Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Blaðsíða 14
ÆSKAN BLOMSTRA
í BREIÐHOLTINU
14
DV. LAUGARDAGUH 7. SEPTEMBER1985.
Rokkspildan
Rokkspildan
Tha Voice í fullri keyrslu ó sviðinu. Sumum til ónægju, öflrum ekki.
Hörður Torfason í Austurbæjarbiói.
Fertugur og tuttugu óra söngferill
að baki. DV-mynd PK
Bergþóra Árnadóttir ósamt Ijós-
hærfla Norflmanninum Olaf. Hún
ótti erfitt uppdróttar ó afmælistón-
leikunum. DV-mynd PK
STORAFMÆLIIAUSTURBÆIARBIOI:
TRÍÓ TORFASONAR
HÁPUNKTURINN
kannaöist viö úr áðurnefndum óska-
lagaþætti. Áhorfendur voru strax vel
með á nótunum og náði Hörður upp
ágætri stemningu fyrir næsta gest
sinn, Bubba Morthens. Bubbi var í
fínu formi þetta kvöld og fór á kost-
um í lögunum um Libba dóna og
Paranoiuna. Við tók meistari trúba-
dora, Megas. Hann söng nokkur lög
við texta „stórskáldanna” og endaði
á að lesa upp aðsenda afmæliskveðju
frá Molly og Ransý með laginu
Gamli sorrý Gráni. Vonandi ekki til-
einkaö afmælisbarninu. I lokin tóku
þeir félagar Megas, Bubbi og Hörður
lagið Guðjón, við texta Þórarins Eld-
járn og má með sanni segja að það
hafi veriö hápunktur þessara
afmælistónleika.
Góður seinnihluti
Éf á heildina er litið var þetta
ágætlega heppnað afmæli, sérstak-
lega seinni hlutinn. Fyrri hlutinn var
helst til of langdreginn og hljóm-
sveitin í upphafi öldungis óþörf.
Hörður veldur því fullkomlega að
spila og syngja einn. Og efnisskrá
hans gaf, held ég, góöa mynd af því
sem hann hefur verið aö gera undan-
farin tuttugu ár. Hann á að geta litið
til baka með bros á vör.
Gestir Harðar (á sviðinu) komust
flestir vel frá sínu. Bergþóru Árna-
dóttui voru þó mjög mislagðar
hendur og er mér til efs að henni hafi
nokkurn tíma tekist jafnilla upp. Hún
getur örugglega betur. Bubbi aftur á
móti stal næstum senunni frá Herði
með hnitmiöuöu prógrammi sem
heillaði áheyrendur upp úr skónum.
Þeir voru nokkuð margir. Fullt
hús ef fimmtiu hefðu setið í tveim
sætum. Og ef mark er takandi á lófa-
taki og slíku virtust þeir hinir
ánægðustu. Svona samkoma
trúbadora er heldur ekki daglegur
viðburður. Hvað þá heldur stóraf-
mæli. -ÞJV.
halda upp á tuttugu ára afmæli sitt
sem trúbador. Ég hef í gegnum tíð-
rna aöeins minnst hans fyrir aö leita
blárra blóma í óskalagaþætti sjúkl-
inga.
En það hafa liklega engir tón-
leikar verið haldnir af jafn stóru til-
efni og þessir á miðvikudagskvöldið.
Hörður hélt upp á trúbadorafmæliö
og jafnframt fagnaði hann fertug-
asta aldursári. Til veislunnar bauö
hann landskunnum starfsbræðrum
sinum á tónlistarsviðinu og gestum
meðan húsrúm leyfði.
T rúbadoraf mæli?
Viðar Eggertsson leikari steig
fyrstur á svið og bauð viðstadda vel-
komna. Utskýrði í fáum orðum hug-
takiðtrúbador: Maðurmeðkassagít-
ar og jafnvel munnhörpu. Ekki voru
þau upphafsorð í neinu samræmi viö
fyrsta dagskrárlið. Höröur steig á
sviö vopnaður gítar og fjórum
fylgdarmönnum. Var þetta ekki
trúbadorafmæli?
Það sýndi sig líka síðar um
kvöldið að undirleikararnir á bassa
og gítar hefðu vel mátt missa sig.
En eftir að Hörður hafði leikið lög
af sinni fyrstu plötu tók Bergþóra
Ámadóttir við. Hún söng nokkur lög,
gömul og ný, og naut aðstoðar nor-
rænna tónlistarmanna.
