Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Side 32
32
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984.
Ingibjörg Magnúsdóttir lést 14.
nóvember sl. Hún var fædd á Bjarna-
stööum í Saurbæjarhreppi, dóttir hjón-
anna Ragnheiðar Kristjánsdóttur og
Magnúsar Guölaugssonar. Eftirlifandi
eiginmaöur hennar er Jón H. Gríms-
son og eignuðust þau sex börn. Utför
Ingibjargar veröur gerö frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 23. nóvember kl.
13.30.
Jóhannes Jónsson frá Asparvík, Fann-
borg 1. andaðist í I>andakotsspítala 20.
nóvember.
Hörður Steingrímsson, Sogavegi 158,
lést 16. nóvember.
Per Wcndelbo lést í Osló 20. nóvember.
Pálína Valgerður Oddsdóttir lést aö
Hrafnistu þriöjudaginn 20. nóvember.
Ragnheiður Olafsdóttir, Skjólbraut 4
Kópavogi, andaöist á Borgar-
spítalanum 20. nóvember.
Guömundur Jónsson, Grimsey, sem
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 19. nóvember sl., veröur
jarösunginn frá Miðgarðakirkju,
Grímsey, sunnudaginn 25. nóvember
kl. 13.30.
Hákon Jarl Hafliðason vélstjóri,
Hátúni 6, er lést 16. nóvember, verður
jarösunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 23. nóvemberkl. 10.30.
Hóimgeir G. Jónsson, Grenimel 15,
veröur jarösunginn frá Neskirkju
föstudaginn 23. nóvember kl. 13.30.
Guöný Magnúsdóttir frá Ivarshúsum.
Dvalarheimilinu Höföa Akranesi, sem
andaöist i sjúkrahúsi Akraness 18.
nóvember, veröur jarösungin frá
Akraneskirkju laugardaginn 24.
nóvember kl. 11.30.
Tilkynningar
Jólakveðja með vinningsvon
Gigtarfélag Islands efnir nú til óvenjulegs
hapixirættis. Hver hapixirættismiöi er um leið
jólakort. Vinningar eru 8 feröavinningar eftir
vali.
Það er von félagsins að þessu korti veröi vel
tekið. Öllum ágóða verður varið til að greiða
kostnað við Gigtlækningastöðina sem nú er
komin í fullan gang. Kortin fást hjá Gigtar-
félagi Islands, Armúla 5, og hjá félags-
mönnum viða um landið.
Stjórnin.
Vegurinn, kristi-
legt skólablað
er nýkomið út. Vegurinn er gefinn út í hvorki
meir; né minna en 16 þús. eintökum og er
dreift til allra unglinga 13 til 20 ára á
höfuðborgarsvæðinu. Innihald blaðsins er
kynning á Guði og kristinni trú og auk þess
kynning á KSS.
Otgefandi Vegarins er KSS (Kristileg
skólasamtök).
Sjálfsbjörg,
félag fatlaðra í Reykjavík og nágrenni heldur
félagsfund á morgun, fimmtudag, kl. 20.30 í
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12,2. hæð.
VILHjAtMU* C. SrÚlASON
S,\
KENNSLUBÓK UIKíO^
ÁVANA- OC FÍKNIEFNI
Kennslubók um
ávana- og fíkniefni
I septembermánuði sl. kom út bók á vegum
Hafnarfjaröarbæjar um ávana- og fíkniefni.
Bókin ber nafnið „Kennslubók um ávana- og
fíkniefni fyrir skóla ogalmenning”. Höfundur
bókarinnar er Vilhjálmur G. Skúlason, dr.
phil., en fjögurra manna starfshópur var
honum til aðstoðar við gerð hennar auk lista-
manns er annaöist myndskreytingu (sjá
nánarformála).
Árlegt símahappdrætti
lamaðra og fatlaðra
Styrktarfélag lamaöra og fatlaðra efnir nú til
hins árlega símahappdrættis, en eins og al-
kunna er gilda símanúmerin jafnframt sem
númer happdrættismiöanna. 1 þessu sérstæöa
happdrætti er þvi ekki um þaö aö ræöa aö gefa
út ótakmarkaöan miöafjölda, heldur miöast
fjöldi útgefinna miöa algerlega viö skráö
símanúmer.
