Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Side 8
8 DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjörnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍOUMÚLA 12—14, SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ Áskriftarver.ö á mánuöi 400 kr. Verö i lausasölu virka daga 40 kr. Helgarblaö45 kr. Opinbera útgerðin aukin Horfur eru á, að Reykjavíkurborg, sem hefur Bæjarút- gerðina á herðunum, axli líka ísbjörninn í örvæntingar- fullri tilraun til að koma sjávarútvegi sínum í skynsam- legan rekstur. Um þetta fjallar umdeild skýrsla, sem borgarstjóri hefur látið gera og f jölmiðlar f jallaö um. Ljóst er, að Bæjarútgerðin verður stærri aðilinn, ef fyr- irtækin verða sameinuð. Líklegt er, að hlutur borgarinn- ar verði nálægt 60% og ísbjarnarmanna 40%, ef farið verður eftir mati skýrslunnar á eignum fyrirtækjanna. Og allir vita, aö meirihlutinn ræður og ber ábyrgð. Til viðbótar kemur fram í skýrslunni, að auka þarf eig- ið fé hins sameinaða fyrirtækis um 180—250 milljónir króna. Hluti þess fjár gæti komið úr sölu eigna Bæjarút- gerðarinnar við Meistaravelli og ísbjarnarins á Seltjarn- arnesi, en hvorugar eru verðmiklar né auðseljanlegar. Búast má við, að mikill hluti aukningarinnar muni koma frá borginni. Ötrúlegt er, að einhverjir aðilar úti í bæ vilji eða geti lagt fram fé á móti. Allar líkur benda til, að eignarhluti borgarinnar í sameinuðu fyrirtæki verði fremur meiri en minni en ofangreind 60%. Með sameiningu væri því verið að reyna að bjarga opin- berum rekstri með því að auka hann. Barnalegt er að tala um, að borgin sé með þessu að losa sig við Bæjarútgerð- ina. Hún er þvert á móti að stækka hana upp í það, sem hún var fyrir nokkrum árum, þegar togararnir voru sjö. Þrír togarar ísbjarnarins verða sameinaðir f jórum tog- urum Bæjarútgerðarinnar, ef af sameiningu verður. Jafnframt nær Bæjarútgerðin tökum á mjög fullkomnu frystihúsi Isbjarnarins úti í Örfirisey. Sú aðstaða er miklu betri en hin, sem Bæjarútgerðin hefur á Granda. Ein af ástæðum þess, að ísbirninum hefur gengið illa, þrátt fyrir fína húsið, er hraðminnkuð vinnsla á síðustu árum. Aðstaðan nýtist ekki nógu vel. Með því að sameina meginhluta vinnslunnar þar má búast við, að reksturinn verði töluvert aðgengilegri en nú. Bæði fyrirtækin ramba nú á barmi hruns. Isbjörninn hefur notið skjóls í Landsbankanum og hjá Olíuverzlun- inni og skuldar nettó um eða yfir hálfan milljarð króna. Skuldirnar hraðvaxa ár frá ári. Á fyrstu sex mánuðum ársins nam tapið um 50 milljónum. Lokin eru í augsýn. Svipað má segja um Bæjarútgerðina, sem skuldar nettó meira en hálfan milljarð króna. Tapið á fyrri hluta þessa árs er hið sama og hjá ísbirninum. Munurinn er, að hún hefur getað sótt peninga í borgarsjóð, 60 milljónir króna í fyrra og sennilega 40 milljónir á þessu ári. Niðurstaðan virðist verða hin sama og venja er við slík- ar aðstæður. Einkafyrirtækin lognast út af og opinberu fyrirtækjunum er bjargað með almannafé. Sjávarútveg- urinn í Reykjavík færist í hendur hins opinbera eins og gerzt hefur í bæjarfélögum úti á landi. Ekki er víst, að hið opinbera sé heppilegasti aðilinn til að koma hinum sameinaða rekstri í rétt horf. Ekki er langt síðan togarinn Snorri Sturluson, eign Bæjarútgerð- arinnar, kom þrisvar í röð meö ónýtan afla að landi. Slíkt er ekki aöeins dýrt, heldur einnig merki um óstjórn. Skýrslan hjá borgarstjóra segir, að ná megi hagnaði með því að sameina tvo aðframkomna sjúklinga. Slíkt virðist ótrúlegt, þótt rökin séu út af fyrir sig í lagi á papp- ímum. Alténd er þetta hið eina, er kemur til greina sem síðasta tilraun, því að uppgjöfin blasir við. Jónas Kristjánsson. Hraðar en hugur á festir — Heyrðu, ég var rétt aö segja dauöur hérna fyrir utan, núna! — Þér hefur þó tekist aö vinda þér undan í tæka tíö sé ég og óska þér til hamingju meö þaö. — Já. Það var einhver helvítis aul- inn sem svínaöi fyrir mig, algerlega rangstæður, fyrirgeföu, ég meina í órétti, hreint og klárt. Já, ætli ég hafi það ekki kaffi og vínarbrauö. Gengilbeinan ranglaði burtu, ein- manaleg aö sjá og niðurdregin. „Kaffi og vínarbrauö, kaffi og vinar- brauö”, eins