Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Qupperneq 11
DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985. 11 Töframaðurinn Tal Helgi Olafsson, Jóhann Hjartarson og Simen Agdestein uröu efstir og jafnir á Norðurlandamótinu í skák í Gjövík í Noregi í sumar og þurfa að fá úr því skorið hver hlýtur Norður- landameistaratitilinn. Nú hefur verið ákveöið að aukakeppni milli þeirra fari fram í Gjövík, 2.-7. nóvember. Þeir munu tefla tvöfalda umferð með fullum umhugsunar- tíma en forráðamenn mótsins reyndu í fyrstu að skikka þá til þess að tefla nokkrar „bröndóttar” um titilinn. Það vildu Islendingarnir ekki sætta sig viö og því varð að fresta aukakeppninni. Svo skemmtilega vill til að þeir þremenningar fengu allir staðfest- ingu á stórmeistaratitli sínum á þingi Alþjóðaskáksambandsins í Graz um síðustu helgi. Þá eru ís- lensku stórmeistararnir orönir fjór- ir, Friðrik Olafsson varð stórmeist- ari 1958 og Guðmundur Sigurjónsson 1975. Tvo alþjóðlega meistara til við- bótar fengu Islendingar einnig á þinginu, Karl Þorsteins og Sævar Bjarnason. Simen Agdestein er fyrsti stór- meistari Norðmanna og jafnframt yngsti stórmeistari í heimi. Hann er einnig unglingalandsliösmaður i knattspyrnu, býr því yfir líkamlegu þreki og úthaldi sem gerir hann sér- lega hættulegan ,,á fhnmta tíman- um”, sem skákmenn nefna svo er tíminn er tekinn að styttast og eldri skákmenn að þreytast. Aðalsmerki hans er geysilegur baráttuvilji og hann er laginn viö aö snúa sig út úr erfiðleikum. En hann er enn ungur að árum og á margt eftir ólært. Það skulum við vona a.m.k. Jóhanns og Helga vegna! Firnasterkt mót í ' Danmörku Frændur vorir Danir áttu sína full- trúa meðal nýrra tiltilhafa í Graz. Curt Hansen fékk stórmeistaratitil sinn staðfestan, annar Daninn sem nær þessum áfanga — Bent Larsen er náttúrlega hinn. Skákgróska í Danmörku og reyndar á Norðurlönd- um hefur sjaldan verið meiri og ekk- ert lát er þar á. Mótum hefur fjölgað mjög frá því sem áður var og fleiri tækifæri gefast. Og nú er firnasterkt mót á döfinni sem hefst næst- komandi laugardag í bænum Næstved á Suður-Sjálandi. Mótið verður haldið til minningar um skák- hugsuðinn Aron Nimzowitsch sem var fæddur í Riga 1886 en fluttist til Danmerkur eftir heimsstyrjöldina fyrri og bjó þar frá 1922 til dauöa- dags, 1935. Sterkasta skákmót, sem haldið hefur verið í Danmörku, styrkleikaflokkur 13, meðaltal á bilinu 2550—2575 Eló-stig. Agdestein hinn norski verður þar á meðal keppenda og Curt Hansen verður fulltrúi Dana, ásamt Bent. Larsen. Nimzowitsch og kenningar hans hafa einmitt höfðað sérlega sterkt til Larsens, sem grípur hvert tækifæri til að „blokkera”, yfirvalda og hindra aðgerðir andstæðingsins, eins og Nimzowitsch kenndi í bókinni frægu „Mein system”. Þrír Englend- ingar