Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984.
19
Mikil seiöa-
gengd i ísa-
fjarðardjúpi
Frá Val Jónatanssyni, ísafirði:
Rækjuveiðar hófust í Isafjarðar-
djúpi 12. nóvember sl. Það eru 33 bátar
sem stunda veiöamar og hafa þær
gengið vel það sem af er. Mikil ýsu- og
loðnuseiði eru í Djúpinu og hefur
rækjukvóti bátanna verið minnkaður
úr 6 tonnum á viku í 3 tonn vegna þess
hve seiðagengd er mikil. Bátamir em
aðallega við veiðar innst i Djúpinu, við
Borgarey og í Mjóafirði. Aö sögn
rækjusjómanna er mikill smokkfiskur
í Djúpinu og kann hann að vera valdur
að þvi aö rækjan er á tiltölulega litlu
svæði.
Rækjuveiðar verða stundaöar til 7.
desember og ráðgert að byrja aftur 10.
janúar. Hafþór er á úthafsrækju og
hefur gengið þokkalega. Línubátar
hafa aflað mjög vel og verið með þetta
10—15 tonn i róðri. Einnig hefur afli
togara veriö góður. Fróðir menn segja
að vertíð hafi alltaf verið góð eftir aö
smokkfiskur hafi gengið hér vestra.
-EH.
FISKIFRÆÐ-
INGAR ERU
LÍKA MENN
Frá Emil Thorarensen, Eskifirði:
Geysimikil loönuveiði hefur verið
síöustu sólarhringa austur af
Glettinganesi og heita má að
stanslaus. loðnulöndun hafi verið á
Eskifirði frá því 15. nóvember. Nemur
loðnumagnið sem á land er komið, á-
samt því sem er í höfninni, um 30
þúsundtonnum.
Sl. nótt var afar góð veiði. Fylltu
sumir loðnubátarnir sig í einu kasti og
vitað var um einn sem fékk 1500 tonna
kast. Frá loðnumiðunum er um sjö
tíma sigling til Eskifjarðar. Er það
mikill munur í samanburði við 30—40
tíma stím frá Vestfjarðamiðum eins og
var fyrr í haust. Rannsóknarskipið
Bjarni Sæmundsson fann loðnugöngu
á Dombanka þannig að nú má segja að
loðna sé yfir hálft landgrunnið, þ.e.a.s.
frá Dombanka austur fyrir Glettinga-
nes.
DV haföi samband við skipstjórann
á aflaskipinu Jóni Kjartanssyni SU,
Þorstein Kristjánsson, sem kom til
Eskif jarðar um hádegiö í dag með full-
fermi. Hann sagði að nú væm þeir svo
til búnir með sinn kvóta sem nam 9000
tonnum. Þorsteinn sagðist ekki trúa
því fyrr en hann sæi það aö ekki yrði
bætt við kvótann, ef ekki nú þá eftir
áramót. „Það er sárt að þurfa aö hætta
á veiðum þegar mikið af loðnu er á
miðunum. Eg hef alltaf haft það á til-
finningunni, og raunar trúað þvi, að
meiri loðna væri á miðunum en fiski-
fræðingar telja. Samanber það sem
kom upp í vetur sem leið; það mikla
loðnumagn sem var á miðunum í
febrúar en hafrannsóknarskipin vom
þá búin að flengjast um allan sjó og
höfðu ekkert fundið allan janúar.
Hefðu þær mælingar komist til stjóm-
valda hefði trúlega engin loönuveiði
verið i febrúar, en þá gaus upp loðna
um allan sjó. Þetta þýðir hve fiski-
fræðingar vita lítið hvað er í sjónum.
Og fiskifræðingarnir vita ekkert meira
um það en við sjómennimir,” sagði
Þorsteinn að lokum.
-EH.
Þessir vetrar-
dagar era ó-
venjufallegir.
Hér speglast
Esjan og nán-
asta umhverfi
Tjaraarinnar í
þunnu skæni
Reykjavíkur-
tjarnarinnar.
DV-mynd.
GVA.
VILT ÞÚ TAKfl ÞÁn í
AÐ LÆKKAIÐGJÖLD
BIFREIDATRYGGINGfl?
KOMDU ÞÁHIUDS
VIÐOKKUR
50% EFTIR AÐEINS 3 ÁR!
(tilefni 20 ára afmælis Hagtryggingar veitum við nú 50%
afslátt af ábyrgðartryggingu eftir aðeins 3ja áratjónlausan
akstur, 55% eftir 5 ár og 65% eftir 10 ár. Eftirtjónlausan
akstur í 10 ár samfellt fellur iðgjaldið niður á 11. ári.
EIGUM VIÐ EKKISAMLEIÐ?
Þú getur gengið til liðs við okkur fyrir 1. des. Við verðum
öflugri og áhrifameiri með hverjum bifreiðaeiganda sem
tryggir hjá okkur. Þú flytur réttindi þín hjá öðru vátryggingar-
félagi með þértil okkar.
Hafðu samband sem fyrst, símiokkarer68-55-88. Enn
fremur veita umboðsmenn allarupplýsingar.
TAKTU TRYGGINGU - EKKIÁHÆTTU
HAGTRYGGING HF
Suðurlandsbraut 10,105 Reykjavík, simi 685588.
JÓN LOFTSSON HF. RAFBÚÐ
HRINGBRAUT121 SlM110600
KÆRIRÐU ÞIG UM LAGA
RAFMAGNSREIKNINGA?
OSRAM
Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg
Ijós eyöa og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent
Ijós eyöa 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo
endast þau miklu lengur.
OSRAM DULUX —1 handhægt Ijós þar
sem mikillar lýsingar er óskaö. Mikiö Ijósmagn, einfalt í
uppsetningu og endist framar björtustu vonum.
OSRAM
LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR