Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Qupperneq 16
16 Spurningin Hvað ætlar þú að gera um helgina? Guöný Björk Eydal verslunarmær: „Horfa á Skonrokk í kvöld, mála íbúö- ina hennar ömmu á morgun, njóta lífs- ins og sakna vinnunnar.” Elsa Blöndal, vinnur í Hagkaupi: „Ekki neitt, ég fer kannski í sumar- bústað.” Lilja Stefánsdóttlr, 11 ára: „Eg fer í sumarbústaö i Skorradal. ” Eyjólfur Árnason, vinnur hjá ISAL: „Ég fer í veiöi um helgina á Þingvalla- vatni.” Guðjón Steindórsson verslunarmaöur: „Ekki búinn aö ákveða þaö, ég fer kannski út úr bænum.” Höskuldur Kári sendill: „Vera úti ef veðrið verður gott.” DV. FÖSTUDAGUR 21. JONI1985. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Um hjólreiðar — langþreyttum bflstjóra svarað Ursula Junemann skrifar: Líklega tilheyri ég þeim hópi sem „langþreyttur bílstjóri” kallar „lopa- peysukomma” í lesendabréfi sínu frá 3. júní 1985 í DV. Mér finnst nefnilega íslenskur ullarfatnaður langbestur í þessu loftslagi og svo á ég reiðhjól sem ég nota oft og gjaman (af hverju er maður þess vegna kallaður kommi?). Eg hef líka „spjót” á hjólinu minu sem er reyndar kringlótt endurskinsmerki á stuttu plastpriki. Þetta „eyðilegging- artæki” dregst til baka við minnstu snertingu. Eg vil ráðleggja öllum hjól- reiöamönnum að kaupa sér slíkt. Þetta er einasta leiðin til að koma kærulaus- um bílstjórum til að halda Iágmarks- fjarlægð þegar þeir aka framhjá hjól- reiðafólki. Sumir eru nefnilega lítið smeykir við að hræða, ónáöa eöa jafn- vel slasa hjólreiðafólk en hins vegar er mörgum alveg skelfileg sjón aö sjá rispu á bilnum sínum. Rétt eins og kýr- in er Indverjum heilög kemst bifreiöin næst guðdómnum hjá mörgum Islend- ingum. Mig langar til að spyrja „lang- þreytta bílstjórann” hvort hann hafi aldrei heyrt um óhöpp milli bíla og þá er oftast um meira tjón að ræða en skrámur. Ekki dettur honum í hug að vilja hrekja alla bila úr umferðinni eins og hann vill gera viö hjólreiðafólk. Eg er hins vegar sammála honum um að Reykjavík hentar ekki nógu vel til hjólreiða og það er skammarlegt ástand. Hjólreiöafólk veldur hvorki loftmengun né hávaöatruflunum. Aö fara á reiöhjóli hjálpar manninum að fullnægja hreyfingarþörf sinni, heldur við likamlegu formi og bætir andlega heilsu (t.d. hefur maður á reiðhjóli ekki tækifæri til aö láta kanaútvarpið dynja i eyrum til aö glepja manninum sýn). Það ætti aö hvetja sem flesta til að nota reiðhjól í staðinn fyrir bíl. I skipulagi bæja, stærri sveitarfé- laga og milli þeirra á aö gera ráð fyrir betri skilyrðum til hjólreiða með því að leggja sérstakar hjólreiðabrautir. A.m.k. á að malbika þann götuhluta sem ætlaður er fyrir hjólreiðar þannig aö þar sé ekki allt fullt af djúpum ótelj- andi holum, t.d. hjá göturæsinu. I þró- uðu þjóðfélagi ætti að vera unnt að borgarar á mismunandi farartækjum gætu notaö gatnakerfið sameiginlega. Allt sem þarf er tillitssemi, þolinmæöi og umburðarlyndi. Auðvitað eiga hjólreiðamenn aö fara eftir umferðarreglum alveg eins og bíl- stjórar. Foreldrar barna bera mikla ábyrgð í þessu sambandi með þvi að kenna bömum sinum umferðarregl- urnar og hleypa þeim ekki út í umferð- ina fyrr en þau eru orðin örugg og eld- klár í umferðarreglunum. P.S. Af hverju skrifar „langþreyttur bílstjóri” ekki undir sínu rétta nafni? Frá diskódanskeppninni 1984 en stelpurnar vilja fá að sjá meiri dans í sjón- varpinu. Burt með ábyrgðar- lausa hjólreiðamenn Hvaö ætlar löggan aö þola lengt tórhættulegan yftrgang h)olrelöa- nanna? Þaöer alveg ferlegt hverrag ælr hegöa sér 1 umferötnni. Þelr rverbrjóta allar umferöarreglur, tiegöa sér stundum elns og fótgang- andi, stundum eins