Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Síða 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984.
Halldór
Ásgnmsson
sjávarútvegs-
ráðherra
áþingiUÚ:
Nær óbreytt fiskveiöistefna á
næsta ári og i ár var aðalefni í ræöu
Halldórs Asgrínnssonar sjávarút-
vegsráöherra á þingi Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna sem
hófst í gær. Ráöherrann sagöi aö nú
lægi fyrir ríkisstjóminni tillaga um
nær sama hámarksafla á öllum
helstu botnfisktegundum og gildir
nú.
HámarksafU
Lagt er til aö þorskafli takmarkist
viö 260 þúsund tonn sem er 60 þúsimd
tonnum meira en fiskif ræöingar hafa
lagt til. Er það svipuð staöa og i ár.
Ysumark er 50 þúsund tonn, ufsa-
mark 80 þúsund tonn, karfamark 100
þúsund tonn, skarkolamark 15 þús-
und tonn, grálúðumark 30 þúsund
tonn og steinbítsmark 14 þúsund
tonn. Ýsumarkið lækkar um 15 þús-
und tonn frá í ár og karfamark um 19
þúsund tonn.
Nær óbreytt fískveidi
stefna á árinu 1985
Kvótakerfí
Þá telur ráðherrann aö svipuöu
kvótakerfi verði aö beita á næstunni
og gilt hefur í ár varöandi allar fisk-
veiðamar. Þó nefndi hann í ræöu
sinni ýmsa agnúa sem leitast yrði viö
að sníða af. Sérstaklega ræddi hann
um að beita sóknarmarki í staö meö-
alkvóta vegna eigendaskipta, skip-
stjóraskipta og færslu skipa milli
landshluta.
Hugmyndir eru uppi um aö létta
kvaðir á notkun sóknarmarksins til
þess að laða menn aö því þar sem
það á viö.
Afkoma útgerðarinnar
Sjávarútvegsráöherra sagöi aö
verö útfluttra sjávarafurða myndi
lækka á þessu ári um 4% miðaö við
bandarískan dollar til viðbótar viö
1,5% lækkun í fyrra, 9,5% lækkun
1982 og 2% lækkun 1981.
Þetta skýrir þann afturkipp sem
Þing Landssambands íslenskra útvegsmanna á Hótel Sögu.
DV-mynd: KAE.
orðið hefur á kjörum þjóðarinnar, meö vaxtaafslætti og skuldbreytingu
sagði ráðherrann. Hann sagði að stofnlána heföi greiðslubyrði útgerö-
arinnar veriö létt á árinu um 1.000
milljónir króna. 200 milljónir til viö-
bótar myndu ekki nýtast þar sem
viðkomandi skorti veð aö svo stöddu.
Þá er hafin ráöstöfun á 250 milljón-
um til að breyta lausaskuldum út-
gerðar í lengri lán. Og ríkisstjórnin
hefur samþykkt að endurgreiða sjáv-
arútvegi á næsta ári nærri 500
milljóna króna uppsafnaðan sölu-
skatt.
Vandi nokkurra verst stöddu skip-
anna verður ekki leystur nema með
sérstökum aðgerðum en ekki kom
fram í ræðu ráðherrans aö þær hefðu
veriðákveðnar.
Nýjungar
Meðal annars sem ráðherrann
ræddi um voru nýjungar í veiðum og
ýmiss konar starfsemi hérlendis og
erlendis sem nú er til athugunar.
HERB
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
Vantar 11-21 % til að ná núllaf komu
Áætlaö er að á þessu ári skili rekst-
ur fiskiskipastólsins 10—12% af tekj-
um upp í fjármagnskostnað. Þá
vantar 18—30% til þess að rekstur
þeirra nái á núllpunkt, mismunandi
eftir aldri og stofnverði, og að auki
vantar 3% vegna kostnaðar af upp-
söfnuðum taprekstri útgerðarinnar
undanfarin misseri.
