Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Blaðsíða 24
24 DV. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER1985. ÚtboÓ Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í verkið Arn- arfjörður 1985. (Lengd 6,9 km, styrking 10.000 m3.) Verki skal lokið 1. desember 1985. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 9. september nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 23. september 1985. Vegamálastjóri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Skógar- geröi 5, þingl. eign Sigurðar Ó. Markússonar, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavik, Hafsteins Sigurðssonar hrl., Guðmundar jóns- $onar hdl., Tryggingastofnunar ríkisins, Ævars Guðmundssonar hdl., Landsbanka Islands, Jóns Hjaltasonar hrl., Árna Guöjónssonar hrl., Búnaöarbanka Islands, Sveins H. Valriimarssonar hrl., Guðna Á. Haraldssonar hdl. og Othars Arnar Petersen hdl. á eigninni sjálfri mið- vikudaginn 11. september 1985kl. 14.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta i Kaplaskjólsvegi 31, þingl. eign Guðrúnar Austmar Sigurgeirsdóttur, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdl., Skúla J. Pálmasonar hrl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Veðdeildar Landsbankans, Baldur Guð- laugssonar hrl. og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri þriöju- daginn 10. september 1985 kl. 11.00. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Reykjavíkurvegi 40, jarðhæð, Hafnarfirði, þingl. eign Svavars Ellertssonar, ferfram á eigninni sjálfri 10. september 1985 kl. 15.30. . * . ,LJ1 Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Vesturgötu 6, Hafnarfirði, tal. eign Sjafnar Gunnarsdóttur, fer fram eftir kröfu Róberts Árna Hreiöarssonar hdl. og Guðjóns Stein- grímssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. september 1985 kl. 15 45 Bæjarfógetinn I Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 49., 54. og 64. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Álfaskeiöi 84, 2. h.t.v., Hafnarfiröi, þingl. eign Guðmundar Ákasonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl., Veð- deildar Landsbanka islands, Gjaldheimtunnar i Hafnarfiröi og Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. september 1985 kl. 16.45. Bæjarfógetinn I Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 12., 19. og 30. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Hringbraut 25, 2. h.t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Markúsar Jóhannssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Þóroddssonar hdl. og Lands- banka Islands á eigninni sjálfri miövikudaginn 11. september 1985 kl. 17.15. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 60., 62. og 66. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Unpðsdal, grænmetisgeymslu, Hafnarfirði, þingl. eign Magnúsar Jónassonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Hafnar- firöi á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. september 1985 kl. 17.45. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á Skeiðar- vogi 109, þingl. eign Eddu Árnadóttur, fer fram eftir kröfu Steingríms Þormóðssonar hdl., Einars Jónssonar hdl. og Gjaldheimtunnar í Reykja- vík á eigninni sjálfri þriðjudaginn 10. september 1985 kl. 15.30. Borgarfógetaembættiö I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35., 40. og 45. tölublaði Lögbirtingablaösins 1985 á Þörungaverksmiðju á Reykhólum i Baröastrandarsýslu, þingl. eign Þör- ungavinnslunar hf., fer fram eftir kröfu lönþróunarsjóðs mánudaginn 9. sept. 1985 kl. 14á eigninni sjálfri. Sýslumaður Barðastrandarsýslu. 