Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. 9 Eg þekki hvorki haus né sporö á Guðríði Elíasdóttur, nýkjömum vara- forseta Alþýðusambands islands. Hún hefur um árabil verið formaöur verkakvennafélagsins Framtíðar- innar í Hafnarfirði en að ööru leyti er konan óþekkt öllum almenningi. Engu aö síður mælist kjör hennar vel fyrir, kemur þægilega á óvart. Sennilega vegna þess að á því er manneskjulegur blær. Guðríður segir frá því í blaða- viðtali aö hún sé næstelst fjórtán systkina og hafi sína starfsævi verið sjómannskona og húsmóðir. Hún unir því hlutskipti vel. Guðriður Elíasdóttir mun varla efna til byltingar í verkalýös- hreyfingunni eöa bíta í skjaldar- rendur í stíl við forna kappa verka- lýðsbaráttunnar, en kosning hennar felur í sér straumhvörf aö því leyti aö' hún er fyrsta konan sem kjörin er til varaforsetatignarí ASI. Henni fylgja sex aðrar konur inn í miöstjórn sam- bandsins. Ef til vill er þetta mark- verðasti árangur sem konur hafa náð í baráttu undanfarinna ára til auk- inna réttinda sér til handa. Jafnvel meiri árangur en kosningar kvenna í borgarstjórn og alþingi. Guðríður Elíasdóttir sómir sér vel í hinni nýju áhrifastööu vegna þess aö hún þekkir vel til alþýöukjara; réttur og sléttur fulltrúi þeirrar kynslóöar og þeirra kvenna sem hafa tekist á viö lífið án fyrirferðar og gauragangs. Það að vera sjó- mannskona og húsmóöir er vega- nesti og lífsreynsla sem varaforseti ASI getur verið f ullsæmdur af. Húsfreyjan Húsmóðurstarfið er mesta ábyrgðar- og virðingarstaðan í sam- félaginu. Sú staða hefur verið van- virt og vanþökkuð alltof lengi. Jafnvel konumar sjálfar hafa gert lítið úr því, í ákafa sínum í jafnréttis- baráttunni. öll höfum við átt mæður og ömmur, og karlpeningurinn hefur átt eiginkonur og bamsmæður. Flest þekkjum við mæðraþelið af eigin reynslu Hin hefðbundna húsmóðir, elda- buskan, þvottakonan, uppalandinn, kennslukonan, húsfreyjan á heimil- inu, hefur gegnt lykilhlutverki. Móöirin, sem hefur veitt bömunum athvaf og uppörvun, konan á bak við eiginmanninn, hinn óeigingjami förunautur og bakhjall hverrar fjölskyldu, er sú kjölfesta sem haft hefur meiri áhrif en nokkurn grunar og almennt er viðurkennt. Þjóöfélagsaðstæður hafa rekið konurnar út á vinnumarkaðinn. Kannske hefur þar mestu ráðið að efnahagur og launakjör einnar fyrir- vinnu hefur gert það óumflýjanlegt að konan hefur þurft að leggja á sig tvöfalda vinnu, utan og innan heim- ilis. En vaxandi nienntun kvenna og krafan um jafnan rétt kynjanna hefur og átt sinn þátt í þessari þróun. Þá sögu er óþarft að rifja hér upp. Hún er eölileg og óhjákvæmileg. Konur em sjálfstæöari og virkari meö hverju árrnu, samfara breytingum í sifjamálum, heimilis- haldi og lífsháttum almennt. Það er því löngu tímabært aö þær hasli sér völl í æöstu forystu samtaka á borö við Alþýðusamband Islands. Það fer þar að auki vel á því að húsmóðir veljist til þessarar virðing- arstöðu, vegna þess að húsmóðirin er og veröur vandasamasta og verðug- asta hlutverk hverrar konu. Karlaveldið Fjölgun kvenna í miðstjórn ASI ber þó þann skugga aö karlaveldið í klúbbnum sat viö sinn keip. Enginn þeirra vildi víkja. Niðurstaðan varð því sú að fjölgað var í miðstjóminni sem nam sætum kvennanna. Þær mega sem sagt komast að, blessað- ar, meðan þær stugga ekki viö karla- valdinu. Vonandi verða þær ekki upp á punt í miöstjóminni, konurnar sjö. Það er auðvitað undir þeim sjálfum komið. Konur eru nú til jafns við karla á vinnumarkaðinum, en misrétti í launum og kjömm milli kynjanna er ennþá hróplega mikið. I framtíöinni þarf að eyða þeim fordómum, að konur séu óverðugur starfskraftur, enda hlýtur sú regla að eiga að gilda í þessum efnum sem öðrum aö hver einstaklingur og vinnuframlag hans sé metið að verðleikum en ekki hormónum. Kurteisishjal Þaö sama á og að gilda í kjöri til miöstjómar og forystustarfa í verka- lýðshreyfingunni. Sú staölaða Ellert B. Schram skrifar: skipting í kyn, flokka og búsetu, sem nú virðist ríða húsum í Alþýðusam- bandinu, verður aðeins til að hneppa þessa fjöldahreyfingu enn frekar