Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Síða 27
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984.
27
Margir hafa veriö dæmdir til dauða gegnum tíöina. Hverjir sleppa á síöustu stundu?
Rússneskar
gervi-aftökur
Ymsir þekkja söguna um það þegar
rússneski rithöfundurinn Fjodor
Dostoévskí, höfundur Glæps og refs-
ingar, var dæmdur til dauða fyrir sam-
særi gegn Rússakeisara en náöaöur á
síöustu stundu, rétt í þann mund aö
stilla átti honum upp fyrir framan
aftökusveitina. Þaö mun raunar aldrei
hafa veriö ætlun keisarans aö lífláta
Dostoévskí og félaga, heldur var þykj-
ustuaftaka af þessu tagi talin vel til
þess fallin aö skjóta andspyrnu-
mönnum skelk í bringu. Og þetta
heillaráð virðist löngum hafa verið
tíökaö austur þar.
Maður hét Sjafíroff, barón aö nafn-
bót og háttsettur viö rússnesku hirö-
ina. Hann var fégjarn meö afbrigöum
og greip þess vegna til ýmissa óráöa til
aö þyngja pyngju sína meö þeim
afleiðingum aö hann var aö lyktum
dæmur til dauöa og skyldi hálshöggv-
ast. Höfuö hans var lagt á höggstokk-
inn, bööullinn lyfti öxi sinni og lét hana
falla af öllu afli svo sem sentímetra frá
höföi Sjafíroffs. Baróninum skjálfandi
var síðan tjáö aö keisaranum hefði af
ómældri visku sinni þóknast aö náöa
hann.
Keisarinn í þá daga var Pétur mikli.
Dóttir hans var Elísabet keisaraynja
og sitthvaö virðist hún hafa lært í
föðurgarði. Henni sinnaðist einhverju
sinni viö gamlan embættismann aö
nafni Osterman og dæmdi hann um-
svifalaust til dauða. Fyrst var ætlunin
aö pynta hann til dauöa en síðan var
refsingin „milduö”; Osterman skyldi
„einungis” hálshöggvinn. A síðustu
stundu, þegar böðullinn haföi reitt upp
öxi sína, kom svo þjótandi sendiboði
frá keisarahöllinni: „Guö og keisara-
ynjan hafa þyrmt lífi yðar.” Eins og
nærri má geta Iofaði Osterman bæöi
guð og keisaraynjuna.
Hershöfðingi blekktur
Þessi skrýtna hefö austur í Rússía
virðist hafa blekkt ýmsa illilega. Þar
má sem dæmi nefna hershöfðingjann
Sjein sem uppi var á sautjándu öld.
Sjein tók þátt í stríöi viö Pólverja
sem þá geisaði. Hann þótti ekki ganga
vel fram og eftir slæman ósigur viö
Smolensk var hermönnum hans nóg
boðið. Þeir ásökuðu hann um svik,
landráö og heigulshátt og kröföust þess
aö honum yröi refsað. Asakanir þessar
bárust aö sjálfsögöu fljótt til Moskvu
og þangað var Sjein hershöfðingi flutt-
ur í böndum. 1 fangelsinu komu aö máli
viö hann ýmsir mektarmenn keisara-
dæmisins og lýstu allir yfir fyllsta
trausti á hann. Þaö yrði hins vegar að
friöa óbreyttan almúgann og herinn
sem heimtaði dauöa hans, og því
stungu menn upp á því viö Sjein aö
hann tæki þátt í „gervi-aftöku” sem
myndi enda með því að hann yröi
náðaður rétt í þann mund að böðullinn
reiddi upp tól sitt. Þar eð Sjein vildi
gjarnan bjarga lífi sínu féllst hann alls
hugar feginn á þessa leyniáætlun og
treysti samsærismönnum í hvívetna.
Annaöhvort væri; meöal þeirra var
sjálfur patríarkinn í Moskvuborg.
Þaö fór allt samkvæmt áætlun. Gall-
inn fyrir Sjein var bara sá aö honum
haföi alls ekki verið sagt frá hinni
raunverulegu áætlun mektarmann-
anna í Moskvu. Hann gekk því hinn
glaðasti upp á höggstokkinn, lagöi
höfuðsittundiröxiböðulsinsog.. .-IJ.
VANTAR ÞIC
NOTAÐAN BIL?
Range Rover árg. '82, Ijós-
grár, útvarp/segulband. Ekinn
aðeins 26.000 km, sérlega
glæsilegur bíll. Verð kr.
Lancer 1400 GL, sjálfskiptur,
4ra dyra, árg. '81, drappl.
Ekinn 46.000 km. Verð kr.
215.000.
890.000.
Mazda 323 4ra dyra árg. '82,
silfurgrár. Ekinn aðeins 31.000
km. Verð kr. 240.000.
Galant 1600 GL station árg.
'82, brúnsans. Ekinn 48.000
km. Verð kr. 290.000.
HEKLU bflasalurinn er opinn
virkadagakl. 9.00-18.00
fimmtudaga kl. 9.00-22.00
laugardaga kl. 13.00-17.00
Glæsðegt úrval notaðra bfla
Sími söludeiidar 11276
ARSHATIÐ
VEISLUFAGNAÐUR
Hótel Hvolsvöllur býður uppá mjög
góðan veislumat í ágætum húsakynnum
á einstöku verði, ásamt músik og
dansaðstöðu.
Tilboð: Þriggja rétta máitíð,
gisting og morgunverður
kr. 1.500.- pr. dag.
Hlíðarvegur 7 - 860 Hvolsvölíur.
Símar 99-8187 og 99-8351
Tilboðið miðast við 15-40 manns.
Einnig er innifalið í verðinu sauna,
heitur nuddpottur og músík (dans).
Frá Reykjavík að Hvolsvelli eru aðeins
100 km. og er vegurinn lagður bundnu
slitlagi alla leið. Austurleið h.f. býður
hagstæð fargjöld fyrir eintaklinga og
hópa, svo og dagsferðir í Þórsmórk, sem
geta tengst þessu tilboði. Á haustin er
mjög mikil litadýrð og fegurð í
Þórsmork.
Þeir sem vilja nota sér þetta tilboð og
tækifæri ættu að panta sem fyrst í síma
99-8187 eða 91-8351.
LÍTIÐ FJALL
Œitt frábœrasta sœtgœlíð frá Sinss
er alveg ómótstœMegt, ekta „miLcfitrujfes“ í aLpajjalLastíí,
samúaLLað súfcÁulaðifjaLL.
Œragðið er syndsamlega gott!
Laugavegi S, sími 24545
\