Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR 21. JUNl 1985. 7 Neytendur Neytendur Neytendur HITAEININGAR ERU NAUÐSYNLEGAR EN í HÆFILEGU MAGNI Vegna fyrirspumar um orkugildi (hitaeiningar) í matvælum og gildi orkunnar fyrir líkamann ætla ég aö f jalla litillega umþetta efni. Orkugildi Til þess aö geta fylgst meö orkugildi matarins eru notaðar hitaeiningar. 1 hitaeining er skilgreind sem sú orka sem þarf til að hita 1 kg af vatni um 1°C (15,5°C—16,5 °C). Mest af orkunni fer til grunnefna- skipta líkamans, t.d. öndunar, starf- semi meltingarfæra og heila. Miöaö er við að likaminn sé í aigerri hvíld. Grunnefnaskiptin eru háö kyni, aldri og líkamsstærð. Grunne&iaskiptin eru hröðust á vaxtarskeiöi en hægja á sér með hærri aldri. Heildarorkuþörfin fer síðan eftir því hvers konar vinnu einstaklingurinn stundar eða hvemig hreyfingum hans er yfirleitt háttað. Orsökin fyrir því að fólk fer að fitna eftir því sem líða tekur á ævina er sú að orkuþörfin minnkar. Hins vegar er þessari þörf fyrir minni orku ekki mætt með minnkaöri orkuneyslu heldur boröar fólk áfram sama orkumagn. Samanburðurá hreyfingu og orkuneyslu Eina leiöin til þess að losna við umframfitu á Ifkamanum er aö borða minna og hreyfa sig meira. Eftirfarandi töflur eiga aö sýna hversu erfitt í raun og vera er að eyða 100 hitaeinlngum cg svo aftur hversu auðvelt er aö borða 100 hitaeiningar. Hreyfing Timi Orkueyðsla Hröðganga 15mín. 100 he. Hiaup 10 mín. 100 he. Sund (rösklega) lOmín. 100 he. Þú fjórfaldar brennsluna við að hjóla. Þú fjórfaldar brennsluna við að ganga rösklega. Þú sexfaldar brennsluna við að skokka. Þú áttfaldar brennsluna við að synda rösklega. Þú áttfaldar brennsluna við að hlaupa. - NIATUR OG HOLLUSTA- Gunnar Kristinsson matvælafræðingur skrifar Hreyfing Tími Orkueyðsla Dans 25 min. 100 he. Hlaupuppstiga 5mín. 100 he. Horfa á sjónvarp 70mín. 100 he. Vélrita 40mín. 100 he. Leikfimi 15—40 mín. 100 he. Tala 100 mín. 100 he. Eftir því sem gengið er hægar minnkar orkueyðslan og til dæmis ef dansað er hratt þá eykst orkueyðslan. Fæðutegundlr Orkuneysla. Pilsner (450 ml) 100 he. 8 sykurmolar (t.d. í kaffi) 100 he. 1/2 vínarbrauð 100 he. 1 kókosbolla 100 he. 1/4 stórt prince polo 100 he. 11/2 brauðsneið 100 he. 35 g 17% ostur 100 he. 1 epli 100 he. Hreinn ávaxtasafi (1/4 lítri) 250 ml 100 he. 1 kók (millistærð) 100 he. Við sjáum að prince polo er ekkert megrunarkex eins og margir halda. Oikuneysla sem samsvarar 100 hita- einingum umfram þá orku sem likaminn þarf daglega í heilt ár veldur þvi að líkamsþyngdin eykst um 5 kg á einuári. Megrun Eitt kíló af fituvef inniheldur 7000 hitaeiningar. Til þess að ná af sér 1 kílói þarf þvi að minnka hitaeininga- neysluna sem svarar 7000 he. á viku eða auka orkueyðsluna sem samsvarar 7000 he. á viku. Þetta þýðir 1000 he. minnkun í orkuneyslu eða 1000 he. aukningu í orkueyðslu (hreyfing). Þeir sem ætla sér i megrun verða að miða hitaeininganeyslu sina við 1000— 1500he.ádag. Einföld ráðlegging er að draga úr neyslu á f itu- og sykurríkum mat, auka grænmetisneyslu og neyslu á kornmat. Borða síðan meðalmagn af fæöutegundum úr kjötflokknum (egg, kjöt, mjólk). Avexti ætti að borða tvisvarádag. Varast ber aö einskorða neysluna við einstakar fæðutegundir heldur stefna að þvi að boröa úr öllum fæðuflokkum. Þetta er nauðsynlegt til þess að tryggja þaö að viðkomandi fái öil þau e&ii sem hann þarfnast til eðlilegrar líkamsstarfsemi. Lokaorð Það er hægt að stjórna neyslu- venjum sínum. Þó að neysluvenjur, góðar eöa slæmar, myndist snemma á ævinni er aldrei of seint að snúa við blaðinu og temja sér sæmilegar venjur. Stefnan hlýtur að vera sú að halda kjörþyngd, hreyfa sig hæfilega, og borða þannig aö likamanum séu tryggð öil þau næringarefni sem hann þarf. Heimildir i sambandi viö töflur. 1) Næringarefnatafla Manneldisfélags Islands. 2) Kost vid sjukdom (Ragnhiid A. Lenner). 3) Næring og heilsa (Jón Ottar Ragnarsson). Algeng orkuþörf á dag (í kílókaloríum) BÖRN: ALDUR: 1—3 ára 1.300 kcal 4—6 ára 1.800 kcal 7-10 ára 2.400 kcal KONUR: 11-14 ára 2.400 kcal 15-18 ára 2.100 kcal 19-22 ára 2.100 kcal 23 -50 ára 2.000 kcal 51+ ára 1.800 kcal KARLAR 11-14 ára 2.800 kcal 15-18 ára 3.000 kcal 19-22 ára 3.000 kcal 23 - 50 ára 2.700 kcal 51+ ára 2.400 kcal Hæfileg líkamsþyngd miflað við hæð Fyrir 25 ára og eldri HÆÐ Í METRUM FÍNBYGGÐ STÓRGERÐ KONUR: 1,45 43-46 48-55 1,50 45-49 51-58 1,55 48-51 53-61 1,60 50-54 57-64 1,65 60-68 1,70 57-61 64-72 1,75 61-65 68-76 HÆÐ í METRUM FÍNBYGGÐIR STÓRGERÐIR KARLAR: 1,55 51-54 57-64 1,60 53-57 60-67 1,65 56-60 63-71 1,70 60-64 67-75 1,75 64-68 70-79 1,80 67-72 74-84 1,85 71-76 78-88 1,90 74-79 83-93 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra: Samstarfsnefnd um málefni aldraðra auglýsir eftir um- sóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 1986. Í umsókn skal vera ítarleg lýsing á húsnæði, fjölda vistrýma, sameiginlegu rými, byggingakostnaði, fjár- mögnun og verkstöðu. Eldri umsóknir óskast endurnýj- aðar. Umsóknir skulu hafa borist sjóðsstjórninni fyrir 15. sept. nk., Laugavegi 116, 105 Reykjavík. 20. júni 1985. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra. Þetta er BLÁKÖLD STAÐREYND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.