Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1985, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1985, Blaðsíða 32
32 DV. FIMMTUDAGUR14. NOVEMBER1985. Jónína Tryggvadóttír Kvaran lést 5. nóvember sl. Hún var fædd á Mælifelli í Skagafiröi 2. október 1924, dóttir hjónanna séra Tryggva Kvaran og önnu Grímsdóttur Thorarensen. Eftir- lifandi eiginmaöur hennar er Olafur Kristjánsson. Þeim hjónum varð þriggja bama auðið. Síðustu árin starfaði Jónína hjá Fasteignamati ríkisins. Utför hennar verður- gerð frá Langholtskirkju í dag kl. 13.30. Árni Kristjánsson framkvæmdastjóri lést 10. nóvember sl. Hann fæddist í Reykjavík hinn 15. janúar 1923. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Franklín og Ingibjörg Ámadóttir sem lifir son sinn. Ámi hóf ungur að árum störf við fyrirtæki föður síns, vélsmiðju Kristjáns Gíslasonar. Þegar faðir hans féll frá 1958 gerðist Ami framkvæmdastjóri fyrirtækisins og gegndi því starfi til dánardægurs. Eftirlifandi eiginkona hans er Iöunn Heiðberg önundardóttir. Þau hjónin eignuðust þrjú börn. Utför Áma verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Rósa Jónasdóttir frá Þverdal í Aðal- vik, til heimilis að Rauðalæk 22, verður jarðsungin frá Laugameskirkju föstu- daginn 15. nóbember kl. 13.30. Sigurður Jónsson frá Haukagili, Víði- mel 35, veröur jarðsunginn frá Nes- kirkju föstudaginn 15. nóvember kl. 10.30. Leiðrétt jarðar- farartilkynning Þau leiöu mistök urðu í DV í fyrra- dag, að útfarardagur Arna Kristjáns- sonar framkvæmdastjóra, Rauöalæk 12, misritaöist. Sagt var að útförin færi fram á miðvikudag. Það er ekki rétt. Utförin verður gerð í dag, fimmludag, kl. 13.30. Hún fer fram frá Fossvogs- kirkju. DV biðst afsökunar á þessum mistökum. Ólöf Friðfinnsdóttir lést 5. nóvember sl. Hún var fædd 11. desember 1901, dóttir hjónanna Guðrúnar Olínu Svein- björnsdóttur og Friðfinns Kristjáns- sonar. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Jón Einarsson. Þeim hjónum varð fimm barna auðið. Utför Olafar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Torfi Guðbrandsson, Suðurgötu 12 Keflavík, verður jarösunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 16. nóvember kl. 14. Ásta Bjamadóttir, Grettisgötu 56, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. nóvemberkl. 15. Anna Stefánsdóttir, Reynimel 27, verður jarðsungin frá Neskirkju á morgun, föstudaginn 15. nóvember kl. 15. Ingibjörg Jónsdóttir frá Hvamms- tanga, Kleppsvegi 20, lést í hjúkrunar- heimilinu Droplaugarstöðum 12. nóvember. Steindór Gíslason, Flókagötu 6, lést í Borgarspítalanum 12. nóvember. Lára Elin Scheving Gísladóttir, Efri- Brunnastöðum, Vatnsleysuströnd, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju föstudaginn 15. nóvember nk. Fundir JC Árbær 3. félagsfundur JC Arbæjar verður haldinn í kvöld, 14. nóvember, kl. 20.30 í safnaðarheim- ili Arbæjarsóknar (við Rofabæ). A fundinum fer fram ræðukeppni Reykjavíkursvæðis. JC Arbær og JC Reykjavík keppa. Ársþing Fimleika- sambands íslands verður haldið í nýjum húsakynnum Iþrótta- sambands Islands og hefst föstudag 15. nóvember kl. 19.30 og verður fram haldið laugardaginn 16. nóvember kl. 10.30. Dagskrá samkvæmt lögum sambandsins. Stjórnin. Lífeyrissjóðurinn Hlíf heldur aðalfund sunnudaginn 17. nóvember og hefst hann kl. 14 að Borgartúni 18. Dagskrá: reglugerðabreyting og venjuleg aðalfundar- störf. Kirkjufélag Digranesprestakalls heldur fund fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20.30 í safnaðarheimilinu, Bjarnhóiastíg 26. Auk fastra liða mun Jóhanna Björnsdóttir sýna litskyggnur úr sumarferð félagsins og lesið verður dagbókarbrot frá dvöl nokkurra félaga í Hveragerði í sumar. Mætum öll og tökum með okkur gesti. Fræðslufundur Landfræðifélagsins Fyrsti fræðslufundur Landfræöifélagsins í vetur verður í dag, fimmtudaginn 14. nóvem- ber, kl. 20.30 í stofu 101 í Lögbergi, húsi laga- deildar Háskóla Islands. Þar mun Þorvaldur Bragason landfræðingur halda fyrirlestur sem nefnist: Loftmyndaflug og ioftmyndir þýska flughersins af íslandi maí til október 1942. Myndirnar, sem eru um 2000 að tölu, voru í bresku skjalasafni, en Landmælingar Islands fengu þær til skráningar og eftirtöku. 