Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Síða 34
34
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1934.
Þeir hjá Gunnari & Guðmundi völdu TREMIX gæðanna vegna.
Við getum ennþá boðið örfáar á þessu gamla og góða verði, kr. 67.000.
JARÐVEGSÞJÖPPUN,
140 kg.
Einkaumboö fyrir
TREMIXá íslandi
nifi.r/juj
Fosshálsi 27 - sími 687160.
ral Urval
STÆRRA HEFTI Á
NÆSTA BLAÐSÖLU-
STAÐ.
Aki Jónsson, forstjóri ACO h.f., Óli Vestmann Einarsson yflrkennari og Ingvar
Ásmundsson skólastjóri við afhendingu á LINOTYPE setningartölvunni sem
ACO h.f. gaf Iðnskólanum.
Iðnskólanum gefnar
setningartölvur
1 tilefni af 80 ára afmæli Iönskólans í
Reykjavík hefur Heildverslunin ACO
h.f. gefið skólanum fullkomna setning-
artölvu af gerðinni LINOTYPE.
Vélina er hægt að tengja við tölvu
beint eða um símalínu. Með þessu
skapast möguleiki á þvi að setja texta í
smátölvu með ritvinnsluforriti. Vélin
kemur síðan textanum í endanlegt
form.
Færeyjaflug:
Allt að 60%
lækkun farmgialda
Flugleiðir hafa ákveðið að leggja sitt
af mörkum til aðstoðar við upp-
byggingu á markaði fyrir íslenskan
iðnvarning í Færeyjum. Gjaldskrá
Flugleiöa fyrir flutning á varningi frá
Islandi til Færeyja hefur því verið
lækkuö verulega eða allt aö 60%. Nýja
gjaldskráin er sniöin sérstaklega aö
þörfum íslensks iönaöar og ætti aö
létta mjög undir meö þeim fyrirtækj-
um sem vilja notfæra sér kosti þess aö
senda vörur í flugfrakt til Færeyja.
Jafnframt þessari gjaldskrár-
lækkun hefur veriö ákveðið aö fjölga
ferðum til Færeyja frá því sem verið
hefur undanfarna vetur og nota auk
þess stærri flugvélar. I vetur veröa
tvær ferðir í viku, á þriðjudögum og
laugardögum. Flogið er á Fokker
Friendship skrúfuþotum sem geta
tekiö allt upp í 2,5 tonn af frakt í hverri
ferö aukfarþega.
Kratar víta Steingrím
Nýkjörin framkvæmdastjórn
Alþýöuflokksins hefur samþykkt
ályktun þar sem fordæmd eru þau um-
mæli Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra að kjarasamningar
rikisins viö BSRB væru „pappírs-
launahækkanir”. Ummmæli þessi
viðhaföi forsætisráðherra í sjónvarps-
viðtaliámánudag.
„Þetta er köld kveðja til þeirra
þúsunda opinberra starfsmanna sem
lögðu á sig dýrkeyptar fómir í 4 vikna
verkfalli í trausti þess að þeir væru aö
semja viö ábyrgan aöila, ríkisstjórn
Islands,” segir í ályktun fram-
kvæmdastjórnarinnar.
„Framkvæmdastjóm Alþýðuflokks-
ins telur það skyldu ríkisstjórnarinnar
aö standa við geröa samninga. Ríkis-
stjóminni ber skylda til að tryggja,
með viðeigandi ráðstöfunum varöandi'
rekstrargrundvöll útflutningsgreina,
efnahagsstjóm, atvinnustefnu og um-
bætur í skatta- og peningamálum, aö
samningar, sem fjármálaráðherra
hefur undirritaö fyrir hönd ríkisstjóm-
arinnar, séu haldnir, en ekki eyöilagöir
í nýrri verðbólguskriðu,” segir í álykt-
uninni.
-ÓEF.
Yfirlæknir samvinmi-
verkefnis ráðinn
Hrafn V. Frlðriksson.
Hrafn V. Friðriksson dr. med. hefur
veriö ráöinn yfirlæknir í heilbrigöis- og
tryggingamálaráðuneytinu frá 20.
október sl Aðalstarfssvið hans er
framkvæmdastjóm samvinnuverkefn-
is milli Islands og Alþjóðaheilbrigöis-
málastofnunarinnar (WHO) til for-
vamar langvinnra sjúkdóma, en
samningur þar að lútandi var undirrit-
aður í Kaupmannahöfn 10. febrúar sl.
Jafnframt mun Hrafn annast störf
skólayfirlæknis.
Hrafn V. Friðriksson útskrifaðist
frá læknadeild Hl 1968, stundaöi
framhaldsnám og störf í Svíþjóð 1970—
76 í sérgrein sinni, meinalífeðlisfræði.
Hann varði doktorsritgerð við
Uppsalaháskóla ímaí!981.