Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1984, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR4. DESEMBER1984. Útlönd Útlönd 9 Útlönd Utlönd Sýklahemaðar tilraunir á Oslóarlögrcgla bindur enda á f lóttatilraun fanga úr Oslóarf angelsinu. UPPÞOT í FANG ELSI í NOREGI Fangar í fangelsi í Osló gerðu upp- steyt ó föstudag. Níu fangar náöu að O/ía við Fær- eyjar Eðvarð T. Jónsson í Færeyjum: Olíu og gas er að finna á færeyska landgrunninu. Kemur þaö fram í nýlegri skýrslu vísindamanna sem hafa unnið við boranir og rannsóknir á Suðurey og Straumey. Ekki er enn vitað hversu mikiö magn af olíu er aö finna á færeyska landgrunninu en fram hefur komið að það er hluti af meginlandssökklinum eins og land- grunn Hjaltlandseyja. Eru miklar iíkur á aö verulegt magn af olíu sé undir Færeyjum. — Auðugar olíulindir eru við Hjaltlandseyjar. Borað var í Vestmanna og í Lopra á Suðurey og fengust jákvæðar niöur- stöður í báðum tilfellum. Landgrunns- málið hefur stórpólitíska þýöingu fyrir Færeyjar því allir flokkar á lögþinginu nema Sambandsflokkurinn vilja lýsa landgrunnið færeyska séreign. Danska stjómin hefur hins vegar gert það ljóst að eigni Færeyingar sér landgrunnið þýði það sambandsslit af hálfuDana. Rannsóknir á olíulindunum eru þó enn ó byrjunarstigi og ekki enn vitað hvort um nýtanlegt magn er aö ræða. Færeyska landstjórnin mun væntanlega taka afstööu til áframhald- andi rannsókna einhvern tíma á' næstunni. grunlausum vegfarendum? Bandaríkjaherborið Leynierindrekar á vegum Banda- ríkjahers úðuðu sýklum á grunlausa vegfarendur á alþjóðaflugvellinum í Washington 1964 og 1965 í tilrauna- skyni vegna framleiöslu sýklavopna, eftir því sem trúarsamtökin „Church of Scientology ” greindu frá í gær. Samtökin segja að þarna hafi veriö um að ræöa bakteríuna „bacillus subtilis” sem í þá tíð hafi verið talin meinlaus en síðar reynst framkalla einkenni lík lungnabólgu, blóðeitrunar og matareitrunar. Þessar fullyrðingar sínar styöja samtökin með leyniskjölum hersins frá 1964 sem nú ha’fa verið gerð opinber samktæmt lögum um upplýsinga- sky ldu þess ópinbera. á brýn að prófa bakteríur á farþegum í f lughöfn og á jámbrautarstöð Segja samtökin að þeim hafi verið kunnugt um að herinn hafi gert svipaðar tilraunir á fólki í öðrum borgum á sjötta og sjöunda ára- tugnum, þar á meðal farþegum í neð- anjarðarjárnbrautarstöðvum New York. Erindrekar hersins áttu að hafa notað sérhannaðar ferðatöskur til þess að breiða út bakteríuna í tilraunum sem ganga áttu úr skugga um möguleika þess að einhver gæti í sýkla- hernaði breitt út bólusótt í Banda- ríkjunum. „Church of Scientology” dreifir af- ritum af leyniskjölum þessum i her- ferð gegn áætlunum herráðsins í flýja úr fangelsinu. Samtals tóku 43 fangarþátt í róstunum. Stórtjón hlaust af látunum. Öll hús- gögn í 15 fangaklefum voru gereyöi- lögð. Klósett og vaskar voru brotnir. Þaö leiddi til þess aö vatn flæddi um margar hæðir. Mjög erfitt reyndist aö lireinsa vatnið burt. Einn fanganna var fljótt handtekinn á ný. Hinir átta voru enn lausir þegar síðast fréttisL Að sögn fangelsisstjórans er ekki vitað hvað olli uppþotunum. En sam- tök fanga í Noregi hafa áður kvartað yfir „miöaldaaðstæðum” í fangelsinu. Þar munu vera litlir möguleikar á að fá vinnu, fangaklefar eru litlir og kvartaö hefur verið yfir meðförum á föngum meö sálf ræðileg