Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 4
4
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984.
Frumsamningurinn f rá
1918
kominn í leitirnar:
„Datt of-
an á þessi
skjöl”
— segir Baldur Möller
ráðuneytisstjóri semfann samninginn
íkjallara Arnarhvols
„Ég var aö leita aö einhverju, sem
ég man ekki lengur hvað var, þegar
ég datt ofan á þessi skjöl,” sagöi
Baldur Möller, ráöuneytisstjóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í
samtali viö DV.
Fyrir nokkrum mánuðum átti
Baldur erindi í skjalasafn dóms-
málaráðuneytisins í kjallara Arnar-
hvols þegar hann rakst á skjöl þau
sem hann nefndi. Þaöeru sairbands-
lagasamningurinn sem undiivitaöur
var í Reykjavík 18. júlí 1918 af sam-
bandslaganefndum Islands og Dan-
merkur, svo og staðfesting konungs
Kristjáns X. á lögunum. Skjöl þessi
voru afhent Þjóöskjalasafni Islands
til sérstakrar vörslu í gær, 30.
nóvember, réttum 66 árum frá undir-
ritun konungs á lögunum, en þau
tóku gildi daginn eftir, 1. desember,
eins og kunnugt er.
„Þaö var fyrir tilviljun aö ég fann
þessi skjöl hér í kjallaranum,” sagöi
Baldur, „enþau voru þar meö öörum
lagaskjölum frá árinu 1918. Þau hafa
fariö víöa. I fyrstu voru þau geymd
uppi á háalofti í Stjórnarráöinu þar
til um áramótin '54—’55 aö dóms- og
kirkjumálaráðuneytiö flutti aö Tún-
„Það var hér sem skjöl/n voru." Ba/dur Möller bendir upp i hilluna i
skjalageymslu Arnarhvols. Á innfelldu myndinni sjást undirskriftir
samningsins. DV-mynd KAE.
götu 18. Þá fóru þau í kjallarann þar
innan um önnur skjöl. Síöan lá leiö
þeirra hingað í kjallara Arnarhvols
þegar ráöuneytiö flutti.
Eftir aö ég rakst á þau geymdi ég
þau í skjalaskápnum á skrifstofu
minni. Ég vissi ekkert hvaö ég ætti
aö gera viö þau. Einhverju sinni,
ekid löngu síöar, hitti ég Aöalgeir
Kristjánsson, skjalavörö í Þjóö-
skjalasafninu, og minntist á þetta viö
hann. Hann vildi fá þessi skjöl á safn-
iö og í samráöi við ráðherra var
ákveðið aö afhenda þau Þjóðskjala-
safninu formlega 30. nóvember,”
sagöi Baldur Möller.
Skjöl þessi, ásamt konungsúr-
skuröi um íslenska fánann sem
undirritaöur var af konungi sama
dag og sambandslögin, munu fylgja
áöurnefndum skjölum og vera til
sýnis á Þjóðskjalasafninu á
næstunni.
-KÞ
Alltá
Kjjóll kr. 1.840,-
verðandi mæður
Skokkur kr. 1.280,-
Mussa kr. 1.008,-
Buxur kr. 1.200,-
Peysa kr. 1.450,-
KJóll kr. 1.045,-
Mussa kr. 740,-
Peysa kr. 950,- PÓStSendum.
Strokkur kr. 204,-
Buxnasamfestingur
kr. 1.785,-
Blússa kr. 740,-
Smekkbuxur kr. 1.640.-
Blússa kr. 540,-
DRAUMURINN, Kirkjuhvoli. Sími 22873. Opið kl. 12-—18.
Verðhækkanir:
Brauðið
hækkar
Um þessar mundir eru allflestir
bakarar aö hækka framleiöslu sína. Á-
stæöan fyrir því er nýafstaöin gengis-
felling og hækkun launa. Nær allt hrá-
efni sem bakarar nota er flutt til
landsins. Frjáls álagning er á flestum
vörum sem seldar eru í bakaríum.
Hækkanir geta því veriö misjafnar
milli bakaría. Hækkanir sem nefndar
hafa veriö eru á bilinu 8—15 prósent.
Svokölluö vísitölubrauö eru enn
undir verölagsákvæðum. Verölags-
stofnun hefur samþykkt hækkun á
þeim. Nemur hún 2,8—9 prósentum.
Vísitölubrauðin eru: seitt rúgbrauö,
normalbrauö, maltbrauð, heilhveiti-
brauö og franskbrauö. Seitt rúgbrauö,
750 g, kostar nú 17,40 kr. og 625 g af
normalbrauði 16,80.
-APH.
Fyrirlestur
um stöðu íslands
Þriöjudaginn 4. desember flytur
William Arkin fyrirlestur í boöi
Félagsvísindadeildar Háskóla Islands
er nefnist: Iceland’s Position in U.S.
Security Policy (Staöa Islands í
öryggisstefnu Bandaríkjanna).
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 í stofu
102 í Lögbergi, húsi Lagadeildar Há-
skóla Islands, og er öllum opinn. Hann
veröur fluttur á ensku.
Jólastemmningin verður ihávegum
höfð á Hótel Loftleiðum á aðvent-
unni.
Jólastemmning
á Loftleiðum
Á aöventunni veröur mikiö um aö
vera á hótel Loftleiðum. Aðventukvöld
veröur í Blómasal 2. desember nk.
Lúsíukvöld veröur svo 9. desember og
jólapakkakvöld 15. og 16. desember.
Öll hátíðarkvöldin veröa tískusýn-
ingar þar sem sýndur verður fjöl-
breyttur jólafatnaöur. Enn fremur
verður víkingaskipiö sérstaklega
skreytt og þar sýndar jólavörur og
jólagjafir. Ýmislegt fleira verður til
hátíöabrigöa ofangreind kvöld og
hefur allt kapp verið lagt á aö vanda til
þeirra skemmtiatriða.
Allir aögöngumiðar aö hátíðar-
kvöldunum eru númeraöir. Síöasta
kvöldið verða dregnir út aöalvinningar
sem eru feröir innan lands og utan.
Þá veröur sú breyting á aðventunni
að 3. desember verður boðiö upp á jóla-
hlaðborð í staö sjávarréttahlaöborös
áöur. Þá verður jólaglögg á boöstólum
frábyrjunjólaföstu.
-JSS
Lokasprettur
Grænfjöðrunga
Nemendaleikhús Leiklistarskóla
Islands sýnir ævintýraleikinn Græn-
fjöðrungana næstkomandi mánudag,
þriðjudag og fimmtudag í Lindarbæ.
Nú fer hver aö veröa síðastur að sjá
þennan bráðsmellna leik þar sem
sýningum fækkar óðum.