Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 21. JUNI1985. Megnan fnyk lagði frá staðnum þar sem klóakið úr húsunum í gömlu Blesugrófinni rennur út í Elliðaárnar. Klósettpappír var í grjótinu og úrgangurinn flaut á vatninu. DV-mynd S. Rotþrær í gömlu Blesugróf inni yfirfullar: KLÓAKIÐ FLÆÐIR í ELLIÐAÁRNAR Eru Elliðaárnar að verða risa- vaxið skolpræsi? Klóak rennur í ána, bæði úr íbúöarhúsunum í gömlu Blesugrófinni og frá byggðinni í Ártúnshöfða. „Rotþrær við íbúöar- húsin í gömlu Blesugrófinni eru margar yfirfullar og stíflaðar. Skolpið síast síðan í gegnum jarð- veginn og endar í vestari kvísl Elliðaánna, sagði Ingi Ulfar Magnússon gatnamálastjóri i samtali við DV. Rotþræmar, sem um ræðir, eru aðeins spölkorn frá íbúöarhúsunum í gömlu Blesugrófinni en þaðan er of langt til aö húsin geti tengst holræsakerfi borgarinnar. Gatnamálastjóri sagði að búið væri að heimta úrbætur: „Það var lagt til við öorgarráð fyrir löngu að endurskoða frárennslis- kerfið þama og láta hreinsa rot- þræmar en þau tilmæli hafa engan Fallegur skógurinn sést í baksýn en nær er sorinn sem rennur í perlu Reykjavíkur, Elliöaárnar. árangur borið,” sagði Ingi Ulfar. Ástandiö er einnig slæmt í klóak- málum á Artúnshöföa. Fyrir framan Sementsafgreiðsluna á Höfðanum eru stór skolpræsi frá fyrirtækjum og íbúðahverfinu sem þarna rís. Klóakið endar síðan austanmegin viö Elliðavoginn og blandast ánni við ósinn. Uppi hafa verið raddir um að klóakið í ánni hafi áhrif á laxinn og úrgangurinn mengi alla ána. „Þetta er ákaflega ógeðfellt og við lítum ástandiö mjög alvarlegum augum,” sagöi Garðar Þórhallsson, formaður Elliðaárnefndar Stanga- veiðifélags Islands. „Við höfum ekki orðið varir við að þetta hafi áhrif á fiskinn en það er algjört skilyrði að skolp sé leitt út fjrir stórstreymi þannig aö það blandist ekki ánni eöa safnist fyrir í sjávarföllum.” -EH. Ráðunautur rannsóknar- lögreglu skoðar kaffi Rannsókn kaffibaunamálsins svokallaða þokast áfram hjá Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Yfirheyrslur hafa þó ekki hafist ennþá. Málið er sem stendur hjá Atla Haukssyni endurskoðanda, sem er ráðunautur rannsóknarlögreglunnar í bókhaldi og endurskoöun. Þórir Oddsson vararannsóknarlög- reglustjóri sagðist vona að lögreglu- rannsókninni lyki fyrir áramót. Skattrannsóknarstjóri hefur þegar skilaö ítarlegri skýrslu um málið, byggðri á vinnu rannsóknardeildar ríkisskattstjóra, gjaldeyriseftirlits Seölabanka og Verðlagsstofnunar. DV hefur áöur skýrt frá helstu niður- stöðum skattrannsóknarinnar. Kaffi- brennsla Akureyrar, dótturfyrirtæki SIS og KEA, var látin greiða á þremur árum alls um 16 milljónir dollara fyrir kaffibaunir sem SIS keypti inn frá Brasilíu fyrir aöeins 10,5 milljónir dollara. Mismunurinn er 5,5 milljónir dollara eða um 230 milljónir króna. -KMU. Fékk gotfkúlu í höfuðið ogrotaðist: Rotaður með golfkúlu Golfleikari fékk golfkúlu í höfuðiö og rotaðist á golfvellinum á Grafarholti seint í fyrrakvöld. Var maðurinn aö leika listir sínar á vellinum þegar slysiö átti sér stað. Hann var undireins fluttur með sjúkrabíl i bæinn og á slysadeild Borgarspítalans. Meiðsli hans reyndust minniháttar. -EH. Bókasýning r i Háskólanum Sýning á bókum og tímaritum, sem útgáfufyrirtækið Blackwell Sdentific Publication í Oxford hefur gefið Há- skólabókasafni, stendur nú yfir í and- dyri Háskóla Islands. Gjöfin er veitt í tilefni af heimsókn forseta Islands til Oxford fyrir þremur árum. Felur gjöfin i sér að Háskóla- bókasafni gefst kostur á þvi um árabil aö velja endurgjaldslaust þau útgáfu- rit fyrirtækisins sem talin eru koma að gagni við kennslu og rannsóknir í Háskóla Islands. Hefur safnið þegar tekið á móti 1200 bindum bóka og tima- ritsárganga. Jafnframt þessu felur gjöfin í sér áskrift á 30 tímaritum frá forlaginu. Sýningin stendur til 25. j úní. -KÞ Homafjörður: Björgvin, nýr björgunar- bátur Frá Júlíu Imslaud, Hornafirði: A sjómannadaginn var vígður nýr björgunarbátur sem Björgunarfélag Hornafjarðar hefur nýlega fengið. Báturinn er af gerðinni Viking,! smíöaður í Danmörku. Er hann mjög góð viðbót viö þann búnað sem björg- unarfélagið á nú þegar. Þorbjöm Sigurðsson, fyrrum skipstjóri á Höfn, gaf bátnum nafnið Björgvin. Bátur með þessu nafni var lengi gerður út frá Höfn af Sigurði Olafssyni, föður Þorbjöms, og fleirum og reyndist mikill happafleyta. Björgunarbáturinn heitir Björgvin eins og mikil happafleyta sem lengi var gerð út frá Höfn. DV-mynd Júlía -EH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.