Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 22
22 DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984 Jón Hallgrímsson flugmaður: „ Vandamálin eru svo flókin að það er ógjörningur að átta sig á heildarmyndinni nema hafa farið á staðinn. Og jafnvelþá liggja lausniralls ekkiá lausu." DV-myndBj.Bj. RÆTT VIÐ ÍSLENSKAN FLUGMANN SEM FLÝGUR MEÐ HJÁLPAR- GÖGN TIL EÞÍÚPÍU „Fyrstu ferðina mína fór ég með sjón- varpsmenn frá Addis Ababa. Við lentum um áttaleytið að morgni við búöir sem nefnast Khorem og þá var verið að hef ja matargjafir dagsins. Sjónvarpsmenn- irnir byrjuðu að taka myndir og á skammri stundu höfðu fimm manns gefið upp öndina fyrir augum okkar. Þá brotnuðu sjónvarpsmennirnir saman og hágrátandi tóku þeir niöur myndavélar sínar. Þeir sögðust ekki hafa haft hug- mynd um að ástandið væri svona slæmt. Svo bættu þeir við að myndirnar yrðu vitaskuld aldrei sýndar í eþíópíska sjón- varpinu. Það var ekki fyrr en BBC kom í þessar sömu búðir stuttu síðar að hörm- ungarnar komust á allra vitorð.” Hér talar Jón Hallgrímsson, íslenskur flugmaður, sem í haust hefur unnið við aö fljúga með matvæli og önnur hjálpar- gögn til sveltandi lýðs í Eþíópíu. Þar hafa geisað þurrkar að undanförnu meö ömurlegum afleiðingum eins og Vestur- landabúar eru nú fyrst aö frétta af. Þeir hafa að sönnu brugðist vel og rösklega við, og loftbrú hefur verið komið á til Eþíópíu; þangað streyma nú matvæli, fatnaður, lyf og annað sem að gagni má koma. En sumir telja að hjálpin hafi komiö of seint, aðrir að ekki nema hluti hennar komi í raun og veru að notum. Að þessu víkur Jón Hallgrímsson hér á eftir, en hann var fyrst beðinn að segja frá því hvernig stæði á því aö hann tæki þátt í hjálparstarfseminni í Eþíópíu. „Eg starfa hjá hollensku flugfélagi sem nefnist Schreiner Airways og það rekur starfsemi um allan heim, fyrst og fremst fyrir olíufélög. Ég hef unnið hjá félaginu í nokkur ár en var áður hjá Iscargo og Sverri Þóroddssyni; svo var það eitthvert flökkublóö sem olli því að ég sótti um þetta starf og fékk það á endanum. Þetta er gott félag og mikil til- breyting í starfinu; ég byrjaði á því að starfa í Líbýu og var þar í átta til níu mánuði samtals; síðan hef ég verið í Nígeríu, Tógólandi og nú síðast í Eþíópíu.” Eþíópiumenn vildu ekki viðurkenna hungursneyðina — Ertu þá búsettur erlendis? „Nei. Vinnunni er þannig háttaö aö ég er úti samfleytt í sex til átta vikur, en fæ svo fjögurra vikna frí og þá kem ég heim.” — Sehreiner Airways, er þetta stórt flugfélag? „Eg myndi segja að það væri nokkuð stórt. Félagið á fimmtán Twin Otter vélar og nokkrar smáþotur, auk sjötíu eða áttatíu þyrlna. Félagið kemur víða við; ætli það reki ekki nú starfsemi í fimmtán löndum og þar á meðal eru ýmis lönd Suður-Ameríku, Indland og nokkur ríki við Persaflóann. Svo hefur félagið fyrir stuttu gert samning um starfsemi í Kína og er fyrsta erlenda flugfélagiö sem nær slíkum samningum þar í landi. Olíufélögin eru aðalvið- skiptavinirnir eins og ég sagði; í Líbýu unnum við fyrir Mobile Oil og í Nígeríu flaug ég aðallega með verkamenn af olíuborpöllunum noröur til Lagos.” — En varla eru olíufélög vinnuveit- endur á þurrkasvæðunum í Eþíópíu? „Nei, við fljúgum fyrir Alþjóða Rauöa krossinn. Eg kom þangað fyrst þann 20. september í haust og þá gerðu fáir sér almennilega grein fyrir því hversu slæmt ástandiö væri. Þaö hefur sem betur fer breyst. Aður en vestrænir fjöl- miðlar vöktu athygli umheimsins á vandamálunum á þurrkasvæðunum reyndu yfirvöld í Eþíópíu oftast nær að gera lítið úr þessu. Þeir viðurkenndu að vísu að þarna væri við erfiðleika að glíma, en það er ekki langt síðan Dr. David, yfirmaður eþíópíska Rauöa krossins, lýsti því yfir í New York aö heimamenn væru fullfærir um að ráða við ástandið. Það kom annað á daginn.” Skógi vaxið svæði að eyðimörk