Vinningar í símahappdrættinu aö þessu
sinni eru mjög glæsilegir: 5 mismunandi
tegundir vinsælia bifreiöa frá TOYOTA aö
verömæti rösklega 2 milljónir króna. Veröi
happdrættismiöanna er stillt í hóf og kosta
þeirkr. 150,00.
AÖ sögn Siguröar Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Styrktarfélagsins, er sima-
happdrættinu alltaf tekið með vinsemd af
símnotendum í öllum þeim aragrúa happ-
drætta og fjáraflana sem jafnan eru í gangi.
Þannig ættu símnotendur góöan þátt í upp-
byggingu og eflingu félagsins.
Jafnframt er ástæöa aö leggja á þaö
áherslu aö drætti er aldrei frestað. Ávallt
dregiö á Þorláksmessu og vinningsnúmer birt
opinberlega daginn eftir og einnig er hægt
strax á aöfangadag að hringja í símsvara sem
tilgreindur er á miöunum og fá þannig
upplýsingar um vinningsnúmer.
Gestaleikhús á vegum
Stúdentaleikhússins
Þriðjudaginn 27. nóvember og miðvikudagmn
28. nóvember verður franskt gestaleikhús á
vegum Stúdentaleikhússins í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut. Theatre Grottesko
kallar hópurinn sig og hefur aðalbækistöð í
París. Hingað til lands koma tveir leikarar,
Elizabeth Wiseman og John Flux en þau eru
bæði bandarísk. Munu þau sýna leikverkið
The Insomniacs (hin svefnlausu) sem fjallar
um hjón sem ekki geta sofnaö, í fyrstu er allt
með felldu en þegar rollurnar sem þau telja
til að sofna fara aö stökkva fram á gólfið fer
ýmislegt að gerast. Þetta verk þykir meiri-
hátta gamansamt svo áhorfendur hlæja sig
næstum í hel en um leið er það hrollvekjandi á
köflum. Hér er blandaö saman mörgum stíl-
brögðum svo úr verður blanda af trúöleik,
ádeilu og svartri „kómedíu”. I þessari sýn-
ingu er eiginlegt talmál ekki notað en þess í
stað hefur verið búið til nýtt og mjög auðskiliö
mál svo íslenskir áhorfendur ættu ekki að
lenda í nokkrum vandræöum að skilja það
sem fram fer.
Eins og áöur sagði verða sýningar 27. og 28.
nóvember og hefjast kl. 21.00 í Félagsstofnun
stúdenta. Hægt veröur að panta miða í sima
17017 hvenær sólarhringsins sem er.
Jólamarkaður
Jólamarkaður félags einstæðra foreldra
verður í Traðarkotssundi 6 laugardaginn 1.
desember nk. Fólk er beðið að koma munum
á skrifstofuna fyrir 30. nóvember í síðasta
lagi.
Enn ein stórgjöf til Gigtar-
félags ísl. frá fimm konum
Gigtarfélagi Islands hefur borist stórgjöf að
upphæð kr. 150.000,- frá fimm konum sem
ekki viija láta nafns síns getið. Þetta er í
fjórða skiptið sem þessar ágætu konur gefa
félaginu stórgjöf.
Fjárins afla þessar konur í tómstundum,
með gerð listrænna jólaskreytinga sem eru
víða orðnar þekktar.
Þessi gjöf kemur sér ákaflega vel því opnun
Gigtlækningastöðvarinnar var kostnaðarsöm
framkvæmd og skuldir hvíla þungt á félaginu.
Hlýhugur þessara kvenna til Gigtlækninga-
stöðvarinnar verður best þakkaður með þvi
að viö öll hin stöndum vörð um starfeemi
stöðvarinnar.
