Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 44
FRETTASKOTIÐ (68) • (78) • (58) SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. er gœtt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Verðbólguhraðinn 60% fram í mars dettur síðan aftur niður í 10-15% undir vorið Hraöi veröbólgunnar verður um 60% næstu þrjá mánuði. Það þýðir að haldi almennar verðlagshækkanir á- fram í heilt ár eins og þá mánuði verða heildarhækkanir verðlags 60% á árinu. A þessum þrem mánuðum, desember, janúar og febrúar, mun verðlag hækka almennt um því sem á öðrum ársfjórðungi næsta árs næst!2,5%. Sé litið á lengra tímabil, síðasta ársfjórðung þessa árs og fyrsta árs- fjórðung næsta árs saman, má gera ráð fyrir 45% verðbólguhraða. Strax hægir verðbólgan á sér niður í 10— 15% hraða. Þeir dr. Vilhjálmur Egilsson, hag- fræðingur hjá Vinnuveitenda- sambandinu, og dr. Sigurður B. Stefánsson, hagfræðingur hjá Kaup- þingi hf., voru sammála um þessar verðbólguspár þegar DV leitaöi álits þeirra. Verðbólgustökkið á rætur í því að um 18% kauphækkanir og álíka gengisfelling krónunnar koma nú fram í árslok. -HERB. Búvörur: Grundvöllur- inn hækkar um 12% Sexmannanefndin ákvað í gær að verðiagsgrundvöllur landbúnaðarvara skyldi hækka um 11—12 prósent. Ekki var samt búið aö ganga frá hækkun hans að fullu. Utgjaldaliður bóndans í grundvellinum hækkar um 11,8 prósent. Ekki var búið að ákveða hvað dreifingarkostnaður búvara þyrfti að hækka mikið seint í gær. Hversu mikil hækkun verður á ein- stökum búvörum til neytenda er ekki hægt aö segja um að svo stöddu. Hækk- un þeirra verður að meðaltali um 12 prósent. Hins vegar getur hún veriö mismunandi vegna mismikilla niður- greiðslna. APH Frá 1. desember er áskriftar- verð DV 310 kr. á mánuöi. Frá sama tíma er verð blaðsins í lausa- sölu 30 kr. eintakið, nema Helgar- blaös, 35 kr. eintakið. Grunnverð auglýsinga verður 180 kr. hver dálksentímetri. Mikíö fyrir lífið AHKUG4RDUR LOKI Hvað segir verð/agseftir- iitið um álagninguna á LSD? Árni Þór Sigurðsson námsmaður les kröfugerð námsmanna upp fyrir Pál Ásgeir Tryggvason, sendiherra íslands í Noregi. DV-mynd Felix Högnason. — Símamynd — íslenskir námsmenn á Norðurlöndum: SETTUSTINNI SENDIRAÐIN Islenskir námsmenn í Osló, Kaup- mannahöfn og Stokkhólmi settust inn í sendiráð Islands í gær til að leggja áherslu á kröfur sínar í lánamálum. I Osló tóku um 30 námsmenn sér stöðu í sendiráðinu og voru þar frá því kl. 10 um morguninn til klukkan hálffimm. I Kaupmannahöfn voru námsmenn líka í allan gærdag inni í sendiráðinu. Þeir afhentu sendiherrunum bréf þar sem þess var krafist að nemar á fyrsta ári nytu lána frá Lánasjóði íslenskra námsmanna og aö fjárhags- staða sjóðsins yrði treyst. Einnig kröfðust námsmenn þess að lánþegum yrði gert skylt að vera i Samtökum íslenskra námsmanna erlendis — SINE. Jón Einar Guöjónsson, fréttaritari DV í Osló, sagði að þar hefði allt farið vinsamlega fram en Páll Asgeir Tryggvason sendiherra hefði kvartað yfir því að erfitt hefði verið að vinna, með