Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Side 7
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984.
7
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Fréttirfrá
Neytendasamtökunum:
Félags-
mönnum
hefur
fjölgað
um 25
prósent
áS
mánuðum
Aðalfundur
Um næstu helgi verður haldinn aðal-
fundur Neytendasamtakanna. Þingið
munu sækja um 200 fulltrúar víðs veg-
ar af landinu. Meðal þess sem verður
til umræðu á fundinum er samkeppnis-
hömlur, hringamyndun og neytenda-
vernd. Frummælendur um þetta efni
verða hagfræðingamir Vilhjálmur
Egilsson og Eggert Ölafsson.
Fjölgað um 25 prósent
Síðan í apríl hefur félagsmönnum i
samtökunum fjölgað um 25 prósent. Þá
hafa einnig þrjú ný neytendafélög
verið stofnuð: á Hellissandi, í Búðar-
dal og Vestmannaeyjum. Þessar
staðreyndir telur stjórn samtakanna
vera merki um að brátt verði Neyt-
endasamtökin öflug f jöldasamtök.
Fargföld
Neytendasamtökin hafa skorað á
samgönguráðherra að láta kanna
hvort fargjöld héðan með millilanda-
flugi séu óeðlilega há miðað við far-
gjöld islensku flugfélaganna að öðru
leytimilli landa.
Þá skora þau einnig á sama
ráðherra aö hann láti stöðugt fylgjast
með verðlagningu flugfélaganna á far-
miðum með tilliti til þess að um
þjónustu sé að ræða þar sem nokkur
skortur sé á að samkeppni sé ríkjandi.
-APH.
HVAR RYDGAR BÍLUNN MNN?
Fiat 127:
Elstu gerðimar af þessum bílum geta verið nokkuð mikiö ryðgaðar. En í lok
áttunda áratugarins, en Fiat kom fyrst 1971, urðu ryðvamir bílsins betri. Það
verður að gæta að neðri hluta yfirvagnsins og öllum samskeytum. Ryð þrífst
einnig vel í afturbrettum, frambrettum, sílsum og dyrum. Við kaup er nauð-
synlegt að athuga vel eldri bíla af þessari tegund.
FiatEitmo:
Þetta er einn af þeim bilum sem eru minnst næmir fyrir ryði af sambærileg-
um bílum. Ritmo ryðgar minna en meðaltal annarra bíla. Borið saman við
Golf er Ritmo næstum ryðfrír. Yfirleitt eru það bara kantarnir á brettunum
að aftan sem þarf að athuga.
Ford Taunus:
Þessi bíll var fjöldaframleiddur á áttunda áratugnum og var hinn dæmigerði
meðalgæða bíll. Gamlir Taunusar ryðga á þeim stöðum þar sem fagmenn bú-
ast við ryði. Þessir staðir eru samskeyti, kantar og afturbretti. Nýrri gerðir
eru hins vegar mun betri þó svo bíllinn hafi verið sá hinn sami frá 1971 til 1982.
Ford Granada:
Fyrri gerðimar af Granada voru mun verr varðar gegn ryði en þær nýrri.
Passið vel upp á frambrettin, afturbretti og einnig kanta á yfirvagni að aftan.
Þá er hætta á ryði við festingar frambrettanna. Nýrri gerðir ryðga mun
' minna. Og í heildina ryðgar þessi bíil minna en meðaltalið.
Fæðutegundir í þessum flokki
i innihalda mikið af trefjaefnum. Einnig
nokkurt magn af próteini, steinefnum
og B-vítamínum.
d) Mjólkurflokkur. Þessi fæðu-
flokkur inniheldur mjólk og mjólkur-
vörur. Gildi þessa fæðuflokks felst í því
að hann er auðugur af próteinum, kalki
og B-vítamíninu riboflavín.
e) Kjötflokkur. Undir þennan fæðu-
flokk heyrir allt kjöt, fiskur og egg.
Fæðutegundir innihalda prótein, víta-
mín og steinefni.
f) Matarfita. Helst ætti að halda
neyslu á þessum flokki í lágmarki.
Forðast ætti mettuðu fituna (úr dýra-
ríkinu), en borða feitmeti sem inni-
! heldur lífsnauðsynlegar fitusýrur (t.d.
sólblóma- og sojaolíu) og fituleysanleg
i vítamín, A- og D-vítamín, sem fæst úr
lýsi.t.d.
Hvernig á að nota fæðu-
hringinn?
Segja má að ef einstaklingur hreyfir
sig hæfilega mikið og heldur sig ekki
um of við einhæfar fæðutegundir, td.
fitu og sykur, þá skipti ekki máli hvað
hann borðar, svo lengi sem hann
borðar lítið af hverju, úr sem flestum
fæðuflokkum og á nokkuð föstum mat-
málstimum.
Morgunmatur
Ef morgunmaturinn inniheldur
fæðutegundir úr 4 fæðuflokkum, t.d.
brauö- eöa komflokk, mjólkurflokk,
ávaxtaflokk og fituflokk, telst hann
góður. Ekki er nauðsynlegt að boröa úr
öllum fæöuflokkum í morgunverðinum
vegna þess að aörar máltíðir dagsins
eiga að bæta upp þaö sem á vantar.
Hádegis- og kvöldmatur
Fæðutegundir ættu aö vera úr öllum
fæðuflokkunum6.
Almenna reglan segir okkur að þeir
sem borða fjölbreytt fæði og forðastof
mikla fitu- og sykumeyslu eiga aö fá
nægilega mikið af vítaminum og stein-
efnum. Aðeins þarf að muna að hóf er
best i öUum hlutum, einnig fæðuneysl-
unni.
% \
9
iKOtf' *'•
w twgífoss •'* ; t»*»**£, •
-S