á fjórum árum — Hverjir stunda nú hjálparstörf þarna? „Það eru fjöldamargir aðilar og Alþjóða Rauði krossinn er ekki nema einn þeirra. Aðrar hjálparstofnanir, ekki síst á kristilegum grunni, hafa einnig látið mikið að sér kveða. Fyrir Rauöa krossinn erum við meö eina Twin Otter og eina Herculesflugvél í stöðugum flutningum; Trans America er á ferðinni með þrjár Hercules-vélar; breski flug- herinn er þarna líka og Þjóðverjar sömuleiðis. Þannig að það er geipilegt magn flutt þangað suður eftir, en ég er hræddur um að þaö taki langan tíma aö snúa vörn í sókn. Viö björgum engu á tveimur eða þremur mánuðum ” — Hvernig eru staðhættir á þurrka- svæðunum? „Astandið er verst í noröurhluta Eþíópíu og þar er hálendi víða mjög mikiö og vegakerfið lélegt, auk þess sem borgarastyrjöldin setur strik í reikning- inn. Það er þess vegna eina ráðið aö flytja hjálpargögnin flugleiðis. Stundum eru að vísu sendar af stað bílalestir með matvæli og þess háttar en þær þurfa stöðuga hervernd og eru óratíma á leið- inni. Oftast nær er sta&iæmst um þrjú- eða fjögurleytið á daginn og haldið kyrru fyrir um nóttina af ótta við árásir skæruliöa, og því getur það tekið allt upp í fjóra daga aö fara vegalengd sem aka mætti á tveimur tímum. Við megum hins vegar fljúga til sjö á kvöldin. Eftir því sem sunnar dregur í landinu eykst rækt- að land, og þar er víða mjög fallegt um að litast, en ræktunin á undir högg að sækja. Mér var bent á stórt landsvæði sem hefði verið vaxið þéttum skógi fyrir aðeins fjórum árum, en þar er nú eyði- mörk. Fólkið hefur höggviö trén til eldi- viðar og það sem verra er; rifið þau ger- samlega upp meö rótum svo upp- blásturinn á greiða leið að viðkvæmari gróðri.” Fjöidinn allur af flökkufólki sem enginn vill sjá — Hefur stríðið mikil áhrif á hjálpar- starfið? „Já, mér er óhætt aö segja þaö. Annars er svolítið erfitt að átta sig á þessu stríði. Norður í Eritreu hafa menn barist í tuttugu ár gegn yfirráöum Eþíópiustjórnar og andstæðingar marx- istastjórnarinnar í Addis Ababa hafa einnig gripið til vopna. A stórum svæð- um, þar á meðal þurrkasvæðunum, virðist stjórnin aðeins ráða helstu borgum og bæjum en andstæðingar stjórnarinnar fara sínu fram í sveitunum. Maður varð oft var viö að engin stjórn hafði ríkt á sumum svæðum svo árum skipti. Rétt hjá bænum Ala- meta er prýðileg flugbraut en þegar ég lenti þar hafði ekki sést þar flugvél í tíu ár. Afleiðingar þessara sífelldu átaka eru meðal annars þær að á þurrkasvæð- unum, og raunar víðar, er mikið af svo- kölluðum „displaced persons”; flótta- eða flökkufólki sem enginn vill sjá.” — Hefur hungrið ekki sorfið illa að þessu fólki? „Jú, og raunar ekki hungrið eitt. I sumum búðum hjálparstofnana er fólk sem er komið langt aö, sumir hafa kannski gengið tvö þrjú hundruð milur norðan úr Eritreu með kornabörn á handleggnum og það segir sig sjálft að þetta fólk er afskaplega veikt fyrir hvers konar sjúkdómum. Þetta er hálandafólk sem er óvant næturkuldunum á þeim svæöum þar sem ég var mest á ferð, en þar fer hitinn niður í fimm gráður á nóttunni. Fólkið veikist þess vegna fljótt og mörgum er alls ekki hægt að bjarga. I Khorem deyja að meöaltaii niutíu og fimm manneskjur á hverjum sólarhring og í Mabele kringum fjörutíu og fimm. Þó eru síðarnefndu búðirnar alls ekki stórar; æth þar séu ekki um fimm þúsundmanns.” Herinn grunaður um að misnota hjálparstarfsemi — Hvernig er aðkoman á þessum stööum? „Hún er helvíti dapurleg, það verður ekki annað sagt. Það sem er kannski átakanlegast er algert vonleysi sem hefur gripið um sig. I landinu hafa níutíu prósent þjóöarinnar hfað af landbúnaði frá alda öðh og þurrkarnir og stríðið eru á góðri leið með aö ganga af land- búnaðinum dauðum. Þrátt fyrir allar matarsendingar er borin von að koma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.