tefla á mótinu, John Nunn, Nigel Short og Murray Chandler, Ulf Andersson hinn sænski verður þarna og Walter Browne, Bandaríkjunum, Ljubomir Ftacnik, Tékkóslóvakíu, ásamt Predrag Nikolic, Júgóslavíu. Þá eru aðeins tvö nöfn ótalin, sem áreiðanlega eiga eftir að valda usla á mótinu og vekja athygli meðal áhorf- enda. Sérstök himnasending frá sovéska skáksambandinu, sem hefur tilkynnt þátttöku tveggja litríkustu skákmanna heims: Rafael Vaganjan og Mikhail Tal. Stórkostleg skák Mótið í Næstved verður lokaæfing Tal, Vaganjan og Short fyrir áskor- endamótið í Montpellier í október. Vaganjan vann glæsilegan sigur í millisvæðamótinu í Biel og Short náði fjórða sætinu eftir aukakeppni við Van der Wiel og Torre. Það er aft- ur lengra síðan Tal tryggði sér þátt- tökurétt í Montpellier. Það var á millisvæðamótinu í Mexíkó fyrr í sumar, með því að hreppa þriðja sætið. Jón L. Ámason Tal, eða „töframaðurinn frá Riga” eins og hann er jafnan nefndur, hefur í seinni tíð teflt meira yfirvegaö en hann gerði á sínum yngri árum og varð frægur fyrir. En alltaf bregður fyrir gömlu góðu „Tal-glettunum”. Hér er stórkostleg skák, sem hann tefldi í Mexíkó. Mótherjinn er ungur og óreyndur, Saeed Ahmed Saeed frá Sameinuöu arabísku furstadæmun- um, yngsti keppandi millisvæðamót- anna. Hann ætlar aö halda sér fast gegn „sóknarbrýninu” en það fer á annan veg. Þótt úr litlu virðist aö moða býr Tal til stórsókn kóngsmeg- in og eftir skiptamuns- og síðan mannsfórn tekst honum að opna tafl- ið sér í vil og knýr fram sigur um síð- ir. Sá óvænti atburður gerðist í skák- inni, að eftir að hún hafði farið í bið og Tal náð að snúa á pilt og innbyrða vinninginn, kom í ljós að a-peð hans stóð á röngum reit í biðstöðunni. Það hafði engin áhrif á stöðuna og skv. skáklögum hefði skákin átt að vera töpuð arabanum, því að hann var bú- inn að gefast upp er uppvíst varð um mistökin. Hann mótmælti hins vegar og þá lét Tal til leiðast, tefldi við hann aftur frá biðstöðunni með a- peðiö á réttum reit og vann skákina aftur! Hvítt: Tal Svart: Saeed Drottningarbragö. 1. c4 e6 2. d4 Rf6 3. Rc3 d5 4. Bg5 Rbd7 5. e3 c6 6. cxd5 exd5 7. Bd3 Be7 8. Dc2 0-0 9. Rf3 He8 10. 0—0 Rf8 11. a3 Rg6 12. Re5 Rg4 13. Bxe7 Dxe7 14. Rxg4 Bxg415. Hael Bd7. Allt er kyrrt á yfirborðinu en frá og meö næsta leik byrjar Tal að „grugga” tafliö. 16. f4!? Rf8 17. f5 Dd6 18. Df2 c5 19. f6 g6 20. Db4 cxd4 21. Dh6 Re6 22. cxd4 Df8 23. Dh4 Rc7 24. Dg3 Hac8 25. Hxe8 Dxe8 26. Hel Be6 27. h4 Df8 28. Df4 h6 29. Bbl Kh8 30. He3 b6 31. Bd3 Kg8 32. Re2 Kh8 33. De5 Bg4. 34. Rf4! Upphafið að glæsilegri og óvenju- legri fléttu. Eftir næsta leik svarts veröur hvítur að fórna skiptamun og fleira er látið flakka von bráðar! 34. — He8 35. Dxc7 Hxe3 36. Rxg6+! fxg6 37. Bxg6 Dg8. Eini leikurinn, því að hvítur hótaði máti á h7. 