Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1985, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ —VÍSIR
261. tbl. - 75. og 11. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1985.
Margir nef ndir í okurlánamálinu:
Sumir með allt að
30—40 milljónir?
„Menn rægðir niður/’ segir Hrafn Bachmann, kaupmaður,
sem segist enga peninga eiga hjá okurlánaranum og ekkert skulda honum
„Ég á enga peninga hjá Hermanni
Björgvinssyni. Og hann skuldar mér
ekkert. Ég hef heyrt sögusagnir um
aö ég sá á kafi í okurlánum og hafi
lagt fé í okurlán. Það hefur veriö
sagt aö ég eigi allt frá tíu milljónum
og upp í tuttugu. Nei, ég á ekki
einseyring hjá Hermanni,” sagöi
Hrafn Bachmann kaupmaöur. Þær
sögusagnir hafa gengiö fjöllunum
hærra undanfarið að Hrafn sé viö-
riðinn málið.
„Þessar sögusagnir ganga eflaust
vegna þess aö Hermann vann hjá
mér í tíu ár. Þaö má segja að ég hafi
alið hann upp.
Það eru greinilega komin upp
blóðug átök meöal þeirra manna,
sem standa í þessu. Þau hafa oröiö til
þess að menn eru rægöir niður. Það
mun koma í ljós þegar RLR birtir
lista yfir þá menn sem eru viöriðnir
málið, hverjir standa að lánastarf-
seminni sem nú er í rannsókn. Ég hef
heyrt að margir menn eigi þar veru-
legar peningaupphæðir. Allt að 30—
40 milljónir. Þetta mál virðist verða
sætara og sætara, eftir því sem fólk
er búið að smjatta meira á því. Við
þá sem bera það út að ég sé flæktur í
þetta mál vil ég segja: Verði ykkur
að góöu, ” sagði Hrafn. -SOS
Bankastjóri
Útvegsbankans:
„Töpum
verulegu
fea
Hafskip”
„Þetta er vafalaust pólitískt
mál. En hverjar skuldir Hafskips
eru við Otvegsbankann kemur eng-
um við. Auðvitað komum við til
með að tapa verulegu fé á þessum
viðskiptum við Hafskip. Hversu
miklu vitum við ekki nákvæmlega.
Hins vegar vitum við nokkurn veg-
inn hvert hámarkstapið getur orð-
ið,” sagði Olafur Helgason, banka-
stjóri Otvegsbankans, við DV í
morgun.
Olafur sagði aö allar tölur sem
fram hefðu komið í sambandi við
þetta mál, t.d. að Eimskip heföi
boöið útvegsbankanum 10 milljónir
dollara i Islandssiglingar Hafskips,
væru úr lausu lofti gripnar, aðeins
hugarfóstur fréttamanna.
„Bankinn er ekki að verða gjald-
þrota. Þaö hefur mjög borið á
hræðslu meðal viöskiptavina bank-
ans vegna þessa máls, sérstaklega
þeirra sem eiga sparifé í bankan-
um. Ríkisábyrgð er að baki rekstri
bankans, þannig að þessi ótti er
ástæðulaus,” sagði Olafur.
Viðræður verða í dag milli
Otvegsbankans og Eimskips,
vegna mögulegra kaupa félagsins
á Islandssiglingum Hafskips. „Það
getur vel verið að ákveðnir aðilar
innan Eimskips hafi ekki áhuga á
kaupunum en viðræður eru enn í
gangi þannig að einhver áhugi er
fyrir hendi,” sagði Olafur er hann
var spuröur um áhuga Eimskips á
kaupunum.
„Það er stórhættulegt að opin-
bera rekstur einstakra fyrirtækja.
Það getur haft mjög slæm áhrif á
stöðu þeirra. Auk þess veit ég að
mörg fyrirtæki hér á landi eru verr
stödd en Hafskip,” sagði Olafur.
KB.
