Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Page 16
16 DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985. Stundum er deilt um hvor þeirra Louella Parsons eða Hedda Hopper hafí verið argasta slúðurkerling bandarískrar sögu. En það neitar því enginn að þær hafi verið eins líkar Gróu á Leiti og mögulegt er. Parsons og Hopper voru slúður- blaðamenn sem öðluðust ótrúleg völd í Hollywood á árum áður. Þær gort- uðu af því að þær þyrftu ekki annað en að benda á leikara til að þeir skylfu eins og lauf í vindi. Ást og hatur, fordómar og hleypi- dómar, hégómagimi og skepnuskap- ur: þetta var efniviður þeirra stallna. Hedda Hopper skrifaði slúðurdálk sem talið er að 75 milljónir Banda- ríkjamanna hafi lesið. Louella Par- sons masaði á hinn bóginn og slúðraði í míkrófón og var kölluð útvarps- fréttamaður. ímyndin var allt í kvikmyndaheim- inum á fjórða áratugnum, rétt eins og núna, og því mátti lítið út af bera. Kvikmyndafyrirtækin fjárfestu í ímynd og gjarnan var klásúla í samn- ingum þeirra við leikara um að ef siðferði þeirra væri ábótavant mætti segja samningnum upp. Og oftar en ekki voru það Hedda og Louella sem kváðu upp dóminn. I þessu fólust völd þessa undarlega kvennaliðs sem hefði betur sómt sér í farsa ef ekki hefði komið til að þær vom augu og eyru milijóna Banda- ríkjamanna. Peter Sellers komst seint til metorða í Hollywood, eða þegar valkyrjurnar vom á gamals aldri, en hann pundaði á þær: „Til að geðjast þessum slúður- kellingum verður maður að ganga í jakkafötum í bandarísku fánalitun- um, hengja skilti um hálsinn á sér þar sem letrað er: „Ég elska Hollywood”, bjóða þeim út, kaupa rósir, þurrka rykið af skóm þeirra og segja „Ég elska y kkur, ég elska ykkur allar”.” Hedda Hopper hét réttu nafni Elda Furry og var frá Altoona í Pennsyl- vaníu. Henni kippti í kynið því hún var dóttir slátrara. Hún giftist leik- ara, De Wolf Hopper að nafni. Louella var aftur á móti kaupmannsdóttir frá Freeport í Illinois. Hún var sí og æ að gifta sig. Meðal margra eigin- manna hennar var læknir sem hressti upp á heilsu frægra leikara, vafalaust stundum eftir hörkuskot kellu sinnar í slúðurdálkunum. Louella var kvek- ari og skoðanir hennar vom eftir því. Hedda Hopper og Louella Parsons vom holdgervingar hins „siðprúða meirihluta” sem grassérar í miðvest- urríkjum Bandaríkjanna. Þær vom púrítanar, fullkomlega lausar við hneyksli (ofneyslu áfengis, kynlíf í of stórum skömmtum eða með eigin kyni, eiturlyfjaneyslu, svo fátt eitt sé talið). En þær voru óstjómlega for- vitnar hvað varðar breyskleika ann- arra. Nei, það var ekki hægt að snúa kynlífshneykslunum upp á þær sjálf- ar . . .SagðiHeddaekkiaðþaðjafn- aðist ekkert á við að fara í háttinn með góða bók, mjúkan kodda og maska? Elskhugar, haldið ykkur fjarri, gerið þið svo vel . . . Louella Parsons var svo tannhvöss að hún varð fljótlega eftirlæti Will- iams Randolphs Hearst,konungs slúð- urpressunnar og fyrirmyndar Citizen Kane. Hún varð kvikmyndagagn- rýnandi The New York American árið 1925 og nokkrum árum síðar flutt til Hollywood. Þar skrifaði hún slúður- dálkinn „Hollywood Laydown” sem birtist í 85 stórblöðum, 2000 smábæj- arblöðum og 3000 vikublöðum. Sagt var um hana að hún gæti stafað allt Hedda Hopper varð þekkt í Hollywood sem samkvæmisljón og leikkona. Ý msir vildu snúast til varn- ar gegn slúðri Louellu og því var Hedda dubbuð upp í slúðurútvarps- fréttamann. Ekki svo vitlaust því útvarpið hafði sjálfsagt álíka áhrif og sjónvarpið nú. Hedda náði skjótum frama. Rétt eins og Louella notaðist hún við alls kyns hlaupadrengi sem unnu í stúdíóum og saman lögðu þær stjömumar í einelti. Louella vildi breyta Hollywood í heilnæma borg þar sem kvekarakerl- vita betur „en mæður ykkar og elsk- hugar og ástmeyjar”, eins og hún orðaði það. Louella kerlingin sagði Gary Cooper að hann væri ljótur strákur er hann hélt við Doroth