38. Df4! Hel+ 39.Kh2Df8. Fléttan byggist m.a. á því að 39. — Dxg6 gengur ekki vegna 40. f7 og peð- ið verður ekki stöðvað. 40. f7! He641. Dxg4. Og nú gengur ekki 41. —Dd6+ 42. Kgl Hxg6 vegna 43. Dc8+! Kg7 44. Dg8+ og síðan vekur hvítur upp nýja drottningu. Nú á hann biskup og tvö peð gegn hrók og framsækið f-peðið þrengir mjög að svörtum. Svartur getur ekki nema beðið. 41. —Hf6 42. Dg3 He6 43. h5 He7 44. Dg4 Dd8 45. Kgl Df8 46. Kf2 Dd8 47. g3 Df8 48. Kg2 Dd8 49. Df5 Kg7 50. Bh7! Hxf7 51. Dg6+ Kf8 52. Dxh6+ Hg7 53. Bf5 De7 54, Kh3 Dg5? 55. Dxg5 Hxg5. 56. Bg6! Hrókurinn á sér ekki undankomu auðið og fyrr eða síðar lendir svartur í leikþröng. 56. — Kg7 57. Kh4 Kh6 58. a4. Og svartur gafst upp. Þaö var a- peöiö þrátt fyrir allt sem réð úrslit- um en hvort það kom frá a2 eða a3 skiptir ekki máli. jlá. Fyrsta opna tvímenningskeppnin á Austurlandi var haldin á Hallormsstað helgina 30.—31. ágúst. Formið var barometer, 30 para, alls 87 spil. Kepp- endur komu víða að og komust færri að en vildu. Ef gangur móts er litillega rakinn þá tóku Islandsmeist. Páll og Valur og Siglfirðingamir Jón og Ásgrímur snemma forystuna og voru í nokkrum sérflokki þótt önnur pör væru aldrei langt undan. Staðan að hálfnuðu móti: (15 umf.) 1. PáU—Valur 116 2. J6n—Ásgrímur 100 3. AJalsteinn—Sölvi 73 1. Kristján—Valgarð 65 5. Magnús—Þorsteinn 54 Páll og Valur leiddu samfleytt frá 12. umf. og fyrir lokasetuna var staðan:. . . 1. PáU-Valur 212 2. Jón—Ásgrímur 209 3. Kristján—Bogi 147 4. Kristján—Valgarð 145 5. Aðalsteinn—Sölvi 136 . . . og ljóst að hart yrði barist um hvert verðlaunasæti, en þau voru 5 talsins: 20 þús., 16, 12, 8 og 4 þúsund. Lokastaðan í mótinu varð þessi: 1. Jón Sigurbjörnsson— Asgrímur Sigurbjörnsson, Sigluf. 242 2. PáU Valdimarsson— Valur Sigurðsson, Reykjavík. 222 3. Kristján Kristjánsson— BogiNUsson, Austuri. 174 4. Kristján Blöndal— Valgarð Blöndal, Reykjav. 139 5. Aðalsteinn Jónsson— Sölvi Slgurðsson, Austurl. 138 6. Hallgrimur HaUgrimsson— Sigmundur Stefánsson, Reykjav. 91 7. MagnúsB. Asgrimsson— Þorsteinn Bergsson, Austurl. 87 8. Magnús Aðalbjörnsson — Gunnlaugur Guðmundss, Akureyri 70 Mótið fór vel fram, gekk greiðlega og allur aðbúnaður á Hallormsstað til fyrirmyndar og eiga mótshaldarar þakkir skildar. Keppnisstjórar voru Hermann Lárusson og Björn Jónsson. Ætlun Austfirðinga er að mót sem þetta, á Hallormstað, verði árvisst enda mikil lyftistöng að fá þekkt nöfn til keppni heim í hérað. Forseti BSI, Bjöm Theodórsson, var í hópi kepp- enda og vakti hann athygli á þætti sem skipar móti þessu í nokkurt öndvegi: Að lokinni keppni var sameiginlegur kvöldverður og verðlaunaafhending. Aðkomuspilarar og leiðandi heima- menn áttu síðan saman kvöldstund í góðu tómi og gistu aðra nótt á sumar- hótelinu. Það er meira falið í bridgeinum en 52 spilíbakka. (H.L.) Sumarbridge Skagfirðinga 34 pör mættu til leiks sl. þriöjudag í Drangey. Spilað var í 3 riðlum og uröu úrslit þessi (efstu pör): A) Jakob Ragnarss.