Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1985, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1985, Side 29
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið DV. ÞRIÐJUDAGUR12. NÖVEMBER1985. Nýjasta fylgikona furstans — Ira prinsessa af Furstenberg mætti í skærfjólubláum samkvæmiskjól. Karólína prinsessa var hvitklædd og viðraði eiginmanninn, Stefano Casirhagi. Húsvörðurinn Þórður ásamt bróður Ladda — Haraldi. KR-ingurinn úr kassanum. Albert prins var hvítklæddur lika og vinkonan, Corine Larsen, var i Ijós- bleiku. Eirikur Fjalar er góðvinur fólks úr öllum stéttum og af ýmsum aldursflokkum. Fjölgun á ferðinni Skapstærstu hjónakomin í Hollívúdd eiga nú von á erfingja og bíöa menn spenntir eftir aö sjá og heyra í barnunganum á næstu árum. Hvað barnið erfir af eigin- leikum foreldranna er ekki gott aö segja en varla veröur þaö jafnlyndið holdi klætt. Faðir móö- urinnar, veröandi afinn, Ryan O’Neal, er ekki þekktur fyrir dauflega skapgerö og dóttirin hefur lengi þótt vargur hinn mesti. Eiginmaður hennar, John McEnroe, hefur svo átt í erfiö- leikum með að stunda íþrótt sína aö gagni fyrir skapofsanum og öll þrjú hafa þau komist á síður blaöanna fyrir hegðun sem venjulegu fólki þykir ekki með öllu eölileg. Nú kemur kannski vel á vondan því varla veröa þau forviða þó litli engillinn láti eitt- hvaö í sér heyra svona endrum og eins. Skapstærsta parið á von á erfingja — hvaða eiginleika skyldi barnið annars erfa frá foreldrunum? Dansleikur góðseminnar Dansleikur ársins í Mónakó er hald- inn til styrktar Rauöa krossinum og þar er venjan að fína liðiö safnist sam- an í hreinu góögeröarskyni. Auövitaö er svo aðalmáliö hver mætir í hverju og með hverjum — nokkuð sem fjöl- miölar um allan heim fylgjast grannt með og láta síðan lesendur vita í smá- atriðum. Þetta áriö kom furstinn Rainier meö Iru af Fiirstenberg sér viö hliö — slúö- urdálkahöfundar um allan heim æptu af kæti. Prinsessan var klædd fjólu- bláu sem sagði mönnum aö hún væri aðalnúmerið á staðnum því aörar kvenverur úr fjölskyldunni mættu í daufum litum til þess aö skyggja ekki á stjörnuna, nema Stefanía — hún kom í skærbleikum þröngum kjól og átti at- hygli allra um kvöldiö. Nú velta menn fyrir sér hvort Ira verði síöari eiginkona furstans því þaö þykir hæfilega langt um liöiö frá and- láti Grace Kelly og mál til komið að karlinn komi sér í hnapphelduna aftur. Þaö getur víst veriö erfitt að vera ein- stæður faöir með stálpaða barnunga og því betra aö fá aðstoö til aö standa í stykkinu. En þau skötuhjúin svara engum spurningum — láta sér nægja aö brosa kurteislega og snúa talinu aö öðru. En hver veit. . . jðr i wWm. % Rainier fursti i Mónakó var i kjól og hvitu — hvað annað? Stefania prinsessa valdi skær- bleikan kvöldkjól og átti kvöldið. Hann er ennþá til þessil Hjartaknúsarinn Paul Anka söng af innlifum um kvöldið. m |

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.