Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1984, Page 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER1984.
Spurningin
Spilar þú í getraunum?
Unnar Jónsson, starfsmaður
Byggingastofnunarinnar: Nei, þaö
hef ég aldrei gert. Ég spila ekki einu
sinni í happdrætti. Eg hef engan áhuga
á þessu.
Árrsæll Guömundsson útgeröarstjóri:
Ekki spila ég í getraununum og hef
aldrei gert. Ég hef engan áhuga fyrir
slíku.
Kristján Garöarsson iönverkamaöur:
Ég spilaði einu sinni í getraunum en ég
geri þaö ekki núna. Eg hef þó áhuga á
aö byrja aftur á því vegna þess aö
vinnufélagarnir eru allir á kafi í þessu.
Guöiaug Þorkelsdóttir, vinnur viö aug-
lýsingar: Eg geri nú lítið af því. Ég
spila frekar í happdrætti. Þrátt fyrir
aö ég spili ekki í getraunum fylgist ég
aöeins með knattspyrnu.
Gísii Þorsteinsson nemi: Já, ég spila í
getraunum og hef einu sinni unniö. Það
fer eftir efnahag hverju sinni hvaö ég
kaupi inikiö en ég er alltaf meö.
Edda Öskarsdóttir húsmóðir: Eg spila
stundum í getraunum, svona einu sinni
í mánuði. Ég hef reyndar einu sinni
unniö en þaö var nú bara smáupphæö.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Lögin má túlka „á ýmsa vegu”:
„Engar reglur eru
Ibúöareigandi hringdi:
Þannig er mál með vexti aö ég á
íbúö í verkamannabústaö og er aö
selja hana en fæ ekki mat á íbúöina.
Ibúðin var tilbúin 9. september og
var hægt að meta hana þá. Þaö hefur
ekki enn verið gert. Hjá stjórn verka-
mannabústaðanna fáum við þau svör
aö þaö séu ekki til neinar reglur um
þetfa. Viö verðum bara aö bíöa þang-
aö til einhverjar reglur líta dagsins
ljós, hugsanlega verði þaö um ára-
mótin. Þaö væri gaman aö fá ein-
hverjar nánari útskýringar á þessu.
DV haföi samband viö Helga Guð-
mundsson, iögfræöing hjá
Húsnæöismálastofnun rikisins:
„Þaö sem strandar á í þessu máli er
Frá framkvæmdum við verkamannabústaði.
Frá keppninni ungfrú Evrópa. Fyrir miðju er sigurvegarinn frá Ty rklandi.
Fleiri fegurðarsam-
keppnir á skjáinn
Sjónvarpsnotandi skrifar:
Loksins fékkst þaö í gegn aö sýnd
yröi dagskrá frá einni fegurðarsam-
keppni. Dagskráin frá samkeppninni
um „Miss World” var vel þess virði aö
berja augum.
Þetta er skemmtileg uppfærsla og
lífleg, dæmigerö afþreyingardagskrá
og áreiöanlega hafa flestir sem sjón-
varp hafa horft á þáttinn eöa látiö taka
hann upp á myndband, ef þeir hafa
haft tækifæri til.
Nú kom þaö fram í fréttum, nokkru
fyrir útsendingu þessa þáttar, hver
mótstaöa er hjá sjónvarpinu gegn því
aö sýna þætti svipaða þessum.
Þaö er sem sé hjá konu, sem á sæti í
útvarpsráöi, fulltrúa Kvennalistans.
Þessi kona á víst líka einhver ítök hjá
lista- og skemmtideild sjónvarps og ef
til vill meira en lítil því hún er sögö
ráða þar miklu um efnisval og ekki
vera mjög hrifin af ýmsum þáttum til
afþreyingar úr hinum engilsaxneska
heimi. Þaö er líka oröiö ljóst aö þessi
sama kona setti sig mest upp á móti
því aö sýndur yrði þátturinn „Face of
the 80’s” á vegum Eileen Ford keppn-
innar, og sem boöinn var sjónvarpinu á
sínum tíma, aö sögn umboðsmanns
Eileen Ford hér á Islandi.
Hvernig má þaö eiginlega vera aö
einn aöili í útvarpsráöi sé það aösóps-
mikill aö hann geti í raun hafnað þátt-
um sem vitað er aö almenningur er
fýsandi aö fylgjast meö?
A sínum tíma var nokkuö um þennan
þátt frá „Face of the 80’s” fjallaö í
blööum og þá fullyrti einhver aöili hjá
sjónvarpi aö þátturinn heföi aldrei
„fengist”! — og því ekki verið sýndur.
Nú hefur umboðsmaöur Eileen Ford
hér á landi staöfest hið gagnstæöa og
meira aö segja aö hann hafi verið boö-
inn sjónvarpinu en hann afþakkaður.
Hver skyldi hafa staðið fyrir því aö
afþakka þáttinn? Þaö skyldi þó aldrei
hafa verið fulltrúi Samtaka um
kvennalista?
