Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 13
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. 13 Frelsið endurheimsótt: VINSTRIMENN BULLA UM FRELSK) Margt bendir nú til þess aö um- ræöa sú sem íslenskir frjálshyggju- menn hafa vakið um frelsi og frjáls- hyggju sé að því komin aö æra vinstri menn á Islandi. Nýlegasta dæmiö um þessa frelsistaugaveiklun er leiöaraopna DV mánudag 12.11., en á þeirri opnu fjalla hvorki meira né minna en allar þrjár kjallara- greinar DV um frelsi á einn hátt eöa annan. Þessi notkun, eða öllu heldur mis- notkun, á orðinu „frelsi” er þó engan veginn einsdæmi í stjórnmálasögu undanfarinna vikna því almenningi eru enn í fersku minni örvæntingar- full óttaskrif andstæöinga frjáls út- varpsrekstrar sem fylgdu í kjölfar viðbragöa almennings viö tilræði vinstri aflanna við alla fjölmiðlun í landinu. Og seint mun gleymast sá frelsiskryddaöi Göbbelsáróður sem glumdi i eyrum landsmanna frá stjórnarandstæðingum viö van- traustsumræöumar nýafstöðnu. / frumskógi frjálshyggju- manna Þessar vantraustsumræöur hljóta reyndar að vekja vantraust almenn- ings á hæfni alþingismanna til aö nota orðið „frelsi” og virðast einnig leiöa í ljós að á Alþingi Islendinga sitji engir þeir menn sem eru í stakk búnir til að bera fram varnir fyrir frjálshyggju eða frelsi. Hvort sem menn vilja kenna hér um viljaskorti eða hæfileikaskorti þá hlýtur þetta að leiða hugann að því, í ljósi van- traustsræðu Helga Seljans, hvort ekki þurfi að festa kaðalreipi í loft Alþingishússins svo að frjálshyggju- apamir gætu í það minnsta sveiflað sér þar á milli borða skyldu þeir ein- hvern tímann ráfa þangað inn. Nú bendir fátt til þess að af því verði á næstunni að frjálshyggju- maður tali á Alþingi Islendinga og til hæstvirtra alþingismanna um notkun þeirra á orðinu „frelsi” og vonandi verður þetta einnig til þess aö greinarhöfundar ofannefndra kjallaragreina vandi til orðanotkun- ar sinnar þegar þeir láta móðan mása í greinum sínum í DV í fram- tiöinni. Frjáls orðanotkun Nú dettur mér engan veginn í hug að halda því fram að mönnum sé ekki alfrjálst að nota orð nákvæm- lega eins og þeim sýnist, þeir mega til að mynda nota orðið „frelsi” í þeirri merkingu sem við oftast tákn- ummeð orðinu „borð”. Þannig gætu þeir boöið mér í kvöldmat og tilkynnt mér að þeir væru búnir að leggja á f relsið án þess að það ylli nokkrum misskiiningi. Þeir þyrftu aðeins að gera sér grein fyrir því að í þessum skilningi notuðu þeirorðið „frelsi”. Að vísu er augljóst að slík orða- notkun felur í sér nokkurt óhagræði, auk þess sem hún mundi valda veru- legri hættu á misskilningi manna á meðal nema þeir væru tilbúnir til að afhenda hvorir öðrum persónulegar orðabækur í hvert skipti sem þeir ræddust viö, svo ekki sé talað um þann beina háska sem af slíkri orða- notkun myndi stafa í tæknivæddu þjóðfélagi nútímans, til dæmis við sprengiefnameðferð í byggingariðn- aði. Hættuleg stjórnmálaum- ræða Þrátt fyrir það að stjórnmála- mönnum, jafnt sem almenningi, sé ljós sú hætta sem myndi stafa af orðanotkun sem þessari við sprengi- efnameðferð virðast þeir ekki gera sér grein fyrir að litlu minni hætta stafar af slíkri orðanotkun í stjóm- málaumræðu. Oþarfi er aö minna á þaö dæmi sem felst í skáldsögu George Or- wells, „1984”, þar sem beinlínis var búið að afmá vissar merkingar úr tungumálinu, nefnilega þær merk- ingar sem hefðu gert mönnum kleift að hugsa þær hugsanir er gert hefðu þeim mögulegt að gera sér grein fyrir eða rísa gegn kúgun Stóra bróð- ur meö misnotkun sinni á oröinu „frelsi”. I ræðu þeirri og riti er orö- inu „frelsi” brugðið í gervi floga- Kjallarinn Arni Thoroddsen þjáðs skrykkdansara sem skrykkist stjórnlaust úr einni merkingu yfir i aðra með annarlegum hætti þannig að ógagnrýnir áheyrendur og lesend- ur þeirra eru teymdir á asnaeyrum inn í myrkan þokuheim ruglanda og hugsanavillu. Virðingarsess frelsishug- taksins Ástæðan fyrir því að stjórnmála- menn misnota þannig oröið „frelsi” um allt milli himins og jarðar, sem varla á nokkurn skapaðan hlut skylt við frelsi, er auðvitað sú að stjóm- málamenn skynja ósjálfrátt þann háa virðingarsess sem frelsið skipar í hugtakaheimi okkar en með slíkri misnotkun hyggjast þeir ljá öðrum hugtökum af óskyldum toga þann sama virðingarsess sem frelsið eitt á skilið. Virðingarsess frelsishugtaksins felst í því að takist mönnum aö sýna fram á að einhverjum beri frelsi til vissra athafna hafi þeir jafnframt sýnt fram á að þeir sem reyna að svipta þá slíku frelsi séu siðferðilega fordæmanlegir. 