Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Qupperneq 9
DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985. 9 MNHUODLATA BYLTÍNG Viröuleg erlend blöö sem berast manni í hendur viö og viö eru farin aö f jalla i auknum mæli um lífshætti, mataræði og tómstundaiöju fólks. Neysluvenjur og heilsurækt, klæðaburöur og heimilishald, allt eru þetta viðfangsefni blaða og tímarita sem gera sér far um að fylgjast með og skrifa um hugðarefni almennings. Nú er ekki gott aö vita hvort blöðin móta smekkinn og hugðarefnin eöa öfugt, en enginn vafi er þó á því að pólitík og brauðstrit, gamla lífs- kjarabaráttan, hefur minna að- dráttarafl fyrir þá fjölmiðla sem vilja endurspegla áhugamál og lífsvið- horf. Auðvitað heldur lífsbaráttan áfram sem er forsendan fyrir öllu hinu. Fjölskylda sem gerir ekki meir en aö draga fram lífið af launum sín- um hefur ekki mikinn tíma til að velta fyrir sér ferðalögum eða tísku- klæðnaði. En átök milli stjórnmála- flokka, loforðin um betri kjör, orð og efndir pólitískra forystumanna, skipta ekki lengur öllu máli. Kosn- ingar eru ekki lengur upp á líf og dauða. Fólk er smám saman að gera sér grein fyrir því að þjóðfélagiö breytist sáralítið þótt þessi flokkur- inn eða hinn nái völdum. Við sjáum til að mynda óverulegan mun á því hvort hægri stjórnir eða vinstri sitji að völdum í Noregi eða Svíþjóð. Þar eru heldur engar sveiflur í fylgi frá vinstri til hægri eöa öfugt. Og senni- lega verða það einhver dægurmál sem ráða því hvor armurinn veröur ofan á í báðum þessum löndum. Breytingarnar sem kunna að verða við stjórnarskipti flokkast frekar undir blæbrigöi heldur en byltingu vegna þess að í stórum dráttum mun allt sitja við þaö sama. Tímanna tákn Það er fjarri mér að halda því fram að engu varði hverjir fari með landsstjórnina á Islandi, enda hefur því miður flest vaðið á súðum undan- farinn áratug. En hvað varðar lífskjörin og brauðstritið þá er óneitanlega flest við sama heygarðshornið. Við höfum búið við samsteypustjórnir og flestir flokkar hafa fengið að spreyta sig í samvinnu við aöra. Otkoman er sú aö kjósendur fyllast engum fítons- krafti þótt áköll eða heitstrengingar heyrist úr herbúðum flokkanna. Sá lúörablástur mætir í mesta lagi fá- læti ef ekki tortryggni. Flokkarnir hafa glatað tiltrú af þeirri einföldu ástæðu að á þeim er enginn sjáanleg- ur munur. Alþýöubandalagiö heldur námsstefnu um nýja sókn í atvinnulíf- inu. Formaður Sjálfstæðisflokksins heldur ræðu um ranga peningastefnu í landinu. Hvorutveggja er góðra gjalda vert, en við hefðum hæglega getað snúið þessu við án þess að háttvirtum kjósendum fyndist það athugavert. Það er kannske tímanna tákn að nýjasti flokkurinn í landinu, Bandalag jafnaöarmanna, hefur ver- ið upptekin við það í sumar að skil- greina stefnu sína af ótta við að jafnaðarmennska þeirra væri komin lengra til hægri en Sjálfstæðis- flokkurinn. öflugur hópur innan Bandalagsins taldi ástæðu til að stofna sérstakt málfundafélag til að lirinda frjálshyggjunni af höndum sér. Þetta er ekki sagt til aðhláturs fyrir Bandalag jafnaðarmanna held- ur til að sýna fram á hversu stutt er á milli einstakra flokka. Alþýðuflokkurinn hefur keypt sér bás á Heimilissýningunni. Þaö er einnig tímanna tákn og sýnir kannske betur en flest annað hver staða og tilvera gamaireyndra flokka er orðin. Þeir þurfa að aug- lýsa sig og falbjóða eins og hverja aðra vöru og þjónustu. Annars gleymist flokkurinn og hverfur innan umhina. Það eru helst stjórnmálamenn eins og Albert Guðmundsson sem blakta. Vegfarendur segja hann litríkan. En hversvegna er Albert litríkur? Það er af því að hann skiptir sér af dægurmálunum, leitar uppi stemmn- inguna og skapar hana á stundum. Menn eru ekki alltaf ánægðir með það sem hann tekur sér fyrir hendur og segja honum til syndanna, eins og hann orðaði það sjálfur í sjónvarpinu á dögunum. En hann nær til fólksins og er í sviðsljósinu langtum frekar en heilir flokkar með alla sínar námsstefnur og stefnulýsingar. Ellert B. Schram skrifar: Hljóðlát bylting Staðreyndin er sú að þjóðfélagið og iífsviðhorf almennings finna sér far- veg framhjá hinum pólitíska vett- vangi. Pólitíkin stýrir ekki lengur þróuninni. Hún kemur í humáttina á eftir. I atvinnumálum er að gerast hljóð- lát bylting. Dramatískar og örlaga- ríkar breytingar eru að verða í sjávarútvegsmálum. Þar fer saman árangurinn af frystitogurunum sem sigla með aflann og skorturinn á fisk- vinnslufólki vegna lélegra launa. Frystihúsaiðnaðurinn