Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1984, Blaðsíða 40
FRÉTTASKOTIÐ
®/^\ SÍMINN
* (jy * @)!!““
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i OV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Dyraverðir setja
gesti í handjára
Aðfaranótt sunnudags settu dyra-
verðir á skemmtistaönum Broadway
einn gestanna í handjárn án þess að
hafa tii þess nokkra heimild.
„Þetta er vissulega valdbeiting án
heimiidar,” sagði Guðmundur Her-
mannsson aðstoöaryfirlögreglu-
þjónn. „Þegar okkar menn komu á
staðinn til aö taka manninn voru
dyraverðirnir búnir að vinna þau
verk sem lögreglunni eru ætluð. ”
Við yfirheyrslur gaf dyravörður
sá er hér um ræðir þá skýringu að
handjárnin væru ættuð vestan af Isa-
firöi þar sem hann gegndi starfi
lögregluþjóns í sumarafleysingum.
„Það hefur engum handjárnum
verið stolið frá mér, enda liggja þau
ekki á glámbekk,” sagði Pétur Kr.
Hafstein, sýslumaður og bæjarfógeti
á Isafirði, aðspuröur.
Grunur leikur á að fleiri veitinga-
hús í Reykjavík hafi handjárn til
taks i fatahengjum sinum til að nota á
óstýriláta gesti. I fýrra pantaði t.d.
Félag dyravaröa umtalsvert magn
af handjárnum erlendis frá og voru
gerðar við það athugasemdir af
hálfu lögreglunnar. „Þá gerðum
við handjárn upptæk í Sigtúni en
annars staðar höfum við ekki orðið
varir viö þau þar til nú i Broadway
um helgina,” sagöi Bjarki Elíasson
yfirlögregluþjónn.
-EIR.
Axet Thorsteinsson.
Axel Thorsteins-
son blaðamaður
látinn
Axt'l Thorsteinsson, rithöfundur og
fyrrum aðstoðarritstjóri Vísis er
látiuii, fil) ára aö aldri. Hann fæddist 5.
ina s 1805, sonur Steingríms Thor-
steinssonar, rektors og skálds, og
liirgiltu GuðríðarEiríksdóttur.
Axel var búfræöingur að mennt en
sneri sér síðar aö blaðainennsku og rit-
störfum, ineðal annars gaf hann út
bókina Ox viður af Vísi á hálfrar aldar
afinæli Vísis. Þá var Axel um langt
skeið fréttaritari Rikisútvaipsins og
forstööumaður Fréttastofu Blaða-
inannafélags íslands á ineöan hún
slarfaði.
Axel Thorsteinsson var heiöurs-
félagiBlaðainannafélagsIslands. -KÞ
Mikiö fyrir lítið...
HARÐUR ÁREKSTUR VIÐ SÆTÚN
Mikit hálka var á götum i Reykjavik og nágrenni i morgun. Atiar strætisvagnaleiðir voru saltbornar en
aðrar götur ekki. Virtist það ekki koma öllum að gagni þvi þrir árekstrar og slys urðu á svo til sama
tima um klukkan átta i morgun, og allt á „söltuðum götum". Urðu þeir allir á sömu fimm minútunum
og voru þvi allir sjúkrabilar kallaðir út. Á Miklatorgi var ekið á konu sem var á leið yfir götu og úr
árekstrum við Bildshöfða/Höfðabakka og i Sætúni var fólk flutt á slysadeild. Þá lenti strætisvagn úr
Kópavogi i árekstri skömmu siðar, en þar mun ekki hafa orðið slys á fólki.
-klp-/DV-mynd: S.
AIIKLIG4RDUR
LOKI
Hlekkið hann við barinn,
strákar!
Tveir bændur reisa
sér vatnsaf Istöð
„Þessi vatnsaflstöð fullnægir
alveg rafmagnsþörf okkar bænd-
anna og raunar rúmlega það. Hún á
að geta framleitt 80 kílóvött en við
notum ekki nema svona 25. Við þurf-
um líklega að fara út í stóriðju til
þess að nota umframorkuna. ’ ’
Svo mælti Arnór Benediktsson,
bóndi á Hvanná á Jökuldal, en hann
hefur í félagi við Jón Víði Einarsson
látið reisa vatnsaflstöð við bæinn.
Þeir Jón Víðir búa tvíbýli á Ilvanná.
Ætlunin var aö ræsa vatnsaflstööina
í gærkvöldi.
