Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Qupperneq 13
DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985.
13
JAPAN:
Hús-
mæður
ófull-
nægðar
Húsmæður i Japan eru óánægðar með þjóðfélagsstöðu sína og hlutverk.
Japanskar eiginkonur og mæður
eiga margar heimili vel búin raftækj-
um og utan við hús þeirra stendur
lúxusbíll, klæðaskápur þeirra er full-
ur af tískufatnaði - og mæður þeirra
öfunda þær af ríkidæminu.
En þótt japanskar konur njóti nú
margar efnahagslega góðs af „efna-
hagsundrinu” í Japan þá finnst þeim
mörgum að þær svífi í einhvers konar
tómarúmi og að eiginlegt hlutverk
þeirra hafi týnst um leið og þjóðfélag-
ið breyttist - og þjóðfélagsbreytingar
í Japan valda oft sársauka, ekki síst
vegna þess hversu landið hefur verið
njörvað í viðjar fornra siðvenja.
Framtíöin
vekur kviöa
„Japanskar konur á aldrinum 30 til
45 ára hafa lent á milli stafs og hurðar
í stökkbreytingu þjóðfélags okkar,”
sagði Mariko Fujiwara félagsfræð-
ingur sem hefur stjórnað rannsókn á
stöðu húsmæðra í heimalandi sínu.
„Þær vita vel að líti þær til fortíðar-
innar og þeirra oft og tíðum ömurlegu
fátæktar, sem þá ríkti, þá ættu þær
að vera ánægðar með sinn hag. Líf
konunnar var erfitt þá og snerist í
raun ekki um neitt annað en heimilis-
líf Qölskyldu eiginmannsins.”
„Fyrir þijátíu árum var ég úti í porti
með mömmu að pressa hrís til að búa
til sterkju til að nota við þvotta fjöl-
skyldunnar,” segir Makiko Shimoda,
húsmóðir í Tokyo. „Það er útilokað
að bera saman líf móður minnar og
mitt.”
Shimoda segist hins vegar sakna
spjallsins, félagslífsins, samverunnar
úti í gamla portinu heima. Og hún
saknar starfanna einnig, þótt oft hafi
þau verið erfið. Og henni fellur miður
að á milli hennar og táningsdóttur
hennar skuli ekki vera neitt samband
miðað við tengslin á milli hennar og
móður hennar.
Margar japanskar húsmæður bera
sig upp undan nútímalífi - eins og
kynsystur þeirra hafa gert á Vestur-
löndum undanfarna áratugi. Þær lifa
og hrærast í hinni nýju smáfjölskyldu
og finnst þær vanræktar. Eiginmenn
þeirra verða að vinna langan vinnu-
dag til að standa sig í starfi og eiga
möguleika á að klifra upp á við - fá
hærri laun. Og börnin verða að sinna
skólanáminu af vaxandi krafti því að
útkoman á prófum skiptir öllu. En
eiginkonurnar, mæðurnar, hafa svo
sem ekkert að gera allan daginn inn-
an um heimilistæki sín. Þeim finnst
þær ekki eiga neina framtíð.
Húsmóðurhlutverkið
úrelt
„Þær konur, sem gengu í hjónaband
á sjöunda áratugnum, voru margar á
höttunum eftir mönnum sem ekki
bjuggu heima hjá foreldrum sínum.
Þær vildu sitt eigið, litla heimili, sína
eigin, litlu Ijölskyldu,” segir Fujiwara
sem kannar líf japanskra kvennafyrir
Hakuhodostofnunina sem sinnir
rannsóknum á daglegu lífi og lifnað-
arháttum. „Nú eru þessar konur ein-
mana þar eð húsmóðurhlutverkið,
sem þær völdu sér eða fóru í fy rir sakir
utanaðkomandi áhrifa, er úrelt.”
Eftir stríðið fóru japanskar konur
fyrst að menntast. En þótt þær yrðu
sér úti um einhverja menntun eða
starfsþjálfun þá litu þær fyrst og
fremst svo á að þeim bæri að sinna
heimilinu - eins og mæður þeirra og
formæður höfðu gert. Þær vildu vera
giftar frúr og eiga börn.
„Og nú vita þær ekki sitt ijúkandi
ráð vegna þess að þær langar innst
inni að hverfa aftur út í þjóðfélagið,
taka þátt í því lífi sem lifað er í
landinu,” sagði Fujiwara.
Hálfsdagsstörfin
Og húsmæðurnar leita í vaxandi
mæli út á vinnumarkaðinn. Opin-
berar tölur sýna að um helmingur
japanskra kvenna kemur sér í hálfs-
dagsvinnu eða jafnvel fulla vinnu um
leið og börnin komast á skólaaldur.
Og skoðanakannanir sýna að þær sem
enn eru heimavinnandi langar út á
vinnumarkaðinn.
„Það er ekki vegna peninganna, ég
hef ekki beina þörf fyrir þá, mér finnst
bara að ég verði að gera eitthvað við
líf mitt,” segir Kuniko Kaneda, fyrr-
verandi flugfreyja, sem nú er húsfrú
og á tvö böm undir skólaaldri.
Kaneda talar tvö tungumál auk
japönsku og var hátt skrifuð hjá1
Japan Airlines. Nú getur hún ekki
reiknað með öðru en láglaunastarfi í
búð í nágrenni við heimili sitt.
„Ég vildi að ég gæti aftur farið í
gamla starfið mitt, en þegar maður er
með fjölskyldu er það ekki hægt.
Búðarstarfið er handhægt að því leyti
að það er stutt að fara og ég get jafn-
framt sinnt heimilisstörfunum.”
Húsmóðurmetnaður
Það er ekki einfalt mál fyrir jap-
anska húsmóður að faraað vinna úti.
Þjóðfélagið hefur öldum saman gert
þá kröfu til hennar að heimilisstörfin
séu hennar og að heimilið megi aldrei
líða fyrir það að húsmóðirin sé ekki
heilshugar að sinna velferð fjölskyld-
unnar. Og það er merki um þjóðfé-
lagslega velgengni fjölskyldu ef hús-
móðirin er heimavinnandi. Og það
sem verra er: „Fari japönsk húsmóðir
að leita sér að vinnu en finnur enga,
eins og oft gerist, þá tapar hún um
leið virðingu, jafnt innan fjölskyld-
unnar sem meðal nágranna,” segir
Fujiwara.
(Reuter)
Óvenjufallegt
leðurlitir. Úrv
Urval af áklæðum.
jw ___
=allegur og fyrirferðarlítill sófi á vægu verði. NYRX
O
Eigum nú aftur til afgreiðslu þessi vinsælu sófasett. Fjöldi
leðurlita, áklæði í miklu úrvali.
Góð greiðslukjör. Verð á hornsófa með áklæði kr. 39.000,-
HUSGAGNASYNING
UM HELGINA
Á TVEIMUR HÆÐUM
laugardag kl. 10—12
og kl. 14-16
sunnudag kl. 14—16
QH| TM-HÚSGÖGN
i§lll| > Síðumúla 30, sími 68-68-22