Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 20
20
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 85., 88. og 93. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Ásbúö 43, Garðakaupstað, þingl. eign Pálinu Sigurðardóttur,
fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn
3. desember 1984 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Mosabarði 15, Hafnarfirði, þingl. eign Kristófers Bjarna-
sonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 4. desember 1984 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Brekkuhvammi 2, Hafnarfirði, þingl. eign Birnu H. Bjarna-
dóttur, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og Utvegsbanka
Islands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 4. desember 1984 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn íHafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Strandgötu 50, (hluta af lóð), Hafnarfirði, þingl. eign Vél-
smiðju Hafnarfjarðar hf., fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 4. desember 1984 kl. 15.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Fögrukinn 9, Hafnarfirði, þingl. eign Trausta Ö. Lárussonar,
fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 4. desember 1984 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Bröttukinn 5, risíbúð, Hafnarfirði, þingl. eign Sigríðar
Þorleifsdóttur og Hjálmars Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu
Hafnarfjarðarbæjar og Olafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 5. desember 1984 ki. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Alfaskeiði 82, 3. h.t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Guðnýjar
Baldursdóttur, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 5. desember 1984 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Alfaskeiði 90, 3. h.t.v., Hafnarfiröi, þingl. eign Harðar Jóns-
sonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 5. desember 1984 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Alfaskeiði 100, íbúö á jarðh., Hafnarfirði, tal. eign Brynjars
Bragasonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar, Landsbanka
Islands og Gests Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5.
desember 1984 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 78. og 80. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Alfaskeiði 115, Hafnarfirði, þingl. eign Alfaskeiðs sf., fer fram
eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar, Baldurs Guðlaugssonar hrl. og
Utvegsbanka íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5. desember
1984 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 45., 48. og 52. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Gunnarshús v/Nýbýlaveg, þingl. eign Katrínar Harðardóttur,
fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands, Brunabótafélags
Islands og Landsbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6.
desember 1984 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Hrím-flokkurinn: frá vinstrí eru Hilmar J. Hauksson, Wilma Young og Matthias Kristiansen.
HRIMONDLUR
— þjóðlagatríó sendir frá sér plötu
„Platan okkar heitir Möndlur.
Það er einstaklega misheppnuð þýð-
ing á enska orðinu „NUTS”. En lík-
lega á nafnið ágætlega við einmitt
núna þegar jólin nálgast. Notar fólk
ekki möndlurí graut og glögg?
Matthías Kristiansen sagöi þetta.
Hann er í þjóðlagatríóinu Hrím sem
nú er aö stenda frá sér fyrstu liljóm-
plötu sína. Aðrir í tríóinu eru Wilma
Young fiðluleikari, Hilmar J. Hauks-
son sem leikur á öll möguleg hljóð-
færi en sjálfur leikur Matthias eink-
um á gítar. Þeir Hilmar syngja og
semja hluta efnis þess sem Hrím
flytur.
„Upphaflega vorum við fimm í
hljómsveitinni og lékum þá alls kon-
ar músík,” sagði Matthías. „Þegar
Wilma bættist í hópinn breyttist
margt. Hún er frá Hjaltlandseyjum
og vakti áhuga okkar á þjóðlagatón-
list, bæði frá Irlandi og Skand-
inavíu.”
Hrím var stofnuð fyrir þremur ár-
um og æ síðan hefur hún leikið mikið
erlendis. Það yrði of langt mál að
telja hér upp allar ferðir hljómsveit-
arinnar til útlanda, en hún hefur leik-
ið á flestöllum Norðurlöndunum, á
Grænlandi og Glasgow á mikilli þjóð-
lagahátíö sem þar er reglulega hald-
in. Hrím hefur tvisvar sinnum veriö
boðið á þessa hátíð en slíkt mun vera
afar fátítt. Það var einmitt hvatning
frá gestum á Glasgow-hátíömni sem
varð til þess að Hrím dreif í aö taka
upþ Möndlur sínar.
,,Á plötunni eru sextán lög, öll
fremur stutt,” sagöi Matthías. ,,Um
þaö bil helmingur þeirra er saminn
af okkur, öll sungin, en hinn helming-
urinn er „instrúmental”. Það eru
aöallega lög frá Irlandi, nokkur frá
Skandinavíu og eitt kemur alla leið
frá Ungverjalandi.”
Ætlar Hrím að fylgja plötu sinni
eftir með einhverjum hætti?
„Viö ætlum aö reyna þaö þótt við
séum öll önnum kafin. Við erum í
fullu kennarastarfi, öll þrjú. Ætli viö
látum ekki að mestu leyti nægja að
leika á veitingastöðum um helgar,
líkt og viö höfum gert hingaö til. Mér
sýnist aö okkar públíkum haldi sig
töluvert þar sem hægt er að fá bæði
bjórogmat.”
Og möndlur, væntanlega.
-IJ.
Þrjár
sýningar
— 11 listamenn sýna
á Kjarvalsstöðum
Svo þú hefur áhuga á myndlist? Þá
skaltu, sem oftar, leggja leiö þína á
Kjarvalsstaði í dag sem er laugardag-
ur. Þar verða opnaðar þrjár sýningar,
ólíkar innbyrðis, enda eru það alls ell-
ef u listamenn sem sýna.
I eystri salnum sýna fimm ungir og
íslenskir listamenn. Þeir eru Pétur
Stefánsson, Steingrímur Þorvaldsson,
Stefán Axel, Omar Skúlason og Magn-
ús V. Guðlaugsson. Enginn þeirra er
nýgræðingur í listinni svo sem allir
þeir vita sem hafa fylgst með vexti og
viðgangi íslenskrar myndlistar. Þeir
f élagar sýna mál verk.
I svonefndum vesturgangi verður í
dag opnuð ljósmyndasýning. Þar sýnir
Höröur Vilhjálmsson þrjátíu og fimm
ljósmyndir og eru þær allar í f ullum lit-
um.
Loks koma svo fimm góðir gestir frá
Gautaborg og sýna verk sín í vestur-
salnum. Þeir ku lengi hafa haldið hóp-
inn; í sýningarskrá segir á þessa leiö:
„Þeir eiga allir rætur í því andrúms-
lofti sem ríkt hefur í málaralist í
Gautaborg síðastliðna fjóra áratugi og
þeir lærðu allir í Listaskóla Valand á
f jóröa og fimmta tug aldarinnar.”
Gestir frá Gautaborg
Listamennirnir eru eftirtaldir:
Tore Ahnoff sem málar natúralískar
eða expressjóniskar myndir, sem og
tilbúið landslag og sérlega vandvirkn-
islegar landslagslíkingar;
Erland Brand sem færir sig æ fjær
jörðinni með myndverkum er helst
virðast tilheyra fjarlægri framtíð;
Islensku listamennirnir sem sýna saman í austursal. Standandi eru Omar Skúla-
son (lengst t.v.), Pétur Stefánsson og Steingrimur Þorvaldsson; fyrir framan þá
krýpur Stefán Axel. Á myndina vantar Magnús V. Guðlaugsson.
DV-myndBj.Bj.
Lennart Landqvist sem tekur form
sín beint úr ríki sjálfrar náttúrunnar
en mótar þau á sinn eigin hátt;
Lars Swan sem leggur landslag til
grundvallar hugmyndafræðilegum
vangaveltum sinum, meöal annars um
jafnvægið miili hins mannlega og hins
tækniIega,ogloks:
Jens Mattiasson með víöan sjón-
deildarhring sinn og fagurfræði.
I sýningarskrá segir ennfremur að
þessir fimm listmálarar séu mjög frá-
brugðnir hver öðrum í listrænni tján-
ingu, „en eiga samt sem áður margt
sameiginlegt.”
Allar þær þrjár sýningar sem hér
hafa veriö nefndar veröa opnaðarí dag
klukkan tvö eftir hádegi, klukkan fjórt-
án. Þær standa síðan opnar allt fram
til 16. desember og að venju eru Kjar-
valsstaðir opnir frá klukkan fjórtán
til tuttugu og tvö. Alla daga. -IJ.