Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Qupperneq 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Sennilega er hún ekki lífshaettuleg þessi íssósa en bráðum er komið ár síðan hún var upp sitt besta! Þetta er of gömul vara til þess að selja á sértilboðsverði. Eigum mikið úrval af hægindastólum og stök- um stólum á þægilegu verði. Einnig sófasett og gler- borð. Bjóðum góð greiðslu- kjör. Ú RVAL AF HÆGINDASTÓLUM Hvaðmerkir „best fyri?’? Varan er neysluhæf eftir dagsetninguna en hef ur misst f erskleikann „Við erum að vinna að nýjum reglu- gerðum um óæskileg efni í matvæl- um og þá verða einnig settar reglur um dagsetningamerkingar," sagði Jón Gíslason, fulltrúi hjá Hollustu- vernd ríkisins, í samtali við DV. „Þegar síðasti söludagur er merkt- ur á vöru fer ekki milli mála við hvað er átt. Þá er bannað að selja vöruna eftir þann dag. Dagsetningin „best fyrir“ er meira fljótandi. Vöru sem er þannig merkt má selja á til- boðsverði nokkru eftir dagsetning- una - þó varla lengur en 3 mán. Framleiðandinn ábyrgist gæði vörunnar fram að dagsetningunni. Varan getur haft mun lengra geymsluþol þótt gæðin séu ekki eins og í fyrstu. Má nefna t.d. hrökkbrauð sem oft er merkt með „best fyrir dagsetningu". „Það er allt í lagi að borða það eftir dagsetninguna en það er ekki eins ferskt. Vörurnar eru neysluhæf- ar en ekki hættulegar," sagði Jón Gíslason. Athygli okkar var vakin á íssósu sem var „best fyrir“ febrúar og mars sl. og í sömu verslun sáum við einnig kaffi sem hafði „geymsluþol" þar til í júní sl. Samkvæmt ummælum Jóns Gísla- sonar - og okkar eigin áliti - eru þetta alltof gamlar vörur til þess að vera boðnar til sölu, þótt á tilboðs- verði sé. Verslunarstjórinn ætlaði að fjar- lægja þetta úr versluninni. Hann sagði okkur að kaffið væri nýkomið þangað. Þá hlýtur innflytj- andinn að hafa á takteinum skýring- ar á því hvers vegna hann afgreiðir „útrunnið" kaffi til verslana. Við hvetjum neytendur til þess að halda vöku sinni og kaupa ekki vörur sem eru með útrunnum dag- stimpli. JÓLAGJAFA- ÓSKAUSTI Jólamánuðurinn er runninn upp og bömin kannski fyrir löngu búin að ákveða hvers þau óska sér í jólagjöf. Það getur verið gott að skrifa niður á lista jólagjafaóskimar, ekki síður fyrir fullorðna fólkið heldur en bömin. Það er oft eins og óskimar séu alveg gleymdar þegar einhver spyreftir þeim! Því kemur hér ágætis jólagjafalisti sem hægt er að skrifa óskimar sínar á. Merkið síðan listann vel og vandlega og geymið hann á áberandi stað. A.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.