hópinn í sendiráöinu. Einar Agústsson, sendiherra í Kaupmannahöfn, tók í sama streng, sagði að námsmenn hefðu afhent sér kröfulista og hann hefði hringt í menntamálaráðherra og gefið þeim svar munnlega. Námsmenn sögðust ekki hafa tekiö það svar gilt og biðu í sendiráðinu eftir skriflegu svari. Það kom svo á fjarrita síðar um daginn. I því sagði að nemar á fyrsta ári myndu fá haustlánin eftir áramótin eins og alltaf hefði staðið til. Ráðuneytið gæti hins vegar ekki á- byrgst hver niðurstaða Alþingis um fjármál sjóðsins myndi verða. Inga Jóna Þórðardóttir, aðstoöar- maður menntamálaráðherra, sagði i gærkvöldi aö ráðuneytið hefði beðið fjármálaráðuneytið um aukafjár- veitingu til að hægt væri að borga full námslán í desember. „Það vantar 41,5 milljónir upp á að við getum borgað út 95 prósent lán í desember,” sagði hún. Isafjörður: Ökuferðin endaði í sjónum Ekki hefur mátt miklu muna aö al- varlegt slys yröi á Skutulsf jarðarbraut á ísafirði í fyrrinótt. Þar liggur vegur- inn í flæðarmálinu og þýðir það að bíll sem þar fer út af endar örugglega úti í sjó. Bakkus er grunaður um að hafa ver- ið með við stýrið í ökuferð nokkurra ungmenna um nóttina. Bíllinn sem þau voru í fór út af veginum og hafnaöi hann að sjálfsögðu í sjónum. Þama var aðgrunnt og gátu farþegar og öku- maður því vaðið í land, Utið meidd en eitthvað vot. Ef bíllinn hefði fariö út af skammt frá þessum stað hefði verr getað farið. Er það á svæði sem kallaö er Græna- haf. Þar er mikið dýpi og ekki víst að sundtökin ein hefðu nægt til að komast klakklaustíland. -klp- Rannsókn lokið íLSD-málinu: Tfföld álagning hérlendis Rannsókn er nú lokið í LSD málinu og hefur mönnunum þremur, sem sátu í gæsluvarðhaldi, verið sleppt. Að sögn Gísla Björnssonar, fulltrúa í fíkniefnadeild lögreglunnar, gekk rannsóknin vel fyrir sig og eru allir þættir málsins nú ljósir. Efnið var keypt í Hollandi, alls 900 skammtar af LSD, 100 g af amfetamíni og lítilsháttar af kókaini. Um var að ræða tvær tegundir af LSD, annars vegar svokallaö „míkró-LSD”, sem eru bláar töflur, og hins vegar „rauð hjörtu”. Verðið ytra á þessu er 4,10 gyllini og 5 gyllini eða á bilinu 40 til 50 ísl. kr. Söluverð þeirra, að sögn fíkni- efnalögreglunnar, er á bilinu 500—750 kr. á markaði hér eða tíföld álagning. Niðurstaða úr styrkleikaprófun liggur enn ekki fyrir. -FRI. i \ i i i i i i i i i i i íslenska karlasveitin: ú Stóð í Rússum Islenska karlasveitin á ólympíu- skákmótinu fékk 1,5 vinninga á móti Sovétmönnum í gær. Sovétmenn fengu 1,5 vinninga og ein skák fór í bið og er sennilega töpuð fyrir Islendinga. Islenska sveitin er nú í fjórða sæti. Kvennasveitin tapaði öllum skákum sínum á móti Frökkum. Island — A-Þýskaland i I i i Eins á markstap Islendingar töpuðu fyrir A-Þjóð- verjum í Polar Cup-keppninni í gær- kvöldi með aðeins eins marks mun — 23—22. I hálfleik var staðan 13—11 fyrir Islendinga. Bjarni Guðmundsson skoraði 11 mörk, Sigurður Gunnarsson 4 og Aöi Hilmarsson 3.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.