Verðlaunagetraun Vörumark-
aðarins
Á sýningunni Heimilið og fjölskyldan '84 efndi
Vörumarkaðurinn hf. til verðlaunagetraunar
í sýningardeild sinni þar sem sýnt var hið fjöl-
breytta gjafavöruúrval sem Vöru-
markaðurinnhf. býðuruppá.
Getraunin var í því fólgin að sýningargestir
giskuöu á heildarverðmæti gjafavaranna sem
sýndar voru en flestir hlutirnir voru verö-
merktir á sýningunni.
Þann 16. september sl. var svo farið yfir
innsendar úrlausnir og í ljós kom aö Guðlaug
Björgvinsdóttir, 14 ára, giskaði 14 kr. frá
rétta heildarverðinu og hlaut hún þar af
leiðandi verðlaunin, sem voru gjafavöruút-
tektaðverðmæti 10.000 kr.
Vegna frábærrar þátttöku sýningargesta
var ákveðið að veita 10 þeim sem næst
giskuðu aukaverðlaun sem voru gjafavöruút-
tekt að verðmæti 1.000,- kr. hver og voru þeir
sem næst giskuðu: Júlíana Hansdóttir, Daníel
Þór Harðarson, Ama K. Hilmarsdóttir,
Sigrún Björgvinsdóttir, Þórhildur Olafsdóttir,
öm Arason, Fróði Steingrímsson, Rósa Bene-
diktsdóttir, Selma Rut Gunnarsdóttir og Jón
Erlendsson.
Þessar myndir voru teknar 22. september
sl. þegar verðlaunin vom afhent í gjafavöru-
deild Vörumarkaðarins hf. á 2. hæð og óskum
við verðlaunahöfunum hjartanlega til ham-
ingju með árangurinn og öllum hinum fjöl-
mörgu sem þátt tóku i þessum getraunaleik
þökkum við kærlega fyrir.
Jólabasar
Vinahjálpar
Jólabasar Vinahjálpar verður haldinn aö
Hótel Sögu (Súlnasal), sunnudaginn 25. nóv.
’84, kl. 2 e.h. Glæsilegt hapjxirætti. Kaupið
jólagjafirnar hjá okkur um leið og þið styrkið
gott málefni.
Heilsugæsla
Heilsugæslustöðin á Seltjarnamesí hefur frá
1. október sl. tekið upp kvöld- og helgarvaktir
fyrir þjónustusvæði sitt, sem er Seltjarnames
og vestasti hiuti Reykjavikur.
Kvöldvakt er aila virka daga frá kl. 19.30—
22.00. Á laugardögum, sunnudögum og al-
mennum frídögum er bakvakt frá 09.00—12.00
og frá 17.00—22.00 síðdegis.
Sími bakvaktar er 19600 (Landakot).
Heilsugæslustöðin
Seltjamaraesi.
Sérfræðingur í kennslu al-
varlega fatlaðra barna
staddur hér á landi
Andreas Fröhlich, yfirkennari skólans fyrir
fatlaða í Landstuhl í V-Þýskalandi, dvelur hér
á landi dagana 22.-28. nóvember í boði For-
eldra- og kennarafélags Safamýrarskóla og
Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis.
A. Fröhlich mun halda námskeið fyrir
starfslið þjálfunarskóla ríkisins á Kópavogs-
hæli og Safamýrarskóla en auk þess mun
hann flytja erindi fyrir almenning í Borgar-
túni 6 mánudaginn 26. nóvember kl. 20.30. í
erindi sínu mun hann segja frá niðurstöðum
þróunarstarfs sem fram fór í skólanum í
Landstuhl á árunum 1976—1982 til þess aö
finna og þróa þjálfunar- og kennsluaðferðir til
að beita við ofurfótluð böm. Erindið veröur
túlkaö á íslensku.
þórhildur
JL blad islcndinga í kaupmannahöfn
4. tölublad 2. árgangur október 1984
Þórhildur, blað íslendinga í
Kaupmannahöfn
Islendingafélagið og Félag námsmanna í
Kaupmannahöfn hafa nú gefiö út tvo árganga
af blaöi sínu, Þórhildi, sem flytur ýmiss konar
efni til fróðleiks og skemmtunar fyrir þá Is-
lendinga sem þar búa.