„HVER
ER
RÉTTUR
MINN?”
Móöir hringdi:
Mig langar aö biöja ykkur hjá DV aö
vekja athygli á máli sem ég hef lent í
út af syni mínum. Sá er alkóhólisti og
hefur í nokkur skipti tekiö leigubíla en
ekki haft peninga til aö borga bílana og
því sett í pant bæöi úr og jakka. I fyrra
tilfellinu lét hann leigubílstjórann bíöa
meö úriö sitt meðan hann færi inn til
mín og fengi hjá mér peninga. En
þegar ég kom svo út og ætlaði aö borga
bílinn þá var hann á bak og burt meö
úr drengsins. I annaö skiptið setti
strákurinn rúskinnsjakkann sinn í
pant hjá leigubílstjóra og fékk nótu
fyrir jakkanum hjá bílstjóranum. Þeg-
ar ég svo fór meö nótuna á leigubíla-
stööina og ætlaöi aö borga reikninginn
og fá jakkann þá fannst jakkinn
hvergi. Eg er einstæö móöir sem má
ekki viö slíkum skakkaföllum og mig
langar aö vita hver réttur minn er í
málum sem þessum.
DV hafði samband við Sigurð Lindal
prófessor:
„Eins máliö liggur fyrir sýnist mér
aö leigubílstjórinn sé bótaskyldur
gagnvart konunni. Hann tekur
jakkann sem veö og á aö sjá um aö
jakkinn týnist ekki. Þegar konan kem-
ur og býöur greiðslu fyrir þeirri upp-
hæö sem akstrinum nam og bílstjórinn
hefur ekki jakkann í sinni vörslu, þá
veröur hann að bæta konunni jakkann.
Síöan er þaö hans mál aö fá leiðrétt-
ingu sinna mála á bifreiöastöðinni.”
Talstöðvar eru dýr öryggistæki
7899—4657 skrifar:
Eg er áhugamaður um feröir á jepp-
um og vil benda á eitt atriði varðandi
öryggi í jeppaferðum sem ekki kom
nægilega vel fram í umfjöllun um
atburöi um síðustu helgar. Spurt var:
Hvers vegna var bíllinn sem saknaö
var ekki meö talstöð? Svariö er einfalt.
Talstöövar sem koma aö notum í slík-
umferöum kosta 80.000 til 100.000 kr.
Þar af tekur ríkiö 40.000 til 50.000 kr. af
þessari upphæð í gjöld til sín.
Er þetta eðlilegt? Væri ekki nær að
fella niöur öll gjöld af slíkum öryggis-
tækjum til að gera öllum kleift aö
eignast slíkar stöövar og um leiö aö
koma í veg fyrir svona atburöi. Hverj-
ar voru tekjur ríkisins af gjöldum sem
þessum þaö sem af er árinu? Hvaö
skyldi þessi leit hafa kostaö þjóöarbú-
ið?
aö þaö vantar reglugerö viö lögin
sem sett voru 1. júlí á þessu ári. I ljós
kom að texti laganna var ekki í sam-
ræmi viö dæmi sem reiknuð voru út í
þingnefndum. Þetta þarf aö laga
áður en hægt er aö gefa út reglu-
gerðina. Þaö hefur mikið veriö
fjallaö um þetta mál hjá okkur og
eins og er er þaö til umfjöllunar í
ráðuneytinu.”
Jóhann Einvarösson, aöstoðarmaöur
félagsmálaráðherra:
„Þaö hefur komið í ljós varðandi
lögin sem sett voru í júlí sl. aö hægt
er aö túlka þau á ýmsa vegu. Þaö er
því um tvennt aö ræöa. Annars vegar
að bera fram á Alþingi lagabreyt-
ingu við núgildandi lög. Gallinn á því
er bara sá aö þaö gæti orðið mjög
tafsamt. Hins vegar er hugsanlegt aö
hægt sé að leysa þetta meö reglugerö
einni saman og þaö er sá kostur sem
viö hér í ráðuneytinu erum aö kanna
nú.
Þessi seinkun hefur vitaskuld
valdiö fólki sem stendur í sölu á íbúö-
um sínum miklum erfiöleikum. Þaö
er því lögð mikil áhersla á þaö aö
hraöa afgreiðslu þessa máls eins og
kostur er og ég mun leggja mitt af
mörkum til aö þaö megi takast.”
A.G.H. kærir sig ekkert um aö Bjarni
Fel. segi aö Newcastle leiki í KR bún-
ingnum.
Newcastle
eiaKR?
Á.G.H. skrifar:
Eg er mikill Newcastle aðdáandi aö
noröan og vil beina þeim oröum til
Bjarna Felixsonar aö Newcastle Utd.
spilar ekki „í KR búningnum”. Þetta
■fer afskaplega mikiö í taugamar á mér
og ég vil ekki láta bendla Newcastle
viö KR. Annars stendur Bjarni sig vel
og óska ég honum alls góös.