Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Qupperneq 5
DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. 5 Hræódýr, sænsk súrefnistæki i fiskeldisstöð vamar: Undratæki tvöfalda seiðaframleiðslu Súrefnisdælur eru nú að ryðja sér til rúms í íslenskum fiskeldisstöðv- um. Þetta eru slík undratæki að auka má seiðaframleiðslu á rúm- metra um 75-100%. Kostnaðurinn er hins vegar sáralítill. Sem dæmi má nefna að hjá íslandslaxi hf. í Grindavík kostuðu súrefnistækin um tvær milljónir króna en með þeim eykst framleiðslan úr 500.000 seiðum i 850.000-1.000.000 seiði á ári. Sams konar tæki er nú verið að setja upp í Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði og hjá Silfurlaxi hf. í Ölfusi. Þessi súrefnistæki eru sænsk, frá EWOS. Samkvæmt heimildum DV eru þetta einu tækin sem fást í heilu kerfi enn sem komið er. Notkun súrefnistækjanna er ný af nálinni. Upphaflega áttu þau einkum að spara orku þar sem skortur er á vatni. En hér duga þau sérstaklega til þess að tvöfalda nýtingu á aðstöðu til seiðafram- leiðslunnar. Gífurleg aukning er í framleiðslu á laxaseiðum hér á landi. Markaðir eru miklir í Noregi og á Bretlands- eyjum. Ekki er þó fullvíst að þeir standi opnir fyrir innflutningi, sérstaklega Noregsmarkaðurinn. Einna ólíklegast þykir þó að hon- um verði lokað fyrir íslenskum seiðum. Sjúkdómar eru hér minnst- ir. Verð á gönguseiðunum getur verið ákaflega breytilegt. Nefndar eru tölur allt frá 20 krónum á seiði og upp í 120 krónur. .1 aunhæfast þykir að tala um 30-40 Krónur fyrir seiðið þegar mikið magn er selt, eins og nú stendur til. HERB Peningaskáp stolið frá KRON Stórum peningaskáp var stolið úr verslun KRON í Fellagörðum í Breiðholti aðfaranótt síðastliðins laugardags. Samkvæmt upplýsingum Rannsóknarlögreglu ríkisins er talið að í skápnum hafi verið um 60 þús- und krónur í reiðufé en einnig kredidkortanótur og ýmsir reikning- ar. Innbrotið er óupplýst. Það er þó vart talið á eins manns færi að flytja hinn þunga peningaskáp. -KMU. Brotist inn í líkams- rækt Það voru ekki allir ánægðir með ástand líkama síns í fyrrinótt. Fimm menn voru handteknir þegar þeir voru búnir að brjótast inn í Líkams- ræktarstöðina við Ánanaust 15. Grunur leikur á að þeir hafi ekki ætlað eingöngu að taka léttar æfing- ar til að styrkja líkam- ann heldur brotist inn til að næla sér í verð- mæti. Þá var maður, sem tengdist innbrotinu, handtekinn rétt við inn- brotsstað, grunaður um ölvun við akstur. -SOS Þrengd fóstur- eyðinga — mæðralaun aukinístaðinn Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér að heimild til fóstureyðinga verði þrengd. í frum- varpinu er gert ráð fyrir að felld verði niður félagsleg ástæða fyrir fóstu- reyðingum. Það eru fjórir þingmenn Sjálfstæð- isflokksins sem leggja fram þetta frumvarp, Þorvaldur Garðar Kristj- ánsson, Salome Þorkelsdóttir, Egill Jónsson og Ámi Johnsen. Þeir segja það vera skoðun sína að félagslegar ástæður eigi ekki að réttlæta fóstureyðingu. í fyrsta lagi eru félagslegar ástæður ákaflega rúmt og teygjanlegt hugtak. í öðru lagi á að bæta úr félagslegum ástæð- um með öðrum hætti en að tortíma mannlegu lifi. Þess vegna hafa þessir sömu þingmenn lagt fram annað frumvarp sem gerir ráð fyrir því að mæðralaun verði hækkuð. Með einu barni verði þau 50 þúsund krónur á ári, 75 þúsund með tveimur og 125 þúsund með þremur og fleiri börnum. í greinargerð með fyrra frumvarp- inu kemur fram að fóstur- eyðingar hafa stórlega aukist undanfarin ár. Árið 1965 voru 68 fóstureyðingar og 1984 voru þær komnar upp í 730. Lög um fóstur- eyðingar voru sett 1975 og voru á því ári 274. Þá segir að nú sé svo komið að níu af hverjum tíu fóstureyðingum séu framkvæmd- ar vegna félagslegra ástæðna. APH FISHER með einföVd eðatvöföldu segulbar|di. Frabært sett! System 300 hefur alla hluti aðskilda: Sysfiem 300 Megnarl CA-30i 2x25 sínusvött. „Auto-loudness". Utvarp FM-30. FW-LW-MW. Sterfó/mónó- skiptlr fyrlr FM-bylgJuna. Plotuspilara, magnara, útvarp og segulband. Plötuspllarl MT-30i Hálfsjáifvlrkur. Relmdrlflnn. Segulband CR-30i Metal-, Crom-, og Normal- stilllngar. Dolby Nr. Snertltakkar. hraðspólun. Record mute-stilllng. vegna velheppnaðrar hönnunar er verðið mun lægra, en búast mætti við. Hatalaran Frábærir 3 way-hátalarar. 50 sínusvött. Frábær hljómur. Skápuri Glæsllegur svartur viðarskápur, með glerhurö og glerloki, á hjólum SJÓNVARPSBÚDIN Lágmúla 7 — Reykjavík Sími 68 53 33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.