Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1985, Qupperneq 4
4
DV. FIMMTUDAGUR14. NOVEMBER1985.
Bresk dagblöð komust í feitt:
Velta sér upp úr hneykslum
vegna Miss World keppninnar
EXPOSED: Iniide story of the shotvbiz dynasty that turned TV beauty contest into a farce
m^OFMISS
WORLD
BOSSES
• Spies dig the • Insiders rake • Morley boy
dirt on girls to in a fortune on bends rules to
warn judges betting coups woo beouties
"My Mum likes
the low prices.
I want to win
a bicyde'.'
mmm®
Mepbrts Your Ifo 1 chotce
■VíTrr'íí.13
Opnan i News of the World, þar sem fjallað er um eigendur Miss World keppninnar. og hvernig þeir láta
njósna um stúlkurnar sem taka þátt.
Ungfrú heimur verður kjörin í
kvöld í London og svo viröist sem
bresku æsifréttablöðin hafi ekki áður
komist í jafnfeitt mál. Þau eru upp-
full af slúðri, afhjúpunum og einka-
málasögum um keppendur, eigendur
Miss World og um fyrrverandi kepp-
endur.
Eins og fram hefur komið á ungfrú
Island , Hólmfríður Karlsdóttir,
mikla möguleika á sigri. Bretar
veðja svo stíft á hana að hún er nú
orðin efst á lista veðmangara og hef-
ur þá ýtt ungfrú Bretlandi í annað
sæti.
Bresku blöðin kalla Hólmfríði bara
Hofie eða Niceland. En hún má kall-
ast heppin að hafa ekki lent verr í
blöðunum. Margar stallsystur henn-
ar frá öðrum löndum hafa mátt þola
aðdróttanir af hinu rætnasta tagi í
bresku uppsláttarblöðunum. Verstu
útreiðina fá þó skipuleggjendur
keppninnar, hjónin Eric og Julia
Morley. Jafnvel hið virðulega blaö
Sunday Times í London segir frá því
að Júlía hafi verið orðuð við sendi-
mann frá Guatemala og nefnir í leið-
inni að hún hafi ýmist verið kölluð
frú heimur, frú skírlífisbelti og nú
síðast sniðuga Julia.
News of the World, eitt svæsnasta
æsifréttablað á Bretlandseyjum, og
er þá mikið sagt, veltir sér upp úr
viðtali sem það segist hafa átt við tvo
fyrrverandi starfsmenn keppninnar,
Eddie Crozier og Ray Millross.
I viðtalinu segja þeir að Eric
Morley geti í raun valið sér sigurveg-
ara. „Eric getur auðveldlega haft
áhrif á meirihlutann og fengið hann
til aö taka sínum ráöum,” segir Ray.
Ungfrú ísland
Ýmsar sögusagnir ganga um son
Morley hjónanna, Julian Morley.
Hann á að hafa gerst fullnærgöngull
við sumar stúlkurnar. News of the
World hefur eftir Ray að öryggis-
verðir keppninnar hafi orðið pirraöir
þegar Julian reyndi að fá nafn-
greinda ungfrú Island fyrir einhverj-
um árum til við sig. „Þegar Eric
komst að því að Julian hefði tekiö
hana heim um nóttina varð hann
mjög reiöur,” hefur News of the
World eftir Ray.
Ray segir síöan aö Julian hafi fall-
ið fyrir Kimberly Santos, ungfrú
Guam, sem varð ungfrú heimur árið
1980 eftir að önnur stúlka varð aö af-
sala sér titlinum vegna mikils
hneykslismáls.
Með skírlífi á heilanum
Það hneyksli, segja blöðin, átti eft-
ir að hafa þau áhrif að Morley-hjónin
fengu skírlífi stúlknanna í keppninni
á heilann. News of the World segir að
þau geri út njósnara sem hleri hvort
nokkuð í fortíð stúlknanna geti orðið
keppninni til hneisu. Stelpurnar
mega ekki hafa gifst eða átt barn,
helst ekki drekka eða neyta eitur-
lyf ja og þær mega alls ekki hafa leik-
ið í kynsvallsmyndum.
