Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1985, Blaðsíða 3
DV. FIMMTUDAGUR14. NOVEMBER1985. 3 LfVskjarasamningurínn: Ríkisstjórn- ■ ■ B »r mni ber að hlusta á slík- ar hugmyndir I f jármálaræöu sinni nefndi fjár- málaráðherra fram komnar hug- myndir um allsherjarsáttmála launafólks, atvinnurekenda og ríkisvalds. Hann taldi að ríkis- stjóminni væri bæði rétt og skylt aö hlusta á slíkar hugmyndir. Hann sagði þó að slíkir samn- ingar yrðu að taka hliðsjón af nokkrum atriðum. „I fyrsta lagi aö þeir aðilar, er hlut eiga að máli, nái samkomulagi um kaupmátt eða lífskjarastig, sem aðilar reyna aö verja með tilteknum aðgerðum. I öðru lagi yrði við það miðað að kjarasamningar yrðu ekki til þess að auka verðbólgu og skuldasöfn- un.” Þá sagði fjármálaráðherra aö ekki væri hægt að gera slikan samning nema öll stærstu heildar- samtök yrðu með. „I þessu efni getur ekki gilt eitt fyrir launafólk á almennum markaði og annað fyrir opinbera starfsmenn,” sagði ráð- herrann. APH Námslánin í endurskoðun Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fjármál Lánasjóös ís- lenskra námsmanna veröi endur- skoðuð. Fjármálaráöherra skýrði frá þessu í fjármálaræðu sinni. Hann sagði að sjóðurinn væri nú orðinn annar stærsti lánasjóður í fjárlög- um á eftir Byggingarsjóði ríkisins. Utvegun fjár til sjóðsins á næsta ári verður 1,1 milljarður króna. Þar af 750 möljóna fjárveiting og 350 milljóna lántaka. Fjármálaráðherra taldi aö þessi útvegun fjár til sjóðsins kallaði á endurskoðun á reglum um úthlutun námslána.___________APH Félagáhugamanna um gamla miðbæinn: Davíð stýrir stofnfundi Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíö Oddsson, verður fundar- stjóri á stofnfundi félags áhuga- manna um gamla miöbæinn, sem haldinn verður á Hótel Borg í kvöld. Fundurinn hefst klukkan 20. Athygli vekur að í hópi frum- mælenda eru tveir frambjóðendur i prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, þeir Vilhjálmur Þ. Vil- hj álmsson og Arni Sigf ússón. Þriðji frummælandinn er Gunnar Hauks- son verslunarmaöur. Þeir sem áhuga hafa á því aö gamli miöbærinn haldi velli og mannlíf veröi þar sem blómlegast eru af fundarboðendum hvattir til að mæta. -KMU. Akranes: 30 ára afmæli Tónlistarskólans Haraldur Björnsson, fréttaritari DV á Akranesi: Um þessar mundir eru liðin 30 ár fijá stofnun Tónlistarskóla Akra- ness. Skólinn var stofnaður 2. nóvember 1955 af tónlistarfélagi staðarins. Fyrsti skólastjórinn var frú Anna Magnúsdóttir, sem gegndi því starfi fram til ársins 1960. Þá tók við stjórn Haukur Guðlaugsson og stjórnaði skólanum til ársins 1974. Síðan hafa Þórir Þórisson, Jón Karl Einarsson og núverandi skólastjóri, Lárus Sighvatsson, verið skólastjórar. 1 tilefni þessara timamóta efndi skólinn til tónleika í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 9. nóvember. Sigluf jarðartogarinn Sveinborg boðinn upp á morgun: Vanskil innan við 5 milljónir , ,Við erum að gera okkur vonir um aö uppboðinu verði frestað. Annars munum við óska eftir öðru uppboði eftir tvo mánuði,” sagði Sæmundur Arelíusson á Siglufirði, útgerðar- maður togarans Sveinborgar SI—70. Nauðungaruppboö hefur veriö augiýst á togaranum á morgun, föstudag. Á það að hefjast á skrif- stofu bæjarfógetans á Siglufirði klukkan 14. „Þaö er engin spurning að við munum vinna okkur út úr þessu. Þetta er ekkert í líkingu við Kolbeinsey eða aðra þá togara sem boðnir hafa verið upp að undanförnu. Hér er verið að tala um mjög lágar upphæðir,” sagði Sæmundur. „Skipið lá bundið frá áramótum fram í júní. Það er verið að vinna sig úrþeimvanda. Það hvíla á þessu skipi 65 milljónir króna. Fiskveiðasjóður á 27 milljónir og það eru tíu aðilar fyrir aftan hann. Uppboðsbeiðnir hljóöa upp á innan við 30 milljónir. Þar af eru í vanskilum innan við fimm milljónir. Þetta er meira togstreita á milli banka og sjóðsins heldur en að verið sé að ganga að skipinu. Matið á skipinu er 70 milljónir,” sagði Sæm- undur Arelíusson. -KMU: Sæmundur Áreliusson útgerðar- maður: „Engin spurning að við munum vinna okkur út úr þessu." JÓLATILBOÐ NR.1 METSÖLUSAMSTÆÐAN FRÁ TECHNICS SYSTEM Z-100 er mest selda Techmics hljómtækjasamstæöan á íslandi í dag. Ástæðurnar fyrir vinsældum hennar eru margar og augljósar. Plöstuspilarinn er meö hinu fullkomna og nákvæma 4TP pick-up kerfi. Kröftugur 70 watta magnari, útvarp með FM-steríó, LB, MB, kassettutækið er með snertitökkum, nákvæmum fluorcent mælum og að sjálfsögðu Dolby kerfi. Tveir 100 watta hátalarar sjá svo um hljóminn. Ekki spillir glæsilegt útlit en tækin eru í vönduðum skáp með lituðu gleri og á hjólum. Nú gefst ykkur enn tækifæri til þess að eignast þessa frábæru hljómtækjasamstæðu á einstöku jólatilboðsverði. Rétt verð 48.370,- JÓLATILBOÐ 35.930.- m ■BJAPIS BRAUTRHOLT 2 SlMI 27133.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.