Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR 21. JUNI1985. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd „Enga frelsunartilraun” — segja gíslarnir á blaðamannaf undi Bandarísk blöö segja í morgun aö samtök harðlínushíta, svonefnd Hezx- bollah samtök, haldi að minnsta kosti fimm bandarískum gíslum úr flugrán- inu fyrir viku. Sagt er að hér sé um bandaríska hermenn að ræða en ekki farþega með gyðinganöfnum, saman- ber fyrri fréttir. Sagt er að hermenn- irnir séu i haldi á öðrum stað í Beirut en aöalhópur gislanna. Blaðamenn fengu að hitta hóp gísl- anna í gær. Virtust gíslarnir undir miklu álagi, fengu auðsjáanlega ekki að segja hvað sem var. A fundinum lögöu gíslamir mikla áherslu á það að Bandaríkjamenn gerðu enga tilraun til að frelsa þá. Slík aðgerð myndi kosta þálifið. Landgöngullðinn, sem flugræningjam- ir drápu á föstudag fyrir viku, var jarðsettur á miðvikudag. Treholt áfrýjaði Frá Jónl Einari Guðjónssyni, fréttarit- araDVíOsió: Réttarhöldunum yfir Arne Treholt lauk í gærkveldi um klukkan 20 mínútur fyrir 11. Þá hafði dómari spurt Treholt hvort hann vildi fá tíma til að ákveða hvort dómnum yrði áfrýjaö. Rödd Ame Treholt skalf af reiði þegar hann sagöist ekki þurfa neinn umhugsunarfrest. Hann áfrýjaði. Hann sagði að dómurinn segði meira um dómarana en um sakarefni sín. Faðir Arnes, Káre Treholt, sagði eftir dóminn að hann sýndi hversu alvarlegt málið væri. Það væri nauð- synlegt að hafa sterka leynilögreglu. Yfirmaður norska hersins sagði að tjónið, sem Treholt hefði valdið, væri óbætanlegt. Það myndi kosta milljónir að bæta skaöann. Verst væri að skjöl Treholts heföu gefið Sovétmönnum innsýn í hugsunarhátt innan norska hersins. Þegar Arne Treholt gekk út úr réttarsalnum í Osló hafði hann fangið fullt af blómum. Mikill mannfjöldi tók á móti honum við fangelsið í Dramm- en. Blaðamenn sáu utan frá inn í klefa hans í fangeisinu. Hann sat þar við skrifborð sitt og hamraöi á ritvéhna langtframánótt. Tage Erlander látinn Tage Erlander, fyrrum forsætisráð- herra Svíþjóðar, er látinn, 84 ára að aldri. Tage Erlander var forsætisráð- herra á árunum 1946—1969 og leiötogi sósíal-demókrata í áratugi. Einn stærsta kosningasigur sinn vann flokk- ur Erlanders áriö 1968 er hann hlaut meira en helming greiddra atkvæða. Tage Erlander sagði skilið við skarkala stjórnmálanna árið 1969 eftir að hafa undirbúið jarðveginn fyrir eftirmann sinn sem formann sósíal- demókrata, Olof Palme, núverandi for- sætisráðherra Svíþjóðar. HjörturPálsson: Fémarlamb valdabaráttu — segir Information Danska blaðið Information segir að Hjörtur Pálsson, fyrrverandi forstjóri Norðurlandahússins í Færeyjum, hafi verið fómarlamb stríðandi afia innan hins volgvinstrisinnaða Þjóðveldis- flokks í Færeyjum. Blaðið segir að hinn „háttvirti öldungur” færeyskra stjórnmála, Erlendur Patursson, hafi ásamt listafólki stutt dyggilega við bakið á Hirti, en krónprins flokksins, Finnbogi Isaksen, hafi barist gegn hon- um. Finnbogi þessi Isaksen er kvæntur Ásu Jústiníussen, aöstoöarforstjóra Norðurlandahússins, sem er sökuð um að hafa ásamt Steen