Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Side 10
10 DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985. KENNARA vantar að J_augargerðisskóla sem er á sunnanverðu Snæfellsnesi í ca 160 km fjarlægð frá Reykjavík. Til boða stendur: X Gott og ódýrt húsnæði með frium hita X Góð kennsluaðstaða X Mikil kennsla og gæsla, ef vill Skólinn er heimavistarskóli með daglegum heimanakstri að hluta. Nánari upplýsingar veita formaður skólanefndar, Haukur Sveinbjörnsson, Snorrastöðum, Kolbeinsstaðahreppi, sími: 93-5627, og skólastjóri, Höskuldur Goði, Laugar- gerðisskóla, símar: 93-5600 og 93-5601. Ferðamálaráð Islands Leiðsögunámskeið Ferðamálaráð íslands efnir í vetur til námskeiðs fyrir leið- sögumenn ferðafólks ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið hefst í lok september nk. og því lýkur í maí 1986. Námskeiðsstjóri verður Birna G. Bjarnleifsdóttir. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu Ferðamálaráðs, Laugavegi 3 Reykjavík. Umsóknir skulu hafa borist í síðasta lagi 13. september nk. ÚRVALS NOTAÐIR Arg. Km Kr. CH. Citation, sjálfsk. 1981 50.000 370.000 Mazda 626 2000, sjálfsk. 1980 65.000 230.000 Buick Regal turbo 1979 105.000 380.000 Pontiac Parisienne 1984 15.000 950.000 Isuzu Trooper dísil 1983 51.000 750.000 Mazda 929, sjálfsk., vökvast. 1981 36.000 310.000 Range Rover 1981 56.000 950.000 Opel Rekord 2,0 lúxus 1982 79.000 395.000 Opel Kadett GL, 2ja dyra 1985 10.000 450.000 Volvo 244 DL, sjálfsk. 1982 44.000 420.000 Mazda 323, S d. 1980 70.000 180.000 Daihatsu Charmant 1979 150.000 Chrysler Le Baron st. 1979 51.000 390.000 Ford Escort LX 1600 1984 20.000 400.000 Dodge Omni 1980 67.000 260.000 Opel Ascona 1983 22.000 440.000 Citroén CX 2400, st. 1983 57.000 650.000 Opel Ascona Berl. hatchb. 1982 44.000 400.000 Volkswagen Golf 1981 66.000 235.000 Ch. pickup 4x4 1982 29.000 650.000 Aro 244 jeppi 1979 41.000 180.000 Ch.Chevy sportvan,11 manna 11979 400.000 Pontiac Grand Prix 1979 300.000 Ch. Caprice CL st.d. 1982 101.000 850.000 Buick Century Brougham 1982 49.000 695.000 Opel Rekord Bexl. dísil 1982 134.000 390.000 CH. Malibu sedan 1980 320.000 Izusu Trooper bensin 1982 38.000 610.000 Mercedes Benz 200 1972 138.000 210.000 Opiö virka daga kl. 9 — 18 (opiö i hádeginu). Opiö laugardagákl. 13 — 17. Simi 39810 (bein lina). BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 HUGLEIÐING UM SÝNINGAR Alls konar sýningar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og finnst mér mjög slæmt ef ég missi af myndlist- arsýningum, ekki síst ef þar eru til sýnis gömul brauð og notaðar hjól- börur en hvort tveggja flokkast víst undir nútímalist að sögn þeirra manna sem hafa lært um þetta í marga vetur í háskólum i útlandinu. Einu sir.ni fór ég á sýningu þar sem var meðal annars mynd af tveimur flugum á hvítu pappa- spjaldi. Þar sem mér fannst þetta stórbrotið listaverk færði ég mig dá- lítið nær því til að sjá það betur en þá vildi svo illa til að önnur flugan flaug eitthvaö út í buskann en hin sat eftir enda var búiö að stinga í gegnum hana títuprjóni og fannst mér það skynsamleg ráðstöfun því að annars hefði hún sjálfsagt