Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 16
16
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984.
NÚ FER HVER
AÐ VERÐA SÍÐASTUR
TILBOÐIÐ STENDUR
TIL 2. DES.
Opið laugardaga frá 10—16
og sunnudaga frá 14—16
É>ttrlð
Auðbrekku 9
Kópavogi
Sími 46460
Sendum í póstkröfu
GAGNSLAUS
NJÓSNARI
— en enginn dregur í efa snilligáfu
Ashkenazys sem tónlistarmanns
Kynntust þau Vladimir Ashkenazy
og Þórunn kona hans Jóhannsdóttir
þegar Ashkenazy var settur til þess aö
njósna um hana? Það skyldi þó aldrei
vera. í nýrri ævisögu Ashkenazys, sem
væntanleg er bæði á íslensku og ensku,
dregur píanósnillingurinn enga dul á
að hann hafi um hríð verið njósnari
fyrir leyniþjónustuna KGB. Hlutverk
hans hafi verið að afla upplýsinga um
erlenda stúdenta í Moskvuborg. Þeirra
á meðal var Þórunn Jóhannsdóttir.
Það er maður aö nafni Jasper
Parrott sem fært hefur sögu
Ashkenazys í letur en Parrott þessi
mun vera umboðsmaður Vladimirs.
Bókin kemur út hjá forlaginu Collins á
Englandi nú í haust og samtímis birtist
íslensk þýðing sem Guðni Kolbeinsson
hefur unnið fyrir bókaútgáfuna Vöku.
Islenska útgáfan kallast Ashkenazy —
austan tjalds og vestan og undirtitill
hennar er: „Reynslusaga Vladimirs
Ashkenazys og fjölskyldu hans”;
enska frumútgáfan heitir á hinn bóg-
inn „Beyond Frontiers”.
Ashkenazy var fy rr í þessum mánuði
staddur í kóngsins Kaupinhafn til þess
að stjórna Útvarpshljómsveitinni á
tveimur tónleikum. Koma hans vakti
að sjálfsögöu töluverða athygli í Dan-
mörku, því Ashkenazy er nú óðum að
skipa sér í flokk fremstu stjórnenda
heims. Blaöamaöur frá Politiken átti
til dæmis samtal við Ashkenazy og
fjallaði ekki síst um uppljóstranir tón-
listarmannsins um að hann heföi verið
í þjónustu KGB í Moskvu.
Of óttasleginn
til að hafna boði KGB
„Hvers konar njósnari ég hafi ver-
ið?” svaraöi Ashkenazy spurningu
blaðamannsins og brosti breitt. ,,KGB
,komu til min og fóru fram á að ég
njósnaði um erlenda stúdenta við tón-
listarskólann í Moskvu. Eg var of ótta-
sleginn til þess að hafna þessu boði. Á
það ber að líta að ég var ekki nema
tuttugu og eins árs að aldri og hafði
vaxtareikningur
ERÐBOLGU.
Mánaðarlega eru borín saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra
reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að
Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur.
Betri kjör bjóðast varla.