Cold, fyrrverandi f orstjóra, staðið að aðförinni að Hirti. Erlendur Patursson segir það hina mestu vitleysu að um nokkurt innan- flokksstríð sé að ræða í Þjóðveldis- flokknum. Hjörtur fór fyrr í þessum mánuöi til Islands þar sem hann hugðist gerast lausamaður við útvarpið. Aður en hann fór var honum þó haldin veisia sem blað Þjóðveldisflokksins segir að 100 manns hafi sótt. Blaðið segir aö glatt hafi verið á hjalla þrátt fyrir undan- gengna erfiðleika. Bólga upp Sænsku jafnaðarmannastjórninni hefur þegar mistekist að minnka verðbólguna niður í þrjú prósent. Samkvæmt tölum sem birtar voru í gær um verðbólguna fyrstu fimm mánuði ársins hækkaöi vöruverð um 3,9 prósent. Stjómin gafst formlega upp á þriggja prósenta áætluninni eftir að hún varö að hækka bankavexti upp í 11,5 prósent til að stemma stigu við miklu útstreymi peninga. Gert er ráð fyrir að stjórnarand- stöðuflokkamir muni einblína á verð- bólgu í kosningabaráttunni. Kosið er í Svíþjóð 15. september. Danmörk: Stjómin stendur og þingmenn fara í f rí — kosningum af stýrt með samningi við st jómarandstöðu Frá Kristjáni Ara Arasyni, fréttaritara DV í Kaupmannahöfn: Minnihlutastjórn Pouls Schliiter náði seint á þriðjudagskvöldið sam- komulagi við tvo stærstu stjórnmála- flokkana sem standa utan rikisstjórn- arinnar, það er sósíaldemókrata og radikala, um róttækar breytingar á skattalögunum. Mikil óvissa hefur ríkt undanfamar tvær vikur um hvort ríkisstjórninni takist að koma hugmyndum sínum um breytingar á skattalögunum í gegnum danska þingið. Radikalar, sem aö öllu jöfnu styðja stjórnina, höfðu hótað að láta af stuöningi við ríkisstjórnina ef ekki yrðu gerðar verulegar breytingar á frumvarpinu. Stærsti stjórnarand- stöðuflokkurinn, sósialdemókrata- flokkurinn, lýsti einnig yfir andstöðu gegn frumvarpinu í upprunalegri myndþess. Ríkisstjórn Pouls Schluter stóð þá frammi fyrir þeim vanda að ná sam- komulagi við flokka radikala og sósíal- demókrata, en segja ella af sér. I kjölfar þessa hófust miklar samninga- viðræöur milli ríkisstjórnarinnar og flokkanna tveggja. Fyrst á þriðjudags- kvöldið náðist samkomulag. Þau skilyröi sem stjórnarandstöðu- flokkarnir settu fyrir stuðningi sínum var að stórátak yrði gert við að rétta viö bágborinn efnahag barnafjölskyld- unnar. Inn á þetta gekkst ríkisstjómin og samkvæmt því lagafrumvarpi sem nú liggur fyrir í þinginu er gert ráð fyrir að veita bamafjölskyldum 5.000 danskar krónur (18.000 íslenskar) í styrk á ári fyrir hvert barn. Að öðru leyti er frumvarp þetta fyrst og fremst tilraun til að einfalda skattalögin, þannig að stjórnendum fyrirtækja og almenningi veitist auðveldara að telja fram og stjóminni auðveldara að ná þeim sem svíkja undan skatti. Lögin eiga aö taka gildi á árinu 1987. Deilur þær sem staðið hafa um þetta frumvarp hafa valdið því aö dregist hefur á langinn að þingmenn fari í sumarleyfi. Með samkomulaginu á þriöjudagskvöldið virðist nú sem flestar hindranir séu úr vegi fyrir því að þingstörfum ljúki bráðlega. Þaö má því segja að jafnframt því sem Poul Schliiter og samráðherrar hans geta fagnaö