flogið burt líka og þá er ég hræddur um að listaverkiö hefði tapað talsverðu af áhrifamætti sínum. En þótt ég sé svona menningarlega sinnaður er mér í augnablikinu minnisstæðast þegar kunningi minn einn hringdi í mig í sumar og bauð mér að koma með sér að horfa á bíl og kallaði hann þaö bílasýningu. Þar sem ég hafði aldrei gert mér sér- staka ferð niður í bæ áður til að horfa á bíl, hvernig svo sem á því stendur, tók ég boðinu með þökkum og ég sé satt að segja ekki eftir því. Billinn stóö í sæmilega rúmgóðum sýningarsal og þegar við komum var búið að opna allar hurðirnar á hon- um og sagði kunningi minn mér að það væri gert til þess að menn gætu virt fyrir sér mælaborðiö og gír- stöngina. Þetta fannst mér mjög hugulsamt af þeim sem hafði dottið þetta snjallræði í hug og ekki fannst mér minna til þess koma þegar einn af starfsmönnum sýningarinnar opn- aði vélarhúsið svo að við gætum líka virt fyrir okkur kertin og kveikjulok- ið. — Næst sýnir hann okkur ábyggi- lega ofan í bensíntankinn, hugsaði ég og bað þess heitt og innilega aö hann lýsti ekki ofan i hann með eldspýtu eins og ágætur bóndi gerði af því að hann þurfti að gera við gat á tankn- um sínum og var ekki alveg viss um að hann væri tómur. Þessi bóndi er sprelllifandi enn og við bestu heilsu en hins vegar er bensíntankurinn dálítið beyglaður. Ég hafði ekki rétt fyrir mér varð- andi þetta atriði því að næst á dag- skránni var aö sýna hverjum sem hafa vildi mörg hundruð lítra farang- ursrými og hvernig ætti að fara að því að leggja niður sætisbökin aftur í ef væntanlegir kaupendur vildu ein- hverra hluta vegna sofa í bílnum, til dæmis ef þeir yrðu syfjaðir. Þessi sýning stóö yfir í þrjá klukkutíma og höföu þá allir horft nægju sína á bílinn og gátu farið heim að borða kvöldmatinn. En það eru ekki allar sýningar svona stuttar. 1 Laugardalshöllinni hefur staðið yfir heimilissýning í marga daga og þar geta menn skoð- að vatnsrúm og franskar konur og þeir sem hafa áhuga á því að læra á örbylgjuofn, sem er fólgið í því að snúa einum takka og bíða síðan eftir því aö klukka hringi, geta farið á stutt námskeið sem haldiö er í tengslum við sýninguna. Ég hef margoft lýst því yfir hvað ég er lítið hrifinn af ýmsum tækni- nýjungum og það er kannski þess vegna sem ég gæti ekki hugsað mér aö sofa í rúmi samkvæmt taxta Hita- veitu Reykjavíkur en þó skal ég fús- lega viöurkenna þaö að vatnsrúmin hafa þann augljósa kost að það kviknar trúlega ekki í þeim. Á hinn bóginn tek ég oft þátt í því að bragða á sýningargripunum, ef undan eru skildar flugur með títu- prjón í gegnum sig, en það sem mér BENEDIKT AXELSSON finnst þó einna skemmtilegast viö sýningar á sófasettum, eldhústækj- um og stefnuskrá Alþýöuflokksins er andrúmsloftið. Það eru allir svo dæmalaust góð- viljaðir, brosmildir og fáklæddir að þaö er engu líkara en maður sé kom- inn á einhvers konar allsherjar grænmetisútsölu í himnaríki en ekki á heimilissýningu í Laugardalshöll. Og allt vill þetta fólk endilega gefa manni litprentaða bæklinga og blööru sem kostar ekki nokkurn skapaðan hlut. Þarna ríkir sem sagt hinn sanni og kristilegi heimilisandi sem er að