nóvember sendi hún hlutað- eigendum bréf þar sem segir að stefnt verði að því að hlutafé verði fimm milljónir króna eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Veiðifélag Olafsfjaröar haldi 20 prósentum hlutafjár, Kaupfé- lag Eyfirðinga og SlS 40 prósentum og aðrir 40 prósentum. Þeim sem ekki höfðu skráð sig fyrir hlutafé fyrr en á fundinum 22. ágúst er boðið að stað- festa loforð til hlutaf járkaupa fyrir 1/5 þeirrar upphæðar sem þeir nefndu þá. Með því er verið að hafna nokkrum mill jónum króna en að vísu er ta lað um að hlutafé verði hugsanlega aukið á næstaári. I bréfinu er talað um að félagið verði stofnað innan 40 daga frá dag- setningu bréfsins. Fundurinn í ágúst þótti fjörlegur í meira lagi og er búist við öðrum álíka í desember. Deiluefnið er óneitanlega sérstakt, það er ekki á hverjum degi sem menn fá ekki að leggja fram eins mikla peninga og þeir vilja. JBH/Akureyri. Kristján Ragnarsson: Skuldir útgerðarínn- araukast umnær milljarð Kristján Ragnarsson, formaður LlU, álítur að erlendar skuldir út- gerðarinnar hafi aukist við gengis- fellinguna um 800—l.OOOmilljónir króna. Samkvæmt því hafa þær verið í nánd við sjö milljarða fyrir gengisfellinguna en nálgast átta milljarða eftir hana. -HERB. Ólympíuskákmótið: Léttgegn Argentínu Islenska karlasveitin er nú í 3.-4. sæti ásamt Englendingum á ólym- píuskákmótinu i Saloniki, en Sovét- menn eru i efsta sæti og Hol lendingar í öðru. I gær unnu íslensku strákarnir argentínsku sveitina með fjórum vihningum gegn engum og gekk sú viðureign ákaflega vel, engin skákanna fór i bið. Þá lauk skák Helga Olafssonar við Bouaziz frá Túnis úr fyrstu umferð, eftir 150 leiki, með jafn tefli. Hefur íslenska sveitin nú 10 vinninga. Á móti Argentínumönnum sat Helgi Olafsson hjá og kom Guðmundur Sigurjónsson inn á fjórða borði en aörir færðust upp um eitt borð. I dag mun islenska sveitin liklega tefla við ensku sveitina sem hefur sama vinninga- fjölda. Mun Jón L. Árnason sitja hjá í þeirri viðureign. Stúlkurnar tefldu við brasilísku sveitina og lauk þeirri viðureign með jafntefli, fengu báöar sveitirnar, 1,5 vinninga. Það vakti athygli að sovéska sveitin burstaði ungversku sveitina sem fy rirfram var talin líklegust til þess að veita Sovétmönnum keppni. Hafa Sovétmenn unniö allar sínar skákir til þessa á mótinu. -ógb 48s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.