1 slíkri frelsissvipt- ingu felst nefnilega afneitun á því að allir menn séu jafnréttháir. 1 næstu grein minni mun ég f jalla um nokkur dæmi um misnotkun af þessu tagi og skil ég lesendur DV eft- ir í spenningi þangaö til hún birtist. Árni Thoroddsen „Nú bendir fátt tilþess að afþví verði6 næstunniað frjálshyggjumaður taii é Aiþingi ísiendinga. . ." kyndug samsetning við fyrstu sýn en er þó kannski ekki svo fráleit ef nánar er aö gáö. Skoðanakönnun hefur sýnt að stór hluti kjósenda Alþýðubanda- lagsins er samþykkur aðild að NATO og sjálfur Svavar formaður hefur lýst því yfir í viðtali við víðlesið tímarit að flokkurinn geti hennar vegna átt stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokk- inn. Vitað er að í Sjálfstæðisflokknum eru margir hikandi þessa dagana vegna svonefndrar frjálshyggjustefnu, og ekki eru þar allir stóreignamenn, sem hrökkva við þótt talað sé um háa eignaskatta. Ef hinum nýja formanni tekst að klípa væna sneið frá báðum þessum flokkum og þar að auki að ná góðu sambandi við Bandalag jafnaöar- manna eða fylgismenn þess þá er hann búinn að launa flokksbræðrum sínum vel liðveisluna um síðustu helgi. En hvert sem hann sækir fylgi og hvort sem hann nær því þá mun sópa að honum og ég er illa svikinn ef hann og Svavar Gestsson eiga ekki eftir að taka margar sennur. Stórmál í skugga flokksmála Á meðan þjóöin fylgdist spennt með lyktum formannskjörs þeirra krat- anna voru ýmis önnur stórmál utangarös í umræðunni. Þar á meöal gengisfelling. Raunar sýnir þaö áhuga- leysi sem ríkti meðal fólks um helgina og í vikubyrjun kannski best, hve ljóst það var öllum landslýð að gengis- felling var óumflýjanleg afleiöing síðustu kjarasamninga. Eftir aö ljóst var að gjaldeyrisdeildir banka yrðu lokaðar á mánudag og gengi yrði fellt biöu menn rólegir og fannst varla taka því að ræða málið. Það var ekki fyrr en tilkynning Seðlabanka og ríkisstjórnar var orðin opinber sem liðsoddar fengu málið og gáfu út heföbundnar skyldu- yfirlýsingar um mannvonsku stjórn- valda. Eftir aöeins nokkra daga hefst þing Alþýðusambands Islands. Þaö má heita tímanna tákn að ríkisstjómin skuli fella gengi krónunnar rétt eftir kjarasamninga og nokkrum dögum fyrir þingsetningu Alþýöusambands- ins. Kannski sýnir það betur en flest annað hve ljóst það var öllum landslýð að gengið hlaut að falla, að ríkisstjóm skuli gera þetta. Auðvitað samþykkir Alþýðusam- bandsþing mótmæli gegn gengis- lækkuninni og fullyrðingar um að unnt hefði verið að bregðast öðruvísi við. Annað hvort væri nú. Hins vegar verður ekki séð að nein önnur úrræði hafi verið til staðar eins og komið var, nema menn kjósi heldur atvinnuleysið. Vegna margra stórmála í þjóölifinu hefur verið hljótt um undirbúning þessa Alþýðusambandsþings, enda margt þar að gerjast sem menn eru ekkert áfjáöir í að fjölmiðlar séu að blanda sér í. Vitað er að staða As- mundar Stefánssonar er svo sterk að honum verður ekki velt, hve heitt sem sumir f lokksbræður hans kunna að þrá það. Hins vegar hafa þeir hugsað upp leik til að veikja stöðu hans nokkuð og það átti að gerast með því móti að fjölga í miðstjórn. Hugmyndafræðing- urinn var Þröstur Olafsson og þetta átti að gerast undir því yfirskini að fjölga konum í miðstjóm en í raun til að veikja áhrif Ámundar. Hugmynd Þrastar og félaga var að Alþýðubanda- lagið fengi tvo hinna nýju fulltrúa, Sjálfstæðisflokkur einn og kratar einn. Hinir tveir nýju fulltrúar Alþýðu- bandalagsins áttu aðkoma úr „órólegu deildinni” til þess að hamast á As- mundi í miðstjórninni og gera hann tortryggilegan enda aldrei aö vita nema manninn langi á þing í ssti sem aðrir telja sér bera. Sá galli er hins vegar á þessari áætlun að til þess að hún nái fram að ganga þarf samþykki tveggja þriðju hluta þingfulltrúa og munu nú fulltrúar annarra flokka vera að átta sig á að ekki aðeins er Alþýðu- bandalagið að ná sér þarna í „ókeypis” miðstjórnarsæti heldur einnig að vega að vinsælum f orseta. Engu að síður verður forvitnilegt að fylgjast með þingi ASI og vafalaust verður þar blysum bmgðið á loft. Magnús Bjarnfreðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.