Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1985, Síða 27
DV. LAUGARDAGÚR 7. SEPTEMBER1985.
27
er ekkert grín. Þegar munurinn á milli
blakkanna er oröinn svona lítill og
þegar valkostimir eru orönir svona fá-
ir og ákveðnir getur þaö auðveldlega
skipt sköpum í norsku kosningunum
hvort Gro æsir sig í sjónvarpsum-
ræöum eöa ekki.
I sjónvarpinu í fyrradag ræddu tveir
fyrrverandi forsætisráöherrar einmitt
um þetta efni. Einar Gerhardsen og
Per Borten voru sammála um aö þetta
væri varhugaverð þróun. Með þessum
hreinu línum í baráttunni og persónu-
legu kosningum væri verið að apa eftir
Bandaríkjamönnum. Fólk væri hætt aö
kjósa um málefni, valið færi eftir því
hver leiðtoginn væri og hvaö fólki þætti
um hann.
Framtíð velferðarríkisins
Sterkasta mál Verkamannaflokksins
í kosningunum er framtíö velferðar-
ríkisins. Verkamannaflokkurinn hefur
keyrt á því í allt sumar aö Hægri
flokkurinn muni smám saman eyöi-
leggja norska velferöarríkið fái hann
aö halda áfram um stjórnartaumana.
Verkamannaflokknum barst svo
óvæntur liðsauki frá samtökum fatl-
aðra. Samtökin birtu núna rétt fyrir
kosningar skýrslu um 90 mismunandi
dæmi um hvernig stjórnin heföi gert
kjör fatlaðra verri en þau voru áöur.
Svona rétt fyrir kosningar var þessi
skýrsla mikið áfall fyrir stjórn Káre
Willochs.
Ef vinstri flokkarnir sigra í kosn-
ingunum veröur þaö eingöngu vegna
þess hve hart þeir hafa keyrt á þessu
málefni, telur fréttaritari DV í Osló,
Jón Einar Guðjónsson. Norðmenn hafa
verulegar áhyggjur af því aö þjónusta
ríkisins hafi versnað í stjórnartíö Will-
ochs.
Skera niður skrifræðið
Borgaraflokkarnir segja á móti aö
þeir séu einkum að skera niöur skrif-
ræöið. Þetta er vinsælt þema. Þeir
benda einnig á ótvíræðan árangur í
baráttunni gegn veröbólgunni. Hún
var 13 prósent áöur en þeir komu til
valda en er núna fjögur til fimm
prósent.
,,En þaö er min persónulega skoðun
aö borgaraflokkarnir eigi ekki eins
gott meö að veiða atkvæði vegna þess
hvernig þeir hafa stjómaö. Þaö sem
fólk hefur áhuga á er hvaö gerist á
morgun. Ekki hvaö gerðist í gær,”
sagöi Jón Einar í samtali í gær.
Handsprengjur úr glerhúsi
Sterka mál borgaraflokkanna er
NATO-málið. Þeir hafa keyrt jafnstíft
á linkind Verkamannaflokksins
gagnvart NATO-samstarfinu og
Verkamannaflokkurinn hefur keyrt á
linkind Hægri flokksins gagnvart
varöveislu velferöarríkisins.
„Þaö er Hægri flokkurinn sem hefur
valdiö klofningi varöandi varnar-
málin,” segirGro.
„Þegar Gro gagnrýnir heilbrigöis-
málastefnu okkar þá kastar hún hand-
sprengjum úr glerhúsi,” segir Káre á
móti.
Og þannig gengur kosningabaráttan.
Gro talar og Káre svarar. Eöa öfugt.
Skólakosningar
Þeir Norömenn hafa nokkuö
skemmtilegan sið. Fyrir hverjar
stjórnarkosningar eru haldnar
kosningar í skólum landsins. Þetta eru
kosningar sem nemar, tilvonandi kjós-
endur iandsins, taka þátt í. Þessar
kosningar hafa löngum þótt gefa
hugmynd um hvernig línurnar liggja
meðal almennings og þessar kosningar
hafa þótt góöar langtímaspár.
I kosningunum núna hefur Verka-
mannaflokkurinn aukiö talsvert fylgi
sitt. Þetta þykir flokksmönnum góö
þróun. Undanfarin 6—8 ár hefur
nefnilega Verkamannaflokkurinn
tapað fylgi í þessum skólakosningum.
I kosningunum núna fékk Verka-
mannaflokkurinn 32 prósent atkvæða
og Hægri flokkurinn 31 prósent. Þetta
gefur líka til kynna aö tveggja flokka
kerfi sé hægt og rólega að myndast í
Noregi.
Þetta mikla fylgi Hægri flokksins í
skólakosningunum er árangur langrar
þróunar. Þaö var í lok síðasta áratugar
sem Hægri flokkurinn fór aö fá
verulega fylgisaukningu. Og það kom
líka í ljós aö þaö sama átti eftir aö
gerast meöal fólks á kosningaaldri.
Þaö sem mesta eftirtekt vekur nú er
aö Framfaraflokkurinn, sem er yst til
hægri, hefur tapaö verulegu fylgi. Það
má ímynda sér hvert þaö hefur fariö.
Buxur, fóðraðar, st. 6—
16, litur grár. Verð 1160,-.
Bolur, litir blátt, rautt, st.
6-14. Verð 428,-.
Úlpa, litir blátt, rautt,
stærð 116—128. Verð
1680,-. Buxur, fóðr-
aðar, st. 98—116, litir
blátt, vínrautt. Verð
535,-.
Úlpa stærð 4—16, litur
grár. Verð 1738-1945,-.
só
búðíff
Hrísateigi 47, sími 32388.
(SHflMTU)
HÁRLAGNINGARFROÐA MEÐ
HÁRNÆRINGU ___________
Fyrir venjulegt,
feitt eða slitið hár,
ein tegund sérstaklega
fyrir karlmenn.
(SHflMTU)
HÁRLAKK
Fyrir venjulegt.
(SHflMTU)
HÁRLAGNINGARFROÐA
Venjulegt, feitt
eða slitið hár.
Einnig sérstaklega
sterk og haldgóð.
Undirstrikaðu
glæsileika hársins með SHAMTU
Loksins gefst þér (hvort sem þú ert karl-
eóa kvenkyns) tækifæri á að undirstrika
glæsileik hárs þíns með hárvörunum frá
SHAMTU.
Undirstrikaðu með
Úrvalið er glæsilegt og þú finnur örugg-
lega það sem sniðið er einmitt með þitt
hár í huga.
SHAMTU fæst nú alls staðar þar sem
máli skiptir.
(SHflMTU)
Heildsala:
KAUPSEL
Laugavegi 25
Sími: 27770 27774