Kennsluflugvélin fram af flugbraufinni í Mosfellssveit:
Óðu ískaldan sjó
150 metra í land
Tveir menn, flugkennari og flug-
nemi, sluppu án meiösla en blautir og
kaldir er eins hreyfils flugvél þeirra
fór fram af flugbrautinni í Mosfells-
sveit og 150 metra út í Leiruvog
síödegis í gær.
Flugmennirnir óöu sjálfir í land í
isköldum sjónum. Þaö var þeim til
happs hversu grunnur vogurinn er.
Flugvélin, TF-FTG, er tveggja sæta,
af gerðinni Cessna 152, eign flug-
skólans Flugtaks. Hún hafði verið í
kennsluflugi í nágrenni Reykjavíkur.
Er dimm él gengu yfir borgina lentu
mennimir í Mosfellssveit og ætluðu að
bíða þess að veðriö skánaði.
Eftir um hálftíma bið reyndu
mennirnir flugtak. Snjólag var þá
komið á flugbrautina, sem var blaut og
þung. Flugvélin náði ekki nægilegri
ferö, fór fram af brautinni og út í sjó.
Nokkrar skemmdir urðu á henni.
Skrúfa og framhjól bognuðu.
-KMU.
Flugvélin var dregin á land i gærkvöldi og seltan skoluð af henni.
DV-mynd S.
'K.mmrowfc
Magnús Kristinsson á heimili sínu í
gærkvöldi. Einn og sjá mé bar hann
nokkra áverka ef tir slysið i gær.
DV-mynd JGH
Tveirmenn
hættkomnirí
Ólafsfjarðarmúla:
„Ertu
lifandi?”
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
„Það var í rauninni ekki um
margt að hugsa þegar bíllinn fór
fram af brúninni. Við reyndum að
berjast við að gera eitthvað, gefast
ekki upp. Báðir hugsuðum við þó
það sama. Að þetta væri punktur-
inn yfir i-ið. Okkar síðasta ferð. En
fyrir kraftaverk stöövaðíst bíUinn í
hiíðinni, um 150 metra frá hengi-
flugi niður í sjó. Við iitum hvor á
annan og sögðum eitthvað sem
svo: Ertulifandi?”
Þannig sagðist Magnúsi Krist-
inssyni, sölumanni á Akureyri, frá
við DV í gærkvöldi. Hann, ásamt
Kristni Helgasyni sölumanni hjá
Þýsk-íslenska, var í Mitsubishi-bíl
sem fór út af veginum í Ölafsfjarö-
armúla þar sem hann er hvaö
hrikalegastun
Bíliinn geystist niður snarbratta
hlíðina. Hann fór á hjólunum 70—80
metra, en lenti þá á hafti og enda-
snerist tvisvar í loftinu og stöðv-
aðist. Framendinn vísaði upp í
hlíöina. Bíllinn dældaðist ekki
mikið.
„Beltin björguðu okkur"
„Við vorum báðir í beltum. Eg tel
engan vafa leika á þvi að þau
björguðu okkur,” sagði Magnús.
Hann sagði að eftir að bíllinn stöðv-
aðist hefðu þeir losaö sig úr beltun-
um og byrjaö að kUfa snarbratta
hlíðina.
, „Þegar við vorum komnir upp á
veginn hinkruðum við andartak.
Við ætluðum að athuga hvort ekki
kæmi bíll. Það kom enginn, og þá
ákváðum við að ganga til Dalvíkur
frekar en Ölafsfjaröar. Viö töldum
þaðstyttra.
Það var komin norðan steyta og
éljagangur og okkur orðið kalt. Við
ræddum það svona okkar á milU að
æðri máttarvöld hefðu verið að
verki.
Við gengum þá skyndilega fram
á slysavarnaskýlið sem er um 4—
500 metra frá þeim stað þar sem
við fórum niöur. Við fórum inn í
það og hringdum á hjálp. ”