líður fyrir þessa þróun auk þess sem gífurlegur rekstrarvandi blasir við velflestum frystihúsum þótt ekki komi annað til en hækkandi framleiðslukostnaður og óhagstætt gengi. Verður ekki ann- að séð en að þessi öfluga atvinnu- grein sé að riöa til falls. Hér sem annars staðar er raf- eindaiðnaðurinn og tölvuvæðingin að ryðja sér til rúms. Hvert fyrirtækið af öðru er ýmist að tölvuvæðast eða ný fyrirtæki hlaupa af stokkunum sem hasla sér völl í þessari atvinnu- grein. Tölvuskólar geta ekki annað eftirspurn. A meðan þetta gerist hef- ur almenna skólakerfið engan veg- inn tekið við sér; hefur ekki uppgötv- að byltinguna ennþá. I húsnæðismálum hafa skapast al- gjörlega ný viðhorf. Breytt vaxta- kjör og verðbætur, lánsmöguleikar og annars konar eftirspurn eftir hús- næði en áður veldur annars vegar óyfirstíganlegum' erfiðleikum fyrir þá sem hafa hent sér til sunds og ráð- ist í kaup eða byggingar. Hins vegar draga þessi kjör allan kjark úr ungu fólki til að eignast sínar eigin íbúðir. Sjálfseignarstefnan er nánast dauð. Þetta hefur ekki litil áhrif þegar fram í sækir. Gamli vígvöllurinn horfinn Mikið hef ur gengiö á í dagvistunar- málum að undanfömu. Fóstrur fást ekki til starfa á dag- og barnaheimil- um, fyrst og fremst vegna lágra launa. Enn og aftur rekumst við á dæmi þess að fólk leitar sér einfald- lega að annarri vinnu þegar starfs- kjör eru ekki bjóöandi þeirra eigin stétt. Áður fyrr var það verkalýðs- hreyfingin og stéttarfélagið sem greip til sinna ráða í nafni fólksins. Nú er sú leið ekki ómaksins verð sem þýðir í raun að hin hefðbundna verkalýðsbarátta er á fallandi fæti. Verkalýöshreyfingin geldur þess sem sterk samtök. Hún er risi á brauðfótum og þetta viðurkennir Guðmundur J. Guðmundsson í við- tali við Þjóðviljann á þriðjudaginn. „Verkalýðshreyfingin þarf að breyta um vinnubrögð,” segir hann. „Kannske vantar menn til að kýla þetta svolítið upp.” Kjörin fást bætt með öðrum ráðum en verkföllum og nokkurra prósenta launahækkunum. Það sýnir reynsl- an. Gamli vígvöllurinn er horfinn, máttur verkalýðssamtakauna sömu- leiðis. En vandamálið með dagvistunar- heimilin varpar öðru ljósi á ástandið. Fyrir nokkrum árum eða á siðasta áratug hefðu dagvistunarmál ekki kallast stórmál. En tímarnir breyt- ast. Fjöldi einstæðra foreldra, breytt' sambýlisform, hafa flutt vandamál- in til. Fólk lifir ööruvisi en áður, hugsar öðruvísi, stefnir annaö. Það sýna öldurhúsin, matsölustaðirnir, videovæðingin, munstriö í fram- haldsskólagöngunni, eftirspurnin eftir litlu íbúðunum, það sýna blöðin með efnisvali sínu, framtíðardraum- ar unga fólksins, heilsuræktarstöðv- amar, ferðalöginog dægradvalir alis þorra fólks. Því minna því betra Lífshættir hafa snarbreyst, ís- lenskt þjóðfélag hefur tekið stakka- skiptum. Við erum ekki lengur fátæk þjóð sem lifir einhæfu fiskimanna- lífi; við erum ekki annaðhvort rík eða fátæk: Millistéttin hefur tekið völdin. Og hún á sumarbústað og bíl og sjálfstæöar langanir. Hún er ekki bara herra húsbóndinn og eiginkona hans. Konurnar hafa haslaö sér völl með sitt jafnrétti og sjálfstæði. Og allt hefur þetta fólk meiri tíma til af- þreyingar og lífsfyllingar. Það veltir fyrir sér lífinu langt utan við hina pólitísku veröld komma eða íhalds, svarts eða hvíts. Aldrei hefur virk þátttaka verið eins mikil í menningu og listum. Aldrei hefur virk þátttaka í hvers kyns íþróttum verið jafnal- menn. Aldrei hefur aimenningur ferðast og fræðst eins mikið og nú. Aldrei hafa lífshættir veriö jafn- margbrotnir og fjölbreytilegir sem einmittþetta tímabil. Eg er ekki að segja aö stjórnmála- flokkur eigi að hafa afskipti af þess- ari þróun. Því minna því betra. En ég er að segja að þeir hafi ails ekki gert sér grein fyrir henni og fyrir vikið er hlutur þeirra og áhrif á dag- legt líf fólks óendanlega minni en áður. Fólk hefur uppgötvað að það kemst af án þeirra. Vandamáiið felst hins vegar í því að flokkarnir sjálfir hafa ekki skilið þetta. Þeir eru enn aö taka sig hátíölega og skilja hvorki upp né niður í því fálæti sem þeim er sýnt. Sú hljóöiáta bylting sem minnst var á hér að framan í atvinnumálun- um gerir víöar vart við sig. Hún staf- ar af hugarfarsbreytingu í landinu, nýrri kynslóð og breyttum lifsstíl. Hvert hún leiðir okkur er ekki mitt að segja en það er eins gott fyrir stjórnmálamennina, verkalýðs- hreyfinguna, hagsmunasamtökin að átta sig á henni. Fyrir mig líka. Og þig- Ellert B. Schram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.