1 tengslum við skráningu og söfnun upplýs- inga var þekkingu safnað um eldri loftmyndir af Islandi. 1 maí sl. kom út skýrsla hjá Land- mæiingum Islands, fjarkönnunardeild, eftir Þorvald Bragason um þetta efni. STRANDAMEIUN - BREIÐFIRÐINGAR Átthagafélag Strandamanna og Breiðfirðingafélagið í Reykjavík halda sameiginlegt spila- og skemmtikvöld í Domus Medica föstudaginn 15. nóvember kl. 20.30. Skemmtinefndir. Sýningar Frumsýning hjá Skagaleikflokknum Föstudagskvöldið 15. nóvember kl. 20.30 frumsýnir Skagaleikflokkurinn breskan saka- máiagamanleik, sem ber nafnið „Margt býr í þokunni”, eftir William Morum og William Dinner. Þetta er 23. verkefni félagsins. Leik- stjóri er Sigurgeir Scheving. önnur sýning verður sunnudaginn 17. nóvember kl. 15.30. Vörusýningar á vegum Ferðamiðstöðvarinn- ar Ahugi Islendinga á erlendum vörusýningum fer vaxandi með ári hverju. Eigendur og framkvæmdastjórar fyrirtækja gera sér sífellt betri grein fyrir hvað það er mikilvægt að fylgjast vel með framleiðslu- og tækninýj- ungum og margir iðnrekendur og kaupsýslu- menn gera viðskiptasamninga sina einmitt á vörusýningum. Ferðamiðstöðin í Aðalstræti hefur frá árinu 1976 lagt mikla áherslu á góða þjónustu við þennan hóp ferðafólks og kemurnú enn á ný til móts við viðskiptavini sína með útgáfu á vörusýningabæklingi yfir sýningar 1986. 1 honum er að finna nöfn meira en 500 sýninga sem haldnar verða í 49 borgum víðs vegar í heiminum. Leitast var við að velja sýningar sem búast má við að Islendingar hafi áhuga á að sækja en að sjálfsögðu getur starfsfólk FM veitt upplýsingar um flestar sýningar sem haldnar eru. FM er umboðsaðili fyrir margar sýningar, s.s. allar sýningar sem haldnar eru í Köln, Diisseldorf og Frankfurt í Þýskalandi svo og í Birmingham í Englandi. Viðskiptavinir eru beðnir að panta eins snemma og kostur er. Það þýðir betri og ódýr- ari þjónustu og ánægjulegri samskipti fyrir alla aðila. Ferðamiðstöðin sér um að skipu- leggja ferðir og bóka hótel bæði fyrir hópa og einstaklinga. I mörgum tilfellum einnig sölu aðgöngumiða, en það á einkum við um þær sýningar sem Ferðamiðstöðin er umboðsaðili fyrir. Auk þess, sen nefnt hefur verið hér á undan, getur Ferðamiðstöðin útvegað öll gögn og pantað bása fyrir framleiðendur sem hyggjast kynna og selja íslenskar fram- leiðsluvörur á sýningum erlendis. Tilkynningar Borgarspítalinn fær tæki til rannsókna á vélinda Nýlega færði Kvennadeild Reykjavíkurdeild- ar Rauða kross Islands lyflækningadeild Borgarspítalans að gjöf tæki til síritunar sýrustigs í vélinda. Tæki þetta gefur mögu- leika á að rannsaka þátt magasýru í einkenn- um sjúklinga, s.s. brjóstverkjum, sem ekki skýrast af hjartasjúkdómum, o.fl. Einnig nýt- ist tækið við mat á hvort aðgerð við þindarsliti sé Ukleg til árangurs. Tækið mælir sýrustigs- breytingar í vélinda sjúklings yfir heilan sólarhring og skráir niður á tölvu. Þessa rannsókn er unnt að gera jafnt á sjúklingum utan spítala sem innan og mun því nýtast öllum. Tæki þetta er hið fyrsta sinnar tegundar á Islandi og gefur möguleika á rann- sóknartækni sem ekki hefur verið unnt að framkvæma hér til þessa en víða verið notuð erlendis. Háskólafyrirlestur Jorn Lund, prófessor í danskri málfræði við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn, flytur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskóla Islands og Det danske Selskap laugardaginn 16. nóvember 1985 kl. 13.00 í stofu 101 i Odda. Fyrirlesturinn nefnist „Fra Haegh-Guld- Fötuðu sigupp Tveir ungir menn voru handsam- aöir viö tískuverslunina Tangó viö Laugaveg um helgina eftir að hafa brotist þar inn. Mennimir voru á leið inn í bifreið með sjö fulla plastpoka af fatnaði. Þeir hafa ekki komiö við sögu hjá lögreglunni áður. -sos berg til Bertel Haarder. Danskfagets historie i Danmark með særligt henblik pá den aktuelle debat” og verður