Lesendahópurinn er stór eða liðlega tólf
hundruð manns auk þess sem gera má ráð
fyrir nokkrum hópi sem sér blaðiö en telst
ekki til áskrifenda. Einnig er taisvert af
áskrif endum á Islandi.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Dagsferð sunnudaginn 25. nóvember:
Kl. 13, varðaða leiðin á Hellisheiði—Hellis-
skarð—Kolviðarhóll (gamla gönguleiðin).
Þetta er.iétt og skemmtileg gönguleið.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna. Verð kr. 350,-
Skák
Skákþing UMSK
Skákþing UMSK verður haldið 24. og 25.
nóvember nk. í félagsheimilinu Fólkvangi á
Kjalamesi. Hefst tafiið kl. 13.00 báða dagana.
Tefldar verða 6 umferðir eftir Monradkerfi
í tveimur flokkum, 16 ára og yngri og 17 ára
og eldri. Umhugsunarfrestur er 45 mín. á
mann.
Vegleg verðlaun eru í hvoram flokki sem
gefin eru af sveitarfélögunum á Kjalamesi og
í Kjós.
Rétt til þátttöku hafa allir þeir sem era
féiagsbundnir í einhverju af aöildarfélögum
UMSK eða eiga lögheimili á sambands-
svæðinu, sem er: Bessastaðahreppur,
Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mos-
feUssveit, Kjalames og Kjósarhreppur.
Þátttökugjald er kr. 50 fyrir yngri flokk og
kr. 100 fyrir eldri flokk. Frestur til að skrá inn
keppendur á mótið rennur út þann 22. nóv. nk.
Hægt er aö tilkynna þátttöku og afia nánari
upplýsinga á skrifstofu sambandsins að
Mjölnisholti 14 í síma 16016 og hjá Kristni G.
Jónssyni Brautarholti í síma 666044.
Tónleikar
Hljómsveitin Rikshaw með
opnunartónleika í Safarí
Fimmtudagskvöldið 22. nóvember heldur
hljómsveitin Rikshaw fyrstu tónleika sína í
veitingahúsinu Safari við Skúlagötu. Tónlist
þeirra flokkast undir nýbylgju og er ÖU frum-
samin. Hljómsveitina skipa: Sigurður
Hannesson trommur, Dagur Hilmarsson
bassi, Richard Scobie söngur og hljómborð,
Sigurður Gröndal gítar og Ingólfur
Guðjónsson hljómborð. Húsið verður opnað
kl.22:
Das Kapital:
Útgáfutónleik-
aráBorginni
I kvöld, fimintudagskvöld, heldur
hljómsveitin Das Kapital útgáfutón-
leika á Hótel Borg í tilefni af útkomu
fyrstu plötu sinnar, „LilliMarlene”.
Tónleikarnir hefjast kl. 21. Á
næstunni er svo væntanlegt blað frá
hljómsveitinni en í því eru tekin fyrir
málefni sem áhrif hafa á lagasmíðar
þeirra.
Ekki fasteignasali
I frétt DV síðastliöinn mánudag var
f jallaö um mann er ákærður hefur ver-
iö fyrir fasteignaviðskipti. I fréttinni
var maöurinn ranglega nefndur starfs-
heitinu fasteignasali. Þann titil ber
maðurinn ekki og hafa þeir einir rétt til
að kalla sig fasteignasala sem uppfylla
lagaskilyrði þar um.
Mig langar til þess aö líta á
eitthvað smart sem er svona mitt
á milli þess aö þaö klæði mig og ég
hafi ráð á að kaupa það.
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Jafntefli enn
Tuttugasta og sjötta skák í heims-
meistaraeinvígi þeirra Anatoli
Karpovs og Garrí Kasparovs var
tefld í Moskvuborg í gær. Lyktaði
henni með jafntefli eins og síðustu
sextán skákum en nú eftir nokkrar
sviptingar.
