Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Page 6
6
DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985.
HÚRRA, HÚRRA,
NÝTT LAMBAKJÖT
Þá er nýja lambakjötiö komiö á
markaöinn og eru því allir sælkerar
glaöir. Hér kemur uppskrift aö lamba-
kjötsrétti sem er sérlega bragðgóöur
og ljúffengur. Þaö eina sem þarf er
þolinmæöi og pottaseyöir, þ.e.a.s.
plastpoki sem hægt er aö sjóöa mat í.
Pokar þessir fást í flestum verslunum.
I réttinn þarf:
500 g nýtt lambakjöt, skoriðí bita (2X2
cm)
1 stk. gulrót, skorin í strimla
1/2 laukur, fínsaxaöur
2 rif hvítlaukur, pressaöur í hvítlauks-
pressu
1 bolli hálfsoöin hýöishrísgrjón
2msk. tómatkraftur
1/2 tsk. basilikum
salt og pipar eftir smekk
1/2 tsk. timjan
Þetta er allt sett í pottaseyði og hann
settur í pott meö sjóöandi vatni. Rétt-
urinn er svo soðinn í 60—75 mín. Meö
þessum bragðmikla rétti er gott aö
hafa nýjar kartöflur og rófur eöa spag-
hetti og auðvitað kornbrauö og hrásal-
at.
Umsjón: Sigmar B. Hauksson
Góðar fréttir
fráÁTVR
Sælkerasíðunni barst nýlega í hend-
ur hin nýja veröskrá ÁTVR en sem
kunnugt er hækkaöi áfengi í veröi þ. 22.
ágústsl.
Sælkerasíðunni til mikillar gleði er
nú komin í verslanir ÁTVR ný hvít-
vínstegund, sem lengi hefur vantað, en
það er Muscadet. Þaö Muscadet sem
hér er á boöstólum nefnist Muscadet
Chateau Cleray. I veröskránni hefur
aö vísu orðið þaö „slys” aö Muscadet
vínið er flokkað sem Burgundarvín en
það er alls ekki rétt. En hvers vegna er
þetta hvítvín Muscadet svo sérstakt?
Muscadetvíniö kemur frá vesturströnd
Frakklands eða Atlantshafsströnd
Frakklands, nánar tiltekiö frá sveit-
inni „Loire”. Vínið sjálft er nefnt eftir
sýslunni sem það kemur frá, sem í
þessu tilviki er Muscadet. Það eru ekki
nema tæp 30 ár frá því aö þetta vín
varð verulega vinsælt.
En vinsældir vínsins eru ekki síst því
aö þakka aö þaö á sérlega vel viö alla
fiskrétti og svo er þaö tiltölulega ódýrt
miöaö viö gæöi. Muscadet- vínið er
pressað úr einni berjategund og er vín-
iö nefnt eftir berinu. Áður var víniö
pressaö úr berjategund sem hét Melor.
de Bourgogne. En áriö 1709 var vetur-
inn sérlega haröur í Loire og drápust
þá vínrunnarnir. Munkarnir náöu hins-
vegar í nýjar plöntur til Burgundar-
héraðs og farið var að kalla berin
Muscadet. Þess má geta aö þessi vín-
viður, Melone de Bourgogne, er ekki
lengur ræktaöur í Bourgognehéraöi.
Muscadet-víninu er skipt í 3 flokka.
Sá fyrsti er Muscadet de Sévre et
Maine. Þessi vín eru u.þ.b. 80% allra
Muscadetvínanna og þau bestu. Nafnið
kemur frá ánum Sévre og Maine sem
afmarka það svæöi sem vínið er fram-
leitt, sem er suðaustur af höfuðborg
héraösins Nantes.