„Það eru feðgar frá Köldukinn
sem hafa smíðaö þetta fyrir okkur,
Jón Siggeirsson og Eiður, sonur
hans. Þeir eru ægilegir hugsuðir,
báðir,” sagði Arnór. „Við’ höfum
keypt rafmagn fyrir 60—70 þúsund
krónur á ári en nú verðum við sjálf-
um okkur nægir. Kostnaðurinn af
þessu er ekki alveg á hreinu ennþá
en ég giska á að hann verði einhvers
staöar á bilinu 1100—1200 þúsund.”
Þá var Arnór spurður hvenær þeir
bændurnir hefðu ákveðið aö ráðast í
þessar framkvæmdir.
„Eg hugsa nú aö við höfum farið
að velta þessu fyrir okkur fljótlega
eftir fæðingu. En það eru fáein ár síð-
an viö ákváðum að láta verða af
þessu. Og sparnaðurinn af þessu er
ekki aðalatriöið. Fyrst og fremst er
gaman að hafa eitthvað til þess að
fástvið.” -IJ.
Eftir kjarasamninga
ríkisins og BSRB:
Albert boðar
nýja starfs-
mannapólitík
Aukinn skilningur á vinnu og vinnu-
gæðum og meiri hreyfanleiki starfs-
manna ríkisins milli vinnustaöa er
meðal markmiða sem Albert Guð-
mundsson fjármálaráöherra lætur nú
móta. Hann boðar nýja starfsmanna-
pólitík hjá ríkinu í kjölfar nýlokinnar
vinnudeilu.
Til skoðunar er fastmótuð stefna í
starfsmannahaldi. Skýra á mörk
verka og ábyrgðar, bæta starfsaðstööu
og búnað, koma á hvetjandi vinnuum-
hverfi, auka endurmenntunarmögu-
leika starfsmanna og stuöla að því að
starfsmenn „verði sér meira meövit-
andi um vinnuframlag og vinnugæði”,
eins og það er orðaö.
Þá leggur ráöherrann áherslu á aö
reyna aö skapa skilyrði fyrir tíðari
skipti manna á störfum innan ríkis-
kerfisins, sem hvetji þá til að sýna
hæfni sína. Loks á að huga að
hvetjandi launakerfi þar sem það gæti
átt við. -HERB.
Útflytjendurfá 440
milljónirí
lánaleiðréttingar:
Seðlabankinn
skilar gengis-
hagnaðinum
Seðlabankinn mun greiða 10%
endurseldra útflutningslána eins og
þau stóðu þegar gengi krónunnar var
fellt 20. nóvember. Til þess fara 440
milljónir króna, sem er um það bil
hagnaður bankans vegna þessara lána
viö gengisfellinguna.
Fyrst og fremst eru það lán vegna
sjávarafurða, sem þannig verða
lækkuð, einnig minniháttar lán vegna
iðnvarnings og landbúnaöarafurða.
Fyrirhugaö er að greiða lánin niður í
hlutfalli viö vaxtagreiöslur hvers og
eins á síðari hluta þessa árs.
I tilkynningu frá Seðlabankanum
segir að þessi niöurgreiðsla hafi veriö
ákveðin til þess að ekki myndist óeðli-
legt ósamræmi milli kjara á þessum
lánum, sem eru tengd gengi sérstakra
dráttarréttinda, SDR, og lánskjara á
innlendum afurðalánum. -HERB.
Læknisleysið
áríkis-
í
I
stjórnarfundi j
„Þátttakan hefur verið mjög góð í ■
undirskriftasöfnuninni og hafa 466 a
Grundfiröingar 16 ára og eldri ritað !
nöfn sín á listana,” sagði Siguröur |
Eggertsson, sveitarstjóri í Grundar-
firði, í samtali við DV. Eins og blaðiö ,
skýrði frá í gær hafði læknisleysiö þar í !
bæ næstum kostaö mannslif. I Grund- !!
arfirði hefur aldrei verið starfandi
læknir og hefur því orðið að sækja g
lækni til Stykkishólms sem oft hefur
ekki gengið vegna ófærðar eins og p
sannaöist á dögunum.
„Þaö er vel unniö að þessu máli J
enda veröur það tekið fyrir á ríkis- !■
stjórnarfundi núna fyrir hádegið. Eg í
trúi því ekki öðru en hingaö verði kom-
inn læknir um áramót,” sagöi Sigurður £
Eggertsson. -KÞ 1