Þetta kom fram meöal annars í
ræðu Kristjáns Ragnarssonar, for-
manns LtU, þegar hann setti þing
sambandsins í gær.
Gengisbreytingin
Um breytingu á gengi krónunnar
sagði Kristján að hún þjónaði þeim
eina tilgangi að unnt væri að hækka
laun sjómanna til jafns viö launa-
hækkanir í landi og bæta fiskvinnsl-
unni kostnaöarauka launahækkana.
Olíuverð
Kristján skýrði frá því að fyrir
beiöni LÍO hefði verið sett á laggim-
ar nefnd með fulltrúum olíufélag-
anna um verðlagningu á olíu sem
væri þriðjungur af rekstrargjöldum
útgerðarinnar. Því nefndarstarfi
hefði hins vegar orðið að slíta vegna
áhugaleysis oliufélaganna sem neit-
að hefðu aö gefa nauðsynlegar upp-
lýsingar.
Meðal annars hefðu þau neitað að
skýra 230% hækkun verðjöfnunar-
gjalds 1982. Kristján sagöi ríkis-
stjórnina hafa lofað að endurskoða
olíuverðlagningu fyrir 1. nóvember,
en sagt væri að niöurstaöa væri á
leiöinni.
Bankakerfíð
I ræðu sinni gagnrýndi Kristján
Ragnarsson bankakerfið harðlega.
Sagði hann engan vafa leika á því aö
sú mikla spenna sem skapaðist síð-
ari hluta ársins hefði átt rætur í óhóf-
legri útlánastarfsemi. Ríkisbankarn-
ir hefðu meðal annars tekið
milljarða að láni erlendis undir því
yfirskini að þeir væru að hjálpa
sjávarútveginum.
Þetta fé hefðu þeir fengiö á 10%
vöxtum en lánað á 24% vöxtum
vegna afurða sjávarútvegsins. Þeg-
ar svo gengisfelling hefði staöið til
hefðu afurðalánin öll verið snarlega
gengistryggð svo tryggt væri að
sjávarútvegurinn fengi ekki gengis-
mun, heldur bankarnir í verðlaun
f yrir f rammistöðuna.
Útgerðarhættir
Kristján mælti með vali milli svip-
aðs kvótakerfis og í ár og svo afla-
marki á hverja tegund fýrir hvern
ársþriðjung. Hann sagði nokkra að-
ila íhuga að útbúa skip sín til vinnslu
um borð. Þá sagöi hann uppi hug-
, myndir um að reyna frjálst fiskverð
milli óskyldra aðila. Hann lagði til að
Ríkismat sjávarafurða yrði lagt niö-
ur og ríkissjóði sparaðar þar 42
miHjónir. HERB
Af leiðing smábátabannsins á Akranesi:
Um 100 manns missa vinnuna
Ákvörðun sjávarútvegsráðu-
neytisins um bann við veiðum smá-
báta til áramóta hefur vakiö mikla
reiöi um allt land, enda eru
afleiðingar þessa banns alvarlegar
fyrir sum byggðarlög. Þannig er'
áætlað aö um 100 manns missi
atvinnuna til áramóta á Akranesi
vegna bannsins.
Þessar upplýsingar komu fram hjá
Birni H. Björnssyni, hafnsögumanni
á Akranesi, en hann sagði að nú
geröu 17 manns út smábáta frá Akra-
nesi auk 14 svokallaöra „hobbí-
manna”. Einn til tveir ynnu við
hvern bát og þegar svo bættust við
menn í landi, sem ynnu við þjónustu
við þessa báta, eins og beitingar-
menn o.Q., kæmi út talan 100 sem
misstu vinnuna.
1 máli Bjöms kom fram að þetta
væri ódýrasta og hagkvæmasta út-
gerð sem stunduð væri í landinu en
hún tekur samt ekki nema innan viö
0,5% af afla landsmanna. Auk þess
mætti nefna að vertiðarbátar á línu
fá að hafa helming afla sins fram hjá
kvóta. Þetta gildir ekki um smábát-
ana. „Þessi ákvörðun er því eins
óréttlát og hugsast getur,” sagði
Bjöm.
