Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1984, Blaðsíða 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR4. DESEMBER1984.
Nýja útvarpshúsið við Hvassaieiti.
Meirihluti þingmanna með
útva rpslagaf rumva rpinu
Allt bendir nú til aö útvarpslaga-
frumvarpiö veröi samþykkt sem lög
frá Alþingi þegar þaö veröur boriö
undiratkvæöi.
Gera má ráö fyrir aö frumvarpi >
veröi samþykkt af hálfu þeirra 23ja
s jálfstæöismanna sem sitja á þingi. Þí
má túlka svör 8 af 14 þingmönnum
Framsóknarflokksins, sem DV ræddi
viö, svo aö þeir muni samþykkja frum-
varpið og gera má ráö fyrir aö fleiri
þeirra bætist í hópinn þegar á reynir en
mikil óvissa hefur veriö um afstööu
þeirra til þessa. Einnig má búast viö
aö 4 þingmenn Bandalags jafnaöar-
manna greiði leiö frumvarpsins í gegn-
um þingiö samkvæmt fyrri yfirlýsing-
um þeirra. Hins vegar er afstaða þing-
manna Alþýöubandalags og Kvenna-
lista skýr gegn frumvarpinu. Ovissa er
aftur á móti um hvorum megin at-
kvæði 6 þingmanna Alþýöuflokks
lenda.
I fyrstu var hugmyndin aö afgreiða
frumvarpiö fyrir 1. nóvember síðast-
liðinn en sú von brást eftir aö því var
vísað eftir umræöu í neöri deild til
menntamálanefndar til endur-
skoðunar. Nefndin hefur fundaö stíft
um málið og leitað umsagnar fjölda
aðila. Hugsanlega veröur máliö af-
greitt fyrir jól en þær raddir gerast æ
háværari í þingsölum aö óþarfi sé aö
flýta þessu um of.
Ymsar breytingatillögur hafa veriö
lagöar fram í nefndinni. Hafa al-
þýðuflokksmenn veriö þar iönastir viö
kolann samkvæmt upplýsingum DV.
Meöal þeirra tillagna má nefna aö þeir
leggja til aö lagabreytingarnar nái
einungis til reksturs einkaútvarps-
stööva en ekki til sjónvarps. Rökin séu
þau að meö mikilli samkeppni um
aðkeypt erlent sjónvarpsefni muni
gjald fyrir þaö hækka úr hömlu. Þá
hefur og komið til tals aö lokuð kapal-
kerfi muni ekki fá rétt til tekjuöflunar
af auglýsingum. Einnig leggja þeir til
aö innheimtudeild Ríkisútvarpsins
veröi lögö niður og þess í staö komi nef-
skattur svo og aö lögbundin veröi tak-
mörk á eignaraöild er geti leitt til
einokunar, til dæmis meö því aö koma í
veg fyrir aö eigendur dagblaöa reki
einnig einkaútvarps- og sjónvarps-
stöðvar. Mun afstaöa alþýöuflokks-
manna fara eftir því hversu mörgum
þessara atriða þeir nái inn í frum-
varpið.
DV leitaöi álits þingmanna Fram-
sóknarflokksins á því hvort þeir
myndu greiöa atkvæöi meö eöa móti
útvarpslagafrumvarpinu. Fara svör
þeirra hér á eftir. .rþ.
Davíð
Aðalsteinsson.
^„Liggur ekki á að
samþykkja þetta"
„Ég er fylgjandi frumvarpinu en þaö
þarf að gjalda varhug viö því aö opna
þetta upp á gátt,” sagöi Davíö Aö-
alsteinsson. „Þaö er augljóst aö
auglýsingatekjur Rikisútvarpsins munu
minnka mikiö, þess vegna verður aö
gera einhverjar þær ráöstafanir, svo
Ríkisútvarpiö missi ekki spón úr aski
sínum. Meö þetta í huga finnst mér
ekkert liggja á að samþykkja þetta
frumvarp.” -KÞ/ÞG
„Skoða málið þegar
það kemur úr nefnd"
„Eg á eftir aö skoöa frumvarpið þeg-
ar þaö kemur úr nefndinni. Fyrr vil ég
ekki tjá mig um málið,” sagöi Stefán
Guömundsson. -EH
„Fylgjandi frum-
varpinu"
„Eg er fylgjandi frumvarpinu en er
á móti því aö drita niður mörgum út-
Heimsmeistaraeinvígið f skák:
ÖRSTUTTJAFNTEFU
Heimsmeistarinn í skák, Anatoli
Karpov, telur sig ekki þurfa aö flýta
sér aö klára einvígi sitt um titilinn
gegn áskorandanum Kasparov.