í fjötra heföbundinna og staðnaðra vinnubragöa. Það er dæmalaus hræsni þegar því er haldiö fram að stjómmála- flokkarnir ráði engu um stjórnarkjör á ASl-þingi. Þar eru menn óspart dregnir í dilka eftir flokkspólitískum skoðunum og forystumenn flokkanna halda jafnvel hádegisverði og klíku- fundi með „sínum mönnum” til að kippa í spotta. Fjölgunin í miðstjórninni stafaði ekki síst af því að ekki mátti raska valdajafnvæginu flokkanna í milli. Nú er ég ekki að segja að það sé slæmt að mismunandi skoðanir fái að njóta sín í stómm samtökum. En þessar stífu leikreglur og jafnvægis- kúnstir verða augljóslega til þess aö enginn þorir aö gera neitt til aö styggja ekki hina. Kjarabaráttan verður að kurteisishjali og ásýnd Al- þýöusambandsins verður verri en hjákátlegar edikettur konungshirð- arinnar, þar sem enginn mátti móöga annan, nema vera settur út af sakramentinu. öllum ber saman um aö ASl-þingið hafi verið máttlaust og tilþrifalítið. Skort allan kraft. Viðhorf launþega til kjaramála fóru fyrir ofan garö og neðan. Sennilega hefur aldrei áður gerst að 20% launahækkun sé aftur tekin með dúndrandi gengisfellingu, án þess að Alþýöusambandsþing æmti né skræmti. Annaðhvort sætta launþegar sig viö kjaraskeröingu gengisfellmgarinnar möglunarlaust ellegar Alþýðusambandið er orðiö tannlaust ljón. Nema hvort tveggja sé. Hin dauða hönd Víst em þeir Ásmundur Stefánsson og Björn Þórhallsson hófsemdar- menn í orði og verki og enginn skyldi lasta það. Þeir ganga ekki lengra en umbjóðendur þeirra leyfa. En það vekur engu að síður athygli utanað- komandi hve viðbrögö þingsins em slöpp og laus við þann þunga og bar- áttukraft sem búast hefði mátt viö. Getur það verið að ástæðan sé sú, sem aö framan er rakin, að hin dauöa hönd flokkavaldsins og valda- jafnvægisins sé búin að hertaka og lama baráttuþrekið? Geturþað verið að Alþýðusambandið sé að falla í sömu gryfju og flokkamir sjálfir, að vera svifasein stofnun sem hugsi meir um innri völd, valdanna vegna, heldur en hræringarnar í þjóðlífinu? Jón Baldvin Hannibalsson sat fyrir svöram í sjónvarpinu á þriðjudag- inn. Hann fór mikinn og lét hvergi deigan síga. Sumt var blaður, annað bitastætt. Eitt var þaö sérstaklga sem ég hjó eftir í oröum hans og sló mig. Jón fullyrti að stærsti flokkur þjóðarinnar hefði misst tilfinningu fyrir högum launafólks og viðhorfum þess. Átti hann þá einkum við opinbera afstööu Sjálfstæðis- flokksins til verkfalls opinberra starfsmanna. Nú má auðvitað um þessa full- yrðingu deila, en ef eitthvaö er til í henni þá er það nógu slæmt fyrir stjórnmálaflokk. En verra er þaö fyrir þau samtök sem beinlínis eru mynduð af launþegunum sjálfum. Pólitík er tilfinning Alþýðusambandsþingið kemur manni þannig fyrir sjónir aö þaö endurspegli alls ekki, eða þá í skötu- líki, þann tón og þau viðhorf sem gætir meöal fólksins sjálfs. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr þá er pólitík háð tilfinningum og geðhrifum jafnt sem kaldri rök- hyggju. Stjórnmálaflokkar og alþýðusamtök, fjöldahreyfingar hvers konar, eiga líf sitt undir því að skynja undirölduna í þjóöfélaginu og sveiflumar í almenningsálitinu. Ekki endilega til að beygja sig fyrir þeim, en allavega að skilja þær og bregðast við þeim með ærlegum hætti. Pólitík flokka og stétta á ekki aö stjórnast af lýðskrumi, en hún má ekki missa jarðsamband. Alþýöusambandsforystan ætti að hugleiöa stöðu sína. Og það ættu fleiri aö gera sem biöla til al- mennings um fylgilag. Það er ekki nóg að breyta skipulagi, punta upp á stjórnarkjör og hrósa sigri í eigin samtökum, ef tilfinninguna og jarð- sambandið skortir. Þegar allt kemur til alls þá em kjörnir fulltrúar og foringjar aðeins þjónar fjöldans, talsmenn og túlkendur umbjóðenda sinna. Þaö gildir jafnt um pólitíkina sem verkalýöshreyf inguna. Vonandi er tilþrifaleysi ASl-þings ekki tákn þess og vottur að samtök alþýðunnar séu vaxin upp úr gras- rótinni. Við skulum vona að konumar í ASI haldi miðstjóminni viöefnið. Ellert B. Schram. Hilsfreyja tíl hásætis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.