Áskorandinn, Kasparov, haföi
hvítt og leiddi skákina inn í sama far-
veg og síðast er hann hafði hvítt.
Karpov breytti út af þeirri skák í 11.
leik en virtist ekki að öllu leyti ná
fram tafljöfnun. Þurfti heims-
meistarinn aö gefa eitt peð til aö
blíðka goðin en við þaö náði hann
öflugu mótspili á hvítu reitunum og
Kasparov sætti sig þá við jafnteflis-
boðhans.
26. einvígisskákin:
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatolí Karpov
Enski leikurinn.
I. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 Rc6 4. d4
cxd4 5. Rxd4 e6 6. g3 Db6 7. Rb3 d5 8.
cxd5 Rxd5 9. Bg2 Rxc3 10. bxc3 Be7
II. 0-0 e5! ?
Fram til þessa leiks hafa meistar-
arnir fylgt eftir leikjum 24. skákar-
innar. Nú breytir heimsmeistarinn
út af þeirri skák, sem reyndar var
afburða daufleg og endaði með jafn-
tefli eftir aöeins 17 leiki.
I þeirri skák lék Karpov hér 11. —
0-0 en nú hefur hann e.t.v. óttast
framhaldið: 11. 0-0 12. Be3 Dc7 13.
Rd4 Hd8 14. Da4 Bd7 15. Rxc6 Bxc6
16. Bxc6 bxc6 17. Habl! (en ekki 17.
c4 eins og í 24. skákinni) og svartur á
í vissum erfiðleikum með a peö sitt,
en þannig tefldist einmitt skák Svet-
ovich og Giigoric í Lugano á síöasta
ári. Karpov notaöi 20 mínútur á
textaleikinn.
12. Be3 Dc713. Rc5 0-014. Da4 Bxc5
Heimsmeistarinn neyðist nú til að
gefa biskup sinn fyrir riddara
áskorandans, sem viö það fær
biskupaparið og rýmra tafl.
15. Bxc5 Hd8 16. Hfdl Be6 17. h3
Hxdl+
Á ný brúkaöi Karpov 20 mínútur á
leik. Hann hefur notað þann tíma til
að reikna út litla peðsfóm og hvort
hún myndi ekki nægja til tafljöfn-
unar
18. Hxdl Hd8! 19. Hxd8 — Dxd8.
Hvítur vinnur nú peð en verður til
þess að gefa biskupaparið til baka og
missir tökin á hvítu reitunum.
20. Bxa7
Vel kemur hér til greina aö bíða
með peðstökuna og leika 20. Db5,
svartur þarf þá vel að gæta sín ef
ekki á illa aö fara. T.d. 20. — Dd7 21.
a4! og h3 peðið er tabú vegna: 21. —
Bxh3 22. Bxh3 Dxh3 23. Dxb7 með
vinningsstöðu. Svartur leikur hér
best 21. — a6! og heldur í horfinu
eftir t.d. 22. Dc5 f6 23. Kh2
20. —Da8!
Þar lá hundurinn grafinn. Hvítur
neyöist nú til uppskipta á hvítreita
biskup sínum, sem gefur svörtum
góð mótfæri eftir þeim reitum.
21. Bxc6 bxc6 22. Kh2 h5 23. Da5 f6
JAFNTEFLI samið.
Þessi lokastaða er nokkuð
athyglisverð. Við fyrstu sýn virðist
hvítur vera sælu peði yfir og þaö frí-
peði á a-línunni. Hinsvegar er ekki
auðvelt aö koma auga á leið fyrir
hvítan til að koma því upp í borðið og
svartur hefur mjög gott grip á hvítu
reitunum. Hugsanlegt framhald er:
24. a3 Dc8 25. h4 Bd5 26. f3 e4! og nú
má hvítur fara að vara sig.
Kasparov þáði því jafnteflisboð
heimsmeistarans og gekk brosandi
frá borðinu. Sennilega hefur jafntefli
ekki verið honum á móti skapi í
þessari stöðu.
27. skák einvígisins verður tefld á
morgun og hefur Karpov þá hvítt.