DiFrazzo greifynju og hrópaði yfir heilt samkvæmi að hann ætti að hundskast heim og segja konu sinni frá því áður en hún læsi um það í blöðunum . . . Hún lýsti því líka yfir að Bette Davis ætti góðan séns ef hún kynntist góðum farðara . . . Og svo sallaði hún Tom nokkum Mix niður fyrir að segja börnum sínum að ljúga því að hann væri ekki faðir þeirra til Louella Parsons skipaði Gary Oonper að hætta framhjáhaldinu og segja konu sinni frá bví áður en það birtist í dálki hennar. . . Til hægri er Elizabeth Taylor sem leikur Parsons í nýrri mynd> Alice in Wonderland. Hedda Hopper með einn af hinum frægu höttum. Til hægri er Jane Alexander sem leikur Heddu i mynd inni. nema orð. Hún skammaðist sín ekki vitund fyrir það og nefndi sjálfsævi- sögu sína Hýr og ólæs. En 20th Cent- ury Fox var heldur ekki að fjárfesta í málfræði þegar fyrirtækið borgaði 75 þúsund dali fyrir kvikmyndarétt- inn . . . ing á borð við hana væri í essinu sínu. Stefnuskrá hennar var að boða góða siði hvarvetna. Flokkur hennar hefði getað heitið „Kerlinga- og bleiu- bandalagið”. Louella sagðist slúðra lun kynlíf og brennivínsneyslu leik- ara í þágu þeirra sjálfra. Hún sagðist að hressa upp á karlmennskuímynd sína í augum ungra stúlkna. Sérgrein Louellu var skilnaðir. Hedda Hopper var engu síðri en Louella. Hún hafði sjálfstraustið í lagi. Hún var þekkt fyrir hattakaup sín, keypti hvorki fleiri né færri en 180 hatta á ári, enda kallaði hún sjálfs- ævisögu sína Undan hattinum. Hún varaði Bing Crosby við að halda úti ástarhreiðri og skammaði Madeleine Carroll fyrir að vera svo sem 6 kílóum of þung. Hún taldi David O Selznick föðurlandssvikara er hann valdi óreynda, enska leikkonu, Vivien Leigh, til að leika amerískasta hlut- verk allra tíma, Scarlett O’Hara í Á hverfandihveli. En öllu alvarlegri var framkoma hennar gagnvart Charlie Chaplin. Þegar leikarinn góðkunni var í þann mund að kvænast Oonu O’Neill til- kynnti hún að óþekkt leikkona ætlaði að höfða barnsfaðernismál gegn hon- um. Hún kallaði Chaplin „þennan gaur sem kom hingað í matarboð fyrir fjörutíu árum”. Skotið átti rætur að rekja til þess að Chaplin var enskur ríkisborgari. Hún var brjálaður íhaldsmaður og þjóðernissinni og átti stóran þátt í nornaveiðum í Holly- wood þegar allir róttækir listamenn voru ofsóttir af hinni óamerísku nefnd McCarthys. í þá tíð nægði að einhver kallaði annan kommúnista. En Hopper gat látið „náða” listamenn ef þeir skriðu fyrir henni. Það voru ekki allir sem beygðu sig í duftið fyrir þessum kerlingum. Marlon Brando sýndi Heddu dóna- skap, Rex Harrison fór ekki dult með að hún færi í taugarnar á honum og komst fyrir vikið í svörtu bókina. Hún kallaði hann „Sexy Rexy”. Leikarinn Walter Wanger, eiginmaður Joan Bennett, þoldi hana ekki heldur. Hin trúfasta eiginkona hans hefndi árása Heddu með því að senda henni skunk í jólagjöf! Frú Bennett er sögð hafa fengið samviskubit . . . því hún var mest hrædd um að Hedda myndi pína skunkinn. Fjölmargir Bretar gerðu það gott í Hollywood á eftirstríðsárunum og yfirleitt stóðu þeir uppi í hárinu á Heddu og Louellu. James Mason og Pamela Mason kærðu sig kollótt um þessar stöllur. Fyrir vikið varði Hedda hálftíma þætti í að skíta hann út. Hann var sagður „drambsamur og ósamvinnuþýður”. „Hið síðarnefnda var meiri synd,” skrifaði James Ma- son í æviminningum sínum. Ef skynja má áherslumun hjá þeim stöllum má setja það fram á eftirfar- andi hátt: Hedda Hopper var í heilögu stríði gegn Hollywood en Louella Parsons áleit að snúa mætti synda- höfrunum til betri vegar, „bara ef þeir j átuðu syndir sínar”. Önnurvildi lík, hlnsálir Louella sóttist eftir að verða eins konar stjarna og því púkkaði hún upp á ýmsa minni háttar spámenn, þar á meðal ungan leikara, Ronald Reagan að nafni. Seinna sagði hún um hann: „Ronnie hefur engan pólitískan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.