1 máli hans kom fram að
viðmiðunarmörkin á afla smábát-
anna, sem talaö er um í reglugerð
sjávarútvegsráðuneytisins, eru
11.000 tonn en afli þeirra nú er i
14.000. Ef sama regla gilti um smá-
báta og gildir um línubáta væri enn
8000 tonn eftir.
Þá nefndi Bjami einnig að togara-
flotinn hefði fengið úthlutað 60.000
tonna ýsukvóta i ár en ekki getað
veitt nema 37.000 tonn. Smábátamir!
gætu auðveldlega fengið eitthvað af
umframmagninuísinnhlut. ,pRI
Smábátabannið:
„FYRIRSJAANLEGUR ALGJOR
SKORTUR Á NEYSLUFISKI”
„Menn veröa að gera sér grein
fyrir því að með þessu smábáta-
banni er fyrirsjáanlegur algjör
skortur á neyslufiski hér á suð-
vesturhorninu, en smábátar hafa
að stórum hluta annað þeim 70—80
tonnum á viku sem þarf á þennan
markað,” sagöi Oskar Þór
Karlsson, hjá Isfiski í Kópavogi, i
samtali við DV, en hjá honum hafa
landað 5—6 smábátar af Akranesi
fráþvííseptember.
Vegna bannsins reiknaði Oskar
með að 10—12 manns misstu at-
vinnuna í fyrirtæki hans en hægt
yrði að halda áfram einhverri lág-
marksvinnu í öðrum verkefnum en
þeim sem afli smábátanna hefði
skapaö.
„Fyrirvarinn var ókristilega
stuttur, aðeins 4 dagar, en það
hefur ekki tíðkast hingað til að
mönnum sé sagt upp vinnunni með
svo stuttum fyrirvara. Þessi tími,
frá hausti og fram að áramótum,
er mikiivægur fyrir þessa menn en
þá eru þeir á línu. Hvað okkur
varðar þá hafa þeir nær eingöngu
lagt upp ýsu hjá okkur en eftir er að
veiöa um 23.000 tonn upp i kvótann
á henni í ár,” sagði Oskar.
Hann taldi aö ákvörðun ráðu-
neytisins væri tilkomin tii að láta
illt yfir alla ganga og sagði hana
harða í ljósi þess að áf ramhaldandi
veiðar smábátanna fram aö ára-
mótum hefðu kostað á við einn til
tvotogarafarma.
-FRI.
Neyðir smábátabannið menn á veiðar í janúar?
„Ráiherrann getnr
þá hirt líkin ífjörunni”
Fjölmargir hafa haft samband við
DV vegna ákvöröunar sjávarútvegs-
ráðuneytisins um bann við veiðum
smábáta til áramóta. Staöa margra
smábátaeigenda er ekki beysin
vegna óhappa sem komið hafa fyrir í
ár, vélarbiiana og annars og sagði
einn þeirra sem DV talaði við á Akra-
nesi aö bannið gæti neytt suma á
veiðar á þessum bátum í janúar...
„ráðherrann getur þá hirt líkin í
fjörunnihér,” sagðihann.
Ein af afleiöingum bannsins er að
fiskbúðir úti á landi geta ekki selt
ferskan fisk en þeirra starfsemi
byggist að miklu leyti á smábátaút-
gerðinni... „ætli við verðum ekki að
hætta að éta fisk og éta reglugerðir í
staðinn,” sagði einn viömælenda
blaðsins.
Nokkrir smábátaeigendur munu
hafa haft samband við s jávarútvegs-
ráðherra og þingmenn kjördæmis
síns vegna þessa máls og eftir því
sem DV kemst næst er nú unnið að
því að knýja fram breytingar á bann-
inu.
-FRI.