og bílstjórar, langoftast þó eins og óuppdregnir frekluhundar. N6 eru þelr famir aö aka meö rautt spjöt út úr bogglaber- anum o« nota þaö U1 þess aö reka i bifreiöar. Um daginn beiö ég é rauöu i liósi og var aö hlusta é rokklog í Kan- anum, afskaplega sæU og glaöur meö bíUnn mlnn, lifiö og tUveruna. Kem- ur þé ekkl einn lopapeysukomminn é I reiöhjóli, smeygir sér framh)é mér I Böturœslsmegln og skrapar bifrei lina mlna meö spJóU slnu. Lopa- I peysukomminn rak trýniö upp 1 lofUÖ Ine kæröi sig kollóttan, gremUega I vanur aö stórskenuna lakkiö é fjolda I bfla hvern einasta dag. Honjnn tokst I aö rispa minn bíl framantU og þa B meövar góöa skapiö mitt fariö þanr Idaginn. Eg hringdi í lögguna o( | spuröi hvort þessi eyötleggingar B 1 ..... I.____iraorll VirklleCI bréfritari mj Þessi stúlka er nrflraðu sinnl- Ivtkhentarekkih] Lesendur Gott framtak í þágu friðar Friðelskandi kona skrifar: Friður og friðarbarátta eru málefni sem lengi hafa verið mitt hjartans mál þó svo að ég hafi ekki verið virkur þátt- takandi í neinni sérstakri friðarhreyf- ingu. Nú nýlega var ég beðin að skrifa undir friðarávarp íslenskra kvenna og gerði ég það með glöðu geði. Eg verð að segja, og vil endilega koma því á framfæri, að mér finnst þetta eitt merkilegasta framtak sem konur hafa staðið að síðan á kvennafrídaginn 24. október 1975. Þá var þátttaka kvenna mjög góð og ég vona að konur láti ekki sitt eftir liggja að þessu sinni og skrifi undir friðarávarp Friðarhreyfingar ís- lenskra kvenna. Undirskriftasöfnun er mikið mál og ég vil hvetja konur til að leita eftir ávarpinu til að skrifa undir svo að takmarkinu verði náð, þ.e. að allar íslenskar konur skrifi undir frið- arávarpið. Mér skilst að listamir fari svo til Nairobi með fulltrúum Islands á kvennaráðstefnuna í sumar. Eg vona að þar geti fidltrúamir tilkynnt að aU- ar íslenskar konur hafi skrifað undir þetta ávarp. WHAM! Við viljum fá dans í sjónvarpið Þrjár stelpur skrif a: Okkur finnst alveg fáránlegt hvað er á dagskrá sjónvarpsins, það er oft sýnt beint frá sundi, fótbolta, handbolta og körfubolta en aldrei dansi. Við vUjum fá viðtal viö þann sem ræður þessi. Þaö má t.d. benda á að á hverju ári er hald- in Islandsmeistarakeppni í dansi og hún er ekki sýnd í sjónvarpinu. Spurningar til Jóns Baldvins Hannibalssonar HafUði Helgason hringdi: Mig langar tU aö koma á framfæri tveim spurningum tU Jóns Baldvins Hannibalssonar í tilefni af þvi sem hann sagði á rás 2 um daginn. 1. Jón Baldin sagöi á rás 2 um daginn að hann hygðist verða viðskiptaráö- herra og forsætisráðherra. Ætlar hann aö taka ein laun eða tvenn, þ.e. fyrir bæði embættin? 2. Ef Jón Baldvin yrði forsætisráð- herra færi hann þá sömu leið og Steingrímur Hermannsson, núver- andi forsætisráðherra, þ.e. færi hann í umslag launþega tU þess aö ná niö- ur verðbólgunni? Ef ekki hvaða leið þá? í sjónvarpið E.Þ.S. hringdl: Eg er Whamlaödáandi og langar tU að koma á framfæri ósk um að sjónvarpið sýni tónleika með Wham! Tvisvar hafa verið sýndir tónleikar með Duran Duran og einu sinni með Boy George. Mér finnst að við Whamlaðdáendur ættum að fá okkar skammt. Svo langar mig að víkja að Jóa hárkoUu sem skrifar í DV föstudag- inn 14. júní og spyrja: Hvað er al- vörutónlist? Eg er strákur og held ekki með Wham! út af því að George Michael sé sætur heldur út af þvi aö lögin eru lika góð. Ef þú telur Wham! syngja ástardeUu skaltu hlusta á FantastUi, eldri plötuna. Eg veit að margir Wham! aðdáendur taka und- ir. Viö vUjum tónleika með Wham! í sjónvarpið. E.Þ.S. finnst kominn tími til að sjónvarpið sýni frá tónleikum með Whaml

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.