Aftur bauð Viðar Hörð velkominn
á sviöið og tók hann fáein lög til
viðbótar áður en Kristín Olafsdóttir
steig fram. Hún söng þrjá baráttu-
söngva af íslenskum og suður-
amerískum uppruna. Þegar hér var
komiö tilkynnti Viðar fimmtán
mínútna hlé sem gestir þáðu með
þökkum.
T ríó-T orfasonar
Að loknu hléinu steig Hörður einn
á svið byrjaði á að leika lagið sem ég
Fyrir nákvæmlega viku síðan stóö
félagsmiðstöðin Fellahellir fyrir rokk-
tónleikum á planinu fyrir framan skól-
ann. Gegnum geimið til stjarnanna,
var kjörorð Rykkrokks 85 en svo nefnd-
ist þessi tónlistaruppákoma. Tilefnið
var ár æskunnar sem nú er rúmlega
hálfnaö.
Undanfarin ár hafa undantekninga-
laust verið kennd við þetta og hitt. Gott
ef ár konunnar var ekki fyrir fáeinum
árum, jafnvel ár trésins. En eftir að
þessi ár eru liðin í aldanna skaut eru
málefnin fljót að gleymast. Þess bera
meðal annars vitni skorpnaðar hríslur
sem settar voru niður víðsvegar um
bæinn á ári trjáplöntunnar. Bara að
æska þessa lands veröi ekki látin vesl-
ast upp á svipaðan hátt þegar þessu ári
lýkur.
En nóg um hrakspár í bili.
Lífs og sálarkraftar
Dagskrá Rykkrokks stóð samfellt í
tæpa sex tíma. Fram komu ýmsar
unglingahljómsveitir og nokkrar af
eldri kynslóðinni fylgdu með. Planiö
fyrir framan Fellaskólann iðaði af lífi
þegar mig bar þar að uppúr átta um
kvöldið. Piltar spiluöu knattspyrnu,
stúlkur hjóluðu og einstaklingar af
báðum kynjum skóku sig fyrir framan
sviðið, þar sem hljómsveitin the Voice
lék af öllum lífs og sálar kröftum. Tón-
listin var hrátt rokk og krafturinn í
flutningnum lofsverður ef tekið er mið
af kuldanum sem þarna var. En pilt-
arnir í the Voice létu það lítið á sig fá,
blésu í kaun og hvert lagið rak annað.
Það verður að segjast eins og er að
tónlist the Voice greip mig heljartök-
um. örlítið meiri samæfingu vantaði
en spennandi veröur að heyra í þeim
drengjumaftur.
Við tók hljómsveitin Sveet pain.
Söngvarinn steig á svið Qdæddur amer-
íska þjóðfánanum. Afskaplega ófrum-
legt og sömu sögu er reyndar að segja
um tónlistina. Gamaldags þungarokk,
á la Led Zeppelin eöa Deep Purple sjö-
tiu og eitthvað. Enda fór svo að ég
gafst upp eftir eitt lag. Bæði var að
kuldinn sagði áþreif anlega til sín og ég
hafði frétt að Megas og Kukliö hefðu
Hvar hefur þessi maður verið?
hugsaði ég með sjálfum mér þegar
ég frétti að Hörður Torfason hygðist
þegar komiö fram. (Bætti mér það
reyndar upp í gærkveldi.)
Einu sinni ungir
Sem sé, ég dreif mig heim um níu-
leytið og til að horfa á Síðasta valsinn.
Ég velti því lika fyrir mér hvort ekki
hefði verið nær að byrja tónleikana
klukkan þrjú í staðinn fyrir sex. Þá
heföu margir af áheyrendum hugsan-
lega haldið út lengur. En það skiptir
ekki höfuðmáli. Uppákoman sem slík
var skemmtilegt framlag til árs æsk-
unnar sem vonandi verður ekki gleymt
á næsta ári.
Og the Band minntust æskunnar í
sjónvarpinu. Þeir voru líka einu sinni
ungir (yngri). -ÞJV
Fellaskólaportifi er vettvangur œsk-
unnar hvort sem árifl er kennt vifl
ungdóminn efla ekki. Og œskufólk-
ifl lót sig ekki vanta á Rykkrokk.
DV-mynd VHV