fluttur á dönsku. Jorn Lund er einn þekktasti núlifandi málvisindamaður Dana. Hann situr í dönsku málnefndinni og er einkar kunnur fyrir um- fjöllun sina um danskt mál í fjölmiðlum. Öllum er heimill aðgangur. Ýmislegt Jólakort Samtaka sykursjúkra Samtök sykursjúkra á Islandi hafa gefið út jólakort sem eru til söiu á skrifstofu samtak- anna í Reykjavík að Hverfisgötu 76, en siminn er 23770, og í Söluturninum, Bræðraborgar- stíg 29. Til sölu, auk kortanna, eru bæði kerti og jólapappír. Skrifstofa samtakanna er opin á mánudögum kl. 17.00—19.00. A þessu jólakorti Samtaka sykursjúkra er mynd eftir málverki Gísla Sigurðssonar, myndlistarmanns og umsjónarmanns Les- bókar Morgunblaðsins. Myndin er máluð við ljóð Snorra Hjartarsonar, Haust. Jólakveðjur á f jórum tungumálum eru á kortinu og merkt er greinilega að þau séu seld til ágóða fyrir Samtök sykursjúkra á tslandi. Tónleikar Aðrir tónleikar Anne Sophie Mutter í Háskólabíói Laugardaginn 16. nóvember kl. 14.30 heldur Anne Sophie Mutter aðra tónleika með Sinfóníuhljómsveit Islands undir stjórn Jean- Pierre Jacquillat. Á efnisskránni eru tvö verk: Sinfónía nr. 104 í D-dúr, Lundúna- sinfónían, eftir Joseph Haydn og Árstíðirnar eftir Vivaldi, þar sem Anne Sophie Mutter leikur einleik með strengjasveit Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Þessir tónleikar eru áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins í Reykjavík og um leið aðrir „Stjörnutónleikar” Sinfóníuhljómsveit- ar Islands. Orfáir miðar eru til sölu í Istóni, Freyjugötu 1, og Bókabúðum Lárusar Blöndals og Sig- f úsar Eymundssohar. Spilakvöld Jólabasar Eyfirðinga- félagsins verður á Hallveigarstöðum sunnudaginn 17. nóvemberkl. 14. Stjórnin. Félagsvist Föstudag 15. nóv. kl. 20.30, Skeifunni 17. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Húnvetn- ingafélagið. Kirkja Óháða safnaðarins heldur félagsvist í Kirkjubæ fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20.30. Góð verðlaun og kaffi- veitingar. Takið gesti með. Basarinn verður haldinn 7. desember. Upplýsingar um hann í sima 24846. Spilakvöld hjá Kársnessókn verður i safnaðarheimilinu Borgum föstudagskvöldið 15. nóvember kl. 20.30. Þjónustudeildin Basar kvenfélagsins Hreyfils verður sunnudaginn 17. nóvember kl. 14 í Hreyfilshúsinu. Selt verður kaffi, skemmtiatriði verða og flóamarkaður. Kvenfélag Hallgrímskirkju Basar félagsins verður haldinn í safnaðar- heimili kirkjunnar laugardaginn 16. nóvem- ber kl. 14. Margt eigulegra og góðra muna verður á boðstólum. Tekið verður á móti basarmunum í dag, fimmtudag, og föstudag milli kl. 15 og 20 eftir kl. 10 á laugardag. Kökur eru mjög vel þegnar. 60 ára afmæli á í dag, 14. nóvember, Daníel Guðmundsson vörubifreiða- stjóri frá Vestmannaeyjum, Furugerði 17 hér í bæ. Kona hans er Marta Hjartardóttir, Vestmannaeyingur. Hún verður sextug á sumri komanda. Þau eiga fimm börn. Daníel er að heiman. Tapað -fundið Clarius er týndur Hann er stálpaður kettlingur (angóra), svartur að lit, meö hvíta bringu og hvítar loppur. Hann er með gula ól, mjög loðinn. Ef einhver hefur orðið var við hann þá vinsam- legast látið vita í símum 19280 og 621599 eða látið vita á Dýraspítalanum eða hjá Katta- vinafélaginu. Budda tapaðist 9 ára stúlka varð fyrir því óláni að tapa buddu sinni sl. sunnudag, annaðhvort á Grettisgötu eða Hverfisgötu. Buddan er gul með mynd af stelpu á og í henni voru rúmar 200 krónur. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 621113. Fresskettlingur hvarf frá Sigluvogi Bröndóttur, stálpaður fresskettlingur hvarf fyrir viku frá heimili sínu, Sigluvogi 7. Allar nánari upplýsingar eru vel þegnar í síma 34010. BMX reiðhjól tapaðist Reiðhjól af gerðinni BMX með gulum púðum hvarf frá Grettisgötu 83 sunnudaginn 29. nóvember sl. Ef einhver getur gefiö upplýs- ingar um hjólið, þá vinsamlegast hringið í sima 79248. Högni í óskilum Svartur og hvítur högni, ca 8 mánaða, er í óskilum í Brúnalandi 18, sími 38688. Hann er ómerktur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.