1 Uhro Kekkonen — hefur fengiö lax í einni íslandsferð sinni. Kekkonen barðist gegn Koivisto —segir í nýrri bók um Uhro Kekkonen sem nú er85ára Uhro Kekkonen, fyrrum forseti Finnlands, varð 85 ára á þriðjudaginn var. í október nk. kemur út bók í Finnlandi sem hefur að geyma 43 viðtöl við menn úr ýmsum áttum, en viðtölin eiga það sameiginlegt að fjalla um Kekkonen og Kekkonen- tímabilið í Finnlandi. í bókinni kemur meðal annars fram að Kekkonen var ekki sérlega hrifinn af Mauno Koi- visto, núverandi forseta, og reyndi að koma í veg fyrir að sá yrði eftirmaður sinn. Kekkonen gast ekki að erfiðleikum Koivistos við að taka snöggar ákvarðanir, þoldi illa hversu Koivisto talaði oft óskýrt og hafði tilhneigingu til að ýta málum á undan sér. Höfundur eða ritstjóri bókarinnar er fornvinur Kekkonens, Eino S. Repo, sem áður var aðalforstjóri út- varps og sjónvarps í Finnlandi. Með- höfundur hans er Ville Repo, bróðir hans, en hann tók mörg viðtalanna í bókinni. Innihald bókarinnar hefur verið opinberað núna vegna 85 ára afmælis- ins en að öðru leyti verður aðeins haldið upp á afmælið í hópi vina og fjölskyldu Kekkonens, enda er sá gamli orðinn hrumur mjög og minnis- lítill. Þegar Kekkonen dró sig í hlé hvarf hann inn í eftirlaunasetur finnska forsetans á Ekudden við Helsingfors og hefur eiginlega ekki talað við aðra en sína allra nánustu síðan. Sögur hafa náttúrlega gengið í Finnlandi um heilsufar forsetans - og ein m.a. sú að rétt áður en hann sagði af sér hefði hann skroppið í laxveiði til ís- lands. En sem kunnugt er kom Uhro Kekkonen oft hingað til lands til að egna fyrir lax. Þegar Kekkonen kom úr þessari síðustu Islandsför hafði hann að sögn ekki hugmynd um hvar hann hafði verið, vissi ekki til þess að hann hefði skroppið neitt. Persónuleg sambönd Viðtölin draga upp mynd af persónu sem byggði styrk sinn og veldi á neti persónulegra sambanda. Kekkonen var vinur og kunningi lykilpersóna í pólitík og félagslífi. Hann var þannig alla tíð ótrúlega vel að sér, vissi raun- ar flest eða allt sem gerðist í finnsku stjómmálalífi, menningu og íþrótt- um. En viðtalsbókin gefur og mynd af fljóthuga og oft fljótráðum manni sem iðulega sá eftir því sem hann hafði sagt eða gert í hita andartaksins. Sylvi, eiginkona Kekkonens, lést 1974. Fráfall hennar var honum mikið áfall, meira en vinir hans gerðu sér grein fyrir. Hún var besti vinur hans, trúnaðarvinur, og sennilega eini ráð- gjafinn sem hann hlustaði á. Það hefur verið haft eftir Kekkonen að hann hafi haft það fyrir venju að taka Sylvi jafnan með sér þegar hann þurfti að hitta nýjan mann, kynnast nýju fólki. Næmi hennar gagnvart fólki og hæfileiki til að meta persónur var honum stoð þegar hann vildi vita hvort viðkomandi var heiðarlegur eður ei. Sjálfur var Kekkonen ákaflega tor- trygginn. Vinir hans segja að innst inni hafi hann ekki treyst neinum. Að eiginkonunni genginni var Kekkonen oftast í félagsskap sveitar- höfðingja eða athafnamanna. Það voru félagar að hans skapi, gátu sung- ið og drukkið og sagt safaríkar sögur. Bókin skýrir og frá því að um síð- asta áratug miðjan hafi Kekkonen viljað draga sig í hlé frá „skítverkun- um” til þess að helga sig ritstörfum. Margt varð til að spilla þeirri ráða- gerð. Það sem þó helst olli því að þá varð ekki úr ætlun hans var að hann áleit sjálfur að enginn verðugur arf- taki hans væri til í Finnlandi. Og önnur ástæða var sú að það var ekki fyrr en þessi síðustu ár að allar stjórn- málahreyfingar í Finnlandi, sem máli skiptu, höfðu fylkt sér að baki honum. Kekkonen var ákaflega efins varð- andi alla hugsanlega eftirmenn. Hann mat Koivisto mikils sem fjármóla- speking og manneskju en treysti honum ekki í utanríkismálum og ef- aðist jafnan um að Koivisto yrði nægilega harður af sér þegar á þyrfti aðhalda. Karjalainen Samband þeirra Kekkonens og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.