og þaö sé ekki svo ótalmargt annaö í heiminum en „kaffi og vínarbrauö” hefur hún eflaust veriö aö hugsa. Hún hallaöi sér þreytulega aö dyrastafnum viö eldhúsiö og hvíslaði einhverju þar innfyrir. Dyrnar þeyttust upp og inn kom Ölafur B. Guðnason hugsa. Eg sá þaö strax aö ef ég bremsaði ekki yröi slys. Svo ég bremsaði. Eg veit ekki hvernig aörir heföu brugöist viö í svona tilfelli, sumir heföu kannski reynt aö flauta eöa kannski aö beygja. En ég hef alltaf veriö fljótur að taka ákvarðan- ir. Þaö þýöir ekki annað í umferð- inni. Þriöji maöurinn hristi höfuöiö í makalausri aödáun á þessu ótrúlega snarræði. — Eg man þaö aö kunningi minn sá einu sinni pöddu ofaní potti, þegar hann var aö þvælast í eldhúsinu heima hjá sér, og ég var meö honum. Hann þreif umsvifalaust tveggja kílóa sykurpoka og henti honum ofaní pottinn. Paddan steindrapst! Kellingin hans var eitthvað aö þusa af því sykurpokinn sprakk, en ég þriöji maðurinn og virtist hafa kald- an noröangustinn í eftirdragi. Plast- túlípanarnir í vatnsglösunum á borö- unum titruöu þegar hann gekk framhjá og einn dúkur skekktist á boröi. Gengilbeinan leit viö og birti skyndilega yfir andliti hennar, um leið og vonin hélt innreiö sína í sálu hennar. Þetta er maöurinn, hefur hún áreiðanlega hugsaö. Þetta er maðurinn sem pantar kannski eitt- hvaö sem ekki fæst hérna, snúð, kannski, eöa vöfflu meö sírópi og megrunarrjóma. Hún leið inn eftir salnum, sveif milli boröanna borin áfram af þeirri bjartsýni, sem aöeins getur verið dyggö, meöan þriðji maöurinn kastaöi kveöju á þá sem fyrir voru og kastaöi af sér frakkanum. Þegar hann settist var gengilbeinan komin aö boröinu og mændi á hann meðan hann hugsaöi sig um. — Ætli ég hafi það ekki kaffi og vínarbrauð í þetta sinn. Og gengilbeinan horföi andartak á hann eins og meyrlynt barn á skólaportshrekkjusvíniö áöur en hún sneri aftur aö eldhúsgættinni, hvíslaði eitthvaö vonleysislega inn- fyrir óg sneri sér að fyrri hugleiðing- um um fánýti vínarbrauöa og til- breytingarleysi lífsins. — Heyrðu, ég var nærri búinn aö keyra á þig hérna áöan, sagöi þriöji maðurinn viö annan manninn. — Varstþaöþú, já. — Já, ég var aö leita mér að stæöi og athugaði ekkert hvaö var aö ger- ast í kringum mig fyrr en ég heyrði bremsuvælið. Leit upp og sá þig ná- fölan stara á mig eins og ég væri draugur. — Þaö munaöi ekki miklu, það var bara splitsekúnda. Heföi ég veriö aö- eins seinni hefði fariö verr. — Já, þetta var helvíti vel af sér vikið hjá þér, þaö verð ég aö segja. Ég sá ekki hvað var á seyði fyrr en of seint. Þú hefur fín viöbrögö! Annar maöurinn hallaði sér aftur og horföi þögull út um gluggann meö- an sessunautar hans horfðu aö- dáunaraugum á manninn sem haföi foröaö frá slysi. Gengilbeinan kom með tvö vínarbrauð, tvo kaffibolla og tvær kaffikönnur, leit ásökunar- augum á þriöja manninn og fór. Annarshugar hellti annar maöurinn kaffi í bolla og saup á. Þaö meö virtist umhugsunartímanum vera lokiö. — Eg -hef alltaf veriö fljótur aö spuröi hann þá hvort hann heföi hugsaö þetta í þaula eöa heföi brugðist svona viö af einhverri eðlis- ávísun. Hann sagöi aö þaö væri lík- lega eölisávísun því hann hefði ekki gert neina verkáætlun fyrirfram, heldur brugðist við áreit- inu „padda í potti”. Hvernig var þetta hjá þér? Planaðirðu þaö aö bremsa og bremsaðir síöan eöa bremsaöiröu bara? — Ja, nú get ég ekki alveg svaraö af fullri vissu. Sjáöu til, maður stend- ur frammi fyrir einhverjum vanda, umferðarlegum, andlegum eöa hag- rænum, og maður bregst viö. Eftir á, þegar maður skoðar stöðuna eins og skákmaður fer yfir biðskák, kemst maður aö því að þaö sem maöur geröi, aö því er virtist umhugsunar- laust, var hiö eina rétta í stöðunni. Getum viö þá kallað það eðlisávís- un? Ef það er ljóst aö hin rétta ákvörðun, eins og hjá mér áöan, kraföist rökgreiningar? Alltaf þegar á reynir tek ég réttar ákvarðanir og þó ég veröi ekki var viö þaö að ég sé að hugsa hlýt ég að álykta aö ég hafi gert þaö því ákvaröanir mínar eru alltaf réttar þegar skoöaö er eftir á. Eg hugsa bara svo hratt aö ég hef ekki tíma til'að taka eftir því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.