—Jón Steinar Ingólfss. 199 Htenning Haraldss.—Öli Björn Gunnarss. 171 Margrét Margeirsd.—Nanna Ágústsd. 166 Karl Logas.—Þorf innur Karlss. 164 R) Steingrímur Þóriss.—Þórir Leif ss. 131 Anton R. Gunnarss.—Friðjón Þórhallss. 128 Björn Jónss.—Þórður Jónss. 120 Bernódus Kristinss.—Þðrður Björnss. 117 C) Matthías Þorvaldss,—Hrannar Grlingss. 147 Hermann Láruss.—Ssvin Bjarnas. 129 Lárus Hermannss.—Hjálmar Pálss. 121 VilhjálmurEinarss.—Sigmar Jénss. 107 Og að loknum 15 kvöldum í sumar- bridge Skagfirðinga er ljóst að Anton Reynir Gunnarsson er sigurvegari sumarsins. Hann hlaut samtals 15 stig. Næstir í röðinni urðu: Friðjón Þór- hallsson og Steingrímur Jónasson, 10. Matthías Þorvaldsson, 9,5. Þórir Leifs- son, Steingrímur Þórisson, Tómas Sigurjónsson, Þórarinn Ámason, Guð- mundur Auðunsson og Sveinn Þor- valdsson, 9. Sumarkeppni Skagfirðinga lýkur næsta þriðjudag með verðlaunaaf- hendingu. Annan þriðjudag hefst svo barometer-tvímenningur hjá félaginu og er skráning þegar hafin. Þeir sem hafa hug á þátttöku geta haft samband viö Olaf (18350-16538) eða Sigmar (687070). Barometerinn stendur í 5 kvöld, miðað við 36 para þátttöku. Bridgefélag Breiðholts Fyrsta spilakvöld haustsins verður í Gerðubergi þriðjudaginn 17. september kl. 19.30. Þá verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 22. september kl. 14.00 í Gerðubergi. Þriðjudaginn 24. september hefst þriggja kvölda hausttvímenningur. 103233 gEppi ilBVIlfiNRfc 0323331 VOLVO 360 GLS ÁRG. '85, beinskiptur, 5 gíra, blár met., ek. 6.000. Verð kr. 580.000. VOLVO 244 DL ÁRG/ 83, beinskiptur, m/vökvastýri, 4ra gíra, beige, ek. 31.000. Verð kr. 485.000. VOLVO 244 DL ÁRG. '82, beinskiptur, m/vökvastýri, 4ra gíra, blár, ek. 28.000. Verð kr 440.000. VOLVO 343 GLS ÁRG. '82, beinskiptur, 4ra gíra, rauður, met., ek. 9.500. Verð kr. 330.000. VOLVO 264 GLE ÁRG. '80, sjálfskiptur, vökvastýri, rafdrifnar rúður o.fl., rauðbrúnn, met., ek. 93.000. Verð kr. 435.000. VOLVO 244 DL ÁRG. '79, sjálfskiptur, vökvastýri, blár, ek. 78.000. Verð 250.000. VOLVO 244 GL ÁRG. '79, beinskiptur, m/vökvastýri, silfur, met., ek. 91.000. Verð 270.000. VOLVO LAPPLANDER ÁRG. '81, beinskiptur, m/Volvohúsi, ek. 90.000. Verð kr. 350.000. TOYOTA COROLLA ÁRG. '78, beinskiptur, grár, met., ek. 72.000. Verð kr. 165.000. CHEVROLET NOVA ÁRG. '78, sjálfskiptur, vökvastýri, silfurgrár, 2ja dyra, ek. 98.000. Verð 235.000. Opið virka daga frá kl. 9—18, laugardaga frá kl. 13—17. VANTAR BÍLA Á SÖLUSKRÁ - TÖKUM ALLAR TEGUNDIR BÍLAÍ UMBOÐSSÖLU. VOLVOSALURINN Suóurlandsbraut 16 • Sími 35200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.