verða svo sjaldgæfur á þeirri öld tilgangsleysis og skuld- breytinga húsnæðisstjórnarlána að maður er ekki fyrr kominn heim en farið er aö hlakka til næstu sýningar. Ég held að það sé aðeins eitt sem má meö nokkurri sanngirni finna að svona sýningum og þaö er að þær skuli vera naldnar á tveggja ára fresti en ekki vikulega eins og bíla- sýningar og myndlistarsýningar en trúlega yrði það of dýrt fyrir fram- leiðendur vatnsrúma og innflytjend- ur franskra kvenna. Kveðja Ben. Ax. Es. Vegna plássleysis á síðunni verð- ur frásögn af ævintýri í Grímsnesinu aö bíða næsta blaös. 'ÉG VÍLúi os&\ A© IþAf) VÆtfi' EICKi LÍ~ iKJoR, í FloSkuna/í WlhfNÍ \4ElDuZ, LÍK T- - SL& *TJoeAe rrjéiTA . Undanúrslit bikarkeppni BSÍ á Hótel Hof i um helgina Undanúrslit í bikarkeppni BSI verða spiluð á Hótel Hofi viö Rauöarárstíg í dag og hefjast kl. 12 á hádegi. Annars vegar spila saman sveitir Eðvarðs Hallgrímssonar frá Skaga- strönd og Arnar Einarssonar frá Akur- eyri. Hinn leikurinn er milli tveggja sveita frá Reykjavík, Jóns Hjalta- sonar og Isaks Arnar Sigurössonar. Spiluö eru 48 spil í fjórum 12 spila lotum. Keppnisstjóri er Agnar Jörgensen. Utanbæjarmenn hafa mikið látið að sér kveða í þessari bikarkeppni og mun langt síðan sveit utan af landi hefur spilað til úr- slita í bikarnum. Bridge Stefán Guðjohnsen Vel heppnaöar blekkisagnir eru ávallt gott fréttaefni bridgedálkahöf- unda og í viöureign sveita Jóns Hjalta- sonar og Þórarins Sigþórssonar í bikarkeppni Bridgesambands Islands beitti Hörður Arnþórsson einni slíkri. Suður gefur/n—s á hættu NORDUK A Á852 D8652 0 GIO * 87 Vlsti ii A G10943 V G7 0 864 + 543 Ai/stuu A KD V 103 0 Á97532 * KGIO Suduh A 76 <7 ÁK94 ... 0 KD * ÁD962 I lokaða salnum sátu n—s Símon og Jón, en a—v Guðmundur Páll og Þórarinn. N—S renndu beint af augum ígeimiö: Suður Vestur Noröur Austur 1L pass 1T 2T pass pass 2H pass 4H pass pass pass Loksins eitt spil sem fellur var ein- róma álitið,en það var öðru nær! I opna salnum sátu n—s Guðmundur og Björn, en a—v Jón og Hörður. Nú gengu sagnir á þessa leið: Suður Vestur Norður Austur 1L pass 1T 2T pass 2H! dobl pass 3L pass pass pass Eftir langa umhugsun misskildi suður dobl norðurs og sagði þrjú lauf. Allir flýttu sér að segja pass og sveit Jóns græddi 10 impa. Bridgefélag Akureyrar Aðalfundur félagsins verður haldinn í Félagsborg, þriöjudaginn 10. september. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, verðlaunaafhending- ar og stjórnarkjör. Hauststarfsemin hefst með eins kvölds tvímenningskeppni 17. september. Gefandi verðlauna í þeirri keppni er Skipaafgreiösla KEA. Spilað veröur í Félagsborg og hefst spila- mennska kl. 19.30. Allt spilaáhugafólk velkomið. Þriðjudaginn 24. september hefst svo Bautamótiö sem er 4 kvölda tví- menningskeppni. Bautinn og Smiðjan sjá um verðlaunahliðina á því móti. Bridgedeild Breiðfirðinga Vetrarspilamennskan hefst fimmtu- daginn 12. sept. kl. 19.30. Verður þá spilaður eins kvölds tvímenningur. Aðaltvímenningur vetrarins byrjar þann 19. sept. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aöalfundur auglýstur síðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.