Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Side 1
138. TBL. — 75. og 11. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1985.
DAGBLAÐIЗVÍSIR
Neita að taka við
ónæmistæríngarsýnum
AIDS-sýni aidrei hingað inn fyrír dyr, segir læknir
á rannsóknarstof unni
„Það er á hreinu aö hingað inn
fyrir dyr koma aldrei AIDS-sýni. Við
neitum einfaldlega að taka við
þeim,” sagði Helga ögmundsdóttir,
aðstoðarlæknir á rannsóknarstofu i
veirufræðL Rannsóknarstofan er til
húsa i skúr á baklóð Landspitalans
þar sem áöur var þvottahús og átti
hún að vera þar til bráðabirgöa í 5
ár. Síöan eru 10 ár liöin.
„Staöreyndir málsins eru einfald-
lega þær að hér á landi vantar þaö
sem i útlöndum er kallað „High risk
lab” eða rannsóknarstofu þar sem
fyllsta öryggis er gætt. Núverandi
húsnæði okkar er hriplekt með tilliti
til áhættusýna og hér verða engin
siík rannsökuð. Þetta vita allir sem
vilja vita,” sagði Helga ögmunds-
dóttir.
Rannsóknarstofan í veirufræöi á
þó innhlaup í aðra og fullkomnari
rannstoarstofu í Svíþjóð þegar
AIDS-sýni loks berst. Að mati sér-
fræðinga eru allar likur á að það
gerist innan tveggja ára og
framtíðarspáin er sú að 5—10
prósent íslensku þjóðarinnar eigi
eftir að vetkjast af AIDS, eða
ónæmistæringu eins og sjúk-
dómurinn hefur verið nefndur, ef svo
fersemhorfir.
-EIR.
Hér er rannsóknarstofan i
veirufræfli til húsa á baklófl Und-
spitalans.
DV-mynd GVA.
Ökuferflin sem byrjaði með afistofl lögreglunnar. . .
. . . andafli lika i höndum hennar
r
DV-myndir S.
VELTU BILNUM AD
LOKNU GÓDVERKINU
Ekki eru öll góðverk tii góðs. Það
sannaðist i gær þegar lög-
reglumenn aðstoðuðu um miðjan
dag í gær tvo menn á bil sem hafði
orðið bensínlaus rétt við Klöpq).
Skömmu síðar voru þessir sömu
menn komnir á fulla ferð i Kópa-
voginum, veltu bílnum og sátu inni
ínóttfyrirvikið.
Málsatvik voru þau að eftir að
mennimir höfðu fengið sér bensín á
bílinn fóru þeir i ökuferð um bæinn.
Oku þeir meðal annars til Kópa-
vogs. Þar sem þeir komu suöur
Hafnarfjaröarveg, virtust þeir
missa stjóm á bílnum á móts við
Kópavogslæk. Skipti það engum
togum, að bíllinn fór upp á eyju er
skiptir akreinum og valt þar.
Okumaöur er gmnaður um
ölvun við akstur, að sögn lög-
reglunnar og gistu báðir mennimir
fangageymslur í nótt og bíða yfir-
heyrslna. Þeir munu hafa slasast
litið sem ekkert, og er talin mesta
mildi. Kópavogslögreglu vantar
vitni að akstri bílsins á Hafnar- j
fjarðarvegi.
Alþingi:
SELURINN OLU
TAUGATITRINGI
Það urðu ekki öll fmmvörp að lögum
á Alþingi i gær. I efri deild varð að falla
frá afgreiðsiu þriggja frumvarpa
vegna þess að fyrirsjáanlegt var að
málþófi yrði beitt til að tefja af-
greiðsluþeirra.
Þegar frumvarp um selveiðar kom
á dagskrá efri deildar eftir miðnætti i
gær brást Egill Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, hinn versti við og lýsti sig and-
snúinn þeim vinnubrögðum að reyna
að knýja þetta fmmvarp í gegnum
deildina á nokkrum minútum þegar
það hefði verið að velkjast í allan vetur
í neðri deild. Eftir mikil fundahöld og
tautatitring ákvaö forseti deildarínnar
að falla frá afgreiðslu máli.
Sömu sögu var að segja um grunn-
skólafrumvarpið. I neðri deild hafði
það verið samþykkt og felur það í sér
að ekkert yrði úr 9 ára skólaskyldunni
sem átti að hefjast að hausti. Þess i
stað felur það í sér lögfestingu á 8 ára
skólaskyldu.
I efri deild vom þingmenn sem
staðránir vom í því að tef ja framgang
málsins. Helgi Seljan ætlaði að beita
málþófi. Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir neitaði að mæta á nefndarfund
menntamálanefndar og heyrst hafði að
sjálfur menntamálaráðherra ætlaði að
beita málþófi ef til þyrfti. Faliið var
frá afgreiðslu og þar með mun 9 ára
skólaskylda lögfestast í haust eins og
gert haföi verið ráð fyrir.
Þá var einnig fallið frá afgreiðslu
frumvarps um rikisendurskoöun.
Ragnar Arnalds sá um að stöðva það ■
-APH.
„Lottói” Öryrkjabanda-
lagsins f restað í nótt
- ef tir nær fjögurra klukkutíma ræður Ellerts B. Schram
Laust fyrir klukkan tvö í nótt var
horfið frá því að afgreiða frumvarp til
laga um getraunir Oryrkjabandalags
Islands, frá neðrí deild Alþingis. Þess í
stað var ákveöiö aö Oryrkjabandalag-
iö og íþróttahreyfingin notuðu sumariö
til aö reyna að komast að samkomu-
lagi um sameiginlegan rekstur á get-
raunum eða „lottó”, eins og það hefur
veríð nefnt. Ef slikir samningar eiga
ekki eftir að takast fyrir haust mun
rikisstjórnin leggja fram fyrmefnt
frumvarp að nýju strax i haust. Yfir-
lýsingu þess efnis gaf forsætisráöherra
þegar ljóst var að Ellert B. Schram
ætlaði sér að vera ,í ræðustóli til þing-
loka og mæla gegn frumvarpinu.
Rétt fyrir klukkan tvö í nótt leitaði
Ellert eftir því hvort komast mætti að
málamiðlun. Þá haföi hann haft oröið í
nær f jóra tíma meö einu smáhléi. Hann
kvaðst fús til að hætta tali sínu ef
afgreiðslu málsins yröi frestaö. Gert
var fundarhlé og upphófust mikil
fundarhlé á göngum Alþingis.
Forsætisráðherra og Steingrimur J.
Sigfússon, Alþýöubandalagi, gengu
m.a. á fund forystumanna öryrkja-
bandalagsins. A þeim fundi var fallist
á fyrmefnda málamiðlun. Eftir að for-
sætisráðherra hafði gefið yfirlýsingu
um hana var síðasta fundi neðrí
deildar slitið og fóru flestir sæmilega
sælirheim.
APH