áframhaldandi stjórnarsetu þá geta aðrir þingmenn byrjað að hlakka til sumarleyfisins. ÞórirGuðmundsson og Hannes Heimisson Breskt hundaat Breskur dómstóll tók í gær fyrir mál tíu Breta sem ákærðir eru fyrir aö hafa brotiö lög um dýravernd og staðið fyrir hundaati í norðurhluta Ixmdon. Hér mun vera um fyrsta mál þessarar tegundar á öldinni í Bretlandi en hundaat var formlega bannað áriö 1835. A árunum áður var hundaat algeng iðja og vinsæl meðal al- mennings sem veðjaði grimmt og lagði oft töluveröar fjárhæðir undir sig. Talsmaöur lögreglunnar vildi ekki tjá sig um málið. Rétturinn kemur aftur saman 29. júlí næstkomandi og er þá niðurstöðu að vænta í málinu. Bíræfnir fiskimenn Irski fiskibáturinn Marita Ann hefur sannarlega verið í sviðsljósi heims- pressunnar að undanfömu. ! september síðastliðnum f ann írska strandgæslan mikiö magn allskonar vopna og skotfæra um borð i skipinu undan ströndum Irlands sem koma átti til liðsmanna hins ólöglega írska lýðveldishers, IRA. I gær gómaði strandgæslan Maritu Ann aftur og I þetta sinn fyrir meintar ólöglegar veiðar. Áhafnarmenn vildu ekki sætta sig við að vera færðir til hafnar af strandgæslunni og vörðust sjóliöum er gengu til upptöku, með bareflum. Enginn mó þó við yfir- valdinu, bátur og óhöfn færð til yfir- heyrslu ó næstu lögreglustöð. Drepiðogeyðilagt Iranir sögðust í gær berjast ó öllum vígstöðvum við Iraka í Persaflóa- stríöinu. Iranir sögðu aö í einni órós þeirra undanfarinn sólarhring hefðu 250 Irakar faltið. Yfirlýsing Iranska herráðsins sagði að Iransher hefði eyðilagt fjóra skríðdreka, 10 önnur farartæki, tvær brýr og tvær vopnageymslustöövar i árás ó vesturvígstöðvunum. Irakar lýstu yfir 15 daga hléi í órásum sínum á íranskar borgir síöasta laugardag. Yfirlýsingar Irana hafna þessu hléi algerlega. Bomba fra Beirút? Erlend fréttastofa í Berút fékk til- kynningu frá óþekktum hópi, Bylting- arsamtökum araba, um aö samtökin bæru óbyrgð á sprengjunni sem sprakk í Frankfurt í fyrradag og Guðmundur Olafsson verkfræðingur varövitniað. En lögregla hefur fengið fleiri slíkar tilkynningar fró hinum ýmsu aðilum, og tekur fæstar þeirra trúanlegar. Lögreglan segir að besta sporið sé vitni sem sá mann hlaupa út í bláan Benz eftir sprenginguna. Tvö þýsk böm dóu í sprengjuórósinni og portúgalskur maöur. Móðir barnanna var ein fjögurra sem særðust alvarlega. Hafnaðináðun Samstöðuleiðtoginn pólski, Tadeusz Jedynak, hafnaði náðun gegn því að hann segði opinberlega skilið viö skoðanir sínar á verkalýðsmólum. Eiginkona hans sagðl að ákvöröun manns sins að hafna boðinu þýddi að hann yrði ákærður um föðurlandssvik, sem þýðir minnst 10 ár í fangelsi, mest dauöa. Mælirinnfullur Reagan Bandaríkjaforseti sagði i gær að nú væri mælírinn fullur. Banda- rikjamenn væru búnir að fá sig fullsadda af hryðjuverkamönnum og só timi færi að nálgast að Bandaríkin svöruðu I þeirri mynt sem ekki væri misskilin. „Eg trúi því að aðgerðir okkar verði að vera hæfandi og samsvarandi glæpaverkum þeirra sem hafa ráðist gegn borgurum okkar,” sagði hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.