Glæpur stúlkunnar, sem kjörin var
ungfrú heimur árið 1980, Gabriellu
Brum frá Þýskalandi, var að hafa
látið taka mynd af sér nakinni, leikið
í klámkvikmyndum og búið með
klámkvikmyndaframleiöanda.
Júlía Morley vissi um þessa fortíð
stúlkunnar en ákvaö aö láta þá vitn-
eskju liggja milli hluta. Þegar svo
stúlkan vann titilinn liðu ekki nema
nokkrir klukkutímar þangað til upp
komst um kvikmyndaleik stúlkunn-
ar. Hin nýkrýnda ungfrú heimur
varð að láta krúnuna af hendi og við
henni tók Kimberly Santos frá
Guam.
Veðmál
I Bretlandi eru alltaf í gangi mikil
veðmál í sambandi við keppnina og
Ray og Eddie segja að starfsmenn
keppninnar græði stundum grimmt á
þeim. Þeir tveir hafi til dæmis unniö
allt að 4.000 pund (240.000 kr.) þegar
Wilnelia Merced frá Puerto Rico
sigraöi árið 1975. Þeir hafi vitað fyrir-
fram að hún hefði allt það til að bera
sem þurfti til að sigra. „Hún var 18
ára gömul, hrein mey og var ekki lík-
leg til að valda neinu hneyksli.”
Þeir kumpánar segja að Julian
títtnefndi hafi einnig veðjað á líklega
sigurvegara og grætt vel.
Morley „á" keppnina
Eric og Julia Morley hafa „átt”
keppnina um ungfrú heim síðan 1983.
En þau hafa rekiö hana síðan Eric
stóð fyrir fegurðarsamkeppni áriö
1951 í sambandi við hátíöina „Festi-
val of Britain”. Árið eftir héldu
Bandarikjamenn keppnina um „ung-
frú alheim” og Morley stóðst ekki
mátiö og hélt aðra keppni og síðan
hefur þessi fegurðarsamkeppni orðið
árlegur viðburður.
Eric Morley hitti konu sína, Júlíu,
fyrir 16 árum þegar hann var fertug-
ur en hún 16 ára. Júlía hefur síðan
haft umsjón með keppninni með
manni sínum.
Hún kvartar yfir að blöðin hafi
bara áhuga á því neikvæða í kringum
keppnina: „Skrifa blöðin nokkurn
tíma um það góöa sem við gerum. I
mitt hús hafa komið fleiri en 60 böm
sem hafa verið að bíða eftir upp-
skuröiíEnglandi.”
Hún segir að yfirlýsingar í blööun-
um komi henni illa en að þær séu
bara tal öfundarmanna.
Hún neitar að tala um sögusagn-
irnar um samband sitt við suöur-
ameríska sendimanninn en segir að
sú saga sé bara ein af fjölmörgum:
„Við hjónin höfum fengið kúgunar-
hótanir í heilt ár núna og stundum
hefur síminn hringt vegna þessa
fimm sinnum á nóttu. Þeir sem
hringja segjast munu skýra frá hinu
og þessu um okkur. Þetta hefur verið
einmartröð.”
j dag mælir Pagfari______________I dag mælir Dagfari___________j dag mælir Dagfari
Frumvörp til fjárlaga
Fjárlagafrumvarpið kom til um-
ræðu á þriðjudaginn. Þingmönnura
var ekki ljóst hvaða fruravarp var á
dagskrá. Uraræðan varö eftir því.
Upphaflega lagði fyrrverandi fjár-
raálaráðherra, Albert Guðmunds-
son, fram frumvarp strax í október.