vandamál. Engin stórslys urðu á mönnum en einn fangi og einn vörður meiddust lítillega í róstunum. Rúmt ár er liðið frá innrás Bandarikjamanna og fleiri á Grenada og hefur nú verið gengið til kosninga til þess að koma á eigin stjórn landsmanna. Grenada: Þjóðarflokkurínn fékk stórsigur Hinn nýi Þjóðarflokkur Grenada fékk yfirburðasigur í kosningunum í gær sem efnt var til lýðræöinu á eyj- unni til endurreisnar. Talningu atkvæða var ekki lokiö í morgun en þá horföi til þess að Þjóöar- flokkurinn, undir forystu Herbert Blaize, mundi vinna tíu af þeim fimmtán þingsætum sem kosið var um. — Um 80% af þeim 48 þúsundum sem á kjörskrá voru skiluðu atkvæöi. Þjóðarflokkurinn, sem nýtur stuön- Spánn og Portúgal í EBE Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir samkomulag um vínframleiðslu Evrópubandalagsins á fundi banda- lagsríkja í Dublin. Þá ætti fátt að standa í vegi fyrir aö Spánn og Portúgal fái inngöngu í bandalagiö árrð 1986. Enn eru menn þó ósammála um ýmis atriði vínframleiðslunnar. Suðræn ríki kvarta yfir notkun Vestur- Þjóðverja á sykri til vínfram- leiðslunnar. Vestur-þýska stjómin sagðist ekki mundu samþykkja neinar málamiölanir um sykumotkunina en aðrir voru þess fullvissir að sam- komulag myndi nást. Pentagon um að reisa tilraunastöö í Utah en hún á að starfa að lífefnarann- sóknum. Þessum áætlunum er mót- mælt á grundvelli grunsemda fólks um að stöðin eigi að starfa að tilraunum á sviði sýklahernaðar sem væri brot á al- þjóöasamkomulagi frá 1972 um bann við sýklavopnum og þróun þeirra. ATVINNU- LAUS FÆR MEIRA EN THATCHER! Abdui Bari er atvinnulaus þjónn í Bretlandi og hann fær sem svarar 23.000 krónum í atvinnuleysisstyrk á viku. Styrkurinn fer í að borga dvöl hans og sex annarra fjölskyldumeð- lima á fínu lióteli í London. Atvinnu- leysisstyrkurinn sem Abdul fær er rúmri milljón króna hærri en nemur árslaunum Margrétar Thatchers for- sætisráöberra eftir skatta! Dagblað í Bretlandi tók þetta nú nýlega sem dæmi um fáránleika' breska atvinnuleysistryggingarkei-fis- ins. Abdul er fæddur í Bangladesh en fékk breskan rikisborgararétt 1969. Hann vann undanfarin fimm ár i Belgíu en kom meö konu og böm til Bretlands i ágúst. Hann labbaði inn á félagsmálaskrifstofu og starfsmenn þar bentu honum á að flytja á hið fyrsta flokks Gards Hotel nálægt Hyde Park. Þar borga þeir stórt herbergi með baði undir hann og fjölskyldu og veita þeim að auki um 8.000 krónur á vikuí vasapeninga. Mál þetta hefur vakiö talsverða athygli í Bretlandi. Ráðiierra al- mannatrygginga, Tony Newton, segir að ráöuneyti sitt muni gera áætlanir til að stemma stigu við slíkri eyðslu í framtíðinni. ings Bandaríkjamanna, gjörsigraði hinn hægrisinna sameinaða verka- mannaflokk sir Eric Gairy og vinstri- sinna samtök stuðningsmanna Maurice heitins Bishop. — Fyrir nokkrum mánuðum töldu flestir flokk sir Erics Gairys sigurstranglegastan. Sigurvegaranum veröur falin mynd- un ríkisstjórnar til þess að leysa af hólmi bráðabirgðastjórnina sem sett var á laggirnar eftir innrás Banda- ríkjamanna og fleiri á eyjuna fyrir ári. Er mönnum mikill léttir að því að sir Eric Gairy skyldi ekki komast að aftur. Grenada var undir hans stjórn frá 1967 en hann þótti sérvitur mjög og var stjórn hans talin spillt. Abdul Bari þarf ekki að kvarta undan uppihaidiuu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.