Næsti flokkur er Muscadet des Cote-
aux de La Loire. Þetta vín er framleitt
á bökkum árinnar Loire og er þetta
svæöi austur af borginni Nantes. Þriðji
flokkurinn er Muscadet en þessi vín
koma frá öörum stööum en nefnd hafa
verið í héraöinu. Margir segja aö bestu
Muscadet vínin séu þau sem eru fram-
leidd samkvæmt hinni svokölluöu „Sur
Lie” aöferö sem er þannig: Þegar búiö
er aö pressa berin er safinn látinn
renna í sérstaka tanka. 1 þessum tönk-
um gerjast víniö. Þegar vínið er full-
gerjaö falla geragnirnar á botninn
ásamt öörum efnum. Venjulega er þá
víninu tappað úr gerjunartönkunum
(Soutirage) eins og þaö heitir á
frönsku. Þetta er ekki gert þegar fram-
leitt er Muscadet „Sur Lie”. Eftir aö
gerjun lýkur er vínið geymt áfram í
gerjunartankinum eöa tunnunni, það-
an er því svo tappað á flöskur en þaö
veröur aö gerast fyrir 30. júní áriö eft-
ir. „Sur Lie” vínin eru bragðmeiri og
ilmríkari en ekki er laust við að þau
séu léttfreyðandi. Eins og áöur sagöi
passa Muscadet vínin sérlega vel með
öllum sjávarréttum. Þau eru þurr, en
ekki súr, og sérlega frískandi. Muscad-
etvínin á að drekka ung, en þá eru hin
góöu einkenni sterkust.
Þaö vín sem hér er á boðstólum kem-
ur frá litlu f jölskyldufyrirtæki Sauvion
og Fils en þaö fyrirtæki er þekkt fyrir
hin úrvalsgóöu „Sur Lie” vín. Hafa vín
fyrirtækisins hlotið nokkur vegleg
verölaun. Þaö var afinn í fjölskyld-
unni, Ernest eldri, sem keypti Cleray-
höllina áriö 1935. Nú er fyrirtækiö rekið
af Ernest yngri og sonum hans, Jean-
Ernest.Yves og Dominique. Sölustjóri
fyrirtækisins er hinsvegar ung og harö-
dugleg kona sem komið hefur hingað
til lands, Mari-Paul Leroux. Allir vín-
áhugamenn ættu aö gleöjast yfir þessu
nýja og góða víni og forvígismenn
ÁTVR eiga þakkir skildar fyrir að hafa
hafiö sölu á þessu víni, Muscadet
Chateau Cleray.
Clorny höll
anir ÁTVR.
en frá þessu óðali kemur „fiskréttavinið" Muscadet Chateau Cleray
sem nýkomið er i versl-
Jón Helgason dómsmálaráðherra
boðar nýja stefnu í áfengismálum.
Dómsmálaráðherra boöar
nýja stefnu í áfengismálum
Þaö er jafnan ánægjulegt þegar
stjórnvöld grípa til skynsamlegra ráða
í áfengismálum. Dæmi um slikar að-
gerðir er þegar Sighvatur Björgvins-
son geröi íslenskum ferðamönnum
kleift aö kaupa bjór í fríhöfninni. Nú
hefur Jón Helgason dómsmálaráð-
herra bannaö sölu á hinu svokallaða
bjórlíki. Mörgum hefur gramist
þetta bann og segja þaö fáránlegt.
Menn haldi áfram aö drekka á kránum
eins og veriö hefur og veitingamenn
muni eflaust finna einhverja aöferð til
aö halda áfram sölu gervibjórs. Aörir
segja að í þessum efnum sé of seint í
rassinn gripiö, menn séu þegar komnir
á bragðið og bjórinn sé í raun oröinn
staöreynd hér á landi. Sælkerasíðan
treystir sér ekki til að fella neinn dóm
á þessar aögeröir Jóns varöandi þessa
reglugerð sem bannar sölu gervibjórs.
Hinsvegar fagnar Sælkerasíðan því aö
Jón er greinilega fylgjandi því að al-
menningur drekki frekar léttvín en
brennda drykki og gervibjór. Þessi
stefna er hárrétt hjá Jóni Helgasyni
dómsmálaráöherra. Sælkerasíöan
vonar nú að Jón fylgi hinni nýju og
góöu stefnu sinni og berjist fyrir því að
verö á léttum vínum veröi lækkaö
verulega og þá má gjarnan hækka
verðiö á brenndum drykkjum. Sem
sagt tíl hamingju,Jón, þú ert á réttri
leið.