Þingflokkur sjálfstæðismanna hafði í
fyrstu samþykkt framlagningu þess
en lýsti síðan yfir frati á það jafn-
skjótt og Albert hafði sýnt það. Hinn
stjórnarflokkurinn hafði einnig lagt
blessun sína yfir frumvarpið og var
því meðmæltur. En Framsókn var
einnig raeðmælt því að frumvarpinu
yröi breytt, þannig að Framsókn var
bæði með og móti eins og hennar er
vandi.
Stjómarandstæðingar vom stráx
á móti framvarpi Alberts en á sama
tíma era þeir afar gramir yfir því að
stjórain hyggist breyta frumvarpinu
og hafa farið í fýlu af þeim sökum.
Þeir segja framvarpið ómark, og
þeir segja einnig að það sé ómark ef
ríkisstjórnin ætlar að breyta því.
Það var í þessu andrúmslofti sem
nýi fjármálaráðherrann flutti fram-
söguræðu sína á þriðjudaginn. Hann
tók þann kostinn að ræða framvarpið
eins og það mun líta út ef gerðar verða
á því breytingar, og eins ræddi hann
frumvarpið ef ekki verða gerðar á
því breytingar.
Allt var þetta nokkuð flókið og
ekki fyrír alraenning að skQja. Samt
sem áður bauð Ríkisútvarpiö hlust-
endum sínum að fylgjast með þess-
ari kúnstugu umræðu. Ráðherrann
talaði sem sagt um framvarpið eins
og það verður en ekki cins og það er.
Stjómarandstæðingar vildu ekki tala
um frumvarpið eins og það er og
heldur ekki um það eins og það
verður. Samt var umræðum haldið
áfram fram eftir degi og þingmenn
samþykktu með handaruppréttingu
að útvarpið fengi að gera umræðun-
um skil í beinni útsendingu.
Óneitanlega er það nýlunda fyrir
þjóðina að fá að hlýða á umræður um
eitthvað sem þingmenn vita ekki
hvað er. Og þjóðin ekki heldur. Yfir-
leitt er þetta þannig að þingmenn
halda uppi umræðum um eitthvað
sem þeir halda að þeir viti hvaö er
þótt þjóðin botni hvorki upp né niður
í því hvað það er. Slíkura umræðum
er á stundum útvarpað og kallaðar
eldhúsdagsumræður. Nú var hins
vegar útvarpað frá málfundi, þar
sem hvorki þingmenn né þjóöin vissu
hvað var. Sjálfsagt telst þetta til
framfara í pólitíkinni vegna þess að
það hefur oft ruglað menn í rírainu
að standa í þeim misskilningi að þeir
viti hvað þeir eru að fjalla um. Nú
var því ekki tU að dreifa og er það
mikiU kostur.
Pólitikin er nefnUega komin á það
stig að það er miklu betra þegar
þingheimur viöurkennir það hrein-
lega í upphafi að málið, sem verið er
að fjalla um, sé alls ekki á dagskrá
eða þá hitt að þar sem það sé mark-
leysa sé útiiokað að ræða það. Og
byrja svo að ræða það. í beinni út-
sendingu.
Ekki er að efa að virðing kjósenda
fyrir þingmönnum sínum og ríkis-
stjórn mun aukast að mun við þessa
þróun mála. Þingmönnum er greiði
gerður af útvarpinu þegar þeim gefst
kostur á að tilkynna það f áheyrn al-
þjóðar að frumvarpið, sem er á dag-
skrá, sé ekki á dagskrá. Og þjóðinni
er mikill greiði gerður með því að fá
upplýsingar um að verið sé að út-
varpa fjárlagaumræðu sem ekki er
fjárlagaumræða. Stjórnarandstaðan
vill ræða frumvarpið eins og það er
en ekki eins og það á að vera. Og
stjóraarUðið vill ræða framvarpið
eins og það á að vera en ekki eins og
það er. Þetta er sniðug aðferð til að
koma því að sem ekki þarf að tala
um og tala um það sem menn vilja
tala um en ekki það sem þeir eiga að
tala um. Eða þannig sko.
Dagfari.