I gær sætti hann sig viö jafntefli
gegn drengnum eftir aöeins 13 leikja
skák og mun það vera stysta einvíg-
isskák um heimsmeistaratitilinn í
skák sem tefld hefur veriö. Aöeins 2.
skák einvígisins Fisher gegn Spasskí
var styttri en hún var reyndar ekki
tefld eins og frægt er.
Þegar Kasparov gekk í salinn í
gærkvöldi var honum fagnað mun
meir af áhorfendum en Karpov.
Telja spekúlantar í Moskvu þetta vera
til marks um það aö skákáhugamenn
hafi nokkra samúö með áskorandan-
um sem greinilega á verulega undir
högg aö sækja í þessu langdregna
einvígi. Staðan er þannig að heims-
meistarinn hefur unniö fimm skákir
en áskorandinn enga og sá vinnur
sem fyrri er til að vinna 6 skákir.
Móöir Kasparovs var aö nýju búin
aö taka sér stöðu á fréttamannasvöl-
unum og þótti þaö gefa vísbendingu
um aö allt væri meö felldu hjá pilti.
Eftir aöeins tveggja og hálfs tíma
taflmennsku sáu áhorfendur Kasp-
arov hringsnúa þumalputtum sínum
þar sem hann hallaði sér makinda-
lega aftur í sætinu. Er það nú taliö
öruggt merki þess aö hann hafi boöiö
jafntefli. Karpov rétti honum síöan
fram hönd sína og friöarsamningar
voru undirritaöir.
Eftir skákina athuguöu meistar-
arnir hana í 5 mínútur og komust að
raun um aö hvorugur þyrfti aö óttast
neitt í lokastööunni.
Fréttaritari DV úti í Moskvu,
David Goodman, telur þetta jafntefli
hafa veriö mjög mikilvægt fyrir
Kasparov þar sem honum hafi veriö
sagt að andlegt atgervi hans væri nú
heldur lítiö.
Aö þessu sinni beitti áskorandinn
semi, slavneskri vörn, í fyrsta sinn í
einvíginu og virtist val hans hafa
komiö heimsmeistaranum á óvart.
Karpov vildi greinilega ekki tefla
hvassasta framhaldið í byrjuninni
og valdi ákaflega hægfara framhald
Ásgeir Þ. Ámason
sem gaf svörtum auöveldlega færi á
aö jafna tafliö.
29. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoli Karpov
Svart: Garri Kasparov
Semi slavnesk vörn:
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 c6
5. e3
Karpov hugsaöi sig aðeins um í
fimm mínútur fyrir þennan leik.
Miklu skarpara framhald er hinn
svonefndi Botvinik varíantur: 5. Bg5
dxc4 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5
5. — Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 8.
Be2
Nú hugsaði Karpov sig um í hálf-
tíma, en niöurstaöan varö þessi
linkulegi leikur. Skarpasta fram-
haldið og raunverulega þaö eina sem
getur gefið hvítum raunhæfa mögu-
leika á sigri er 9. Bd3 ásamt 10. e4.
Skákin Karpov — Tal Bugojno 1980
tefldist t.d. 8. Bd3 a6 9. e4 c5 10. d5
c4. 11. dxe6 cxd3 12. exd7+ 13. Dxd7
og staöan er þrungin möguleikum á
báöa bóga.
8, — Bb7 9.a3b4I?
Spekingar í Moskvu töldu þetta
nýjan leik.
10. Ra4 bxa3 11. bxa3 Be7 12.0—0 0—
0 13. Bb2 c5 og Karpov sættist á jafn-
teflisboö Kasparovs. — Svartur hef-
ur jafnaö tafliö auðveldlega.
30. skák einvígisins veröur tefld á
morgun og hefur þá Kasparov hvítt.
E.t.v. reynir hann nú sitt ýtrasta
meö kóngspeöinu til þess aö rétta
hlut sinn gegn heimsmeistaranum
þó ekki væri nema vinningur í einni
skák.
....